Morgunblaðið - 30.01.1993, Side 22

Morgunblaðið - 30.01.1993, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ l^AUGARDAGUR 80. JANÚAR 1993 Lászlö Deseö, sendiherra Ungveijalands, segir kenningar um þjóðríkið úreltar Setja þarf reglur um rétt mínnihlutahópa LÁSZLÖ Deseö, sendiherra Ungveijalands á íslandi, er nú staddur hér á landi, en hann hefur aðsetur í Stokk- hólmi. Deseö, sem tók við sendiherraembættinu í ágúst- mánuði á síðasta ári, afhenti í vikunni Vigdís Finnboga- dóttur, forseta Islands, boð frá Arbad Göncz, forseta Ungveijalands, um opinbera heimsókn til Ungveija- lands. Þá afhenti hann einnig boð frá utanríkisráðherra Ungveijalands til utanríkisráðherra íslands um opinbera heimsókn. Deseö segir að enn eigi eftir að ákveða tíma- setningu heimsóknarinnar en að hann geri fastlega ráð fyrir því að af henni verði á þessu ári. Lászlö Deseö er hagfræðingur að mennt og starfaði til skamms tíma í viðskiptalífinu. Hefur hann gegnt stjómunarstöðu í ýmsum fyrirtækjum og rak einnig um skeið ráðgjafarfyrirtæki sem tók mikinn þátt í einkavæðingaráætl- un ungversku ríkisstjómarinnar. Hann hóf afskipti af stjórnmálum eftir að hið sósíalíska kerfi hmndi og var í forystusveit Lýðræðis- fýlkingarinnar, stærsta borgara- lega flokks Ungveijalands. í byij- un síðasta árs var hann svo beð- inn af utanríkisráðherra landsins að taka við embætti sendiherra í Svíþjóð. Segir Deseö að það hafí m.a. verið vegna ríkisstjómar- skiptanna í Svíþjóð, en sú borg- araíega stjóm, sem þar fari nú með völd, sé um margt áþekk samsteypustjórninni í Ungveija- landi. Hann hafí líka gegnum al- þjóðasamskipti flokks síns kynnst persónulega ýmsum forystu- mönnum sænska Hægriflokksins, sem nú sitja í ríkisstjóm, s.s. Margaretha af Ugglas utanríkis- ráðherra. Þá hafí hann lært sænsku á sínum yngri ámm er hann stundaði ratleik, en vinsæld- ir þeirrar íþróttar em að mestu bundnar við Norðurlöndin. „Þetta kom snöggt upp á en ég tel þetta vera mjög spennandi tækifæri," segir Deseö. Ungveijar fara aðra leið en Tékkar Ungveijar hófu aðlögun sína að markaðskerfí mun fyrr en önnur ríki Austur-Evrópu, eða fýrir um tíu áram síðan. Aðspurður hvort þetta forskot nýtist þeim enn segir Deseö að eina ríkið, sem ógni stöðu þeirra, sé Tékkía. Þar séu miklir möguleikar til staðar á efnahagssviðinu. Það kæmi þó ekki í ljós fyrr en eftir eitt til tvö ár hvort þeir myndu ógna stöðu Ungveija. Tékkar hefðu hins vegar farið allt aðra leið en Ungveijar. „Við höfum ekki einkavætt með því að gefa ávísanir á hlutabréf held- ur hafa öll hlutabréf verið seld. Það var m.a. gert til þess að leysa fjármagn úr læðingi og hins veg- ar til að koma í veg fyrir að eftir- markaður myndi myndast fyrir ungversk hlutabréf þar sem út- lendingar gætu keypt þau á lágu verði. Nú þurfa erlendir fjárfestar að greiða raunverð fyrir. Þá höf- um við lagt mikla áherslu á hina lagalegu hlið og það ríkir sam- staða um nauðsyn þess að byggja upp hið lagalega umhverfí sem markaðshagkerfí er nauðsynlegt. Það starf hófst reyndar þegar með síðustu ríkisstjórn sósíalista. Sá trausti grandvöllur sem er til staðar hefur líka gert það að verkum að rúmlega 50% erlendr- ar fjárfestingar í Austur-Evrópu- ríkjunum era í Ungverjalandi og fjárfestingar halda enn áfram að aukast. Búið er að breyta rúmlega helmingi allra ríkisfyrirtækja í hlutafélög og rúmlega 30% er búið að selja. Sum ríki, s.s. Rúss- land, hafa einfaldlega gefíð hluta- bréfín sem hefur gert það að verkum að fólk fær enga tilfinn- ingu fyrir eignarhaldinu. Hluta- bréfín eiga enn eftir að komast í hendur hinna raunveralegu eig- enda sem vilja reka fyrirtækin.