Morgunblaðið - 30.01.1993, Side 25

Morgunblaðið - 30.01.1993, Side 25
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993 MORGUNBLAÖÍÐ - LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993 25 fllwgt Útgefandi Árvakur h.f., Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Sóknarfæri í fiskeldi Saga laxeldis hér á landi er í raun heldur döpur. Millj- örðum króna hefur á rúmum áratug verið varið til uppbygg- ingar og rekstrar á fjölmörg- um eldisstöðvum og niðurstað- an er fjöldi gjaldþrota og millj- arða tap opinberra lánasjóða og banka. Framleiðsla er í al- gjöru lágmarki og eru nokkrar stöðvar nú á nokkurs konar opinberu framfæri til að varð- veita þá þekkingu og reynslu, sem fengizt hefur. Það má svo sannarlega segja í þessu til- efni, „að ekki eru allir pening- ar til fjár“. Sú saga er nú að baki og sóknarfærin eru framundan. Þekking og reynsla er fyrir hendi, fasteignir og búnaður er enn til og markaðssetning er möguleg. I sérblaði Morgun- blaðsins um sjávarútveg, Úr verinu, var fyrir skömmu skýrt frá því, að Norðmenn hafí á síðasta ári selt eldislax úr landi fyrir um 55 milljarða króna, samtals um 170.000 tonn. Þetta er bezta árið í norsku laxeldi frá upphafí, en fram- leiðsla Norðmanna hefur á undanförnum árum verið um 150.000 tonn eftir að hún komst á skrið. Ýmis áföll hafa dunið á norsku laxeldi, en það hefur herzt í hverri eldraun, hvort sem hún hefur falizt í erfíðleikum á mörkuðum sam- fara rekstrarvanda, eða físki- sjúkdómum. Laxeldið er nú einn stærsti einstaki þátturinn í útflutningi fískafurða frá Noregi og veitir það miklum fjölda fólks atvinnu. Norð- mönnum hefur þarna tekizt það, sem ekki hefur tekizt hér á landi, að gera fískeldí að arðbærri atvinnugrein og mik- ilvægri gjaldeyrisöflun. 55 milljarðar króna er mikil upp- hæð, meðal annars í ljósi þess, að verðmæti útfluttra sjávar- afurða héðan frá íslandi á nýliðnu ári var rúmir 70 millj- arðar króna. Fiskeldi í Færeyjum er líka vaxandi og eru Færeyingar komnir mun lengra en við hvað það varðar. Þeir ala meira og flytja meira utan en við og er fiskeldið að verða stór þáttur í útflutningi fískafurða frá Færeyjum. Fiskeldi er einnig mikið í Skotlandi og Kanada og Chile er orðinn stór fram- leiðandi. Hér er öldudalnum nú náð og hljóta menn að hugsa fram á veginn með sókn í huga í ljósi árangurs nágranna okkar í norðri. Við höfum vonandi lært af reynslunni, en alla stefnumótun vantaði. Forrann- sóknir voru í lágmarki enda litlu sem engu fé varið til þeirra og stærstu fískeldis- stöðvar Evrópu hrundu eins og spilaborgir, nánast ekkert stóð eftir nema tapið. Segja má að fiskeldi á ís- landi sé nú á byrjunarstigi á ný. Eftir standa nokkrar stöðv- ar, sem fikra sig áfram í rétta átt. Þær vinna þá bug á erfið- leikunum og miðla síðan þekk- ingu og reynslu til hinna, sem kunna að vilja hefja laxeldi síðar meir. Þá verður að byggja á staðreyndum, en ekki óskhyggju, og líklega verður eitthvað af áhættufé að koma til. Fiskeldi Eyjaíjarðar er fyr- irtæki, sem menn mættu taka til fyrirmyndar, en þar hafa menn farið sér hægt og unnið áfangasigra sína með þolin- mæði í stað stóryrða og óraun- hæfrar uppbyggingar. Fiskeldi Eyjaíjarðar