Morgunblaðið - 30.01.1993, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993
Bravó Helga!
eftir Elínu K.
Thorarensen
Um jólaleytið barst mér í hend-
ur bók Helgu Siguijónsdóttur,
námsráðgjafa, sem útgefín er af
Náms- og foreldraráðgjöfinni og
las hana með athygli. Bókin heitir
Skóli í kreppu. Hana ættu sem
flestir að lesa, alla vega þeir, sem
hafa áhuga á menntun og skóla-
haldi á þessu landi. Bókin fæst
hjá Námsgagnastofnun og á að
fást hjá Bóksölu stúdenta. "
Áður hafði ég lesið í Morgun-
blaðið og DV sinn hvorn ritdóminn
um bókina, sem birtust seinni part
nóvember í sitt hvoru blaðinu með
tveggja daga millibili. Hvorki voru
þessir ritdómar tengdir faglegri
úttekt né örlar á nokkrum þeim
skilningi á því viðkvæma vanda-
máli, sem hér er á ferðinni, sem
sé 25% fall nemenda í hinum al-
menna grunnskóla, enda þótt báð-
ir ritdómendur tengist skóla og
menntun.
Það er ekki rétt, að samkvæmt
skoðunum Helgu sé sá skóli beztur
sem sinnir þessum nemendum
(25% fall, innskot höfundar) mest.
Það sem Helga á við, er það, að
grunnskóli, sem er skyldunám og
sem vill standa undir nafni, sinnir
einnig þeim löku og reynir að finna
ástæðuna fyrir því, að þeir standa
sig ekki betur. En ástæður fyrir
slíku geta verið margvíslegar, eins
og allir vita. Þá er engin ástæða
fyrir því að láta fara fyrir bijóstið
á sér, að Helga skuli gefa bók sína
út sjálf né það sem verra sé, að
hún hafi orðið til á 6 sl. árum en
„ekki löngum starfsferli". En í því
felst misskilningurinn. Bókin Skóli
í kreppu byijaði að verða til árið
1957, þegar Helga byijaði sem
ungur kennari í Kópavogsskóla.
Ef við drögum árið 1957 frá árinu
1993, koma út 36 ár, -5 ár (sem
seinna kemur skýring á), þá fáum
við út 31 ár, sem ég held að flest-
ir verði mér sámmála um, að sé
þó nokkuð langur starfsferill. Það
er heldur ekki rétt, að bókin sé
morandi af ritvillum. Slíkur dómur
er ótrúlega ófyrirleitinn, þótt skoð-
anaskipti séu mismunandi ogjaðr-
ar við atvinnuróg. Að kennari, sem
er búinn að vera 30 ár í starfi,
skuli vera sakaður um að vera
ekki sendibréfsfær, og ekki nóg
með það, hann er með BA-próf í
íslensku frá HÍ. Stafsetning er
ágæt og bókin ekki með fleiri vill-
um en almennt gerist í útgáfu.
Prentvillupúkinn fer ekki í mann-
greinarálit. Stundum hafa stafir
fallið brott í endingu eða innan í
orði. Hlutir sem alltaf geta gerzt.
Helga reynir hvorki að gerast rit-
höfundur né fræðimaður. Hún er
nefnilega hvort tveggja. Hún berst
fyrir málstað sem hinn íslenzki
almenni grunnskóli hefur hvorki
hirt um né verið fær um að með-
höndla, sakir fordóma.
