Morgunblaðið - 30.01.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993
Sjötugur
Einar J. Gíslason
safnaðarhir ðir
Einar J. Gíslason fyrrum forstöðu-
maður Betel í Vestmannaeyjum og
Fíladelfíu í Reykjavík er sjötugur í
dag. Einar í Betel er löngu lands-
kunnur prédikari og einnig er hann
þekktur prédikari á Norðurlöndum,
enda slík andagift blessunar þegar
Einar flytur mál sitt að enginn kemst
hjá því að hrífast.
Einar í Betel vann ýmis störf í
Eyjum. Vélstjóri var hann um ára-
bil, sjómaður með Óskari bróður sín-
um í 17 ár á Eyjabátum og ekki var
Óskar síður stórkostlegur og sér-
stæður persónuleiki, enda fóru þar
saman tveir dýrgripir á Guðs vegum.
Það kom skjótt í ljós hve nýtnir þeir
voru og góðviljaðir í öllu, en eitil-
harðir á sínu í nafni og túlkun þess
sem öllu ræður. En gamanseminni
má aldrei gleyma, enda sérstakur
þáttur í lífsstíl Eyjamanna og sá
leikur er ríkur í Eyjum að búa til
góðar sögur af litlu tilefni. Margar
sögur eru til af þeim bræðrum. Einu
sinni komu þeir með afla sinn af
Gæfunni til Arna afa míns á vigtina
sem hann vann við. Bíllinn með fisk-
inn stóð á vigtinni og Óskar gekk
yfír hana til þess að spjalla við afa.
Þá sögðu gárungarnir að Einar hefði
sagt: „Óskar bróðir, stíg þú á vigt-
ina, þú ert þyngri, það er drýgra."
Þannig léku menn sér að því að
snúa siðferðinu við upp á vini sína,
en þetta var græskulaust gaman
sem gafléttleika í hversdagsleikann.
Einar í Betel er kominn af Guð-
brandi Þorlákssyni biskup, ellefti
maður út af Steinunni dóttur hans.
Á hitt borðið er Einar kominn af
Presta Högna Sigurðssyni frá
Breiðabólstað í Fljótshlíð. Hann átti
8 syni og 4 dætur. Allir synirnir
urðu prestar og dæturnar prests-
frúr. Einar er kominn frá Ögmundi
Högnasyni sem þjónaði Krosskirkju
í Landeyjum. Einar í Betel er sjötti
maður frá Fjalla-Ejrvindi og „við
höfum allir verið Sjálfstæðismenn,"
orðaði hann það eitt sinn. Afí Einars
var Jón Brandsson sem átti 31 bam
með sjö konjim sem frægt var enda
óvenjulega jöfn og góð nýting á líf-
sandanum. Einar var forstöðumaður
Hvítasunnumanna í 42 ár, en söfn-
uðurinn er þriðji stærsti kristilegur
söfnuður á Islandi og gróska hefur
verið þar mikil, enda 43% aukning
safnaðarmeðlima á síðastliðnum 10
árum. Þar sem Hvítasunnumenn
starfa skapst ákveðinn stöðugleiki
og öryggi og samfélagið býr að þeim
eins og eins konar ankeri í lífsins
ólgusjó. Þeir sækjast ekki eftir
stundargleði á nótum hégómans,
þeir sækjast eftir blessuðum stund-
um í samfélaginu við Jesú Krist.
