Morgunblaðið - 30.01.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.01.1993, Blaðsíða 21
Sonur minn er fátækur og í illa launaðri vinnu - segir móðir James Brians Graysons OLBIA Grayson, móðir James Brians Graysons, sem situr í gæsluvarðhaldi í Síðumúlafangelsi, segir að nokkrum vik- um fyrir atburðinn á Hótel Holti hafi lögfræðingur sonar hennar tjáð fjölskyldunni að ekki væri unnt að fá börnin afhent eftir venjulegum leiðum, þar sem íslensk stjórnvöld myndu ekki aðhafast í málinu. Hún segist ekkert vita um fyrirtækið CTU eða Donald Feeney, sem situr í varðhaldi hér ásamt syni hennar. Hafi stofnunin haft afskipti af málinu sé það að frumkvæði sonar hennar en fráleitt sé að Grayson-fjölskyldan eigi peninga til að kosta slíka að- gerð. „Sonur minn er fátækur drengur í illa launaðri vinnu,“ segir hún. Hún segir að James Brian Gray- son sé í iðnnámi, sé til skiptis í vinnu fyrir 6-7 dali (300-350 kr.) á tímann í fjóra mánuði í senn en síðan kauplaust í skóla í fjóra mánuði. Hvorki hann né fjölskylda hans sé fólk sem hafi efni á að greiða kostnaðarsamar aðgerðir. Hins vegar kvaðst hún ekkert vita um það hvort sonur hennar hefði snúið sér til einhvers manns að nafni Feeney. Áhyggjur af telpunum „Þetta snýst heldur ekki um [Ernu] eða fyrrverandi eiginmenn hennar, heldur um öryggi og vel- ferð bamanna. Ég hef miklar áhyggjur af velferð barnanna og líður eins og öllum ömmum mundi líða í mínum sporum,“ sagði hún. „Ég hef ekki áhyggjur af syni mínum, hann fær mat óg hefur lögfræðing, en ég hef áhyggjur af telpunum. Sonur minn og faðir Elísabetar hafa forræði telpnanna en móðir þeirra hefur ekki for- ræði. Hún strauk með þær í óleyfi. Ég skil ekki af hveiju stjórnvöld í þessu landi geta ekki tekið af- stöðu með þeim sem hafa lögin sín megin,“ sagði frú Grayson og fullyrti að áður en gefið hafi verið upp á báfinn að stjórnvöld fengj- ust til að skerast í málið hafi meðal annars verið búið að leita milligöngu bandaríska sendiráðs- ins og forsætisráðherra. Bók um CTU komin út í Bandaríkjunum „Við brjótum eng- in lög - við sköp- um aðstæðurnar í EFTIRMÁLA bókarinnar Rescue My Child, sem fyrirtæk- ið CTU gaf út í þessum mánuði til að renna undir sig fjár- hagslegum stoðum, kemur m.a. fram að forsvarsmenn þess telja það fyrst og fremst sitt hlutverk að skapa þær aðstæð- ur að foreldrar nái bömum sínum aftur sjálfir. Fyrirtæki þetta hefur vakið talsverða athygli í Bandaríkjunum og hefur bandaríska sjónvarpsstöðin NBC meðal annars fram- leitt sjónvarpsmynd um það sem ber nafnið Desperate Rescue. Eftirfarandi er lauslega þýtt úr eftirmála bókarinnar: „Þann tíma sem CTU hefur starfað hafa Don, Dave og Judy ekki verið með full- komna líftryggingu né slysatrygg- ingu, til að bæta skaðann ef eitt- hvað skyldi fara úrskeiðis. Þau eru forlagatrúar þegar talið berst að því að þau gætu hugsanlega verið handtekin og fleygt í dýflissu, t.a.m. í þróunarlöndunum. „Það gerist ef það á að gerast,“ segir Don, „og þá munum við takast á við það. En líklega óttast ég ekki að eitthvað fari úrskeiðis því ég veit að því er stjómað að ofan hvaða verkefni ég tek mér fyrir hendur." Sköpum aðstæðurnar Dave Chatellier óttast það mest að þeir fái það orð á sig að vera „hryðjuverkamenn". „Því til vam- ar,“ segir hann, „höfum við aldrei bundið neinn. Við höfum aldrei ráðist á neinn. Við höfum aldrei ógnað neinum með vopnum.