hefur náð nokkr- um áfangasigrum í eldi á lúðu og góðum árangri í steinbíts- eldi. Ljóst er að vaxtarbroddur fískeldis í framtíðinni verður eldi á ýmsum sjávarfískum og brátt verður vonandi hægt að byggja á reynslu og þekkingu Eyfírðinga. Norðmenn og Danir hafa náð árangri á þessu sviði og hugsanlega verður framtíðin meðal annars fólgin í því að sleppa þorskseiðum í miklum mæli í eins konar haf- beit. Menn mega ekki leggja árar í bát, heldur fínna leiðir til að nýta þá þekkingu og þau mannvirki, sem fyrir hendi eru. Markaðssetning afurðanna hefur gengið vel. Hátt verð hefur fengizt fyrir laxinn, einkum þó hafbeitarlax í Evr- ópu, og vel gengur að selja reyktan lax í Bandaríkjunum. Við höfum yfír að ráða ein- hveijum öflugustu físksölu- samtökum á Norðurlöndunum og vel hefur verið staðið að sölumálum, bæði af þeirra hálfu og annarra smærri út- flytjenda. íslenzkar sjávaraf- urðir hafa mjög gott orð á sér og liðkar sú staðreynd fyrir sÖlu á afurðum af eldisfíski. Möguleikarnir í fiskeldi eru fyrir hendi, það sjáum við af 55 milljarða gjaldeyristekjum Norðmanna. Fiskeldið gæti orðið að stóriðju, ef marka má reynslu Norðmanna, sem ekki hafa gefízt upp eins og við höfum gert. Tækifærin heima fyrir virðast oft gleymast. Það er ábyrgðarhluti verði þessir möguleikar ekki nýttir eða þeim klúðrað á nýjan leik. AF INNLENDUM VETTVANGI AGNES BRAGADÓTTIR Einn risi eða margir dvergar BREYTING Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda (SÍF) yfir í hlutafélagsform, sem ákveðin var síðastliðinn þriðju- dag, hefur hleypt af stokkunum umræðu um félagsskipulag hagsmunasamtaka og sölusamtaka innan sjávarútvegsins. Þannig fór ítarleg umræða fram um það á stjórnarfundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna nú á miðvikudag og fimmtudag, sem haldinn var á Hótel Örk í Hveragerði, hvort ekki væri tímabært að SH hyrfí frá samvinnufélagsforminu yfír í hlutafélagsformið, þótt málið væri engan veginn útklj- áð á þeim fundi. A fundinum kom fram að fylgi við slíkar breytingar hefur aukist, eins og Jón Ingvarsson, sljórnarfor- maður SH greindi frá hér í blaðinu í gær. íslenskar sjávaraf- urðir hf. hafa eins og kunnugt er verið hlutafélag, frá því að endurskipulagning og uppstokkun fór fram hjá Sambandi Ekki er eining innan stjórnar SHum að breyta Sölumiðstöðinni í hlutafélag, samkvæmt mínum upp- lýsingum. Á fundi stjórnarinnar nú í vikunni mun það hafa komið fram að stjómarmennimir Jón Páll Hall- dórsson, ísafírði, Rakel Ólsen, Stykkishólmi og Pétur Þorsteins- son, Tálknafirði eru slíkri breytingu mjög andvígir. Stjómarmennimir Finnbogi Jónsson, Neskaupstað, Sighvatur Bjamason, Vestmanna- eyjum, Brynjólfur Bjamason, Granda hf. Reykjavík, Einar Oddur Kristjánsson, Flateyri, og Haraldur Sturlaugsson, Akranesi munu skipulagsbreytingunni hlynntir, þótt umræðan sé enn á því stigi, að menn hafa ekki gert endanlega upp hug sinn. Sumir þessara stjórn- armanna munu eindregið vilja slíka breytingu, en aðrir em „hálfvolgir", eins og einn stjómarmaður orðaði það. Óljóst er um afstöðu Lárasar Ægis Guðmundssonar, Skaga- strönd, Malsteins Jónssonar, Eski- fírði, Ólafs Baldurs Ólafs'sonar, Sandgerði og Svavars