Morgunblaðið - 30.01.1993, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/LESBOK
24. tbl. 81. árg.
LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kínveijar, Ind-
verjar og Rúss-
ar standí saman
- segir Borís Jeltsín Rússlandsforseti
Nýju Jöelhí. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, hvatti Indverja í gær til
að bæta tengslin við Kína, eins og Rússar hefðu gert, þann-
ig að þessi þrjú stórveldi mynduðu saman afl sem stuðlaði
að stöðugleika í heiminum.
hann heimsótti þá í desember síð-
astliðnum. Hann hefur lagt til að í
einhverju ríkjanna þriggja verði
opnuð miðstöð til lausnar ágreiningi
sem upp kunni að koma milli þeirra.
í heimsókninni í Indlandi lagði
Jeltsín áherslu á að hann fylgdi
nýrri stefnu sem gerði ekki ráð
fyrir „öxlum, þríhymingum, marg-
hymingum eða blokkum" eins og í
kalda stríðinu. Forsetinn sagðist
ennfremur vilja bæta sambúðina við
öll Asíuríki, þ. á m. erkifjanda Ind-
veija, Pakistan.
Vaxtalaust lán
Indveijar skulduðu Sovétmönn-
um rúmlega 11 milljarða dala. Sam-
kvæmt samkomulagi Rússa og Ind-
veija verður 37% skuldarinnar
dreift á næstu 45 ár vaxtalaust.
Einnig gerði Jeltsín nýtt varnar-
málasamkomulag við Indveija þar
sem hinum síðamefndu er tryggður
innflutningur hefðbundinna vopna
en los hefur komist á hann síðan
Sovétríkin liðu undir lok.
Jeltsín, sem lauk í gær opinberri
heimsókn til Indlands, sagði að
gagnkvæmt traust ætti að einkenna
samskipti þessara þriggja fjölmenn-
ustu ríkja heims. Það gæti stuðlað
að stöðugleika í Asíu og heiminum
ölium.
Síðan seint á níunda áratugnum
hefur sambúð Indveija og Kínveija
batnað örlítið. Eitt af meginmark-
miðum Indveija með vináttu við
Sovétmenn á áttunda áratugnum
var vemd gegn nágrannanum vold-
uga, Kína, en ríkin háðu landa-
mærastríð árið 1962.
Jeltsín hafði forgöngu um bætt
samskipti Rússa við Kínveija er
Clínton
andar
Reuter
Stíflunnar g-ætt
Króatískir hermenn á verði ofan á Pemca-stíflunni. Brestir em komnir í stífluna eftir sprengingamar á fímmtudag.
Króatar reyna í ofboði að styrkja Peruca-stífluna
Ekki tímabært að dal-
búar flytjist á brott
- sagði forsætisráðherra Króatíu, kominn á staðinn
léttar
Washington. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjafor-
seti lét í þ'ósi þá von í gær
eftir að málamiðlun náðist um
herþjónustu samkynhneigðra
að nú gæti hann snúið sér að
öðrum brýnum úrlausnarefn-
um, sem vörðuðu mun fleiri
Bandaríkjamenn.
Fyrsta vika forsetans í embætti
fór að mestu leyti í að leita leiða
til að standa við kosningaloforðið
um að samkynhneigðir yrðu ekki
lengur útilokaðir frá herþjónustu.
Málamiðlunin í gær milli forsetans,
leiðtoga demókrata á þingi og hers-
ins náðist eftir að Clinton gaf eftir
í mikilvægu atriði: Nýliðar verða
að vísu ekki lengur spurðir um kyn-
hneigð sína en yfírlýstir hommar —
eða lesbíur — mega fyrst um sinn
ekki gegna virkri herþjónustu held-
ur einungis vera í varaliði. Gildir
þessi skipan í sex mánuði á meðan
farið verður betur yfír málið.
Repúblikanar ekki af baki
dottnir
Repúblikanar á þingi boðuðu í
gær að strax í næstu viku yrði lagt
fram frumvarp til laga sem bannaði
á ný herþjónustu samkynhneigðra.
George Mitchell, leiðtogi demókrata
í öldungadeildinni, sagði líklegt að
frumvarp þess efnis yrði fellt.
