Morgunblaðið - 30.01.1993, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 30.01.1993, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993 36 Guðmundur Ama, son — Minning Fæddur 21. september 1975 Dáinn 20. janúar 1993 Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Atvik, sem á sínum tíma virtust lítilvæg, verða ógleym- anleg. Minningar um Gumma verða ljóslifandi í huga mínum, minningar sem ég hélt horfnar. Hugurinn hverfur aftur til fyrstu áranna í lífi okkar. Þó að við værum fædd á sitthvoru árinu voru aðeins fjórir mánuðir á milli okkar, og fram að skólaajdri vorum við leikfélagar og vinir. Ég man fyrst eftir leikjum okkar í garðinum við Skólavelli 10. Ég leit alltaf mikið upp til hans, hann var svo skemmtilegur og hug- aður og hann vissi svo margt. Leik- ir með Gumma breyttust alltaf í ævintýri, þó að honum hafi sjálf- sagt fundist litla frænka sín vera hálfgerður dragbítur. Hann var allt- af góður við mig og ólíkt mörgum öðrum börnum var hann aldrei nísk- ur á að lána dótið sitt, að minnsta kosti ekki þegar ég átti í hlut. En þegar ég hugsa um árin þeg- ar við vorum sjö til tíu ára gömul kemur aðeins eitt orð upp í hug- ann: Slagsmál! Á þessum aldrei þótti óskaplega asnalegt, og nánast óhugsandi, að strákar og stelpur lékju sér saman. Við leystum það vandamál snilldarlega með því að slást í hvert skipti sem við hitt- umst. Það var ekki það að okkur væri beint illa hvoru við annað en svona varð þróunin engu að síður. Og þegar við komumst á unglings- árin áttum við á tímabili alls ekki samleið. Vegna okkar ólíku áhuga- mála hittumst við sjaldan og á þess- um árum er oft erfítt að tjá öðrum tilfínningar sínar. Við vorum engin undantekning nema síður sé. Okkur þótti vissulega vænt hvoru um ann- að, en að viðurkenna það var ekki alltaf auðvelt. Eftir að Gummi fór til Bandaríkj- anna breyttist þetta allt. Ég gleymi aldrei kvöldinu þegar hann kom að kveðja mig. Mér þótti svo vænt um að hann skyldi gera sér ferð til að kveðja frænku sína, og hvorugt okkar óraði fyrir að við værum að hittast í síðasta sinn. Hann hringdi þrisvar í mig frá Bandaríkjunum og við töluðum lengi saman. Loks- ins leit út fyrir að við værum að ná saman aftur og ég hlakkaði svo til að fá hann heim aftur, því það var eins og ég hefði eignast nýjan vin, sem þó var æskuvinur minn. Við vorum rétt að byija að kynnast aftur og hann hafði þroskast mikið á þessum tíma sem hann var úti. Hann hafði breyst úr Gumma prakkara í hæglátan ungan mann. Ég vildi óska að við gætum átt fleiri stundir saman, en nú hefur guð tekið hann til sin. Því kveð ég elsku frænda minn og vona að hann viti, hvar sem hann dvelst núna, hvað mér þótti vænt um hann. Ágústa. Það voru sorglegar fréttir, sem okkur vinunum bárust 20. janúar, um að hann Guðmundur vinur okk- ar væri látinn eftir hörmulegt bíl- slys 18. janúar. Við áttum bágt með að trúa því, að Guð skyldi hrífa hann til sín, ungan, hraustan og vel gefínn dreng eins og Guðmund- ur var. En sagt er að þeir deyi ungir sem guðimir elska. Gummi, eins og hann var kallað- ur, var lífsglaður og átti sér marga framtíðardrauma, sem því miður verða ekki að veruleika. Hann var vel gefínn og átti auðvelt með nám. Einnig var hann handlaginn og bjargaði því, sem bjarga þurfti er á reyndi. Bamgóður var hann mjög og hafði mikið dálæti á börnum. Fáa galla hafði hann, en var fastur fyrir og stóð alltaf fyrir sínu. Þrátt fyrir það var Gummi enginn engill frekar en við. Þau vom ófá prakkarastrikin, sem við brölluðum saman, og oft var glatt á hjalla. Imyndunaraflið