Morgunblaðið - 30.01.1993, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 30.01.1993, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993 45 I I I I ) ) Vanþekking Sturlu Böðvarssonar Frá Jóni Helgasyni: í Morgunblaðinu birtist 24. jan- úar bréf frá Sturlu Böðvarssyni, 1. þingmanni Vesturlands og vara- formanni fjárlaganefndar Alþingis. Tilefni þessa bréfs virðist vera rit- stjórnargrein í 23. tölublaði búnað- arblaðsins Freys á síðasta ári. Rit- stjóri þess mun sjálfsagt fjalla um efni bréfsins að því leyti sem það snýr að blaðinu, ef honum finnst ástæða til þess. Bréfritari Morgunblaðsins notar hins vegar þetta tækifæri til að víkja nokkrum orðum að undir- rituðum. Ég tel því nauðsynlegt að gera nokkrar athugasemdir við þau, þó að þau virðast fyrst og fremst byggjast á ótrúlegri van- þekkingu höfundar, en segja má að þörfin fyrir leiðréttingu sé ennþá brýnni af þeim sökum. Það er að sjálfsögðu ekki alvarlegt þó að Sturla Böðvarsson viti ekki að for- maður Búnaðarfélags íslands er ekki í ritstjórn Freys og gefur ekki fyrirmæli um hvað þar skuli standa og þaðan af síður standi hann í að ritskoða efni þess fyrirfram. En önnur atriði eru alvarlegri. í bréfi sínu segir Sturla: „Niður- staðan varð sú að minnka endur- greiðslur á virðisaukaskatti vegna svínakjöts, nautakjöts, hrossa- og alifuglaafurða um 50 milljónir (ekki 250). í stað þess að endurgreiða 260 milljónir verða greiddar 210 milljónir." Veit Sturla Böðvarsson ekki að í greinargerð með fjárlagafrum- varpi fyrir árið 1993 stendur: „Gert er ráð fyrir að draga úr niður- greiðslum á nauta-, svína-, hrossa- og alifuglaafurðum á næsta ári og nemur framlagið 260 milljónum króna samanborið við 460 milljónir króna í ár.“ Síðan bætast við 50 milljónir króna sem Sturla Böðvars- son stóð að með öðrum í meirihluta fjárlaganefndar að skera niður við meðferð fjárlagafrumvarpsins í nefndinni og þá sjá flestir að niður- skurðurinn verður 250 milljónir króna, þ.e. lækkar úr 460 milljón- um króna í fjárlögum fyrir árið 1992 í 210 milljónir króna í fjárlög- um 1993. Það breytir engu þó að 200 millj. af niðurskurðinum hafi þegar komið fram í fjárlagafrum- varpinu. Meirihluti fjárlaganefndar mælti með honum líka og niður- staðan verður sú sama. í bréfi sínu segir Sturla Böðvars- son ennfremur: „í ritstjórnargrein Freys var þess hins vegar ekki getið að Byggðastofnun fær 100 milljónir króna til þess að efla at- vinnu í sveitum." Veit Sturla Böð- varsson ekki að í fjárlagafrumvarp- inu er ekki ein einasta króna til Byggðastofnunar til þess að sinna þessu verkefni sem kveðið er á um í viðauka II með búvörusamningi. Það sem Sturla Böðvarsson er sennilega að víkja hér að er eftir- farandi breytingartillaga sem meirihluti efnahags- og viðskipta- nefndar flutti fyrir 3. umræðu frumvarps til lánsfjárlaga fyrir árið 1993: „Fjármálaráðherra er heimilt að lána Byggðastofnun sérstaklega víkjandi lán að fjárhæð allt að 20 milljónir króna til að mæta fram- lögum í afskriftarsjóð útlána í tengslum við ákvæði í viðauka II við búvörusamning frá 11. mars 1991.