Magnússon- ar, Ölafsfirði. Gunnar Ragnars, Akureyri mun ekki áfjáður í að hrinda slíkri breytingu í fram- kvæmd og reynist hann vera henni ákveðið andsnúinn, er talið að mál- inu seinki til muna, þar sem ÚA er stærsti einstaki eigandi Sölumið- stöðvarinnar, með tæplega 10% eignarhlut. Jón Ingvarsson, stjórnarformað- ur SH mun hafa greint frá þeirri skoðun sinni á stjómarfundinum í Hveragerði í vikunni, að hann teldi að slík breyting yrði ákveðin fyrr eða síðar. Hann er hins vegar í þeirri stöðu, sem formaður SH,-að verða að reyna að ná fram sem víðtækastri samstöðu um það fram- tíðarfyrirkomulag sem ákveðið verður, að hann hefur ekki reynt, samkvæmt mínum upplýsingum, að knýja fram neina niðurstöðu í mál- inu. Enda mun samstaða um það, innan stjómar SH að hvað svo sem ákveðið verður, þá ætli öll stjómin að standa sameiginlega að þeirri ákvörðun. Kaupfélagsformið úrelt Þeir sem hvað hlynntastir eru því innan SH að Sölumiðstöðinni verði breytt í hlutafélag, benda á að íslenskra samvinnufélaga og einstökum deildum SÍS var breytt í hlutafélög. Nú mun vera í undirbúningi að afnema allar hömlur á viðskiptum með hlutabréf í ísienskum sjávaraf- urðum, sem felur það í sér að hlutabréfin verða væntanlega á markaði innan tíðar. Því kann á næstunni að vera komin upp ný og gjörbreytt staða hjá þessum þremur stærstu físk- sölusamtökum íslendinga. Það er, að þau verði öll orðin að hlutafélögum, og þá spyija framsýnir menn, hvort ekki hafi þar með skapast grundvöllur fyrir nýju og breyttu grundvall- arskipulagi físksölumála á erlendri grund og hvort ekki sé tímabært að stofna ein stór og öflug sölusamtök úr þessum þremur sölukerfum. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra hleypti þessari hugmynd þegar af stokkunum á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva á Akureyri haustið 1991. eigin sölusamtaka kynnu að þverra til muna. Þeir telja að slík þróun stríði gjörsamlega gegn því mark- miði, sem fiskframleiðendur eigi að hafa að leiðarljósi, þ.e. að sem styst sé á milli framleiðenda og neytenda á mörkuðum erlendis. Nálægð framleiðenda og neytenda Gagnröksemd talsmanna breyt- inganna við þessum sjónarmiðum er á hinn bóginn sú, að hveijir sem verða stórir eða smáir eigendur í hlutafélagi um Sölumiðstöðina, eig- endur með beina eða óbeina hags- muni að baki eignarhluta sínum, þá muni þeir ávallt kappkosta að hafa samband við framleiðendur sem nánast og beintengja þá við markaði eftir megni, - því ella séu sölusamtök sem þessi einskis virði. Enginn einn stór eigandi myndi að þeirra mati geta séð sér hag í því að ráðast í einhveijar þær aðgerðir, sem kynnu að rýra verðgildi fyrir- tækisins og möguleika þess á að færa út kvíarnar og skapa arð. Benda þeir einnig á að þótt aðil- ar gerðust hluthafar í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna eftir að hún væri orðin hlutafélag en væru ekki sjálf- ir í fiskframleiðslu, heldur að leita eftir fýsilegum fjárfestingarkosti, þá væri slíkt einnig af hinu góða fýrir sölusamtökin sem slík. Ein- faldlega til þess að geta haldið uppi öflugu sölu-, markaðs- og þróunar- starfi, þyrfti mikla peninga, og það gæti því verið slíku starfi til efling- ar