Morgunblaðið - 13.11.1992, Qupperneq 49
HER RHSIR RlKlÐ
GOFUBRBSTOPUT
ifYPIV? frTRRPS'
FÓLK filTT
HErr
____0.'1ÞU'
ji»B*>"s Ultí
rt.>*T«f* [V/
iS^Tr
-""vÍ5"ÍCTHJM FfÐ REVNn >
RO Pri tNNI PVRIR VHRrslR í,
v^QUFO BR68TOFO\-----.—-<
Royal
-fjölbreyttur
skyndibúðingur
I
Kveðja til Ágústu Ág-
ústsdóttur söngkonu
Frá Guðmundi Jónssyni:
igústa mín.
Skelfing þótti mér leiðinlegt að lesa
aetta rugl sem þú birtir í Morg-
jnblaðinu 3. þ.m., því það er þér
sannarlega ekki til neins sóma. Ég
er nú búinn að gutla við söng, söng-
nám og söngkennslu í nær 50 ár
(í febrúar á næsta ári verða 50 ár
frá því ég fyrst stóð á tónleika-
sviði). Eftir tvo vetur hjá Pétri Á.
Jónssyni var ég fimm ár við söng-
nám erlendis. Þess vegna held ég
að mér hljóti að leyfast að leggja
orð í belg. Ég viðurkenni að ég er
ennþá að læra, þó að ég sé kominn
á áttræðisaldur. Þú hins vegar —
áratugum yngri en ég — veist allt,
skilur allt og kannt allt!
Þú kemur víða við í grein þinni,
en ég ætla aðeins að stikla á nokkr-
um atriðum sem mér þóttu athyglis-
verð. Það eina jákvæða sem ég rak
augun í voru ummæli þín um Ing-
ólf Guðbrandsson, þann merka
mann, sem sannarlega hefur unnið
stórvirki á tónlistarsviðinu, landi og
þjóð til sóma og blessunar.
Síðan kemur að Ara Johnson frá
Isafirði, og þú vitnar tvisvar í blaða-
ummæli: „Hann söng eins og fólk
sýngur í útlöndum.“ I fyrra skiptið
er það gagnrýnandi, sem skrifar en
í seinna skiptið blaðamaður. Það
skiptir raunar engu máli. Ég sótti
tónleika eins og ég frekast gat
meðan ég var við nám ytra, og
komst þá að því að yfírleitt er þetta
svipað „í útlöndum" og hér heima
á íslandi; sumt er vel gert og annað
miður. Ég get bætt því við að hér
heima hef ég séð og heyrt óperu-
flutning sem gefur ekkert eftir
ýmsum sýningum sem ég sá erlend-
is.
Þá kemur nú að Söngskólanum
í Reykjavík, sem virðist fara mikið
fyrir btjóstið á þér. Á næsta ári eru
liðin 20 ár frá stofnun skólans, sem
frá upphafi hefur starfað með mikl-
um sóma. Þú gefur í skyn að kunn-
áttulaust fólk hafi stundað þar
kennslu. Ekki kannast ég við það.
Þú nefnir til smiði og kjötmangara;
kjötmangarana kannast ég ekki við,
en smið þekki ég sem hefur kennt
og kennir söng. Að því er ég best
veit hefur hann fullgilt tónlistar-
kennarapróf og hefur að auki
margsannað ágæti sitt sem söngv-
ari við ýmis tækifæri, þ. á m. bæði
í stórum kórverkum og í óperuflutn-
ingi. Raunar þykir mér þetta ekk-
ert merkilegra en þegar
prestsmaddama sækir nokkur nám-
skeið hjá ágætum söngkennara í
útlöndum, telur sig eftir það sjálf-
skipaðan dómara í öllu því er varð-
ar söng og söngkennslu. Satt er
það að nokkrir nemendur sem lokið
hafa söngkennaraprófi við Söng-
skólann kenna þar nú. En má ég,
Ágústa mín, benda þér á að frá
upphafi hefur kennsla í skólanum
tekið mið af námsskrá „The Associ-
ated Board of the Royal Schools
of Music“, sem er ein virtasta stofn-
un á þessu sviði í Englandi. Þessi
stofnun sendir prófdómara á hverju
ári út um víða veröld til þess að
dæma árangur nemenda. A hvetju
vori fáum við prófdómara frá Eng-
landi og hann einn gefur nemendum
okkar einkunnir. Tala þeirra sem
falla á prófi er með því lægsta sem
gerist í öðrum söngskólum. Þeir
fyrrum nemendur sem nú stunda
kennslu við Söngskólann hafa allir
lokið kennaraprófi með ágætum,
og við þessir eldri erum stoltir af
þeim. Sjálf hefðir þú mátt hugleiða
betur þau ummæli sem þú hefur
eftir Ashkenazi, um þá „sem sjálfír
hafa ekki getið sér orð á tónleika-
palli, en ætla sér samt þá dul að
fara að kenna öðrum“.