var öflugt, en samt ekki taumlaust. Hann var góður félagi okkar í því öllu og gaf oft góð ráð. Gummi var mikill áhuga- maður um bíla og vélar og eyddi miklu af frítíma sínum í þessi áhugamál. Við það var hann svo fær, að við dáðumst að því. Við þökkum Guði fyrir að hafa fengið að njóta samvista við hann í þessu lífí. Hann á eftir að skilja stórt skarð eftir sig, sem ekki verð- ur hægt að fylla. Megi Guð styrkja ijölskyldu hans og ættingja í þess- ari miklu sorg. Einar, Benedikt, Unnar og Ásmundur. Enn einu sinni hefur verið höggv- ið skarð í hóp ungmenna þessa lands. Við skiljum ekki hvers vegna og óréttlætiskennd nær tökum um stund, en vegir Guðs em órannsak- anlegir og örlög mannanna misjöfn. Guðmundur Ámason var nem- andi minn í Bamaskólanum á Sel- fossi frá sjö til tólf ára aldurs. Við kölluðum hann alltaf Gumma Á., þar sem tveir Guðmundar vom í bekknum. Gummi var laglegur drengur með glettnisglampa í augum og oft var stutt í gáska og hlátur. Hann var vel gefínn og nám hans olli hvorki honum né mér minnstu áhyggjum. Hann skildi hlutina strax og leitaði sér þekkingar utan skólabókanna. Oft sagði hann mér frá ýmsu sem hann hafði lesið eða heyrt um og fannst hann þurfa að miðla til mín. Margar ljúfar minningar hrannast upp frá þessum ámm. Auk þessað vera nemandi minn var hann bekkjarfélagi og góður vinur sonar okkar, Sigurmundar. Við vomm samhentur hópur í EJ- bekknum og áttum saman margar ánægjustundir. Við héldum skemmtikvöld, lögðum „flöskupen- inga“ í sjóð til að sjá Ronju ræn- ingjadóttur, fóram í gönguferðir o.fl. o.fl. Aldrei vantaði Guðmund í hóp- inn. í tólf ára bekk gaf bekkurinn út skólablað. Á forsíðu þess skrif- aði ég þessa stuttu kveðju: „Við hófum flest samstarf okkar við Barnaskólann á Selfossi fyrir sex + Eiginkona mín og móðir, HALLVEIG ÁRNADÓTTIR, Hafnargötu 9, Vogum, er látin. Magnús Ágústsson, Árni Magnússon. VÉDÍS LEIFSDÓTTIR, Hverfisgötu 49, andaðist á heimili sínu 29. janúar. Fyrir hönd vandamanna, Stefán Karlsson, Guðrún Svava Svavarsdóttir, Egilt Þorsteinsson. + Eiginmaður minn og faðir okkar, BERGUR V. SIGURÐSSON frá Bæjarskerjum, fyrrverandi verkstjóri, Stafnesvegi 2, Sandgerði, lést í Landspítalanum 28. janúar. Pálína Þ. Theodórsdóttir, börn og aðrir vandamenn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, stjúpfaðir, afi og langafi, SIGURÐUR JÓN GUÐMUNDSSON, Hrafnistu, Reykjavik, áður Urðarstíg 6, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu mánudaginn 1. febrúar kl. 13.30. Gyðriður Jónsdóttir, Sigurþór Sigurðsson, Kristján Sigurðsson, Sigurður G. Sigurðsson, Einar Sigurðsson og aðrir aðstandendur. + Innilegar þakkir tii allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, fósturföður, tengdaföður, afa og langafa, ÁGÚSTS BJARNASONAR frá Vestmannaeyjum. Sórstakar til starfsfólks elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar. Hörður Ágústsson, Margrét Guðjónsdóttir, Birgir Sigurðsson, Jóna Sigríður Kristjánsdóttir, íris Sigurðardóttir, Hafsteinn Ágústsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför ástkærr- ar móður okkar, STEFANÍU GUÐRÚNAR GRÍMSDÓTTUR frá Húsavík í Strandasýslu, Skjólbraut 1a, Kópavogi. Einnig kærar þakkir til starfsfólks í Fannborg 1 og á Skjólbraut 1a, Kópa- vogi, og starfsfólks og lækna, sem önnuðust hana á Borgarspítal- anum. Grimur S. Runólfsson, Sigfríður Runólfsdóttir, Agnar Runólfsson, Óli S. Runólfsson, Ragnheiður Runólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Katrfn Oddsdóttir, Guðjón Andrésson, Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, Lýður