Morgunblaðið - 30.01.1993, Page 11
MORGUNBJLAÐIÐ, LiAUGARDAGUR 130. JANÚAR 1993
on
Ian Hamilton Finlay
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Á miðju síðasta ári birtust
fréttir um að menningarmála-
nefnd Reykjavíkur hefði ákveðið
nýja stefnu í sýningarmálum
Kjarvalsstaða, sem felst í því að
frá upphafi þessa árs verða allar
sýningar í húsinu skipulagðar
af menningarmálanefnd og sett-
ar upp í nafni hennar; salir
Kjarvalsstaða verða því ekki
lengur leigðir einstökum lista-
mönnum eða hópum þeirra til
sýninga, og öll ábyrgð af sýning-
arhaldi verður því á einni hendi.
Þessar fréttir hlutu litla at-
hygli þegar þær komu fram, en
hið nýja fyrirkomulag á væntan-
lega eftir að vekja meira umtal
þegar frá líður, og tíminn einn
mun leiða í ljós hvort þessi stefna
verður Kjarvalsstöðum til góðs
eður ei. Þó má benda á að jafn-
framt var ákveðið að lengja þann
tíma sem hver sýning stendur,
og er slíkt til mikilla bóta; einnig
má vænta þess að samræmdur
undirbúningur sýninga skili sér
í faglegum uppsetningum og
sýningarskrám, og á þessu sviði
lofar byijunin góðu.
Fyrsta sýning Kjarvalsstaða
undir hinni nýju sýningarstefnu
er stór sýning á verkum skoska
listamannsins Ians Hamiltons
Finlays, og tengist Skottís,
skosk-íslenskum menningardög-
um, sem standa yfir í Reykjavík
um þessar mundir. Allt sýningar-
rými Kjarvalsstaða er lagt undir,
og er uppsetningin til fyrirmynd-
ar, enda krefst sú list sem hér
er á ferðinni mikils af gestum
og því nauðsynlegt að hún sé
eins aðgengileg og mögulegt er.
Ian Hamilton Finlay er einn
þeirra listamanna sem hafa orðið
þekktir fyrir persónulega fram-
göngu ekki síður en fyrir listina.
Hann lifir einangruðu lífí, er
ómannblendinn og vinnur mest
í samvinnu við fáa einstaklinga;
engu að síður hefur hann staðið
dyggan vörð um list sína, og
sýnt mikla þrautseigju í deilum
og málaferlum við yfirvöld, t.d.
bæði heima í Skotlandi og Frakk-
landi. Nafn hans er vel þekkt
innan listaheimsins, og verk hans
er að fínna víða um lönd, þó
heima fyrir hafí hann vart hlotið
verðskuldaða viðurkenningu enn
sem komið er.
Rætur Finlays sem listamanns
liggja öðru fremur í ljóðlistinni,
og á sjöunda áratugnum gat
hann sér orðs sem einn að merk-
ari boðberum konkret-ljóðsins.
Frá þessu upphafí lá leiðin út í
hönnun grafíkverka, höggmynda
og garða, en á öllum þessum
sviðum hefur Finlay átt sam-
vinnu við aðra listamenn um hina
endanlegu gerð verkanna, sem
hefur orðið til að auka á fjöl-
breytni þess sem Finlay lætur
frá sér fara. Þetta sést vel á
sýningunni á Kjarvalsstöðum,
þar sem verk í öllum stærðum,
gerðum og litum fylla salina.
í allri ijölbreytninni er þó ljóst
að list Finlays grundvallast fyrst
og fremst á hinu ritaða orði, og
að orðið hefur ætíð ákveðna til-
vísun. Finlay stofnaði snemma
eigið útgáfufyrirtæki, The Wild
Hawthorn Press, til að koma
verkum sínum á framfæri; sýn-
ingin á Kjarvalsstöðum er raunar
einnig kennd við það fyrirtæki.
Þó að orðið (sem hér er ýmist á
ensku, frönsku eða latínu) sé
þannig undirstaða alls í verkum
Finlays og geri nokkrar kröfur
til gesta um tungumálakunnáttu,
þá skipta hinir sjónrænu miðlar
einnig máli, og víkka grundvöll
verkanna; neonljós í ýmsum lit-
um, litprentuð spjöld, setningar
á fréttaborða — allt verður þetta
til að gera hina sjónrænu reynslu
ríkulegri.
