Morgunblaðið - 24.01.1993, Blaðsíða 35
—
8HGl SAUHAL ,tS£ HlJí
MORGUNBLAÐIÐ
AtVINNAmAÍ^ÚIÁs!
t/IIV'TA gicuuawyaaoM
SUNNUDAGUR 24. JANÚAR' 1993
35
TIL SOLU
Rafall til sölu
Nýr amerískur rafall fyrir traktor, tegund
Vinco, 20 kw eins fasa 230 vött.
Upplýsingar í símum 42626 og 657526
á kvöldin.
Laugavegur
Atvinnuhúsnæði úr steinsteypu á einni hæð
99 fm og lítið tvílyft ósamþykkt íbúðarhús á
steinkjallara 90 fm.
Húsin standa á baklóð en gengt innkeyrslu
við Laugaveg vel sýnileg frá götu.
Sanngjarnt verð - góð kjör.
Fasteignasalan Framtíðin hf.,
sími 622424.
ÓÐAL f asfeignasala,
^ r r ,r Skeifunni 11A, 3. hæð,
'W ® 679999
Til sölu snyrtivöruumboð
Höfum verið beðnir um að selja fyrir einn
af viðskiptavinum okkar nokkur snyrtivöru-
umboð. Um er að ræða snyrtivörur frá Frakk-
landi, Ítalíu, Bandaríkjunum og Englandi.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu okkar, ekki í síma.
Verktakar
byggingaframkvæmdir
til sölu
Við Fiskmarkaðinn í Hafnarfirði eru til sölu
sökklar undir þrjár 170 fm einingar, tvær
uppsteyptar einingar af sömu stærð og ein
eining fokheld.
Selst í einu lagi eða framangreindum eining-
um. Teikningar á skrifstofu.
Vaihús fasteignasala,
sími 651122.
Til sölu er Sænes EA 75
Ur þrotabúi Ránar hf., Dalvík, er til sölu fiski-
skipið Sænes EA 75, skipaskrárnúmer 1824.
Skipið er tveggja þilfara 110 rúmlesta stál-
skip, 24,15 metra langt, smíðað í Svíþjóð
árið 1987, búið 867 hestafla Caterpillar-aðal-
vél, árgerð 1987.
Tryggingamat skipsins er kr. 137.200.000,00.
Skipinu fylgja allar aflaheimildir.
Tilboðum í skipið skal skilað fyrir kl. 12.00 á
hádegi miðvikudaginn 27. janúar 1993 til
undirritaðs skiptastjóra, sem jafnframt veitir
allar nánari upplýsingar.
Einnig eru til sölu úr þrotabúinu Baader 440
flatningsvél, Baader hausari 410, Oddgeirs
hausari, Warlett flökunarvél, Still rafmagns-
lyftari R-14, Datsun diesellyftari og Land-
rover árg. 1975.
Örlygur Hnefill Jónsson hdl.,
Garðarsbraut 26, 640 Húsavík,
sími 96-41305, fax 96-42205,
farsími 985-28521, pósthólf 95.
AUGL YSINGAR
T rölladeigsnámskeiðin
Til sölu blómabúð
á mjög góðum stað.
Áhugasamir leggi inn nafn og símanúmer á
auglýsingadeild Mbl. merkt: „B - 1499“.
BMW730Í1990
Bifreiðin er með nær öllum aukahlutum.
Leðurinnrétting. Aukadekk á felgum.
Verð 4,5 millj. (nývirði ca 7,3 millj.).
Upplýsingar í símum 62-66-00 og 2-66-66
frá kl. 9-17 á virkum dögum, eða á kvöldin
og um helgar í síma 62-57-11.
Húsafriðunarsjóður
Húsafriðunamefnd ríkisins auglýsir eftir um-
sóknum til Húsafriðunarsjóðs, sem starfar
samkvæmt lögum nr. 88/1989 og reglugerð
nr. 316/1990.
Veittir eru styrkir til að greiða hluta kostnað-
ar vegna:
- Undirbúnings framkvæmda, áætlunar-
gerðar og tæknilegrar ráðgjafar.
- Framkvæmda vegna viðhalds og endur-
bóta á friðuðum húsum og húsum sem
hafa menningarsögulegt og listrænt gildi
enda samþykki nefndin þær áætlanir, sem
unnið verður eftir.
- Byggingasögulegra rannsókna og útgáfu
þeirra.