“ Það sem erlenda fjárfesta óar helst fyrir er óstöðugleikinn á Morgunblaðið/Kristinn Sendiherrann László Deseö, sendiherra Ung- veijalands á íslandi, en hann hef- ur aðsetur í Stokkhólmi. Balkanskaga og átökin í Júgó- slavíu. Deseö segir þessi átök skapa ákveðna hættu. Á vissan hátt þjappaði samstaðan með þeim fjölda flóttamanna sem hefði streymt til iandsins Ung- veijum saman. Óbeint gætu þessi átök hins vegar orðið til að kynda undir öfgasinnaðri þjóðemis- kennd, en slík þjóðemiskennd væri einmitt rót átakanna í Júgó- slavíu fyrrverandi. „Þetta er mjög slæmt fordæmi og jafnvel í lönd- um þar sem meiri stöðugleiki rík- ir, s.s. Rúmeníu og Slóvakíu, er hætta á að menn fari að riija upp gamlar deilur og leita hefnda. Það ríkir um það pólitísk samstaða í Ungveijalandi að nauðsynlegt er að setja alþjóðlegar reglur um réttindi minnihlutahópa. Hinar gömlu kenningar um þjóðríkið eiga ekki lengur við. Þær geta ekki orðið grundvöllur friðsam- legrar sambúðar á þessum slóð- um.“ Ungversk þjóðarbrot í öðrum löndum Sendiherrann segir að það sé ekki síður mikilvægt að tryggja réttindi minnihlutahópa í ljósi þess að Evrópa sé að sameinast. Þetta væri mál sem ríkisstjóm Ungveijalands legði mikla áherslu á t.d. á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, Evrópuráðsins og RÖSE. Fjölmargir Ungveijar búa utan Ungveijalands eða um þijár millj- ónir og er Ungveijum mjög annt um hagsmuni þessa ungversku minnihluta í t.d. Rúmeníu, Slóvakíu og Serbíu. „Við teljum að minnihlutahópum beri að veita sjálfstjóm af einhveiju tagi. Á svasðum þar sem hópur er í minni- hluta ber að veita honum rétt til sjálfstjómar t.d. á sviði menning- ar, trúarbragða og menntunar. Þessum minnihluta ber síðan að axla þann kostnað sem slíkt hefði í för með sér.“ Þá ættu minnihlutar einnig að eiga kost á pólitískri sjálfsfjóm t.d. með því að geta boðið fram eigin flokka sem hefðu áhrif á þingi viðkomandi ríkis. Deseö segir óhjákvæmilegt að setja al- þjóðlegar reglur um þessi mál t.d. af SÞ. „Ef engar reglur eru til staðar getum við ekki haft eftir- lit með að ekki sé gengið á rétt þjóðemisminnihluta. Nú era t.d. eftirlitsmenn á vegum RÖSE í Kosovo-héraði í Serbíu en þeir hafa enga staðla til að meta hvað sé rétt og hvað sé rangt." í héraðinu Vojvodina í Serbíu er fjölmennur ungverskur minni- hluti og segir Deseö þar vera að fínna gott dæmi um hvernig níðst sé á minnihluta. Ungverskir piltar væra kvaddir í her Serbíu og síð- an sendir í óeðlilega ríkum mæli til þeirra staða þar sem líklegast væri að árás yrði gerð. „Ef Sam- einuðu þjóðimar gera innrás til að stöðva átökin þá verða það Ungveijar sem fyrst munu falla. Þessir ungu menn hafa engin tök á að segja að þessi deila Serba og Króata komi þeim ekki við. Það eina sem þeir geta gert er að flýja land. Þetta er mjög gott dæmi um að níðst sé á þjóðemis- minnihluta." Dvojris siffrar á svæðamóti Rússlands Pétursborg. Frá Lárusi Jóhannessyni, fréttaritara Morgunblaðsins. RÚSSNESKA svæðamótinu í skák lauk seint á þriðjudags- kvöld með sigri stórmeistar- ans Dvojris sem hlaut 6V2 vinning af 9 mögulegum. Mót- ið var mjög jafnt og skemmti- legt en það sem vakti kannski meiri athygli var léleg fram- kvæmd mótsins. í 2.