Morgunblaðið - 30.01.1993, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 30.01.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993 17 Fer rauðsprettan fyrir Hæstarétt? Um dæmalausa málssókn vararíkissak- sóknara á hendur skipstjóra Frigg YE-41 eftir Árna Johnsen Sjaldan eru réttarhöld skemmti- leg, en þó ber svo við og víst er það broslegt hvemig rauðsprettutittur hefur riðlað vararríkissaksóknara með óskotheldum upplýsingum Haf- rannsóknastofnunar svo allt stefnir nú í að rauðsprettan verði að svara til saka fyrir Hæstarétti íslands. Málavextir voru þeir að varðskip tók Vestmannaeyjabátinn Frigg að meintum ólöglegum veiðum innan lokaðs hólfs skammt vestan við Homafjörð í svokölluðu Sláturhúsi um miðjan janúar sl. Varðskipsmenn höfðu mælt Frigg all nokkrum sinn- um og töldu skipið vera á toghraða. Þegar varðskipið kom að Frigg voru öll veiðarfæri uppi og skipið á fullri ferð utan Sláturhússins, en skipverj- ar voru að bardúsa á dekkinu. Varð- skipsmenn gerðu sína skýrslu sam- kvæmt skyldu, höfðu siglingahraða bátsins ekki á hreinu, en bentu á að troll virtist nýkomið úr sjó og toghlerar, sjófuglar hefðu fylgt bátnum, og að ein rauðspretta hefði spriklað á dekkinu. Það kom í ljós fyrir héraðsdómstól Suðurlands í Vestmannaeyjum að Frigg hafði siglt á meiri hraða en svo að troll hefði getað verið í sjó, að menn hefðu verið að dudda við aðgerð og nálægð sjófuglsins því eðlileg og að rauð- sprettan hafði spriklað í votta viður- vist. Skipstjórinn kvaðst hafa híft trollið 70-80 mínútum áður en varð- skipsmenn komu um borð og kvaðst hafa verið utan lokaða hólfsins. Þrengdust nú allar leiðir að rauð- sprettunni og spriklinu í henni. Það stefndi í að rauðsprettan yrði eina haldreipi saksóknara á þeim forsend- um að trollið hlyti að hafa komið mun síðar úr sjó en skipstjórinn sagði úr því að rauðsprettan var lif- andi. Spurning dómsvaldsins snerist þess vegna um' það hvort rauð- spretta gæti lifað á þilfari lengur en 70-80 mínútur. Fyrst fór Friggin inn til Horna- fjarðar, en síðan til Eyja og varðskip- ið með. Málið var tekið fyrir og vitna- leiðslur hófust og mælingar grand- skoðaðar. Friggin reyndist hafa ver- ið á 4,5 mílna hraða samkvæmt út- reikningum lögreglu, sem var langt fýrir ofan toghraða og var skipstjór- inn sýknaður alfarið af ákæru vara- ríkissaksóknara varðandi meintar veiðar í Sláturhúsinu. En rauðsprettan var ekki af baki dottin og embættiskerfið er lífsseigt og samt við sig. í vitnaleiðslum kom m.a. fram hjá Óskari á Háeyri, skip- stjóra og útgerðarmanni á Frá að Árni Johnsen „Það stefndi í að rauð- sprettan yrði eina hald- reipi saksóknara á þeim forsendum að troilið hlyti að hafa komið mun síðar úr sjó en skipstjórinn sagði úr því að rauð- sprettan var lifandi. Spurning dómsvaldsins snerist þess vegna um það hvort rauðspretta gæti lifað á þilfari lengur en 70-80 mínútur.“ hann hefði oft séð rauðsprettu, kola og aðrar flatfisktegundir sprikla á þilfari og í stíum mörgum klukku- stundum eftir að veiðarfæri voru komin um borð. Sækjandi spurði þá hvort rauðsprettan hefði örugglega verið lifandi þegar hún hreyfði _sig. „Hún spriklaði mikið,“ svaraði Ósk- ar, „en ég spurði hana ekki að því hvort hún væri lifandi." Allir sjó- menn hafaþessa þekkingu. Eitt sinn tók Guðni Ólafsson skipstjóri á Gjaf- ari rauðsprettu með sér heim í mat- inn. Hann vippaði henni á vaskahús- gólfið hjá Gerði sinni um kl. 10 að kvöldi, en rekja var á gólfinu. 12 klukkustundum síðar tók hann rauð- sprettuna upp til að flaka hana og þá tók hún til að sprikla einhver skelfingar ósköp. í baráttunni um líftíma rauð- sprettunnar á þurru var leitað til Jakobs Jakobssonar forstjóra Haf- rannsóknastofnunar og í lögreglu- skýrslu fyrir dómi var vitnað í Jak- ob. Haft er eftir honum að mjög ólíklegt sé að lífsmark hafi verið með rauðsprettunni eftir að hún hafi verið meira en klukkustund úr sjó. Einnig gat Jakob þess að dauða- teygjur gætu komið til greina, sér- staklega ef rauðsprettan hefði orðið fyrir áreitni, en einnig væru lífslíkur meiri í raka. Haft er eftir Jakob í lok skýrslunnar að hér sé um ágisk- un að ræða og ekki byggt á tilraun- um. Jóhann Pétursson veijandi Magna skipstjóra spurði varðskipsmanninn hvort hann hefði