Morgunblaðið - 30.01.1993, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993
Myrkir músíkdagar
_________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Tónlistarhátíðin Myrkir
músíkdagar, sem Tónskáldafélag
íslands hefur staðið fyrir annað
hvert ár frá 1980, hófst með tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands sl. fimmtudagskvöld í Há-
skólabíói. Á efnisskránni voru
verk eftir Hauk Tómasson, Will-
ian Sweeney og Sally Beamish.
Einleikari var saxófónleikarinn
Tommy Smith en hljómsveitar-
stjóri Gúnther Schuller.
Fyrsta verk tónleikanna, Af-
sprengi, eftir Hauk Tómasson,
er sérlega hægferðugt verk en
býr samt yfir haminni spennu,
sem aldrei skapar þó virkileg
skil í verkinu. Tónvefurinn er
víða ákaflega þéttur, svo að ýms-
ar fínlega mótaðar tónhugmynd-
ir, sem ættu vel heima í kammer-
tónlist, náðu trauðla í gegn, þar
sem þykkast var ofíð.
An Rathat Úr (Nýja brautin)
nefnist konsert fyrir tenórsaxó-
fón og hljómsveit eftir William
Sweeney. í þessu verki er ríkj-
andi sterk tónmiðja, er minnir
að nokkru á drunutón sekkjapíp-
unnar og var fallega leikið með
ýmsar tónhugmyndir. Tommy
Smith lék á tenórinn og gerði það
mjög vel en hlutverk einleiks-
hljóðfærisins er á köflum mjög
„improvisatorískt“ og er það því
eins konar skoskur „third ste-
em“, sem stjórnandinn Gunther
Schuller kallaði sína eigin tilraun
til að sameina klassík og jazz.
Síðasta verkið er samið fyrir
Reykjavíkurborg, en heitir samt
„Sinfónía fyrir Róbert" og er eft-
ir Sally Beamish. Verkið er sin-
fónískt tilbrigðaverk með sterkri
tilvísan til skoskrar sekkjapípu-
tónlistar, án þess þó að líkja eft-
ir henni. Verkið er ágætlega sam-
ið, þar sem blandað er saman
tónal vinnubrögðum og klasa-
kenndri hljómskipan. An Rathat
Úr og Sinfónía fyrir Róbert eru
ekki „sérlega nýtískuleg“ verk
en ágætlega unnin og voru í heild
mjög vel flutt undir frábærri
stjórn Gunther Schuller.
13
Listvinafélag HallgTÍmskirkju
Frönsk orgeltónlist frá 20. öld
Á morgun, sunnudaginn 31. jan-
úar, kl. 20.30 gengst Listvinafé-
lag Hallgrímskirkju fyrir orgel-
tónleikum sem eru hinir fyrstu
á nýju ári og eftir vígslu kirkju-
orgelsins. Björn Steinar Sól-
bergsson organisti við Akur-
eyrarkirkju leikur frönsk orgel-
verk eftir Widor, Duruflé og
Messiaen. Tónleikarnir á morg-
un eru upphafið að röð orgeltón-
leika sem haldnir verða í Hall-
grímskirkju í hvarjum mánuði
fram á vor og leiða fram marga
bestu orgelleikara landsins.
Á efnisskrá tónleikanna eru fjór-
ir þættir úr orgelsinfóníu nr. 5 í
F-dúr eftir Charles Marie Widor
(1845-1937), en lokaþáttur hennar,
tokkata í F-dúr, er eitt af þekktari
og vinsælli verkum orgelbók-
mennta, hluti af „La Nativité de
Seigneur“ eða Fæðingu frelsarans
eftir trúartónskáldið merka Oliver
Messiaen (1908-1991), og tveir
þættir úr „Suite" op. 5 eftir
Maurice Duruflé (1902-1986).
„Það er stórmunur á franskri
orgeltónlist og t.d. þýskri," segir
Björn Steinar, „ég mun spila verk
frá hinu svokallaða sinfóníska org-
eltímabili sem hófst nokkuð fyrir
síðustu aldamót með franska tón-
skáldinu og orgelleikaranum César
Franc og þróaðist síðan áfram.
Stíll þessa tímabils er afskaplega
lifandi og skemmtilegur og hefur
MYRKIR
MÚSÍKDAGAR
Laugardagur 30. febrúar.
Fiðlutónleikar Auðar Hafsteins-
dóttur á Kjarvalsstöðum klukk-
an 17.
Morgunblaðið/Kristinn
Björn Steinar Sólbergsson framan við hið nýja orgel Hallgrímskirkju.
náð mikilli hylli. Tímabilið tengist hljómsveit. Hið nývígða orgel Hall-
mjög nýrri byggingu orgela, og í grímskirkju tekur mið af þessum
samvinnu við orgelsmiðinn Cava- möguleikum, og ræður raunar yfír
ille-Coll reyndi Franck að laga margvíslegum stíltegundum orgel-
smíðina að hugmyndum sínum um tónlistar, enda hreint frábær hönn-
að orgelið réði yfir meiri möguleik- ' un, sem hefur nú þegar gjörbylt
um á stýrkleikabreytingum en eldri öllu tónleikahaldi á höfuðborgar-
gerðir og skyldleika við sinfóníu- svæðinu.“
Bílamarkaöurinn
Opið sunnud. kl. 14 - 18.
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, sími
671800 ^
alsverð hreyfing
antar góða bíla á
sýningarsvæðið
••• AÐ KAUPA NÝAN CIVIC
Við teljum þær ekki allar upp,
þar sem hver einasti hlutur sem
Honda Civic er settur saman úr,
mælir með sér sjálfur. Á sama
hátt og veikasti hlekkur keðju
segir til um gæði hennar, segir
veikasti hlutur bílsins til um
gæði hans.
ðum 24 • Sími (91) 68 99 00
A RETTRI LINU
AuglýsmgaSetrwJ hf