Morgunblaðið - 30.01.1993, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANUAR 1993
19
Flugleiðir boða víðtækan sparnað og fækkun stöðugilda næstu 18 mánuði
Verðum að hafa lægri
kostnað en önnur félög
Sparnaður kynntur
500 milljóna króna
sparnaðaráform Flugleiða
og uppsagnir 44 starfs-
manna voru kynntar af
stjórnendum Flugleiða í
gær. Frá vinstri: Leifur
Magnússon framkvæmda-
stjóri þróunarsviðs, Sigurð-
ur Helgason forstjóri, og
Einar Sigurðsson blaðafull-
trúi.
- segir Sigurður Helgason forstjóri
FLUGLEIÐIR hafa kynnt starfsfólki sínu áform um 500 miHj-
óna króna sparnað í rekstrinum á næstu 18 mánuðum. Heildar-
velta Flugleiða er um 13 miiyarðar kr. á ári, þannig að ráðgert
er að spara um 4% miðað við veltu. Sigurður Helgason for-
stjóri Flugleiða sagði á blaðamannafundi þar sem sparnaðará-
formin voru kynnt að þetta væri gert á sama tíma og félagið
yki starfsemi sína um 8% og undirbyggi sókn inn á nýja markaði.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg.
í máli Sigurðar kom fram að útlit
væri fyrir rekstrartap hjá félaginu
og því hefði verið gripið til þessara
aðgerða en hann lagði áherslu á að
sjóðsstaða fyrirtækisins væri öflug.
Hann sagði að tilgangur spamaðar-
ins nú væri að ná niður rekstrar-
kostnaði til að félagið væri betur
undir samkeppni búið á heimamark-
aði, í Evrópu og Norður-Atlantshafs-
flugi, og til þess að mæta lækkandi
fargjöldum, sem hann sagði að
myndu lækka enn frekar á næstu
misserum.
Engar nýráðningar
44 starfsmönnum fyrirtækisins,
27 hérlendis og 17 á tíu stöðum er-
lendis verður sagt upp störfum. Sig-
urður sagði að uppsagnimar hefðu
komið jafnt niður á flestum hópum
starfsmanna, jafnt yfir- sem undir-
manna. Stöðugildum heima og er-
lendis verður fækkað um 119, með
því að ráða ekki nýja starfsmenn í
stað þeirra er hætta.
Þá vom þær breytingar gerðar að
Bjöm Theódórsson, sem hefur verið
framkvæmdastjóri þróunarsviðs,
verður framkvæmdastjóri flugrekstr-
ar- og stjórnunarsviðs. Leifur Magn-
ússon sem áður gegndi því starfi,
verður framkvæmdastjóri þróunar-
sviðs og verður í forsvari fyrir innan-
landsflug og flugflotaáætlanir.
„Við ætlum að gera gagngerar
breytingar á rekstri innanlandsflugs-
ins á næstu misserum. Það héfur
verið rekið með töluvert miklu tapi
á meðan annað í rekstrinum hefur
skilað hagnaði. Flestar breytingarnar
miða að því að samnýta starfsfólk
og efla okkar markaðsstarfsemi,"
sagði Sigurður.
I tengslum við spamaðaráætlun-
ina hafa Flugleiðir gert breytingar á
markaðskerfí sínu erlendis og fækk-
að þar starfsmönnum, en félagið
hefur söluskrifstofur í tíu löndum.
Tilgangurinn er að ná fram spamaði
í sölustarfínu á sama tíma og það
verður lagað að breyttum aðstæðum
og því ætlað að skila stærri hlut í
framtíðinni. Þetta er m.a. gert með
því að erlendar ferðaskrifstofur geta
frá og með febrúar bókað flug með
Flugleiðum beint í gegnum Amad-
eus-bókunarkerfíð, sem Flugleiðir
em aðilar að. Sölusvæði erlendis
verða fimm í stað fjögurra áður.
