Morgunblaðið - 30.01.1993, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993
23
Reuter
Nýjar rúblur sjá dagsins ljós
BANKAMÆR hjá rússneska seðlabankanum með nýja tegund rúbluseðla. Helsta breytingin frá gömlu seðlun-
um er að á nú er ekki lengur mynd af Vladímír Lenín, stofnanda Sovétríkjanna sálugu, á seðlunum.
Bill Clinton afléttir
hommabanni hersins
Strangar skorður settar við kynlífsiðkun í hernum
Washington. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti tilkynnti í gærkvöldi að
héðan í frá gætu hommar og lesbíur gegnt herþjónustu
þar sem samkomulag hefði tekist við þingleiðtoga og yfir-
menn hersins um að hætt yrði þegar í stað við að krefja
nýliða upplýsinga um kynferðishneigð þeirra.
Clinton kom sjálfur fyrir blaða-
menn í Hvíta húsinu í gærkvöldi
og skýrði þar frá málamiðlun sem
hann sagðist hafa komist að við
herráðið og leiðtoga demókrata á
þingi. Sagði hann ráðstöfun sína
gilda til bráðabirgða og fengi þing-
ið sex mánaða frest til þess að
láta fara fram ítarlega rannsókn
á kostum þess og göllum, að af-
nema 50 ára bann við því að sam-
kynhneigt fólk gegni herþjcnustu.
Clinton sagði að hann hvikaði
hvergi frá þeirri fyrirætlan sinni
að afnema bannið og væri miðað
væri við að tilskipun þar að lút-
andi yrði gefin út 15. júlí næst-
komandi. Hann sagði að jafnframt
yrðu gefnar út strangar siðareglur
er settu skorður við kynlífsiðkun
hermanna og -kvenna.
Dómsúrskurður
Úrskurður svæðisdómstóls í
Kaliforníu í gær kom sér vel fyrir
Clinton. Terry Hatter dómari úr-
skurðaði að hommabannið bryti í
bága við bandarísku stjórnar-
skrána. Fyrirskipaði hann varnar-
málaráðuneytinu að hætta að
framfylgja því.
Margir nemend-
ur kikna undan
álaginu í Oxford
Oxford. Reuter.
OXFORD-háskóli er nú í kastljósi breskra fjölmiðla vegna
sjálfsmorða tveggja stúdenta og hörmulegs dauðdaga þriðja
námsmannsins á þremur mánuðum. Svo virðist sem æ fleiri
námsmenn í þessum fornfræga háskóla séu að kikna undan
andlegu álagi, áhyggjum af námi, félagslífi og hugsanlegu
atvinnuleysi í framtíðinni.
Tvær námsstúlkur, sem báðar
stóðu sig vel í námi, hafa hengt
sig og ungur stúdent beðið bana
eftir að hafa fallið niður af glugga
á annarri hæð. Talið er að hann
hafi tekið inn banvænan skammt
af eiturlyfjum og alkóhóli áður en
hann féll.
Samkvæmt könnun, sem gerð
var fyrir heilbrigðisnefnd skólans,
eru þó sjálfsmorð ekki algengari á
meðal skólafólksins en annarra
ungmenna í Bretlandi. Könnunin
leiddi í ljós að 21 námsmaður í
Oxford framdi sjálfsmorð milli ár-
anna 1976 og 1990. 216 náms-
menn gerðu 254 misheppnaðar til-
raunir til sjálfsvígs. Þrátt fyrir
dauðsföllin að undanförnu hefur
sjálfsmorðum stúdenta ekki fjölgað
í Oxford.
Andlega álagið er hins vegar
meira í Oxford og Cambridge en
öðrum breskum háskólum, enda
þurfa námsmennimir þar að leggja
harðar að sér. Embættismenn í
Oxford segja það mikið áhyggju-
efni að æ fleiri námsmenn óski
eftir sálfræðiaðstoð ráðgjafarþjón-
ustu skólans. 396 námsmenn
fengu þar aðstoð fyrir þremur
árum, 528 fyrir tveimur árum og
595 í fyrra.
Námsmennimir kvarta æ meira
undan námsálagi, ótta við atvinnu-
leysi og áhyggjum af einkalífinu,
svo sem skilnaði foreldra. Yfirvöld
skólans hafa fallist á að auka ráð-
gjafarþjónustuna og leita nú leiða
til að draga úr námsálaginu og
hjálpa námsmönnunum að laga sig
betur að félagslífinu í háskólanum.
Sjálfsblekkingar
„Það er ljóst að mikil samkeppni
ríkir í Oxford, bæði hvað varðar
félagslífið og námið,“ sagði Ann
Taylor, formaður heilbrigðisnefnd-
ar skólans. Hún segir að það bæti
ekki úr að stúdentarnir telji sig
ekki aðeins verða að ná góðum
námsárangri, heldur líka þannig
að svo líti út fyrir að þeir þurfi
ekki að hafa mikið fyrir því. Þeir
leggi mikið upp úr vinsældum
meðal skólafélaga sinna og ekki
sé óalgengt að þeir, sem ekki eru
boðnir í veislur, sitji í herbergjum
sínum á laugardagskvöldum og
slökkvi ljósin svo enginn taki eftir
því að þeir séu einir heima.
KEYPJI
SUMARBU5TAÐ
fyrir eina
HAPPAÞRENNU
HAPPAþRENNAN
hcfatirinnwginn!
Stáltollar [
kunna að \
verðaend- i
urskoðaðir :
■
Washington, Ottawa. Reuter. a
TALSMENN utanríkis- og ■
viðskiptaráðuneytanna í
Washington sögðu i gær að ■
sú ákvörðun að setja refsi- ■
tolla á stál frá 19 löndum ■
væri bráðabirgðaráðstöfun ■
sem kynni að verða endur-
skoðuð fljótlega.
PARKETTILBOD I FEBRU
þtobd gegnheilt mmikjmrket!
Ákvörðunin um stáltollanna hef-
ur mælst mjög illa iyrir í Evrópu-
ríkjum. Hafa þau mótmælt henni
harkalega og var jafnvel óttast að
viðskiptastríð væri yfirvofandi. Yf-
irlýsing embættismanna í Washing-
ton í gær um að hugsanlega yrði
ákvörðunin endurskoðuð þótti hins
vegar til þess fallin að draga úr
hættu á viðskiptastríði.
Kanadísk yfirvöld fóru að for-
dæmi Bandaríkjamanna og settu
refsitolla á stál frá sex löndum í
gær. Af hálfu beggja landa er því
haldið fram að óeðlileg undirboð
hafi verið í gangi; stál verið flutt í
stórum stíl til landanna á verði sem
væri undir framleiðslukostnaði.
Magnafsláttur at
öílu stafaparketh
20 40 fermetrar 7%
41 - 60 10%
61 - 100 - 13%
101 - 150 15%
151 200 yftr 200 fermetrar 20% 16%
Pallmann
parketlím -ódýrt
og frábær gæði!
einnig:
spartl, lökk, parketolia,
viðarfyllir i túpum, bón og
hreinsiefni
Allt frá Pallmann
■^^■1 tTTMfc
paumaiin
■ ZUKUNFTSSICHERE QUALITAT
Suðurlandsbraut 4a 68 57 58
wa b n n œ m m
œ ■ B B R B '
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■u■■■■■■■■■■■■■