Umsóknir skulu sendar eigi síðar en 1. mars
1993 til Húsafriðunarnefndar ríkisins, Þjóð-
minjasafni íslands, pósthólf 1489, 121
Reykjavík, á eyðublöðum sem þar fást.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 91-
622475 milli kl. 10 og 12 virka daga.
Húsafriðunarnefnd ríkisins.
wzprzzá
Viltu flytja í gott
rekstrarumhverfi?
Viltu selja fyrirtæki til
Sauðárkróks?
Átak hf. er hlutafélag 40 fyrirtækja á Sauðár-
króki. Félagið hefur að markmiði:
★ Að stuðla að framgangi atvinnuskapandi
verkefna á Sauðárkróki.
★ Að hafa frumkvæði að stofnun fyrirtækja
á Sauðárkróki um verkefni, sem hag-
kvæm þykja.
Átak hf. hefur áhuga á að komast í samband
við fyrirtæki sem hugsanlega eru til sölu og
flutnings til Sauðárkróks - eða fyrirtæki, sem
kunna að hafa hug á að flytja starfsemi til
Sauðárkróks.
Til að koma því í kring býður Átak hf. fram
aðstoð sína endurgjaldslaust.
Aðstoð félagsins getur orðið með ýmsu
móti. Óskað er eftir að helstu upplýsingar
verði
sendar til:
Átaks hf.,
pósthólf 101,
550 Sauðárkróki,
sími 95-36110, fax 95-36111
eru hafin að nýju.
Ennþá nokkur laus pláss.
Komið og lærið að gera
skemmtilegar gjafir.
Aldís, sími 678829.
Rannsóknastofnun Háskólans á Ak-
ureyri auglýsir
Aðstöður fyrir gistifræði-
mann
Stofnunin býður fram aðstöðu fyrir fræði-
mann í húsakynnum sínum á vor- og sumar-
misseri 1993. Aðstaðan felst í skrifstofu,
aðgangi að tölvu, síma, Ijósritun o.s.frv.
Umsækjendur geta t.d. verið stúdentar, sem
eru að vinna ða meistara- eða doktorsverk-
efnum, og kennarar eða sérfræðingar í rann-
sóknarorlofi frá öðrum stofnunum. Gisti-
fræðimaður skal flytja 1-2. opinbera fyrir-
lestra við Háskólann á Akureyri á gistimisser-
inu.
Væntanlegir umsækjendur skulu senda ná-
kvæma greinagerð um störf sín og rannsókn-
ir til Jóns Þórðarsonar, framkvæmdastjóra
R.H.A., pósthólf 875, 602 Akureyri, fyrir 20.
febrúar nk. Hann gefur auk þess nánari upp-
lýsingar um aðstöðuna sem í boði er (í síma
96-11780).
HUSNÆÐIIBOÐI
Til leigu
nýlegt mjög gott skrifstofuhúsnæði í Knarrar-
vogi 2, 167 fm, sem skiptist í góðan af-
greiðslusal og 5 herbergi. Til greina kemur
að leigja húsnæðið í minni einingum.
Nánari upplýsingar í síma 685000.
Sérhæð til leigu
4ra herb. sérhæð með bílskúr til leigu í 6
mánuði frá 1. mars, með hugsanlegri fram-
lengingu.
Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
merkt: „Teigar - 14999“.
París - „au pair11
Óska eftir meðleigjanda í 2ja herbergja íbúð
með „au pair“ stúlku.
Húsgögn og þvottavél fylgja.
Upplýsingar í síma 90331-4977-5575
(Helga).
Orlandó - Flórída
íslensk kona, búsett í Orlandó, vill leigja
ferðafólki herbergi. Aðgangur að stóru sér
baðherbergi, eldhúsi, þvottavél og þurrkara.
Verð: 30 dalir á dag eða 150 dalir á viku.
Hringið frá kl. 19.00-22.00 að ísl. tíma.
Geymið auglýsinguna.
Sími 407-671-8261.
Jóhanna Stefánsdóttir,
7439 BlueJacket Place East,
Winter Park, Fl. 32792.
Módel íhárgreiðslu
Dagana 1.-6. febrúar nk. verður þýskur
hárgreiðslumeistari frá Wella, Susanne
Hermann, með námskeið hjá Halldóri Jóns-
syni hf.
Við óskum eftir hárgreiðslumódelum í litun,
klippingu og permanent áðurnefnda daga.
Áhugasamir eru vinsamlega beðnir um að
hafa samband við skrifstofu okkar í síma
91-686066 frá kl. 9-17 næstu daga.