Einar í Betel er einn af þessum
mönnum sem hefur orðið þjóðsaga
í lifanda lífí, fyrst meðal sjómanna
þar sem hann átti starfsvettvang á
fyrstu áratugum ævinnar, síðar
meðal þjóðarinnar, ekki síst fyrir
hispurslausar og andríkar ræður sín-
ar um lífíð og tilveruna þar sem
kóssinn var alltaf tekinn á Jesú
Krist. Einn af kostum Einars er sá
að hann segir alltaf allt, felur ekk-
ert. Það sem hjartað býður, það brýt-
ur sér leið í orðum. Á tímum vax-
andi krafna um nýtingu og hag-
kvæmni má ugglaust orða það svo
að Einar í Betel hefði ekki átt að
gera annað um ævina en prédika,
stunda kristniboð meðal samborgara
sinna, því svo á hann auðvelt með
að koma kærleiksboðskapnum til
skila á líkingamáli og með tilvitn-
unum í samferðamenn að rauði þráð-
urinn kemst alltaf heill íhöfn. Ef
Einar í Betel hefði farið í kristniboð
á heimsmælikvarða hefði hann orðið
samferðamaður Billy Graham, en
heimaslóðin hefur orðið hans starfs-
vettvangur og hann hefur látið mik-
ið gott af sér leiða í hjálparstarfi
við sjúka því um langt árabil hefur
hann heimsótt sjúkrahúsin reglu-
lega, huggað og styrkt, gefíð von
og gleði í garð bágstaddra. Jafnhliða
hefur hann heimsótt fangelsin boð-
andi kristilegan anda og kærleik til
hagsbóta fyrir sál og líkama og sam-
félagið allt. Einu sinni þegar ég kom
með honum á Litla-Hraun þar sem
hann var að færa öllum föngunum
páskaegg sem Sigurður Eyjamaður
Marinósson í Mónu hafði gefið hon-
um, þá óskuðu fangaverðirnir eftir
því að hann ætti kristilega stund
með föngunum. Einar játti því, bað
um gítar fyrir mig, sigldi fulla ferð
inn fyrir fangelsisdymar og hrópaði
sinni syngjandi björtu rödd og háu
svo heyrðist um allt fangelsið:
„Strákar, það er ræs, allir á dekk.“
Það var eins og við manninn mælt,
á örskammri stundu mættu fangarn-
ir á „dekk“ eins og prúðir drengir í
kór og Einar tók eina lotuna enn
þar sem hann sefaði sálirnar eins
og Kristur sefaði öldur Getsemane-
vatnsins forðum. í rauninni hefur
hjálparstarf Einars í Betel verið slíkt
að ætla mætti að um stofnun væri
að ræða en ekki einstakling. Fálka-
orðan myndi standa undir nafni á
bijósti þess manns því hvað er verð-
ugra en rétta hjálparhönd þar sem
hallar undan fæti og laða fram það
besta í frumskógum mannssálarinn-
ar. Einar er vanur maður til góðra
verka og vill hafa hlutina í réttri röð
eins og Hvítasunnumenn rækta líf
sitt. En það er sveigja í öllu og
kærleikur Guðs er óendanlegur ef
það meiðir engann. Einu sinni vom
þeir Einar og Óskar á Gæfunni fyr-
ir austan Eyjar og þriðji maður um
borð var Georg Stanley Aðalsteins-
son háseti, yndislegur sögumaður.
Skyndilega sáu skipsfélagarnir að
varðskipið Albert kom öslandi og
þeir áttuðu sig á því að þeir vom
að ólöglegum veiðum innan land-
helgi. „Tala þú við þá,“ sagði Einar
við Stanley. „Nei“, svaraði Stanley.
„Stanley minn, tala þú við þá,“ hélt
Einar áfram blíðasta rómi. „Nei,
kemur ekki til greina," svaraði Stan-
ley eldsnöggt, „þetta er ykkar mál,
þið eruð eigendur bátsins, skipstjóri
og vélstjóri, en af hverju segið þið
bara ekki að þetta séu algjör mi-
stök, bátinn hafí rekið óvart inn fyr-
ir og þið biðjið fyrirgefningar."
„Stanley, Stanley, minn,“ svaraði
Einar að bragði, „þetta er góð hug-
mynd, en það er betra að þú talir
við þá, þú ert vanari að skrökva."
I dag, á afmælisdaginn, er Einar
í Betel á heimaslóð í Vestamannaeyj-
um ásamt Sigurlínu konu sinni,
börnum, vinum og vandamönnum
og Betelsfólkið heldur vini sínum
hátíð í tilefni dagsins. Það er ævin-
týralegt þegar horft er yfir feril Ein-
ars í Betel hve mikill öryggismála-
maður hann hefur verið. Hann sinnti
öryggismálum sjómanna af mikilli
festu og þau nálgast nú 40 árin sem
hann hefur flutt minningarorð á Sjó-
mannadaginn við minnismerki hrap-
aðra og drukknaðra við Landakirkju
í Vestmannaeyjum, hann hefur sinnt
af ótrúlegri ósérhlífni öryggismálum
á vettvangi sjúkra og þeirra óláns-
manna sem fangelsin gista, en ör-
yggið sem aldrei bregst er trú hans
og samfélagið við Jesú Krist.
Árni Johnsen.
Þegar ein mesta tæknibylting
geisaði í íslensku athafnalífi, bátarn-
ir fóru að flengja sjóinn með skellum
og braki, sveitin missti fólkið og sjáv-
arþorpin gerðust kaupstaðir þá leit
hann fyrst dagsins ljós. Síðan hefur
hann í 70 ár notið ljóssins, athafna-
seminnar, breytinganna og lífsins.
Þetta er lítið brot af sögu Einars í
Betel. í dag þekkja menn hann frek-
ar af ræðumennsku og boðun Fagn-
aðarerindisins með krafti og kímni
en nokkru öðru.