“ Veit Sturla Böðvarsson ekki að Byggðastofnun er ríkisstofnun, þannig að öll lán sem stofnunin tekur er með ríkisábyrgð og er því erfítt að sjá af hveiju þarf slíkt ákvæði inn í lánsfjárlög um 20 milljónir króna af öllum þeim lánum sem Byggðastofnun er ætlað að taka á þessu ári. Eina skýringin er sú að á sl. ári gaf forsætisráð- herra, Davíð Oddsson, út reglugerð um Byggðastofnun sem batt mjög hendur hennar þannig að stofnunin hefur ekki heimild lengur til að leggja fram áhættufjármagn til stuðnings atvinnuuppbyggingar hvorki með hlutafé eða framlögum og mjög þrengt að heimild til lán- veitinga. Svör Byggðastofnunar eru því þau, að það eina sem hún geti gert séu þó lánveitingar með vöxtum og verðtryggingu og virðist Sturla Böðvarsson telja það mikinn stuðning við uppbyggingu atvinnu- lífs út um land. í bréfí sínu segir Sturla Böðvars- son:.....að í fjáraukalögum fyrir árið 1992 var veitt til að greiða uppsafnaða skuld vegna jarðrækt- arframlaga og einnig uppsafnaða skuld allt frá árinu 1977 vegna líf- eyrisskuldbindinga starfsmanna Allt hefur sinn tíma búnaðarsambanda. Allt síðasta kjörtímabil leið án þess að lífeyris- sjóðsskuldin væri greidd og hafði formaður Búnaðarfélags Islands haft gott tækifæri til þess að tryggja þá hagsmuni bænda, svo ekki sé talað um þá er hann var ráðherra allt fram á haust 1988.“ Það er að sjálfsögðu skylt að þakka fjárveitingar til greiðslu á lífeyrisskuldbindingum starfs- manna búnaðarsambandanna, en aðdragandi málsins er sá, að Líf- eyrissjóður opinberra starfsmanna greiddi áður þessar skuldbindingar og annaðist fjármálaráðuneytið það. Þær greiðslur voru hins vegar stöðvaðar þegar Jón Baldvin Hannibalsson varð fjármálaráð- herra í ríkisstjóm Þorsteins Páls- sonar. Kvartanir um þá stöðvun bárust landbúnaðarráðuneytinu hinsvegar ekki á meðan undirritað- ur gegndi starfi landbúnaðarráð- herra og hafði því ekki tök á að takast á við þá um þessa breytingu eins og fjölmörg önnur atriði í sam- bandi við fjárveitingar til landbún- aðarins. Það er að sjálfsögðu rétt að þakka fyrir hveija þá krónu sem veitt var til lögbundinna framlaga samkvæmt jarðræktarlögum, en e.t.v. væri gagnlegt fyrir Sturlu Böðvarsson að vita að á árunum 1984-1988 á meðan undirritaður kom að fjárveitingum í landbúnað- arráðuneytinu, þá voru framlög samkvæmt jarðræktar- og búfjár- ræktarlögum að meðaltali 465.377.000 kr. á verðagi í janúar 1991. En á sama verðlagi voru all- ar heimildir til greiðslu samkvæmt þeim lögum á árinu 1992, í fyrsta sinn sem Sturla Böðvarsson sat í fjárlaganefnd, kr. 209 milljónir og í fjárlögum fyrir árið 1993, þegar Sturla Böðvarsson er varaformaður fjárlaganefndar, þá eru sömu greiðslur 172.900.000 kr. Svipaða sögu er að segja um margar aðrar fjárveitingar. T.d. var fjárveiting til Rannsóknarstofnun- ar landbúnaðarins árið 1988 kr. 160.733.000 á verðlagi í janúar 1991 en á sama verðlagi í fjárlög- um 1993 kr. 122.000.000. Vonandi nægja þessar stað- reyndir til að hvetja Sturlu Böð- varsson til að kynna sér málin bet- ur og herða róðurinn við að vinna sem best að málefnum landbúnað- arins eins og ég er sannfærður um að Sturla Böðvarsson vill gera. JÓN HELGASON, alþingismaður, Seglbúðum Pennavinir DAN AYKROYD RIVER PHOENIX DAVID STRATHAIRN SIDNEY POITIER Frá Matthíasi Eggertssyni í Bréfi til blaðsins 24. janúar sl. er bréf frá Sturlu Böðvarssyni al- þingismanni þar sem hann vekur athygli á að gefnar hafí verið rang- ar