Ef reyna ætti að skipa lista-
manninum í flokk innan nútíma-
listar liggur beinast við að fjalla
um Finlay sem konsept-lista-
mann, þar sem hann fæst að
mestu við hugmyndir og úr-
vinnslu þeirra í verkum sínum.
Hins vegar er sú flokkun ekki
einhlít, því Finlay gerir meira
af því en flestir samtímamenn
hans að leita aftur til listasög-
unnar að efnivið til að nota við
að varpa nýju ljósi á ýmislegt
sem stendur okkur nærri nú á
tímum. í þessu sambandi má
nefna þá flokka verka sem hann
hefur gert og tengjast goðsögn-
inni um Apolló og Dafne, sælud-
alnum Arkadíu, og loks frönsku
byltingunni, en verk sem tengj-
ast henni (og einstökum hetjum
hennar) eru áberandi hér.
Þau verk sem snúa að bylting-
armanninum Saint-Just, sögu
hans og skoðunum, eru einn at-
hyglisverðasti hluti sýningarinn-
ar. Þegar borgarastyijaldir geisa
leynt og ljóst víða um lönd er
yfírfærslugildi þess sem gerðist
fyrir tveimur öldum augljóslega
talsvert, og þær kenningar sem
þama eru settar fram virðast enn
í fullu gildi, hversu óhugnanleg
sem sú tilhugsun er. Afstaða
franskra yfírvalda til verka
Finlays er síðan ljósasti votturinn
um þá skinhelgi sem einkennir
alla umræðu um það ofbeldi sem
fylgir manninum. Finlay hefur
haldið því fram að ofbeldi, stríð
og kúgun þess séu allt að því
forboðin viðfangsefni, á líkan
hátt og kynlíf og kvenlíkaminn
var fyrr á tímum; viðbrögð við
verkum hans styðja þessa kenn-
ingu.
List Ians Hamiltons Finlays
er ekki auðskilin, heldur má
fremur líkja verkum hans við
sáðkom, sem eiga eftir að bera
ávöxt í hugum sýningargesta,
ef þau falla í fijósama jörð. Oft
er um að ræða misflókna leiki
með orð og letur, sem skemmta
auganu um leið og þeir beina
athyglinni að pólitískum eða
sögulegum skoðunum lista-
mannsins. Einnig em hér verk
sem kreíja sýningargestinn um
tíma, íhugun og jafnvel endan-
lega afstöðu til þess málefnis
sem listamaðurinn hefur tekið
til umfjöllunar. Það er ekki al-
gengt að listsýningar geri slíkar
kröfur til sýningargesta, og fyrir
það eitt er list Ians Hamiltons
Finlays vel þess virði að henni
sé veitt verðskulduð athygli.
Sýningarskrá er í óvenjulegu
formi, og þar er að fínna tvær
ágætar ritgerðir um listamann-
inn, sem skýra ýmsar hliðar á
verkum hans; það væri ráðlegt
að lesa þessar ritgerðir að
nokkru yfir kaffibolla áður en
sýningin er yfírgefin.
Sýningin á verkum Ians
Hamiltons Finlays á Kjarvals-
stöðum stendur til sunnudagsins
7. febrúar, og eru listunnendur
hvattir til að gefa sér góðan tíma
til að skoða hana.
M A R ATAPLAN!
Ian Hamilton Finlay: „Marat“ 1986.
SJÁLFSKIPTUR
SUIMIMY
Framhjóladrifinn SUINIIMY hlaðinn aukahlutum:
Bein innsprautun, IBOOcc, yfir 100 hestöfl, vökva og veltistýri, samlæsing á hurðum,
rafdrifnar rúður, útihitamælir og margt margt fleira
VERÐ AÐEIIMS 1.066.000-
Bílasýning um helgina í Keflavík BG bílasölunni frá kl 14-17
OPIÐ UM HELGINA
FRÁKL 14-17
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöföi 2,112 Reykjavík
P.O. Box 8036, Sími 674000
IMIS5AIM