Hann var næstyngstur í hópi 6
systkina, borinn og bamfæddur á
Arnarbóli við Faxastíg 10 í Vest-
mannaeyjum. Foreldrar hans Gísli
Jónsson útvegsbóndi, eins og títt var
að nefna útgerðarmennina þá, og
Guðný Einarsdóttir höfðu flust frá
Landeyjunum og tóku til við sjávár-
störfín. Þau eignuðust Svövu,
Salóme, Óskar, Hafstein Eyberg,
Einar og Þyrí. Hafsteinn Eyberg lést
skömmu eftir fæðingu, en bamahóp-
urinn mátti alast upp við mikil
þrengsli vegna þess að í þá daga
vom húsin gjaman fyllt af vertíðar-
mönnum sem komu frá sveitunum
til að stunda sjóinn. í það ástand,
byijun vetrarvertíðar, fæddist Einar,
rauðhærður og kröftugur sem sviðs-
ljós heimilisins beindist að. Eins og
nærri má geta og Einar hefur svo
vel gert skil í bók sinni „Einar í
Betel" var æskuheimilið fullt af lífi
og eljusemi.
Hann Einar er af þeirri kynslóð
sem fékk bamaskólamenntun og síð-
an tók brauðstritið við. Það sem var
góð vöggugjöf veitti fólki braut-
argengi á staði sem okkur nútíma-
mönnum fínnst sjálfsagt að vel-
menntað og langskólagengið fólk
prýði.
Einar gerðist vélstjóri hjá ísfélagi
Vestmannaeyja og gegndi því starfí
stríðsárin; jafnhliða tók ljós trúarinn-
ar á Jesú Krist að skína í lífi hans.
Skömmu eftir stríðið gerðist hann
safnaðarhirðir í Betel og varð þekkt-
ur meðal Eyjabúa fyrir þá sérstæðu
trúarafstöðu. Vissulega setti hann
svip á bæinn með útisamkomunum
á góðviðrisdögum, eftir að Oddgeir
Kristjánsson hafði skemmt áheyr-
endum með lúðrasveit Vestmanna-
eyja kom Einar með „flokkinn“ eins
og söfnuðurinn var stundum kallaður
og hóf prédikun sína með sterkri og
syngjandi rödd. Enginn núlifandi trú-
boði hefur náð heyrum þjóðarinnar
eins og Einar, enda maðurinn þekkt-
ur ræðuskörungur.
Eitt skiptið fór Einar ásamt öðrum
á Biblíuskóla hjá Fíladelfíusöfnuðin-
um í Stokkhólmi. Sá söfnuður hefur
verið einn af stærstu söfnuðum hinna
fijálsu kristni. Upp frá því hefur
hann haft góð sambönd við Svíþjóð
og gott vald á sænskunni. Hann
nýtti sér það vel 1982 er hann var
fulltrúi íslands á Evrópumóti hvíta-
sunnumanna í Helsinki. Hann þurfti
að hlýða á fjöldann allan af ræðu-
mönnum flytja kveðjur síns lands til
mótsins. En þegar að Einari kom
flýtti hann sér að skila kveðjunni frá
íslenskum hvítasunnumönnum og
svo greip hann tækifærið og ávarp-
aði fínnsku þjóðina. Þetta var tekið
upp fyrir sjónvarpið. „Við á Islandi
höfum fylgst með ykkur og þekkjum
sögu ykkar og þekkjum hetjulega
baráttu ykkar gegn Rússum. Við
erum látin læra kvæðið um Svein
dúfu sem hafði kannski lítið vit í
kollinum en hjartað var á réttum
stað. Og við vitum að hjartað í ykk-
ur, Finnar, er á réttum stað.“ Hjá
honum stóð Finni sem túlkaði jafn-
harðan á finnsku. Við að minnast á
Svein dúfu hoppaði Finninn um háls
Einars af kæti. Þetta atriði var sýnt
í fínnska sjónvarpinu í næsta frétta-
tíma á eftir. Fleiri vissu um Islend-
inginn Einar en Evrópumótið, íslend-
inginn sem kunni kvæðið um Svein
dúfu. Þama kom fram hæfileiki trú-
boðans að nota augnablikið og grípa
tækifærið.
Einar hefur líka kynnst öðrum
augnablikum einmitt þeim er ljós lífs-
ins hefur slokknað. Hann hefur verið
fastur liður í hátíðahöldum sjómanna
í Vestmannaeyjum við að minnast
hrapaðra og dmkknaðra. Þar hefur
hann ekki skorast undan að láta orð
Ritningarinnar veita huggun í þreng-
ingum. Sjálfur fékk hann höggið er
31-
fyrri kona hans, Guðný, dó af bams-
fömm 1963 frá Einari og þremur
börnum, þeim Guðrúnu, Guðna og
Sigurmundi Gísla. Þá talaði Einar
yfír leiði hennar og þakkaði samfylgd
og minnti viðstadda á upprisuvon
Biblíunnar. Þetta þótti afbragð, en
dró þann dilk á eftir sér sem Einar-
átti síst von á, er Óskar, bróðir Ein-
ars og þess vegna oftast kallaður
Óskar bróðir, manna á meðal, lá
banaleguna og bað hann Einar að
tala yfir sér við útförina og rökin
vom þessi: „Fyrst þú gast talað yfír
Guðnýju þá geturðu talað yfír mér.“
Þannig hefur Einar kynnst bæði ljúf-
um og dökkum hliðum mannlífsins
eins og svo margir aðrir, en líka feng-
ið að reyna hvemig orð Guðs hefur
haldið honum uppi í þrengingunum.