fremur en hitt, að breyta sölu- samtökunum í almenningshlutafé- lag, þar sem aflað yrði aukins hluta- ijár með almennum hlutafjárútboð- um. Þannig mætti ímynda sér að hinir fjársterkari aðilar, sjóðir og fyrirtæki vildu verða hluthafar í slíkum sölusamtökum. Þá er í framhaldi þessarar um- ræðu, rætt um hvort ekki þurfi markvisst að vinna að því að sam- eina SH, SÍF og íslenskar sjávaraf- urðir hf. í ein öflug sölusamtök, sem væru þá með deildaskiptu formi. Þau væru meira og minna með tvö- falt eða jafnvel þrefalt söluskrif- stofukerfí víða um heim og nær væri að sameina og samhæfa starf- semi þeirra. Viðmælendur mínir era þó þeirrar skoðunar að þau sölu- kerfi sem fyrirtækin þijú eru með í Evrópu séu mjög vel nýtt og verk- Ottast röskun á valdahlutföllum Þeir sem eru andvígir slíkri breyt- ingu á félagsforminu óttast það einnig að valdahlutföll innan SH ■Verða fisksölumál okkar íslendinga stokkuð upp á næstunni, þannig að hér rísi einn fisksölurisi? ■Eða brotna sölusamtökin upp í margar örsmáar einingar? ■Eða er núverandi fyrirkomulag hið ákjósanlega framtíðarfyrirkomulag? hlutafélagsformið sé mun nútíma- legra form, en samvinnufélags- formið, en andstæðingar þess forms lýsa því sem úreltu kaupfélaga- skipulagi. „Ég held að nauðsynlegt sé, til þess að halda uppi styrk sam- takanna, að breyta SH í hlutafélag. Þannig yrði inneignum eigenda í sjóðum SH breytt í hlutafé og sam- tökin sem slík væru sjálf tryggð. Með úrsögnum væri ekki verið að rýra eigið fé sjóða SH heldur myndu hlutabréf einfaldlega ganga kaup- um og sölum, en hlutaféð í fyrirtæk- inu yrði alltaf það sama,“ sagði einn stjómarmaður SH er ég ræddi við hann í vikunni. Hann sagði að ef svo héldi fram sem horfði, þá myndu æ fleiri eigendur í SH líta til þeirra fjárapphæða sem lægju að baki eignarhluta þeirra í SH, og í fíárþröng segðu þeir sig úr Sölu- miðstöðinni, sem hefði það í för með sér að greiða þyrfti þeim út eignarhiuta þeirra á ákveðnum ára- fjölda. Þannig yrði jafnt og þétt gengið á sjóði SH sem gæti orðið upphafíð að hrani fyrirtækisins, eða að minnsta kosti myndi slíkt veikja stórlega undirstöður þess sem öflugs markaðs- og sölufyrirtækis. Nú era ekki allir sammála því að nauðsynlegt sé að breyta SH í hlutafélag og þeir sem vilja óbreytt félagsform benda á að núverandi form hafí gagnast hagsmunaaðilum ágætlega í gegnum tíðina. Það sem meira er, ekki mun á dagskrá að breyta SH í hlutafélag, nema allir, eða a.m.k. þorri eigenda Sölumið- stöðvarinnar sé því samþykkur. komi til með að raskast veralega frá því sem nú er, jafnframt því sem heyrst hafa raddir í þá vera að stór og sterk fyrirtæki komi til með að kaupa hluta hinna á markaði, og þar með að sölsa undir sig sölusam- tökin sem slík. Svo er að heyra sem þetta séu sjónarmið ýmissa fiskframleiðenda á landsbyggðinni, en þó síður en svo allra. Þeir sem eru andvígir því að breyta SH í hlutafélag virðast einfaldlega óttast að áhrifa lands- byggðarinnar, þar sem öll þessi verðmætasköpun fer fram, yrðu minni eftir slíka skipulagsbreyt- ingu. Þeir nefna þá gjarnan að við slíka breytingu, kvnni Reykjavíkur- valdið að eflast enn frekar, á kostn- að landsbyggðarinnar. Framleið- endur