Morgunblaðið - 13.11.1992, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992
■S/zy
o Prófa&u næshx.."
Hámenntaður prófessor átti
fuglinn ...
Ast er..
&-I3
... upphaf varanlegs
sambands
TM Reg. U.S Pat Off.—all rights reserved
® 1992 Los Angeles Times Syndlcate
Hér er þjónunum bannað að
ræða stjórnmál við gestina ...
HÖGNI HREKKVÍSI
IHarðttttMit&fö
BRÉF TIL BLAÐSINS
Aðalstræti 6 101 Reylgavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
Víðáttulistaverk
eða náttúruspjöll?
Frá Gunnlaugi Þórðarsyni
í Morgunblaðinu 24. f.m. var skýrt
frá því að óvænt hefði fundist at-
hyglisvert víðáttulistaverk í Jök-
ulsárgljúfri, málað á 10—12 metra
háan hamravegg gljúfursins.
Sjálft listaverkið sýnir ættartré
Völsunga með fomu letri, þar sem
hver bókstafur er 40—100 sm á
hæð og eru efstu stafimir í um 6
m hæð frá jafnsléttu. Þama birtist
ættartala Sigurðar Fáfnisbana.
Verkið ber með sér að þeir sem
hafa unnið það bera mikla virðingu
fyrir forn-germanskri menningu
og hafa lagt mikla alúð og vandv-
imi í vinnuna, því verkið kemur
glæsilega í Ijós handan jökulfljóts-
ins. Listamennirnir heita Gerard
Lentik, sem er myndhöggvari, og
Reinout van der Bergh. í fyrstu
unnu listamennimir mikið víðáttu-
listaverk á sandbakka neðan við
hamraveginn, en áin mun hafa
skolað þvf burt. Tveimur ámm
eftir að verkið var unnið, árið
1987, gáfu þeir félagarnir út bók
um verk sitt, en þeir kölluðu lista-
verkið: Upptyppingar.
í sjálfu sér má segja að þessi
gjömingar listamannanna hafí
verið skemmtileg hugdetta og beri
vott um virðingu fyrir hinni fomu
menningu. Hins vegar hefðu þeir
átt að sækja um leyfí til þess að
vinna verkið, ekki síst þar sem
Jökulsárgljúfrið er friðað.
Listamönnunum er aftur á móti
til afsökunar að hvergi sést, að
því er ég best veit, að um náttúm-
friðun sé að ræða á þessum slóð-
um. Þess vegna nær það ekki
neinni átt að höfða mál gegn Hol-
lendingunum fyrir brot gegn nátt-
úruvemdarlögum, auk þess sem
sökin er löngu fymd. Með slíkum
aðgerðum verðum við okkur til
athlægis á heimsvísu. Enn síður
kemur til greina að krefja lista-
mennina um bætur.
Mér er nær að halda að þetta
listaverk geti orðið til þess að
draga erlenda ferðamenn að, ekki
síst Hollendinga. Mér er minnis-
stætt að fyrir mörgum áram sagði
mér hollenskur vinur minn, sem
komið hafði til landsins í mörg ár,
að Hollendingar mættu öfunda
íslendinga af öllu gqótinu sem hér
fínnst. I því væri fólgið efni í
margs konar listaverk og honum
varð að draumi sínum. Óneitan-
lega er það umhugsunarefni hve
þessi uppákoma hefur komið upp
um sofandahátt Náttúmvemdar-
ráðs og vissulega þarf að koma í
Náttúruspjöll í Jökulsárgþ'úfri
veg fyrir að slík leyfíslaus listsköp-
un erídurtaki sig.
GUNNLAUGUR ÞÓRÐARSON
Bergstaðastræti 74a, Rvík.
í samræmi við stjórn-
skipunarhugmyndir
Frá Birni S. Stefánssyni
Því hefur undanfarið verið haldið
fram, að þjóðaratkvæðagreiðsla
sé ekki í samræmi við stjómskip-
unarhefð íslendinga. Vitaskuld er
ekki að búast við sterkum hefðum
hjá unglingi eins og íslenzka ríkið
er. Hitt má fullyrða, að þjóðarat-
kvæðagreiðsla með lagagildi hefur
verið í samræmi við hugmyndir
ráðamanna um stjómskipun lands-
ins. Það kemur skýrt fram í
skýrslu stjómarskrámefndar um
endurskoðun stjómarskrárinnar
sem ég varð mér úti um í forsætis-
ráðuneytinu.
Nefndin fjallaði um stjómar-
skrána grein fyrir grein, þ. á m.
26. grein um staðfestingu forseta
á samþykktu lagafmmvarpi. Hún
er svofelld: „Ef Alþingi hefur sam-
þykkt lagaframvarp, skal það lagt
fyrir forseta lýðveldisins til stað-
festingar eigi síðar en tveim vikum
eftir að það var samþykkt, og
veitir staðfestingin því lagagildi.