Helga er lengi búin að beijast
fyrir réttindum þessara nemenda,
sem hafa hingað til verið flokkað-
ir „of heimskir til að læra“. Sú
er þó ekki raunin. Misjafnir nem-
endur eru misheppnir með kennara
og heimilisástæður. Þeir, sem
lenda hjá færum og samvizkusöm-
um kennara, t.d. allt frá byijun,
hafa geysilegt forskot á hina, sem
lenda tíðum á kennaraskiptum og
mishæfum kennurum. Þá er Helga
sökuð um, að hún hafí ekki tamið
sér sjálfsaga. í sambandi við sjálf-
sagann er rétt að líta á feril Helgu,
allt frá því að hún byijaði að kenna
í Kópavogsskóla 1957, þá nýlega
orðin 21 árs. Þar kennir hún í 15
ár til ársins 1972. Síðan koma 5
ár, sem hún eyðir í háskólanám,
sem Iýkur með BA-prófí í þremur
fögum frá HÍ, í íslenzku, sálfræði
og sögu 1979, og takið eftir, hún
byijar kennslu 1977 við Víghóla-
skóla, sem sé_ hún vinnur með
námi sínu í HÍ í tvö ár. Hún er
stúdent frá MR 1956, og með
kennarapróf frá Kennaraskóla ís-
lands 1957. Hún hefur stundað
nám í námsráðgjöf við HÍ og al-
mennri bókmenntafræði við há-
skólann í Gautaborg. Hún kennir
við Víghólaskóla til ársins 1982
og við Menntaskólann í Kópavogi
frá 1982, þar sem hún hefur verið
námsráðgjafí einnig frá 1983. Auk
þess hefur hún verið stundakenn-
ari í nokkur ár við Háskóla íslands
og Kennaraháskóla íslands og
kennt kennslufræði, íslenzku og
kennslu seinfærra nemenda á
framhaldsskólastigi. Hún er núna
í magistemámi í málfræði og bók-
menntum við Háskóla íslands.
Eftir hana liggja 3 bækur um
kennslumál og ein um kvenfrelsi
og -baráttu. Hún hefur fengið
styrk frá HÍ til að skrifa sögu
Rauðsokkahreyfingarinnar á Is-
landi. Er líklegt að slík kona hafí
ekki tamið sér aga? Svari hver
fyrir sig. Þá hefur hún tekið.virk-
an þátt í félagsmálum og verið
bæjarfulltrúi í Kópavogi í 5 ár og
setið í ýmsum nefndum og ráðum.
Árið 1975 á kvennaári SÞ hafði
hún frumkvæði um stofnun jafn-
réttisnefndar í Kópavogi, hinnar
fyrstu á landinu. Nei, ritdómendur
létu alveg sitt eigið agaleysi fara
með sig með því að annaðhvort
lesa ekki blaðsíðu 5 í bókinni eða
láta sem þeir vissu ekki af henni,
en á henni er náms- og starfsfer-
ill Helgu rakinn. Af honum má
sjá, að hér er einstök úrvalskona
á ferð. Sömuleiðis hefur ritdómara
yfírsést hvað Helga segir um les-
blinduna, og eru ummæli hennar
þó á bókarkápu, þar sem hann
sakar Helgu um, „að bók hennar
beri þó ekki merki, að hún sé í
þjónustu við lesblint fólk“. Á bók-
arkápu segir: „Á fræðimáli er tal-
að um „dyslexíu“ en er í daglegu
tali nefnt lesblinda eða stafblinda.
Hvorugt orðið þykir nógu gott, af
því að hér er um að ræða smávægi-
legt þroskafrávik, sem hvorki á
skylt við eiginlega blindu né hefur
í för með sér útilokun frá námi
almennt eða í einstökum náms-
greinum."
Þá fer mikið í taugarnar á rit-
dómara, „hið óbilandi sjálfstraust
Helgu, offsetfjölritun hennar og
það, að Helga skuli hafa gefíð
hana út sjálf“. Hvers vegna skyldi
hún ekki vinna verkið á sem hag-
kvæmastan hátt? Alla vega veltir
hún ekki kostnaði yfir á aðra. Ef
kona sýnir fjármálavit, þá er oft
erfítt að kyngja því, sérstaklega
fyrir litlar sálir.
