Morgunblaðið - 21.11.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1992
19
Sýnishorn af því sem á boðstólum verður.
Basar Kvenfélags Hrings-
ins haldinn á morgun
KVENFÉLAGIÐ Hringurinn í Hafnarfirði heldur sinn árlega jólabasar
í Sjálfstæðishúsinu sunnudaginn 22. nóvember kl. 15.
Að venju verður á boðstólum Tilgangur félagsins er að vinna
margt muna sem allir eru unnir af að almennum líknarmálum þó eink-
Hringskonum, t.d. verða til sölu jóla- um velferð bama. Allur ágóði af
sveinar, jólaskraut, púðar, svuntur, basamum rennur til líknarmála.
peysur, kort og lukkupokar. Auk Kvenfélagið Hringurinn þakkar
þess verður mikið af kökum til sölu öllum þeim sem hafa gert það mögu-
og einnig laufabrauð. Tekið verður legt með stuðningi sínum að veita
á móti kökum milli kl. 10-12 á félaginu brautargengi.
sunnudaginn. (Ör fréttatilkynninjfu)
Bandarísk könnun á lyfinu „captopril“
Lífslíkur eftir
kransæðastíflu
aukast verulega
FJÖGURRA ára lífslíkur eftir kransæðastiflu aukast um 19%
með lyfinu „captopriT* ef marka má niðurstöður úr stórri banda-
rískri rannsókn SAVE, sem niðurstöður birtust um í New Eng-
land Journal of Medicine fyrir skömmu. Árni Kristinsson, yílr-
læknir í Hjartadeild Landspitalans, segir i samtali við Morgun-
blaðið að lyfið hafi verið notað við hjartabilun og háum blóð-
þrýstingi hér á landi um nokkurra ára skeið með góðum árangri.
Árni segir að smám saman
hafí meðferð við kransæðastíflu
verið að batna og breytast. Bætt
meðferð og aukin forvörn hafí
dregið stórlega úr dauðsföllum
af völdum slíkra áfalla. Þar með
lifí fleira fólk með bilað hjarta
en áður og í seinni tíð hafí megin-
áhersla verið lögð á að leita leiða
til að bæta líðan þeirra. Ámi
telur meðferð með „captopril" sé
dæmi um árangur í þá átt.
Captopril víkkar út æðar og
lækkar þannig blóðþrýsting með
því að vinna gegn myndun horm-
ónsins aldósterons. Þá á bilað
hjarta með lélega samdráttar-
getu léttara með að dæla blóði
um líkamann. Lyfíð er gefíð í
viðbót við hefðbundna meðferð
eftir bráða kransæðastíflu. í
hefðbundinni meðferð eru notuð
segaleysandi lyf sem leysa upp
blóðtappa, segavarnarlyf sem
koma í veg fyrir myndun nýrra
tappa og í sumum tilfellum beta-
blokkerar sem lækka blóðþrýst-
ing á annan hátt en captopril.
Rannsókninni bandarísku var
stýrt af Dr. Mark Pfeffer og Dr.
Eugene Braunwald sem báðir
starfa við Harvard háskólann.
Hjartasjúklingar sem upp-
fylltu ákveðin skilyrði, alls 2.231,
frá mörgum stöðum víðs vegar
um Bandaríkin og Kanada, voru
valdir til þátttöku. Þeim var skip-
að í tvo hópa af handahófi. Ann-
ar hópurinn fékk captopril í við-
bót við hefðbundna meðferð
nokkrum dögum eftir hjartaáfall.
Hinn hópurinn fékk gervilyf.
Beitt var tvíblindri aðferð þar
sem hvorki læknar sem ávísuðu
lyfínu né sjúklingamir sem fengu
það vissu hvorum hópnum þeir
síðar nefndu tilheyrðu fyrr en
rannsókninni var lokið. Síðan var
hópunum fylgt eftir í íjögur ár.
Niðurstöður sýna að í hópnum
sem fékk captopril var dánartíðn-
in 19% lægri eftir 4 ár, innlagnir
á sjúkrahús vegna hjartabilunar
voru 22% færri og endurtekin
hjartaáföll voru 25% færri.
Ef niðurstöður rannsóknarinn-
ar eru yfírfærðar hingað áætlar
Ámi að hér á landi séu árlega
um 100 manns sem uppfylla
sambærileg skilyrði og geta haft
gagn af meðferð með captopril
eftir kransæðastíflu. Af þeim
hópi myndi meðferð með lyfinu
bjarga fímm mannslífum, fækka
endurteknum kransæðastíflum
um sex og sjúkrahúsinnlögnum
vegna hjartabilunar um fímm á
fjórum árum-
Hins vegar, bendir Árni á, eru
til aðrar rannsóknir sem sýna að
captopril og önnur skyld lyf
henta einnig sjúklingum með
langvinna hjartabilun af öðrum
orsökum en kransæðastíflu. Þar
er um að ræða stóran hóp, sem
telur mörg hundruð manns og
er ekki reiknað með í dæminu
að framan.