Nú synjar forseti lagafrumvarpi
staðfestingar, og fær það þó engu
að síður lagagildi, en leggja skal
það þá svo fljótt sem kostur er
undir atkvæði allra kosningabærra
manna í landinu til samþykktar
eða synjunar með leynilegri at-
kvæðagreiðslu. Lögin falla úr
gildi, ef samþykkis er synjað, en
ella halda þau gildi sínu.“
Stjómarskrárnefnd lagði til að
í stað þessarar greinar kæmi: „Ef
Alingi hefur samþykkt lagafram-
varp, skal það lagt fyrir forseta
eigi síðar en þremur vikum eftir
að það var samþykkt. Aður en
forseti tekur ákvörðun um stað-
festingu framvarpsins, getur hann
óskað eftir því að um það fari fram
þjóðaratkvæðagreiðsla. Þjóðarat-
kvæðagreiðslan skal þá fara fram
innan tveggja mánaða frá því að
ósk um hana var borin fram. Sé
framvarpið þar fellt, er forseta
heimilt að neita að staðfesta það.
Sé það samþykkt, skal forseti
staðfesta það.“
Nefndin taldi eðlilegra, að for-
seti geti óskað eftir þjóðarat-
kvæðagreiðslu áður en hann tekur
ákvörðun um það hvort hann stað-
festir það eða ekki, því að ella
þurfi „forseti og meirihluti þings
að standa að þjóðaratkvæða-
greiðslunni sem andstæðingar“.
Ekki þarf frekari vitna við
umeinróma afstöðu stjórnarskrár-
nefndar.
Annað mál er það, að forseti
er ekki endilega að lýsa sig andvíg-
an samþykkt Alþingis með mál-
skoti til þjóðarinnar. í því þarf
ekki að vera fólgið annað álit en
að um svo mikilsvert mál sé að
ræða að þjóðin skuli öll taka
ábyrga afstöðu til þess.
BJÖRN S. STEFANSSON
Vesturvallagötu 5, Rvík.
Víkveiji skrifar
Stjómmálamenn lofa stundum
meira en þeir geta nokkurn
tíma staðið við þegar þeir heyja
kosningabaráttu. íslendingar era
oft ótrúlega umburðarlyndir gagn-
vart sviknum kosningaloforðum
en erlendis hefur stjórnmálamönn-
um stundum orðið hált á að lofa
of miklu. Síðasta dæmið er um
Bush Bandaríkjaforseta sem hét
Bandaríkjamönnum því fyrir fjór-
um áram að hann myndi ekki
leggja á neina nýja skatta. Þetta
loforð sveik Bush og það átti stór-
an þátt í að hann náði ekki endur-
kjöri.
Þegar Bill Clinton hóf baráttu
sína fyrir að ná kjöri sem Banda-
ríkjaforseti gaf hann hástemmd
loforð um ýmis konar efnahagsað-
gerðir sem engin von var til að
gætu staðist. í lok kosningabarátt-
unnar kepptist Clinton við að
draga í land, væntanlega til að
forðast að standa í sömu sporam
og Bush eftir fjögur ár.
xxx
Víkveiji dagsins býr í nágrenni
Sundhallarinnar og hefur
löngum litið á hana sem sundlaug-
ina sína. Fyrir nokkram árum var
komið þar upp góðri aðstöðu fyrir
börn og síðan hefur Víkveiji átt
þar margar góðar stundir með fjöl-
skyldu sinni eftir vinnu- og skóla-
tíma.
En nú virðist sem verið sé mark-
visst að flæma venjulega sund-
laugargesti úr Sundhöllinni. Að
minnsta kosti hefur fjölskylda Vík-
veija ákveðið að leita á önnur mið
því Sundhöllin er farin að loka
barnadeildinni um klukkan hálf
sex á daginn vegna þess að þar
fer fram sundleikfimi eldri borg-
ara. Víkveiji hefur nokkrum sinn-
um reynt að leika við börnin sín
í almennu deildinni innan um þá
sem era að að synda 200 metrana
og komist að þeirri niðurstöðu að
það sé ekki eftirsóknarvert. Til að
bæta gráu ofan á svart er fólk
rekið upp úr lauginni klukkan sjö
vegna sundæfinga íþróttafélaga.
Ekki hefur Víkveiji orðið var við
, að laugargestum sé boðinn afslátt-
ur af aðgangseyri vegna þessara
óþæginda.
Það er kannski sök sér þótt
Sundhöllin loki eitthvað fyrr á
kvöldin en aðrar laugar. Hins veg-
ar skilur Víkveiji ekki almennilega
hvers vegna eldra fólkið getur
ekki stundað sína sundleikfími á
kvöldin um leið og æfingar sundfé-
laganna hefjast svo fjölskyldur
geti náð úr sér streitunni fyrir
kvöldmatinn í Sundhöllinni.