Morgunblaðið - 30.01.1993, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993
F élagsleg einangnin
algengt vandamál
aldraðra og öryrkja
Rætt við Hallberu Friðriksdóttur forstöðu-
mann Múlabæjar um starfsemina þar
„MEGINTILGANGURINN með rekstri Múlabæjar er að rjúfa fé-
lagslega eingangrun aldraðra og öryrkja í heimahúsum og efla þá
til þátttöku í daglegri umsýslan," sagði Hallbera Friðriksdóttir,
forstöðumaður Múlabæjar, í samtali við Morgunblaðið. „Einnig er
hlutverk okkar að stuðla að því að aldraðir og öryrlgar geti sem
lengst búið í heimahúsum í stað langdvalarstofnana. Við léttum
líka álagi af dagspítaladeiiduin sjúkrastofnana og greiðum fyrir
útskriftum sjúklinga af sjúkrastofnunum.“
Múlabær, dagvistun aldraðra og
öryrkja, sem er til húsa í Ármúla
34 í Reykjavík, tók formlega til
starfa 27. janúar 1983. Aðdrag-
andinn að stofnun Múlabæjar var
að Reykjavíkurdeild Rauða kross
íslands, SÍBS og Samtök aldraðra
tóku höndum saman á ári aldr-
aðra, 1982, um að stofnsetja dag-
vistun fyrir aldraða og öryrkja.
Varð úr að SÍBS lagði til húsnæði
þar sem Múlalundur hafði áður
sína starfsemi. Var hafist handa
við endurnýjun þessi húsnæðis og
öll hönnun miðuð við þá starfsemi
sem nú fer þar fram.
Brýn þörf
Starfsemin fór hægt af stað. í
byijun var leyfi veitt fyrir vistun
24 einstaklinga, en frá 1. júní
1983 fékkst leyfi fyrir 48 einstakl-
ingum á dag sem er núverandi
fiöldi vistmanna. Fljótlega eftir
opnun Múlabæjar kom í Ijós að
þörfin fyrir starfsemi af þessu tagi
var mjög brýn, því á sex mánuðum
jókst fjöldi einstaklinga sem þjón-
ustuna sóttu um helming. Biðlisti
hefur verið frá upphafi og um
nokkurt skeið hafa um 20 manns
verið á biðlista.
Að jafnaði dvelja 48 einstakling-
ar á dag í Múlabæ og er algeng-
ast að hver og einn dvelji tvo til
þijá daga í viku, með þessu fyrir-
komulagi nær þjónustan til mun
fleiri. Venjulega eru innritaðir
u.þ.b. 110-115 einstaklingar á
mánuði. í byijun er áætlað að fólk
fái dagvist í þijá mánuði en að
þeim tíma liðnum er metið að nýju
hvort þörf sé fyrir þetta form að-
stoðar. Aðstæður hvers og eins eru
þannig metnar með reglulegu
millibili af lækni heimilisins, for-
stöðumanni og hjúkrunarfræðingi.
Náin samvinna er milli Múlabæjar
og öldrunarlækningadeildar Land-
spítalans.
Félagsleg einangrun
Hallbera var spurð hvort al-
gengt væri að aldraðir og öryrkjar
hafi einangrast í þjóðfélaginu.
„Já, því miður virðist það vera
raunin. Við erum aðeins hlekkur í
stærra kerfi og fáum ábendingar
víða að. Félagsmálastofnun og
starfsfólk sjúkrahúsa veit af þess-
um öryggisventli og erum við látin
vita af einstaklingum sem eiga í
erfiðleikum. Margt fólk sem hing-
að hefur komið var orðið illa hald-
ið af einangrunartilfinningu, svo
illa að það bar þess bæði líkamleg
og andleg merki. Þetta getur verið
mikið vandamál, ekki síst fyrir þá
sem misst hafa maka sinn. Þessir
einstaklingar hafa oft myndað um
sig skel sem erfítt getur verið að
bijóta niður en starfsemin hér
miðar markvist að því að endur-
hæfa fólk í félagslegu tilliti."
— Er efnahagur afgerandi
þáttur varðandi félagslega ein-
angrun?