Bandaríska vamarmálaráðu-
neytið tilkynnti í gær að það myndi
gefa út reglugerð í næstu viku um
framkvæmd ákvörðunar forsetans.
Sjá „Bill Clinton..." á bls. 23.
Reuter
Dóttir Dayans hittir Arafat
YAEL Dayan, þingkona í ísrael og dóttir Moshe Dayans, fyrrum
varnarmálaráðherra og stríðshetju, hitti Yasser Arafat leiðtoga Frelsis-
samtaka Palestínumanna (PLO) í Túnis í gær. Var hún ákaft gagn-
rýnd heimafyrir fyrir uppátækið, m.a. af Yitzhak Rabin forsætisráð-
herra en þau em flokkssystkin. Þingmenn Verkamannaflokksins og
Likud kröfðust þess að hún yrði rekin úr utanríkis- og varnarmála-
nefndum þingsins. Myndin var tekin í Túnis í gær er hún áritaði
ævisögu föður síns sem hún gaf Arafat. Yael Dayan er fyrsti ísra-
elski þingmaðurinn um skeið sem hittir PLO-leiðtogann.
The Daily Telegraph.
REYNT var í ofboði í gær að koma í veg fyrir að Peruca-
stíflan í Króatíu brysti. Lif tugþúsunda manna í dalnum
neðan stíflunnar er í hættu. Sprengingar Serba á fimmtu-
dag gerðu skörð í stífluna og óttast er að hún rofni vegna
bresta sem komnir eru í hana. Forsætisráðherra Króatíu
sagði þó I gær að ekki væri
stiflunnar, flyttust á brott.
Vömbflum var ekið að stíflunni
í gær og reynt var að fyila í skörð
sem komu efst í hana á fímmtudag
eftir að Serbar sprengdu fjarstýrðar
sprengjur. Sprengjumar spmngu
um það leyti sem Króatar náðu stífl-
unni á sitt vald. Hún er í útjaðri
Krajina-héraðsins umdeilda og er
um 50 km frá hafnarborginni Split.
Nú óttast menn að stíflan haldi
ekki vegna þess að sprungur eru
komnar í leirvegg hennar. Einnig
er talið að enn séu sprengjur í
veggjum hennar sem Serbar geti
sprengt. Serbar hétu því þó í gær
að stöðva árásir á Króata við stífl-
una á meðan viðgerð færi fram.
tímabært að dalbúar, neðan
Uppistöðulónið ofan stíflunnar inni-
heldur 450 milljón rúmmetra vatns.
Neðan hennar vofír hætta yfír tug-
þúsundum dalbúa.
Tíu daga verk
Byijað var í gær að veita vatni
úr uppistöðulóninu til að draga úr
hættunni en það er talið tíu daga
verk. Hrvoje Sarinic, forsætisráð-
herra Króatíu, heimsótti stífluna i
gær og sagði að ekki væri bráð
hætta á því að hún brysti. Þess
vegna væri ástæðulaust að flytja
dalbúa á brott.
Sjá kort á bls. 22.
Skálmöld í Zaire
Kinshasa, Brussel. Reuter.
FRANSKIR hermenn fóru í gær frá Brazzaville í Kongó til Kinshasa
í Zaire til þess að undirbúa brottflutning um 1.000 franskra og 3.000
belgískra borgara þaðan. Um 500 belgískir hermenn héldu áleiðis
til Zaire í gær í þessu sama skyni.
Skálmöld ríkir í Kinshasa í kjölfar
þess að hermenn risu upp til að
mótmæla lélegum launum. Til
harðra bardaga kom milli þeirra og
sérstakra öryggissveita Mobutus
Sese Sekos forseta. Sveitir Mobutus
eru mun betur vopnum búnar og
mannfall í röðum hermanna því mik-
ið. Sjónarvottar sögðu að lík þeirra
lægju eins og hráviði um miðborg
Kinshasa.
í átökunum hafa þrír útlendingar
beðið bana. Meðal þeirra eru franski
sendiherrann í Zaire, Philippe Bem-
ard, og sendiráðsstarfsmaður, Þeir
voru myrtir, að sögn franska utan-
ríkisráðuneytisins. Slógu franskir
hermenn skjaldborg um sendiráðið
í gær en þar hafa mörg hundruð
útlendinga leitað skjóls.