-4. sæti urðu Svesnijkov, Drejev og Pigusov með 6 vinninga og halda þessir áfram á millisvæða- mót ásamt sigurvegaranum Dvojris. Enginn fékkst tii að halda svæðamót- ið fyrr en á síðustu stundu að Hótel Rossíja hér í Pétursborg hljóp undir bagga með skáksambandinu. Ekki tókst þó betur til en svo að salar- kynni voru með öllu óviðunandi. Þröngt var um keppendur, varla gert ráð fyrir áhorfendum, engin sýning- artöfl, engar skýringar og marraði í gólfinu við minnstu hreyfingu. Mörg- um blöskraði, jafnvel svo að einn sjónvarpsfréttamaður hér sagði að verið væri að færa aðstæður aftur um öld og spurði hvort næsta skref- ið væri að tefla á kaffíhúsi. Annars var fréttaflutningur af mótinu sáralítill og áhorfendur mjög fáir og töldu margir viðmælendur að þetta væri vísir að því sem koma skal. Skákin ætti undir högg að sækja og rússneskt stórveldi í skák væri ekki sjálfgefið. Aðrir taka ekki svo sterkt til orða, segja að hér sé um tímabundna erfíðleika að ræða. Þetta var t.d. mat eins stórmeistar- ans á mótinu í samtali við fréttarit- ara en svo bætti hann við að fram- kvæmd þessa svæðamóts væri nátt- úralega hneyksli. -----» -------- Þýskaland 60árfrávalda- töku Hítlers Beriin. Frá Hrönn Marinósdóttur, frétta- ritara Morgunblaðsins. ÞESS verður minnst í dag í Þýska- landi að 60 ár eru liðin frá því að nasistaflokkurinn komst til valda, en Hitler var skipaður ríkiskanslari þann 30. janúar 1933. Nýnasistar halda upp á daginn með mikilli blys- för í Berlín. Til að minnast ógnarár- anna hafa samtök gegn útlendinga- hatri og félög gyðinga í Þýskalandi, ákveðið að kveikja á kertum viðs vegar um landið undir kjörorðinu: „Aldrei aftur". Kertaloginn á að vera tákn um andúð á útlendingahatri og kynþáttamisrétti. Saurkólibakteríur í hamborgurum í borginni Seattle BREÍl lR KdMNÍR 1 Pt RUCA iVí íÍ i Tvö smábörn deyja af völdum matareitnmar TVÖ börn, drengur og stúlka, hafa dáið með nokkurra daga millibili af völdum matareitrunar í borginni Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna. Er eitrunin rakin til saur- kólibakteríu, escherichia coli 0157:H7, og lést drengurinn rétt eftir að hafa borðað hamborgara á veitingahúsi, að sögn Reuíers-fréttastofunnar. Heilbrigðisyfírvöld í Seattle gáfu út viðvöran í gær þar sem fólk var hvatt til þess að gæta fyllsta hrein- lætis og þvo sér sérstaklega vel um hendur. Bakterían illskeytta var sögð geta borist milli manna við snertingu handa hefði viðkomandi ekki þvegið sér eftir að hafa kom- ist í snertingu við mengaðan mat eða saur. Viðvöranin var gefín út til þess að reyna koma í veg fyrir frekari útbreiðslu magakveisu sem hijáð hefur um 250 manns í Seattle und- anfarna daga. Hefur eitrunin í flestum tilvikum verið rakin til neyslu hamborgara á hamborgara- stöðum sem ganga undir nafninu Jack-in-the Box. Saurkólibakteríur hafa fundist í sýnum hamborgara- kjöts. Hreinlæti nauðsynlegt Samkvæmt upplýsingum Karls Kristinssonar læknis, sérfræðings á rannsóknarstofu Háskólans í sýkla- fræði, er frekar sjaldgæft að saur- kólibakteríur leiði menn til dauða. Eðlilegt hreinlæti og rétt meðferð matvæla ætti að koma í veg fyrir veikindi af þeirra völdum. Sumir stofnar hennar væru þó eitraðri en aðrir og virtist sem þessi sérstaka tegund bakteríunnar væri af þeim flokki. Sagði Karl að hér á landi hefði verið árangurslaust leitað að henni í rúmt ár í fólki sem þjáðst hefði af steinsmugu. Þó hefði í einu tilviki fundist stofn sem eftir væri að staðfesta hver væri. Peruca- stíflan byrjaði að gefa sig f gær. Allt að 20.000 manns eru í hættu. Cetina ZagrebS Kariovac ® Pemca-yaln Peruca- stíflan (ekki í réttum kvaröa) 65 metra há Vrlika ®' KRAJINA KRÓATÍA Otisic ® BOSNÍA :RZEGÓVÍNA KRÓATÍA^-j Celina-é J Obrovac Sinjski Zelovo Hrvace Fyrrum Júgóslavía Brnaze' REUTER HERSVEITIR Króata og Serba hafa tekist á um stóra stíflu í Króatíu síðustu daga og hefur verið óttast að Serbar myndu reyna sprengja hana í loft upp en gerðist það yrði byggð neðan stíflunnar í stórhættu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.