upplýsingar í ritstjórnargrein Búnaðarblaðsins Freys, 23. tbl. 1992. Þar er sagt að af viðbótar- lækkun ríkisútgjalda upp á 1.240 uiillj. kr. sem ríkisstjórnin hafí kom- ið sér saman um að framkvæma skyldi landbúnaðinum gert að taka ú sig kr. 250 millj. Þegar umrædd ritstjórnargrein var skrifuð seint í nóvember stóðu mál eins og að framan greinir. Frá því var rækilega greint í fjölmiðlum og það er ekki rétt hjá Sturlu Böð- varssyni að Jón Helgason alþm. hafí haft afskipti af þessum skrifum í Frey. Tillögur ríkisstjómarinnar fóru síðan til meðferðar Alþingis og þar með fjárlaganefndar þar sem Sturla Böðvarsson er varaformaður. Eftir ítarlega meðferð á málinu varð nið- urstaða Alþingis sú að umræddur niðurskurður til landbúnaðarmála var minnkaður úr kr. 250 millj. í kr. 50 millj. eins og Sturla Böðvars- son getur réttilega, jafnframt því sem ákveðnar voru aðrar fjárveit- ingar til styrktar landbúnaði og dreifbýli sem Sturla getur einnig um og þakka ber. Rétt og skylt er að það komi fram að Freyr hefur ekki getið um þessa breytingu sem varð á ákvörðunum ríkisstjórnarinnar, né áðurnefndrar viðbótarfjárveitingar. Þar er blaðið í slæmum félagsskap fleiri fjölmiðla sem haga sér í anda Lofts ríka Guttormssonar, þar sem hann yrkir í Háttatali sínu fyrir um 500 árum: „Ef málin eru tvenn til, að tendra það sem verr stendr." Umkvörtunarefni Sturlu Böð- varssonar í garð Freys kennir mér hins vegar þá lexíu að varast skuli að trúa því sem nýju neti að ákvarð- anir ríkisstjóma komist endilega til framkvæmda, Nú má spyija hveiju það sæti að talsmenn bænda brugðust svo hart við ákvörðun ríkisstjómarinnar um viðbótarniðurskurð^ á fjárveit- ingum til landbúnaðar. Ástæðan var sú að engin stétt né starfshópur í landinu befur sætt annarri eins tekjuskerðingu og þeir sl. tvö ár. Þar má nefna að sauðfjárbændur hafa fengið á sig 31% niðurskurð á brúttótekjum, með niðurfærslu framleiðsluréttar um sama hundr- aðshluta. Nettó tekjumissir þeirra getur bæði verið meiri og minni en þetta; minni t.d. þar sem viðhalds- þörf á búinu er lítil en meiri t.d. þar sem greiða þarf háar upphæðir í afborganir og vexti af fjárfest- ingalánum. Þau lán hækka ekki þótt tekjumöguleikar rýrni. Ég trúi að okkur Sturlu Böðvars- syni sé þetta jafnmikið áhyggjuefni. MATTHÍAS EGGERTSSON, ritstjóri Freys, Bændahöllinni, Hagatorgi. Kanadískur frímerkjasafnari vill komast í samband við íslenska safn- ara: Paul Torrington, 76 Guildwood Drive, Hamilton, Ontario, Canada L9C 6S4. Frá Sádi Arabíu skrifar 25 ára Indveiji með áhuga á ferðalögum, bréfaskriftum, ljósmyndun, kvik- myndum o.fl.: Khursheed Alam, P.O. Box 4308, Dammam - 31491, Saudi Arabia. LEIÐRÉTTIN G AR MARY McDONNELL ...OG ÞETTA ERO 6ÓDU KALLARHIR Rangt starfsheiti í grein Grétars Guðmundssonar læknis í blaðinu í gær var hann sagður vera fangalæknir. Það er ekki rétt, því Grétar Guðmundsson er taugalæknir, sérfræðingur við taugalækningadeild Landspítala. Er hann beðinn velvirðingar á þess- um mistökum. Misritun í frétt á blaðsíðu 5 í Morgunblað- inu í gær misritaðist heiti á óperu Puccinis Manon Lescaut. Ritháttur- inn er eins og hér er notaður. Beð- ist er velvirðingar á þessu. FRUMSÝND Á ÞRIÐJUDAG í HÁSKÓLABÍÓI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.