Snemma árs 1964 kvæntist Einar
seinni konu sinni Sigurlínu Jóhanns-
dóttur sem var þá trúboði í Græo**
landi. Eignuðust þau Guðnýju eitt
bama.
Einari hefur verið gefið að vera í
sviðsljósinu, ekki aðeins fyrir það að
flytja kröftugan Biblíuboðskap, held-
ur hafa menn gaman að segja hinar
ýmsu sögur um hann eða þá bræður
Óskar og Einar.
Ég var eitt sinn á fundi í Biblíufé-
laginu. Þegar biskup var að setja
fundinn beindi hann orðum sínum
allt í einu til Einars og sagði: „Ég
var á fundi hjá forseta íslands og
sagði henni að ég yrði hér með ykk-
ur. Hún bað sérstaklega að heilsa
þér Einar.“ Þannig hefur Einar átt
greiðan aðgang að háum sem lágum
og án þess að stærilætið fengi rúm;. „
En hvað er þá eðlilegra en að Ein-
ar í Betel haldi upp á 70 ára afmæl-
ið sitt í Betel Vestmannaeyjum. Bet-
elkirkjan verður opin fyrir háa sem
lága er vilja heilsa upp á Einar á
afmæli hans laugardaginn 30. janúar
kl. 16-20. Svo á sjálfan afmælisdag-
inn mun Einar tala á samkomunni í
Betel kl. 16.30. Ekki er annars að
vænta en að allir þeir sem koma fái
höfðinglegar móttökur og líflegt við-
mót.
Vestm. 23. jan. 1993.
Snorri Óskarsson. <-
IFÉU6 MRMDNMMMANHA
Allsteijar atkvæðaareiðsla
Akveðið hefur verið að viðhafa allsherjar atkvæða-
greiðslu við kjör stjórnar og trúnaðarmannaróðs
Félags jórniðnaðarmanna fyrir næsta starfsgr.
Tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmannaráðs
félagsins skal skila til kjörstjórnar félagsins á skrif-
stofu þess á Suðurlandsbraut 30, 4. hæð, ásamt
meðmælum a.m.k. 75 fullgildra félagsmanna.
Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn félagsins
og auk þess tillögur um 14 menn til viðbótar í trúnað-
armannaráð og 7 varamenn þeirra.
Frestur til að skila tillögum um skipan stjórnar og
trúnaðarmannaráðs rennur út kl. 18.00 mánudaginn
8. febrúar 1993.
Stjórn Félags járniónaóarmanna.
Bergur Guðnason, hdi. - Skattaþjónustan sf.
tilkynnir flutning
Undirritaður hefir flutt skrifstofu sína frá Langholtsvegi
115 til Suðurlandsbrautar 52 við Faxafen.
Viðskiptavinir athugið að staðfesta framtalstíma í nýju
símanúmeri 682828.
Bergur Guðnason, hdl.,
Skattaþjónustan s/f - Lögskipti,
Suðurlandsbraut 52 v/Faxafen.
Sími: 682828 - Fax: 682808.
NÁMSKEH)
- Veist þú að við búum öll yfir stórkostlegum
eiginleikum til að lækna okkur sjálf?
- Veist þú að með því að nýta okkur þessa eigin-
leika getum við einnig hjálpað öðrum?
- Vilt þú nýta þér þessa eiginleika?
- Reikinámskeið er ein af mörgum leiðum til þess.
Námskeið í Reykjavík:
6.- 7. febrúar, helgarnámskeið, 1. stig.
13.-14. febrúar, helgarnámskeið, 2. stig.
16.-18. febrúar, kvöldnámskeið, 1. stig.
Upplýsingar og skráning í síma 33934.
Námskeið á Höfn, Hornafirði:
Mánudaginn 1. febrúar kl. 20.30 verður kynning á reiki-
heilun í Barnaskólanum. Aðgangur ókeypis.
2.-4. febrúar, kvölnámskeið 1. stig, hugsanlega 2. stig
sömu daga.
Upplýsingar í síma 97-81442.
Guðrún Óladóttir, reikimeistari.