Þá kem ég að sjálfri bókinni. í
formála verður Helgu tíðrætt um
dreng árið 1957, sem varð ekki
vel læs fyrr en eftir fermingu. í
dag er hann atvinnurekandi, vand-
aður fagmaður og umhyggjusam-
ur fjölskyldufaðir. Ég skil Helgu
vel í þessari frásögn. Hvaða kenn-
ari hefur ekki áhyggjur af illa
læsum nemanda sínum? Vegna
einstakrar lagni og aðstoðar Helgu
þurfti þessi drengur ekki að sitja
eftir í bekk (innsk. höf.). Þá giltu
fræðslulög frá 1946. Þá minnist
Helga á grunnskólalögin, sem
samþykkt voru 1974, þar sem
hætt var að raða í bekki eftir eink-
unum, skólar opnuðu dyr sínar
fyrir foreldrum og sérkennsla var
aukin. Nú varð ekkert fall í 12
ára bekk né neins staðar í skyldu-
námi. En raunin varð þó önnur.
Tossar eru ennþá í skólum og þeim
líður illa, af því að skólanum hefur
ekki tekizt að koma þeim heilum
í höfn. í dag keppast framhalds-
skólarnir við að sveija þá af sér
vegna fordóma, að þessir nemend-
ur geti ekki lært! Helga varð
margs vísari, er hún auglýsti ráð-
gjöf á eigin vegum vorið 1992.
Þá kom í ljós, að virkileg þörf var
að líta nánar á þessi mál.
Ég á það sammerkt með Helgu
að mér leið alltaf ákaflega vel í
skóla, með smáundantekningu, og
hafði góða kennara. Hins vegar,
eins og Helga komst að raun um,
eftir að hún fór að kenna, leið
ekki öllum nemendum eins vel og
okkur. Ég kannast vel við eins og
hún að fá litla áheyrn hjá sam-
kennurum okkar í því, sem okkur
fannst fara aflaga. En Helga kem-
ur víða við. Hún rekur réttarbót
þá, sem landsprófið með fræðslu-
lögum frá 1946 var, einkum fyrir
alþýðufólk sem minni tekjur höfðu
og jafnaði aðstöðu þeirra nemenda
sem vildu komast í menntaskólana
og sýnir fram á þá kaldhæðni, að
einmitt landsprófið var gagnrýnt
seinna og talið standa í vegi fyrir
frekari skólagöngu margra ungl-
inga. Þá rekur Helga, að almennt
hafí harka og einstrengingsskapur
gagnvart nemendum minnkað og
umburðarlyndi aukizt með grunn-
skólalögunum 1974. Nýjamennta-
kerfíð sé sveigjanlegra en hið
fLÍSABÓNUS
Veggflísar 20x25 kr. 1.495, JcFt-2t2 00
Gólfflísar 20x20 kr. 1.395, Jtc^OOO
Gólfflísar 30x30 kr. 1.495, -kfr-S.iOO-
Flísalím 25 kg. kr. 2.490, Jcr- ^éQQ'
Baúskápar meó 20-35% aíslætti.
Eldtiusifuiréttingar 20% afsláttur trá góúu verói.
Nýborg c§5
Skútuvogi 4
Sími 812470
„Ég leggþvítil, að
Helga Sig-urjónsdóttir
verði gerð að skóla-
stjóra skóla fyrir sein-
fær börn alls staðar af
landinu.“
gamla og það auðveldi fólki að
taka upp þráðinn að nýju eftir hlé
á námi og stöðugt fleiri taki stúd-
entspróf. Einnig að námskröfur
hafi aukizt á seinni árum. Að
skóladagurinn í dag sé meira og
minna sundurslitinn, þar sem við-
vera í skóla, rúmlega 30 árum
fyrr, var frá kl. 8-13.30. Yfirferð
námsefnis miklu meiri í dag, og
oft þar af leiðandi farið yfir það
á hundavaði. Helga minnist á, að
blöndun í bekki geti orðið til að
viðhalda flokkun, þ.e. að sú hugs-
un, að ákveðinn hópur heilbrigðra
bama geti ekki lært, þá sé það
flokkun af því tagi, sem kúgun
og misrétti byggist á. Of Iangt
yrði að telja allt það upp, sem
Helga réttilega rekur í þessari
ágætu og umfram allt vel fram
settu bók sinni. Það hefur nefni-
lega enginn skrifað ennþá um
galla og kosti hins íslenzka skóla-
kerfís nema hún. Og búast mátti
við óhljóðum af minna tilefni. Ef
ég á að finna eitthvað að bókinni,
þá líkar mér ekki orðið „vænting-
ar“ á bls. 19. Það orðskrípi er
búið að búa alltof vel um sig í ís-
lenzku máli. Betur færi að nota
„vonir“ eða „eftirvænting“. Þá eru
ekki kaflar alveg í tímaröð. Bókin
er einstök stoð fyrir foreldra og
þá kennara, sem vilja vanda sig.