úti á landi hafa gjarnan litið á Sölumiðstöðina sem það fyrir- tæki, þar sem þeir hefðu þó áhrif og undirtök, í slqóli þess að þeir ættu meirihlutann í fyrirtækinu. Sem hlutafélag, þar sem hluta- bréf gengju kaupum og sölu, það er að segja ef um almenningshluta- félag yrði að ræða, væri opnað fyr- ir þann möguleika að fjársterkir aðilar í Reykjavík, hvort sem um fiskframleiðendur væri að ræða, eða aðra sem ekki hefðu beinna hagsmuna að gæta, sem eigendur físksölusamtaka, en mikilla óbeinna hagsmuna, kynnu að reyna að eign- ast stóran hlut í fyrirtækinu, með kaupum á hlutabréfum. í þeim efn- um benda þeir á aðila eins og skipa- félög, sem annast jú flutninga á afurðunum, tryggingafélög og hugsanlega lífeyrissjóði, sem kynnu að sjá vænlegan fjárfestingakost í slíkum hlutabréfakaupum. Ef sú yrði þróunin, telja framleið- endur margir hveijir af landsbyggð- inni, að ítök þeirra og áhrif innan svið þeirra skarist lítið sem ekkert. Öðra máli gegni á hinn bóginn með hið tvöfalda verksmiðju- og sölu- kerfí í Bandaríkjunum hjá dóttur- fyrirtækjum SH og íslenskum sjáv- arafurðum; Coldwater og Iceland Seafood. Flestir virðast þeirrar skoðunar að annað fyrirtækið gæti vel afkastað verkefnum beggja. Stór og öflug sölusamtök gætu að margra mati náð mun betri og markvissari árangri í sölustarfinu, fært út kvíarnar og aflað nýrri og stærri markaða. Engar fjárfúlgur myndu sparast með sameiningu Ekki er þar með sagt að fylgjend- ur sameiningar íslenskra sjávaraf- urða, SH og SÍF telji að hægt sé að spara stórar fúlgur á sameining- unni, þar sem menn séu að greiða um og innan við 2% sölulaun til samtakanna. Til þess að efla starf- semi, markaðsrannsóknir og þróun- arstarf, komist sölusamtök ekki af með minni þóknun. Miklu fremur virðast fylgjendur slíkrar samein- ingar sjá fyrir sér öflugra, skipu- lagðara og samhæfðara starf sem fælist í deildaskiptum, stóram sölu- samtökum. Færeyjar ekki spennandi fordæmi Skiptar skoðanir eru um það meðal fiskframleiðenda, hvort rétt sé að reyna að sameina þau þijú físksölufyrirtæki sem hér eru stærst, í eitt. Efasemdarmenn vfsa til Færeyja og hversu hörmulega tekist hafí til hjá Færeyingum með fisksölumál sín, eftir að allri físk- sölu var steypt saman í Föröyja Fiskasöla. Eru þeir á því að ef slík sameining yrði ofan á, þá myndi það leiða til þess að minni, sjálf- stæðum fiskútflytjendum myndi fjölga til muna. Margir myndu fremur vilja starfa sjálfstætt að markaðsmálum og þar með selja sinn hlut í stóram fisksölusamtök- um. Þeir virðast ýmsir vera þeirrar skoðunar, að samkeppni hér innan- lands, á milli tveggja eða þriggja físksölufyrirtækja um fiskafurðirn- ar sé nauðsynleg og af hinu góða. Án samkeppni um útflutningsvör- una, sé sú hætta fyrir hendi, að markaðssókn erlendis koðni niður. Vísa þeir meðal annars til úttektar sem Japanir gerðu á útflutnings- málum sínum fyrir nokkram áram. Þar segja þeir að fram hafí komið að fyrirtæki sem vora í samkeppni heima fyrir á Japansmarkaði um útflutningsvöruna, stóðu sig jafn- framt best á alþjóðlegum mörkuð- um. Þeir telja að það sama geti gilt um ísienska fískútflytjendur, að það að þurfa að keppa við fyrir- tæki innan eigin