Magnússon, + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KRISTJÁNS SIGMUNDSSONAR, Heiðarbraut 15, Keflavík. Sérstakar þakkir til Maríu Sigurðardótt- ur, Margrétar Haraldsdóttur, sjúkra- flutningamanna hjá BS, lögreglunnar í Keflavík, hjúkrunarfólks og læknis á slysastofu Sjúkrahússins í Keflavík og séra Ólafs Odds Jónssonar. Kristin Guðmundsdóttir, Eygló Kristjánsdóttir, Guðbjörn Páll Sölvason, Soffi'a Kristjánsdóttir, Reynir Pálsson, Ólafur Benóní Kristjánsson, Bragi Kristjánsson, Kolbrún Björgvinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. ámm. Nú lýkur ykkar námi hér og framhaldið tekur við í öðmm skóla. Ég þakka ykkur kærlega þessi ár. Gangi ykkur vel á framabrautinni." Ekkert okkar hefði trúað þá að svo stutt væri í það að einn úr þessum lífsglaða hópi ætti aðeins nokkur ár ólifuð og framabrautin hans Gumma Á. yrði ekki lengri. Rétt fyrir jól sat Benni bróðir hans inni á skólasafni hjá mér og fór að segja mér þær fréttir að Gummi væri skiptinemi í Bandaríkj- unum og líkaði vel. Við sóttum landakort og veltum fyrir okkur hve gaman það væri hjá honum að vera í fallegu fjallahéraði Virginíufylkis og fá m.a. að fara á veiðar með húsbóndanum. Þetta á nú við hann Gumma hugsaði ég. í janúar þegar vetur konungur fyllir götu og garða af snjó berst okkur sú harmafregn að Gummi hafí látist af völdum bíl- slyss í Bandaríkjunum er hann var á leið í skólann. Við stöndum agn- dofa og vildum gjaman geta slopp- ið við að heyra slíkt, en við vitum að við erum einskis megnug og líf- ið er ekki alltaf dans á rósum. Sólin hættir aldrei að skína og við horfum fram á veginn með góð- ar minningar í huga. Við Jón og Sigurmundur biðjum góðan Guð að styrkja foreldra hans og bróður í þeirra miklu sorg. Megi minningin um góðan son styrkja ykkur og ylja. Édda Björg Jónsdóttir. Sú harmafregn barst okkur mið- vikudagskvöldið 20. janúar að Gummi frændi okkar og vinur hefði látist af slysfömm í Virginíufylki í Bandaríkjunum, þar sem hann dvaldi sem skiptinemi. Það hefði engan órað fyrir því er hann lagði land undir fót í ágúst- mánuði að við fengjum aldrei að sjá frænda okkar aftur. Það er erf- itt til þess að hugsa að fá ekki að sjá aftur þá lífsgleði og bjartsýni sem jafnan skein af honum í leik og starfí. Gumma var alltaf tekið vel hvert sem hann kom og skal engan undra, því framtakssamari og dugmeiri dreng var vart að fínna. Það er fyrst og fremst minningin um fas hans og framkomu sem er okkur efst í huga á þessum erfíðu tíma- mótum. Jafnframt skýtur upp í huga okkar hve samband þeirra bræðra, Gumma og Benna, var náið og hve vel þeir reyndust hvor öðmm allar þær stundir sem þeir áttu saman. Víst er þetta löng og erfíð leið, og lífíð stutt og margt, sem út af ber. En tigið gegnum tál og hverskyns neyð skín takmarkið og bíður eftir þér. Hve oft þú hrasar, oft þig brestur mátt, hve undarlega er gott að sitja kyrr. Samt kemstu á fætur, réttir höfiið hátt, og hraðar þér af stað sem áður fyrr. Svo styttist þessi ganga smátt og smátt, og seinast stendurðu einn við luktar dyr. (Steinn Steinarr) Elsku Árni, Hansína, Benni og Þóra, við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Guð gefí ykkur styrk, megi minningin um góðan dreng lifa með ykkur. Hafrún, Ægir Már, Sveinn Viðar, Sævar Már og Kolbrún. Ungan og efnilegan dreng er erfítt að missa og erfítt að minnast hans fyrst eftir fráfallið. Það er svo stutt síðan þessi sautján ára piltur var eins og hluti af minni eigin fjöl- skyldu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.