Ávinningur af meðferð með
lyfínu er að Áma dómi bæði fé-
lagslegur og fjárhagslegur. Fé-
lagslegur ávinningur felst í betri
líðan, minni fjarvistum frá vinnu
og betri afköstum þeirra sem lifa
með bilað hjarta. Beinan fjár-
hagslegan ávinning má reikna á
eftirfarandi hátt: Meðferð með
lyfinu kostar á ári um 75.000
krónur sem Tryggingastofnun
borgar að mestu leyti. Einn dag-
ur á Hjartadeild Landspítalans
kostar um 35.000 krónur. Inn-
lögn varir að jafnaði í fímm daga
og innlögnin í heild kostar því
175.000 krónur. Verðmunurinn
er því 100.000 krónur á ári.
Sauðárkrókskirkja 100 ára
ÞESS verður minnst nk. sunnu-
dag, 22. nóvember, með hátíðar-
höldum að eitt hundrað ár eru
liðin frá vígslu Sauðárkróks-
kirkju.
Dagskráin hefst með hátíðarguðs-
þjónustu kl. 13.30 og mun biskup
Islands, herra Ólafur Skúlason,
predika, en fyrir altari þjóna sóknar-
presturinn, sr. Hjálmar Jónsson, sr.
Gísli Gunnarsson í Glaumbæ og sr.
Bolli Gústavsson vígslubiskup í
Hólastifti. Prestar prófastsdæmisins
ásamt tveim fyrrverandi sóknar-
prestum á Sauðárkróki, þeim. sr.
Þóri Stephensen og sr. Tómasi
Sveinssyni, taka þátt í athöfninni
en kirkjukór Sauðárkrókskirkju und-
ir stjórn Rögnvalds Valbergssonar
organista syngur við athöfnina en
Ólöf Ásbjörnsdóttir syngur einsöng
með kórnum. Að hátíðarguðsþjón-
ustunni lokinni flytur kirkjumálaráð-
herra, Þorsteinn Pálsson, ávarp.
Að loknu ávarpi ráðherra m'unu
kirkjugestir sitja kaffísamsæti í fé-
lagsheimilinu Bifröst þar sem flutt
verða ávörp gesta en um kl. 17.30
hefst hátíðardagskrá í kirkjunni. Þar
verður flutt leikverkið Kirkjan okkar
undir leikstjórn höfundarins Jóns
Ormars Ormssonar en verkið fjallar
um upphaf og byggingu Sauðár-
krókskirkju og kirkjuna í samfélag-
inu. Flytjendur eru félagar í Leikfé-
Sauðarkrókskirkja.
lag Sauðárkróks, nemendur úr Fjöl-
brautaskólanum og nokkur börn úr
fermingarárgangi 1993 svo og
kirkjukór Sauðárkróks. Undir flutn-
ingi textans leikur organistinn
Rögnvaldur Valbergsson tónlist eftir
þijá fyrrverandi organista kirkjunn-
ar, þá Eyþór Stefánsson, Jón Björns-
son og Pétur Sigurðsson, og einnig
eftir önnur skagfírsk tónskáld. Dag-
skránni í kirkjunni lýkur með ræðu
sóknarprestsins, sr. Hjálmar Jóns-
sonar prófasts.
Þá eru einnig liðin rétt fimmtíu
ár frá stofnun Kirkjukórs Sauðár-
krókskirkju og mun kórinn halda
afmælið hátíðlegt helgina 28. og 29.
nóvember.
Laugardaginn 28. verður söng-
skemmtun í kirkjunni kl. 20.30 en
sunnudaginn 29. býður kórinn öllum
eldri kórfélögum til kaffisamsætis í
félagsheimilinu Bifröst kl. 14 en þar
má gera ráð fyrir að tekið verið lag-
ið og gamanmál flutt.
- BB
Hjá okkur verður hlýtt og notalegt fyrir jólin
Kl. 12.30. Rósa mætir á svæðið.
Kl. 13.00. Rósa fer í förðun hjá Línu Rut í Förðunarmeistaranum.
Rósa verður íklædd náttslopp og undirfötum frá Bláa fuglinum.
Kl. 13.00. Leikið verður á flygil Borgarkringlunnar.
Kl. 13.30. Rósa les upp úr nýrri bók sinni og tekur síðan lagið.
Kl. 14.00. Leikarar úr leikritinu Hans og Gréta, sem nú er verið að sýna
í Bæjarbíói í Hafnarfirði, mæta í gervi og sýna úr verkinu.
Kl. 14.30. Rósa les upp úr nýrri bók sinni og tekur síðan lagið.
Kl. 15.00. Bjöllusveit Laugameskirkju tekur nokkur lög undir stjóm Ronalds Tumer.
BORGARKRINGLAN
ER KGMIN I JÓLABÚNING
... já og mikið um dýrðirl
í dag er Borgarkringlan í jólabúningi og iðar aflífi ogfjöri.
Þar eru ekki bara tugir sérverslana með jólavarning fyrir
alla fjölskylduna og góðir veitingastaðir sem unnt er að njóta
í hlýjunni innandyra, heldur eru skemmtiatriði og óvcentar
uppákomur á dagskánni í dag. Ogjólin eru að koma!
Opnunartími í nóvemben
Mánudaga - fimmtudaga
kl. 10.00- 18.30.
Föstudaga kl. 10.00 - 19.00.
Laugardaga kl. 10.00 -16.00.
Opið verður alla daga
vikunnar í desember.