þjóðlands, efli þá til frekari dáða og samkeppni á erlendri grund. Samkeppni óþörf? Talsmenn skipulagsbreytingar og jafnvel sameiningar SH, ís- lenskra sjávarafurða hf. og SÍF gefa lítið fyrir þá röksemd að hér þurfi að ríkja samkeppni á milli sölusamtaka um fískframleiðendur hér á landi. Þeir eru fremur þeirrar skoðunar að samkeppnin eigi að beinast að mörkuðunum og að ís- lenskir fiskframleiðendur eigi að standa saman um að ná sem mestri og bestri hlutdeild á þeim mörkuð- um. Að því leyti til séu orð Ólafs heitins Thors enn í fullu gildi. Ekki eru þessir menn þar með að mæla einokun bót, því hver og einn eigi að hafa frelsi til þess að selja sína afurð, á þann veg sem honum best líkar. En gæfa íslenskra fiskfram- leiðenda og gengi á erlendum mörk- uðum hljóti þó fyrst og fremst að vera undir samstöðu komin. Þróunin í Evrópu Þróunin í Evrópu og víðar hefur orðið sú, að kaupendumir sem hafa verið að kaupa okkar framleiðslu, sem annarra, þeir eru alltaf að stækka og af þeim sökum fer þeim fækkandi. Eða með öðram orðum, samsteypur og öflugar innkaupa- keðjur era hvarvetna að taka við og þar af leiðandi hefur smásölu- dreifíngin verið að færast á æ færri og stærri hendur. Stærsta einstaka verslunarkeðjan í Evrópu árið 1990 hafði veltu upp á 1.850 milljarða íslenskra króna, eða um 17 sinnum íslensku fjárlögin. Um 15 risa inn- kaupakeðjur í Evrópu stunda í dag sameiginleg innkaup fyrir verslun- arkeðjur. Eitt af þessum samtökum er AMS (Associated Marketing Service AG) sem hefur aðsetur í Sviss. Árið 1990 var velta AMS 3.750 milljarðar íslenskra króna, sem jafngildir því að hún hafí velt sem svarar 34 sinnum íslensku fjár- lögin. Önnur innkaupasamtök era BIGS, en innan þeirra era 11 versl- unarkeðjur, með um 26.000 versl- anir innan sinna vébanda. BIGS velti árið 1990 3.200 milljörðum króna, eða 29 sinnum íslensku fjár- lögunum. Tíu stærstu innkaupasamtök Evrópu árið 1990 veltu samtals 28.360 milljörðum króna, eða 260 sinnum íslensku fjárlögunum. Til samanburðar má geta þess að heild- arsmásölumarkaðurinn í EB er 350 milljónir neytenda, smásöluverslan- irnar voru árið 1990 um 650.000 talsins og velta þeirra var upp á 36.000 milljarða króna, eða 327 sinnum íslensku fjárlögin. Þarf risa til að þjóna Evrópurisum? Sjónarmið þeirra sem trúa því að íslenskum hagsmunum verði best borgið í einum öflugum físk- sölusamtökum era þau, að æ öflugri aðila þurfí til þess að þjóna við- skiptaaðilunum erlendis, eigi ná- lægðin við markaðina á annað borð að haldast. Þessu þurfi íslendingar ekki hvað síst að huga að, nú þeg- ar líkast til styttist óðum í að hið evrópska efnahagssvæði verði að veruleika. Framtíðarsýn þeirra sem sjá hér rísa ein öflug físksölusamtök úr þeim þremur sem nú starfa, felur það meðal annars í sér að fískselj- endur þurfí að efla mjög starfsemi sína á erlendum mörkuðum. íslend- ingar þurfí að fjárfesta í fyrirtækj- um erlendis, þar á meðal í fyrirtækj- um sem eigi ákveðin vöramerki og dreifínet. Til þess að geta hrint þessu í framkvæmd í ríkara mæli en hingað til, telja þeir að hlutafé- lagaformið. verði að koma til. Það opni möguleika íslenskra fjárfesta til þess að leggja slíkri markaðssókn til