“ Ef þéir fá á sig orð fyrir að vera hryðjuverkamenn, segir Dave, þá myndu viðskiptavinirnir strax snúa við þeim baki. „Við bijótum engin lög. Við tökum ekki bömin. Við förum ekki til annarra landa og rænum böm- unum. Okkar hlutverk er að skapa þær aðstæður að móðurinni eða föðurnum sé unnt að ná börnum sínum aftur,“ segir Dave. Óttast ekki hefnd Hann segir að þeir óttist ekki hefnd foreldra, því þeir hlytu að vera „afar heimskir“ ef þeir reyndu að gera eitthvað á hlut fyrmm félaga í frægustu sérdeild Bandaríkjahers. CTU-hópurinn hefur aldrei fengið viðvöran eða skilaboð frá neinum opinberam aðilum um að binda enda á starfsemi sína. Einu neikvæðu hliðina á þessum við- skiptum segir Dave vera þá stað- reynd að þeir hafa ekki hagnast íjárhagslega og reyndar aldrei komist hallalaust frá björgunar- leiðangri. Það setur þeim skorður varðandi frekari ferðalög eða við- skiptaáætlanir til landa eins og Jórdaníu, Túnis og Bangladesh. „Jú, það er rétt, en við eigum enn eftir að fara til 160 landa,“ segir Dave.“ Morgunblaðið/Sverrir Leiddur fyrir dómara James Brian Grayson var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, þar sem krafa rannsóknarlög- reglunnar um gæsluvarðhald til 10. febrúar var staðfest. Auglýsing um gjaldeyrisumsóknir og afgreiðslur hjá bönkum, sparisjóðum og öðrum viðskiptaaðilum með gjaldeyri Hinn 1. janúar sl. gengu í gildi nýjar reglur um öll gjaldeyrisvið- skipti með reglugerð viðskiptaráðuneytisins nr. 471/1992. Reglu- gerðin er byggð á lögum um sama efni nr. 87/1992. Hömlum hefur þegar verið aflétt á flestum algengustu þáttum gjaldeyrisviðskipta. Þeim hömlum, sem enn eru til staðar, verður aflétt á næstu misserum. Eftir sem áður er gert ráð fyrir upplýs- ingaskyldu til Seðlabankans vegna gjaldeyrisviðskipta. Það gerir bankanum kleift að sinna lögbundnu hlutverki sínu á sviði hag- skýrslugerðar og eftirlits. Til að rækja þetta hlutverk sitt hefur bankanum m.a. verið falið að setja reglur um skráningar- og til- kynningaskyldu vegna gjaldeyrisviðskipta, þ.m.t. um framlagn- ingu gagna þegar gjaldeyrisviðskipti eiga sér stað. Seðlabankinn vekur athygli á 22. gr. reglugerðarinnar, þar sem m.a. er lögð sú skylda á aðila, er heimild hafa til milligöngu um gjaldeyrisviðskipti (nú bankar og sparisjóðir), að þeir sjái til þess að allar viðskiptabeiðnir vegna kaupa og sölu á erlendum gjald- eyri skilgreini tilefni þeirra. Telji starfsmenn þessara aðila að forsendur viðskiptanna fái ekki staðist, skulu þeir vísa slíkum beiðnum til umsagnar og úrskurðar Seðlabankans áður en af- greiðsla getur farið fram. Með viðskiptabeiðnum fylgi gögn eftir því sem við á, svo sem reikningar, samningar, farseðlar, vottorð o.fl. Nánari upplýsingar um framkvæmdina er að finna í greindum lögum, reglugerð og auglýsingu Seðlabankans, dags. 23. desember 1992, og hjá bönkum, sparisjóðum og öðrum viðskiptaaðilum með gjaldeyri og hjá gjaldeyriseftirliti Seðlabankans. Reykjavík, 26. janúar 1993. SEÐLABANKl ÍSLANDS.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.