Morgunblaðið - 30.01.1993, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 30.01.1993, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Þú ættir að koma reglu á bókhaldið. Þú nýtur þín í félagslífinu, og sumir eiga spennandi stefnumót. Vin- sældimar fara vaxandi. Naut (20. apríl - 20. maí) Ekki reisa þagnarmúr milli þín og einhvers nákomins. Þú færð góðar fréttir varð- andi viðskipti og ræðir við ráðamenn. Tvtburar (21. maí - 20. júnO Vinnan er í fyrirrúmi í dag, en þú hefur samt tíma af- lögu þegar líður á daginn til að slappa af eða skvetta úr klaufunum. Krabbi (21. júnf - 22. júlí) Hig Þú getur átt erfitt með að sameina gagn og gaman. Dagurinn er hinsvegar hag- stæður þeim sem standa í samningum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú ert að sinna einhverju varðandi heimilið árdegis. Sumir gera mikilvægan samning í dag. Góðar fréttir berast. Meyja (23. ágúst - 22. septcmber)<JÍ Nú er hagstætt að ræða við- skipti eða framtíðarhorfur í starfí. Þú gætir fengið kauphækkun eða verðugt verkefni að glíma við. Vog (23. sept. - 22. október) Þú ættir að kynna öðrum hugmyndir þínar og hæfi- leika. Hugmyndaauðgi leiðir til velfamaðar. Astvinir njóta kvöldsins. Sporddreki (23. okt. - 21. nóvember) Eigingimi getur komið í veg fyrir árangur. Góðar fréttir berast varðandi einhvem í ijölskyldunni. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) m Taktu ekki neina áhættu í kvöld. Dagurinn hentar þeim vel sem sinna félags- störfum. Vinafundir em á dagskrá kvöldsins. Steingeit (22. des. - 19. janúar) m Vinur gæti þurft á aðstoð þinni að halda. Þróun mála á vinnustað gæti leitt til aukinna tekna og viður- kenningar. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) th Vinnutilboð þarfnast frekari íhugunar. Hugmyndir þínar eru vel þegnar. Þú færð góðar fréttir varðandi ferða- lag. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þróunin í peningamálum er hagstæð. Þú gætir fengið óvæntan stuðning. Góðar fréttir berast varðandi Qár- festingu. Stjömusþána á aó lesa sem dœgraávöl. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staóreynda. DÝRAGLENS Il-zí' (SÓLWER.A0\ [a pee&J AtiG/J W GRETTIR TOMMI OG JENNI FERDINAND SMÁFÓLK l'VE DECIDEP l'M NOT 60IN6 TO C0LLE6E..I THINK l'LL TRA\/PI INPTPAP Ég hef ákveðið að fara ekki í menntaskóla ... ég held að ég ferð- ist í staðinn. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Bandaríska bridssambandið held- ur árlega þrjár stórar bridshátíðir; svokallaða „Nationals", sem kenndir eru við þijár árstíðir: vor, sumar og haust. Haustleikamir fóru að þessu sinni fram í Orlando í lok nóvem- ber. Þátttakan þar sló öll met: á 10 dögum var spilað samfleytt á 15 þúsund borðum! Hápunktur hátíðar- innar er úrslitaleikur Reisingar-svei- takeppninnar, sem spiluð er með „Board-a-Match“-sniði. Spil dagsins kom upp undir lok þeirrar keppni, þó ekki milli efstu sveitanna. Hetjan í suðursætinu heitir Larry Gould: Austur gefur, enginn á hættu. Norður ♦ KD7632 VÁD104 Vestur ^ Austur ♦ 95 ♦ 1072 ¥9763 11 ^5 ♦ 753 Suður ♦ KG109862 ♦ K865 ♦ Á104 + Á93 ¥ KG82 ♦ ÁD4 ♦ DG4 Vestur Norður Austur Suður - - Pass 1 grand Pass 2 hjörtu 3 tíglar 3 spaðar Pass 6 spaðar Pass 6 grönd Pass Pass Pass „Board-a-Match“-sveitakeppni er reiknuð út eins og tvímenningur. Hvert spil gefur einfaldlega topp, meðalskor eða botn - 2 stig, 1 stig eða ekkert stig. Þess vegna breytti Gould í 6 grönd með ÁD f tígli. Láglitaútspil hefði gert út um spilið strax á hvom veginn sem er, en vestur valdi að koma hlutlaust út með spaða. Einn af útskýrendun- um í sýningarsalnum, Lew Stansby, fór að tuldra eitthvað um laufsjö- una, en enginn skildi hvað hann var að fara. Ekki strax. Gould tók alla slagina á spaða og þijá á hjarta. Staðan leit þá þannig út: Vestur ♦ - ¥9 ♦ - ♦ K86 Norður ♦ - ¥10 ♦ - ♦ 1072 llill Suður ♦ - ¥ K ♦ ÁD ♦ D Austur ♦ - ¥ - ♦ KG ♦ Á9 Austur sá sæng sína uppreidda þegar hjartakóngurinn birtist á borð- inu, en gerði sitt besta með því að henda laufás. Gould tók þá tfgulás og spilaði laufdrottningu. Vestur drap á kónginn og átti eflir 86 í laufi, en blindur 107. Nú loks rann upp fyrir áhorfendum hvað Stansby var að fara. En allt var þetta unnið fyrir gýg. Hinum megin spilaði suður 6 hjörtu og vann sjö eftir tígulútspil. SKAK Umsjón Margeir Pétursson í Evrópukeppni landsliða í Debrecen í Ungveijalandi í haust kom þessi staða upp í viðureign stórmeistaranna Krunoslavs Hulak (2.530), Króatíu og Nigels Short (2.655), Englandi, sem hafði svart og átti leik. Hvítur var að enda við að drepa baneitrað peð, lék 22. Rf3xd4? ■ h C Ú • | g h 22. — Hd3! (Nú hefði hvítur getað gefist upp, því riddarinn á d4 er fallinn) 23. Rf5 - Hxdl, 24. Hxdl - Hxc4, 25 Bxc4 - Dd7 og Hulak gafst upp. Nigel Short náði góðum árangri f Debrecen að öðru leyti en því að hann var tekinn í kennslustund hjá heimsmeistaranum og tapaði með hvítu. Það truflaði Short nokkuð að breska sjónvarpsstöðin BBC var að gera langan þátt um hann meðan á mótinu stóð og létu sjónvarpsmenn hann aldrei í friði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.