nauðsynlegt fjármagn. Með því að vinna markaði erlendis verði vinnan færð í auknum mæli inn í landið og hér verði það unnið sem markaðurinn vill. Atvinnuleysis- tryggingasj óður Hægt að veita styrki til að auka atvinmi GEFNAR hafa verið út reglur um úthlutun styrkja úr Atvinnuleysis- tryggingasjóði á þessi ári sem heimilt er að veita til sérstakra verkefna á ábyrgð sveitarfélaga til að fjölga atvinnutækifærum. Samkvæmt lögum sem sett voru á síðasta ári munu sveitarfélögin greiða 500 mil(jónir króna til At- vinnuleysistryggingasjóðs á þessu ári, og þannig greiða sveitarfélög með 300 íbúa eða fleiri 1.950 krón- ur fyrir hvern íbúa, en sveitarfé- lög með færri en 300 íbúa greiða 1.700 kr. á hvern íbúa. Samkvæmt reglunum sem Sig- hvatur Björgvinsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur und- irritað skal fjárhæð styrks sem veitt- ur er úr Atvinnuleysistryggingasjóði vera jafnhá þeim atvinnuleysisbótum sem ella hefðu verið greiddar þeim einstaklingum sem falla af atvinnu - leysisskrá vegna þátttöku í verkefn- inu, en til viðbótar koma bamaálag og lífeyrissjóðsgreiðsla. Allur kostn- aður við verkefnið skal vera borinn af viðkomandi sveitarfélagi eða vera á ábyrgð þess. Til að verkefni teljist styrkhæft þarf það m.a. að uppfylla þau skil- yrði að vera til fjölgunar atvinnu- tækifæram í viðkomandi sveitarfé- lagi og vera skýrt afmarkað og tíma- bundið, en verkefnið skal að jafnaði ekki ná yfir lengri tima en sex mán- uði. Um nýtt viðfangsefni eða verk- efni umfram venjuleg umsvif þarf að vera að ræða, en hefðbundin verk- efni sveitarfélaga era ekki styrkhæf nema um sérstakt tíma- og stað- bundið átaksverkefni sé að ræða. Heimilt er að styrkja verkefni þar sem samþætt er fræðsla og vinna. Nota á vinnuafl sem er á atvinnuleys- isskrá í viðkomandi sveitarfélagi, og skulu þeir sem lengst hafa verið á atvinnuleysisskrá hafa forgang að stafí við verkefnið. Verkefni við at- vinnusköpun fyrir fólk sem ekki á bótarétt úr Atvinnuleysistrygginga- sjóði era ekki styrkhæf. Hafnarfjörður Undirskrifta- söfnun gegn byggingu FÉLAGIÐ Byggðavemd í Hafnar- firði hyggst gangast fyrir undir- skriftasöfnun meðal Hafnfirðinga þar sem skorað verður á bæjaryfir- völd að beita sér fyrir því að fyrir- huguð stórbygging við Fjarðargötu falli sem best að umhverfi sínu og verði ekki hærri en þau hús sem fyrir em á miðbæjarsvæðinu. Samkvæmt teikningum verður þama reist 8 hæða verslunarhús. Kristján Bersi Ólafsson, sem sæti á í bráðabirgðastjóm Byggðavemdar, segir að það sé talið jafngilda 10-12 hæða íbúðabyggingu. „Undirskriftasöfnunin er í undir- búningi og það getur verið að við kynnum málið betur áður en við hefj- umst handa. Ég held að það sé þörf á því að kynna málið betur íbúunum. Hins vegar má þetta ekki dragast mjög lengi,“ sagði Kristján Bersi. „Textinn sem lagður verður fyrir íbúana verður á þá leið að skorað verður á yfírvöld bæjarins að stuðla að því að byggingin falli sem best inn í umhverfíð og verði ekki hærri en húsin sem þar eru fyrir. Krafan er sem sagt sú að húsið verði lækkað, þannig að ásýnd bæjarins raskist ekki jafn gífurlega og þama er áformað."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.