Erlent samstarf
„Við ætlum að nýta allan flugflota
félagsins, ijórar Fokker 50, þrjár
Boeing 757 og fjórar Boeing 737 í
flugi fyrir félagið næsta sumar og
vetur. Þetta er því ekki samdráttur
heldur fyrst og fremst spamaður,"
sagði Sigurður. Hann sagði að gert
væri ráð fyrir að smávægilegt rekstr-
artap hefði orðið á sl. ári. Samkeppn-
in færi hins vegar vaxandi og því
væri nauðsynlegt að draga úr kostn-
aði. Hann sagði að skilaboð til þeirra
hópa sem unnu að sparnaðarhug-
myndum hefðu verið að halda upp-
sögnum í lágmarki.
„Við verðum að hafa lægri kostn-
að en önnur félög ef við ætlum að
standast samkeppnina því við emm
tiltölulega lítið fyrirtæki. Við stefn-
um að því að fara í samstarf við
erlent flugfélag og höfum talað við
forsvarsmenn nokkurra flugfélaga.
Því miður hefur orðið seinkun á þessu
máli vegna tafa á framkvæmd Evr-
ópska efnahagssvæðisins. Við von-
umst til að á næstu vikum skýrist
það og við getum þá væntanlega
gengið frá samningum við ákveðið
erlent flugfélag og hafíð vonandi
næsta sumar flug innan Evrópska
efnahagssvæðisins í tengslum við
flug til og frá Islandi," sagði Sigurð-
ur.
Hann sagði að samstarf við erlent
flugfélag væri algjört skilyrði þess
að Flugleiðir gætu keppt á evrópsk-
um markaði. Flugleiðir hafa m.a.
rætt við forsvarsmenn KLM-flugfé-
lagsins, Air France og fleiri stórra
flugfélaga. Sigurður sagði að útlit
væri fyrir að Flugleiðir gengju til
samninga við eitthvert hinna stærri
evrópsku flugfélaga.
Flugleiðir ráðgera að taka í notkun
nýtt viðhaldsskýli sitt á Keflavíkur-
flugvelli um miðjan næsta mánuð og
flytjast um 200 störf fiugvirkja þá
frá Reykjavíkurflugvelli þangað. Sig-
urður sagði að ekki væri bjart útlit
fyrir að erlend viðhaldsverkefni
fengjust í bráð vegna almennrar
lægðar í rekstri flugfélaga. En í
áætlunum félagsins er gert ráð fyrir
að 10% af starfseminni þar tengist
viðhaldi fyrir erlenda aðila.
ÓTRUŒG
Mörg hundruð bókatitlar á einstöku verði bjóðast nú
á bókamarkaði Vöku-Helgafells í forlagsversluninni að
Síðumúla 6 í Reykjavík.
Hér gefst einstakt tækifæri til þess að bæta eigulegum
verkum í bókasafn heimilisins - bókum af öllum
tegundum við allra hæfi.
Van Gogh og list hans
- eftir Hans Bronkhorst
íslandseldar
Litprentuð glæsibók í stóru broti, gefin út fyrir þremur árum
er hundrað ár voru liðin frá láti Van Goghs. Hér er farið í
fótspor þessa áhrifamikla brautryðjanda í nútímamyndlist.
Venjulegt verð: Tilboðsverð:
3.760,-
995,-
Opið alla virka daga frá kL 9-18,
laugardaga frá kL 10-16,
sunnudaga frá kL 12-16.
*
VAKA-HfclTiAFELL
Síðumúla 6, sími 688 300
- Ari Trausti Guðmundsson
Venjulegt verð:
3.904,-
Tilboðsverð: 995,-
í þessari viðamiklu og vönduðu
bók er gerð grein fyrir eldvirkni á
íslandi undanfarin 10.000 ár.
í bókinni eru um 200 Ijósmyndir,
sérunnar skýringarmyndir og
kort og er bókin öll litprentuð.