áreitt rauðsprett- una og játti hann því, kvaðst hafa snert hana og annar varðskipsmaður kvaðst einnig hafa séð rauðsprett- una sprikla án þess að til áreitni kæmi. Var það eins gott fyrir varð- skipsmanninn. Ekki fór á milli mála í réttarhöldunum að varðskipsmenn komu mjög heiðarlega fram og full- yrtu ekki þar sem vafaatriði voru. Sýknan var klár, en það merkilega skeði að vararíkissaksóknari ákvað að áfrýja málinu til Hæstaréttar og fór fram á að útgerð skipsins setti 1,5 millj. kr. tryggingu vegna afla, veiðarfæra og málskostnaðar, án þess þó að lög heimili að krefjast tryggingar fyrir afla og veiðarfær- um. Þessi trygging mun kosta Vinnslustöðina, útgerðaraðila Friggjar, um 200 þús. kr. hvað sem öðru líður og er ótrúleg kerfisbeit- ing, því vararíkissaksóknari virðist hafa áfrýjað málinu til Hæstaréttar áður en dómur lá fyrir í heiid sinni og án þess að hafa farið yfir vitnale- iðslur og dómsmeðferð sem var ekki komin úr vinnslu þegar áfrýjað var. Það er því ljóst að vararíkissaksókn- ari hefði mátt skoða málið betur því það verður erfitt verk að drepa rauð- sprettuna fyrir Hæstarétti. Til þess að kóróna nú allt gamanið tók Krist- ján Egilsson forstöðumaður Nátt- úrugripasafnsins í Vestmannaeyjum sig til í tengslum við dómsmeðferð- ina og tók rauðsprettu úr einu af kerum lifandi fiskasafnsins og setti hana á blautt gólfið hjá sér. Eftir fjórar klukkustundir tók kristján rauðsprettuna upp aftur og setti hana í kerið sitt þar sem hún synti áfram eins og ekkert hefði í skorist og er enn við bestu heilsu eins og þeir segja í Færeyjum. Það er vafa- samt að vararíkissaksóknari vilji kalla þessa rauðsprettu fyrir Hæsta- rétt, en dýrkeyptur er þessi reynslu- heimur á kostnað útgerðarinnar og sjómannanna sem töfðust dögum saman í landi. Höfundur er nlþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn i Suðurlandi. __________Brids___________ Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag Akureyrar Sveit Kristjáns Guðjónssonar er í efsta sæti á Akureyrarmótinu í sveitakeppni, hefir hlotið 173 stig. Búið er að spila 8 umferðir og hef- ir sveitin unnið 7 leiki og tapað ein- um með minnsta mun. Næstu sveitir: Sigurbjöm Þorkelsson 162 Páll Pálsson 159 Gylfi Pálsson 152 Marinó Steinarsson 146 Mótið er langt frá því búið því spiluð verður tvöföld umferð. Ellefu sveitir taka þátt í mótinu. Dynheimabrids Sverrir Haraldsson - Reimar Sigurpálsson 46 SæmundurKnútsson-EinarPétursson 45 Ragnhildur Gunnarsdóttir - Gissur Jónason 42 Kvennabrids Kolbrún Guðveigsdóttir - Ólína Siguijónsdóttir 95 Soffía Guðmundsdóttir - Júlíana Lárusdóttir 94 Jónína Pálsdóttir - Una Sveinsdóttir 94 Ósk Óskarsdóttir - Hólmfríður Eiríksdóttir 93 Friðbjörg Friðbjörnsd. - Ingigerður Einarsdóttir 92 Svæðamót Norðurlands eystra í sveitakeppni. Þijár sveitir unnu sér rétt til að spila í undanúrslitum íslandsmótsins. Óm Einarsson og með honum spiluðu: Hörður Steinbergsson, Grettir Frí- mannsson, Frímann Frímannsson, Páll Pálsson og Þórarinn B. Jónsson. Gylfi Pálsson og með honum spil- uðu: Helgi Steinsson, Gísli Pálsson, Árni Arnsteinsson, Gunnlaugur Guð- mundsson og Magnús Aðalbjörnsson. Sigurbjörn Þorgeirsson og með hon- um spiluðu: Skúli Skúlason, Magnús Magnússon, Reynir Helgason og Stef- án Stefánsson. Mótið var óvenju vel skipað. Sterkar sveitir Kristjáns Guðjónssonar, Her- manns Tómassonar og Guðlaugs Bessasonar komust ekki áfram að þessu sinni. Víkingsbrids Staðan eftir tvö kvöld í hraðsveita- keppni: Guðmundur Samúelsson 1.209 Kristinn Friðriksson 1.165 Ólafur Friðriksson 1.089 Eggert Guðmundsson 1.057 Næsta umferð verður þriðjudaginn 2. febrúar nk. kl. 19.30. Bridsdeild Rangæinga Staða efstu para að loknum 9 um- ferðum í barómeter-tvímenningi: BaldurGuðmundsson-JónHjaltason 67 Karl Nikulásson - Loftur Þ. Pétursson 46 Bragi Jónsson - Öm Bragason 42 Einar Pétursson - Helgi Skúlason 37 Traust merki... tryggir gœði! ". " t * • Aubvitað Bahlsen þegar eitthvað stendur til! Æíúi Aiwftrifilcfl SALTKEX EINS ÖG ÞAÐ GERIST BEST Hæfiléga stort, matulega stökkt, passlega salt, einsfaklega gott... Meb ostinum, salatinu og ídýfuríni. - F.ða bará eitt sér... <n'énmafk? s*v ""a^e/oSr 1 og Orlyg Síðumúla 1 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.