Víst er það rétt hjá þér, eins og
við bæði vitum, þá úir og grúir af
óhæfum söngkennurum, bæði hér
og í útlöndum. En hvers vegna ert
þú að hafa orð á þessu? Ég fullyrði
að þú ert ekki dómbær um okkur
hina, en ég spyr: Ert þú dómbær á
eigin kennslu?
Eitt stangast á annars horn: A
einum stað lýsir þú söngkennurun-
um í Weimar, sem voru greinilega
að plata nemendur, en rétt á eftir
segirðu: „... hjá siðmenntuðum
þjóðum hafa menn ákveðnar hug-
myndir um það hvernig syngja skuli
á faglegan hátt.“ Ert þú raunveru-
lega svo barnaleg að halda að söng-
kennarar „hjá siðmenntuðum þjóð-
um“ séu allir á einni og sömu skoð-
un um raddbeitingu og túlkun?
Hvílík fásinna! Prófessor Kuhse
þarf ekki annað en að sjá nemanda
birtast í dyrunum til þess að sjá
hvort hann er efni í söngvara, þú
þurftir ekki nema nokkur námskeið
hjá frú Kuhse til þess að vita allt
um söng og nemandi þinn heyrir
hvort söngvari sé á ferð áður en
fýrsti tónninn hljómar! Er það ekki
furðulegt hvernig vitleysan getur
gengið mann fram af manni og
fram af manni!
Þú heldur því fram að ekki einn
einasti söngvari íslenskur virði und-
irstöðureglur sönglistarinnar. „Oft-
ast eru raddirnar næstum hljóm-
lausar og vantar allan stuðning.
Ég vona að mér sé það fyrirgefíð
þó mér þyki að hérna sé nú eggið
farið að kenna hænunni!
í lokin minnist þú á nýju fötin
keisarans. Einhvem veginn fínnst
mér þú vera í sporum keisarans.
Ég ræð þér eindregið að drifa þig
tafarlaust í eitthvað hlýrra, þvi nú
duga ekki fíkjublöðin ein, eins og
í aldingarðinum Eden forðum.
Kæra Ágústa, má ég að lokum
ráða þér heilt? Hættu nú að níða
landa þína sem fást við söng og
söngkennslu. Þú ert sjálfsagt ágæt
söngkona, en engin yfírburðamann-
eskja á því sviði frekar en ég og
félagar mínir. Öll erum við mistæk
og misupplögð — þú líka. Nú ættir
þú að leggja frá þér pennann um
langa hríð, en fá þér pijóna í stað-
inn. Mér er sagt að það sé svo gott
fyrir taugamar.
Með bestu óskum um aukinn
þroska og kærri kveðju.
Þinn einlægur,
Guðmundur Jónsson,
söngvari.
GUÐMUNDUR JÓNSSON
söngvari, Kvisthaga 14,
Reykjavík.
Pennavinir
Nítján ára ítalskur piltur búsettur
í Þýskalandi með margvísleg
áhugamál:
Fabrizio Paradiso,
Lutzenkirchenestrasse 129,
5090 Leverkusen 3,
Germany.
Frá Tékkóslóvakíu skrifar stúlka
með áhuga á bókalestri og íþróttum
sem ætlar að verða lögfræðingur:
Andrea Cillingova,
Dlha 30,
Sered,
92600,
Czechoslovakia.
Frá Bandaríkjunum skrifar 23
ára rafeindaverkfræðingur með
margvísleg áhugamál er lúta eink-
um að íþróttum og útivist:
Steve Wai,
1525 Wendy Drive,
Pleasant Hill,
California 94523-3030,
USA.
LEIÐRÉTTING
Rangt nafn
í grein um danskeppnina á bls.
14 í Morgunblaðinu í gær misritað-
ist nafn ungrar stúlku, sem keppti
í latin-dönsum í flokki 14 til 15
ára. Hún heitir Hilda Björg Stefáns-
dóttir og dansaði við Olaf Má Sig-
urðsson eins og sést af myndinni,
sem birt var í gær.
CARDIA
UV3NAAí(7
^ NÁTTÚRUAFURÐ
SEM ENGINN MÁ LÁTA FRAMHJÁ SÉR FARA
Gott á brauðið, í baksturinn, í sósuna,
í súpuna, í teið eða í flóuðu mjólkina.
CARDIA-hunang stendur alltaf fyrir sínu.
HREIN NÁTTÚRUAFURÐ