Þá er spurningin: Höfum við
efni á að setja 25% nemenda í
atvinnuleysi, af því þeir hafa ekki
tilskilin próf? Er þá ekki stutt leið-
in í afbrotin og fíkniefnin? Fyrir
10-15 árum var blaðaviðtal við
fíkniefnasala, náttúrlega ekki und-
ir nafni. Hann taldi markaðinn hér
á landi slæman „vegna almennrar
velsældar og góðra heimilishaga“.
Ég er hrædd um, að margt hafi
breytzt síðan.
Eg legg því til, að Helga Sigur-
jónsdóttir verði gerð að skólastjóra
skóla fyrir seinfær börn alls staðar
af landinu. Hún hefði algjört úr-
slitavald, hvaða kennara hún veldi
til samstarfs. íslenzki grunnskól-
inn h'efur verið ódýr til þessa, og
líta má á, að samfélagið skuldi
þessum nemendum eitthvað. Þess
vegna þarf hið opinbera að greiða
uppihald og fæði þessara nemenda
að fullu utan af landi. Undir for-
ystu Helgu og samverkamanna
hennar næðist farsæl lausn, sem
myndi skila sér margfalt aftur til
þjóðarbúsins. Mikið af þessum
nemendum færu annars forgörð-
um. „Og fyrsta afbrot er ákall um
hjálp.“ Grein Margrétar Þorvalds-
dóttur í Morgunblaðinu 12.
nóvember 1992. Grein Siglaugs
Brynleifssonar í Morgunblaðinu
1. desember 1992, „Skuggahliðar
nýskólastefnunnar,“ er einnig
prýðileg. Báðum þessum höfund-
um þakka ég margar góðar grein-
ar og les allt, sem þau skrifa með
athygli. Bílstjóra utanríkisráð-
herra, Kristni T. Haraldssyni,
grein hans í Morgunblaðinu 15.
desember „Erum við vakandi,“ í
sambandi við fíkniefni, Hörpu
Hreinsdóttur í Morgunblaðinu 24.
desember 1992, réttmætar at-
hugasemdir hennar við grein
Hjálmars Árnasonar 8. desember
og Unni Halldórsdóttur í Morgun-
blaðinu 1. desember 1992, grein
hennar um náms- og starfsval,
þakka ég góðar greinar.
Að lokum vil ég segja þetta:
Helga Siguijónsdóttir er algjör
brautryðjandi í þessum málum.
Hún hefur vitið, viljann og
dugnaðinn. Við hin, sem héldum
að okkur höndum, þökkum henni í
auðmýkt.
Höfundur er kennari.
ARNAÐ HEILLA
(Ljósm. Rut)
HJÓNABAND. 3. janúar sl. voru
gefín saman í hjónaband Magnea
Lena Bjömsdóttir og Pétur Gunnar
Þjóðólfsson í Aðventkirkjunni af sr.
Þórsteini Ragnarssyni. Heimili
þeirra er á Hjallabraut 2, Kópavogi.
. (Ljósm. Rut)
HJONABAND. NÝLEGA voru
gefín saman í hjónaband Guðnín
Tómasdóttir og Guðmundur Örn
Hansson í Bústaðakirkju af sr.
Pálma Matthíassyni. Heimili þeirra
er á Víðiteig 4, Mosfellsbæ.
HAFNFIRDINGAR!
ÚTSALA!
Mikið úrval af íþróttavörum og fatnaói fró NIKE
og VENICE BEACH. Opió í dag frá kl. 10-4.
FjÖlsporf, Lækjargötu 34c, Hafn., s. 65 25 92.