„Nei, fólk getur átt góða íbúð
og haft rúm fjárráð en einangrast
engu að síður. Oft er orsökin ekki
síst sú að það á erfitt með að kom-
ast leiðar sinna. Við höfum þijá
leigubílstjóra í fullu starfi við að
flytja fólkið fram og til baka. Þar
sem þess er þörf fara þeir inn í
íbúðir til fólks og aðstoða það út
í bílana. Þetta er mjög þýðingar-
mikil þjónusta því margir ejga erf-
itt með að komast út í bflana
hjálpalaust. Margir væru ekki fær-
ir um að búa heima hjá sér og
yrðu að flytjast á langdvalarstofn-
anir ef þessi þjónusta væri ekki
fyrir hendi.“
Morgunblaðið/Þorkell
Blóðþrýstingnr mældur
Hólmfríður Guðjónsdóttir vistmaður og Ragnheiður H. Jónhannsdóttir
hjúkrunarfræðingur.
Morgunblaðið/Júlíus
Hallbera Friðriksdóttir for-
stöðumaður.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Forsetinn í heimsókn
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, heimsótti Múlabæ sl. þriðju-
dag og kynnti sér starfsemina þar. Á myndinni heilsar hún Guðríði Jóns-
dóttur, sem er einn af vistmönnum Múlabæjar.
Margskonar þjónusta
„Við greiðum líka fyrir útskrift-
Morgunblaðið/Þorkell
Föndur
Á myndinni eru réttsælis við borðið: Sigríður Einarsdóttir, Ingibjörg
Lárusdóttir, Kristín Bjamadóttir, Gissur Guðmundsson, Jóna Björnsdótt-
ir, Svava Tryggvadóttir og Kristín Ingvarsdóttir.
þeirra og gerðar einfaldar rann-
sóknir s.s. blóðþrýstingsmælingar.
Einnig er fylgst með lyfjagjöfum
og skipt um sáraumbúðir
Hér em vinnustofur þar sem
fengist er við ýmis verkefni. Við
miðum að því að flétta saman
starfsánægju og þjálfunarlegu
gildi vinnunnar. Daglega er efnt
til hópleikfimi sem sniðin er að
getu vistfólksins þannig að sem
flestir geti verið með. Einnig sinn-
um við einstaklingsmeðferð þar
sem sérstaklega er lögð áhersla á
það sem þjálfa þarf hjá viðkom-
andi einstaklingi. Hitameðferð er
mjög vinsæl og ávallt fullsetið þar.
Öll þjálfun fer fram í samráði við
sjúkraþjálfa og hjúkrunarfræðing.
Við bjóðum uppá alhliða hár-
snyrtingu, bæði fyrir dömur og
herra, og er hún veitt af hár-
greiðslumeistara. Einnig kemur
fótaaðgerðafræðingur tvo daga í
viku og veitir þeim þjónustu sem
þess óska.
Þá er aðstoðað við böðun sem
kemur sér vel fyrir þá sem ekki
hafa getu til að baða sig sjálfir
eða hafa ófullnægjandi aðstöðu til
þess heima fyrir.
um sjúklinga af sjúkrastofnunum
með því að annast eftirmeðferð.
Fylgst er með almennu heilsufari
Fyrirlestur
um lögsókn
stríðs-
glæpamamia
EFRAIM Zuroff, forstöðumaður
Simon Wiesenthal-stofnunarinnar
í ísrael, heldur opinberan fyrir-
Iestur á vegum Rannsóknarstofn-
unar háskólans í siðfræði mánu-
daginn 1. febrúar nk. í fyrirlestr-
inum mun hann fjalla um tilraunir
til að lögsaikja stríðsglæpamenn
nasista í ýmsum löndum heims,
sem er eitt af meginverkefnum
Simon Wiesenthal-stofnunarinn-
ar.
Efraim Zuroff kemur til landsins
á vegum stofnunar sinnar til að ræða
við íslenska embættismenn og bauðst
til að halda fyrirlestur um ofangreint
efni. Rannsóknarstofnun háskólans
í siðfræði telur mikilvægt að skiln-
ingur fólks vaxi á málum af þessum
toga en tekur fram að fyrirlesari
talar í nafni Wiesenthal-stofnunar-
innar en ekki Siðfræðistofnunar.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
Odda, stofu 101 og hefst stundvís-
lega kl. 20. (Fréttatilkynning)
Morgunblaðið/Árni Sæbcrg
Nýir eigendur
Eigendur að Plúsnum f.v. Ólafur Lúðvíksson, Guðmundína Kolbeinsdótt-
ir, Kolbrún Guðmundsdóttir og Gunnar Steinn Almarsson.
Plúsinn, nýr tónleikabar
OPNAÐUR hefur verið nýr tónleikabar, Plúsinn að Vita-
stíg 3, þar sem Púlsinn var áður til húsa.
Plúsinn tekur að sér árshátíðir og þorrablót fyrir allt að 70 manns.
Eigendur eru Ólafur Lúðvíksson, Guðmundína Kolbeinsdóttir, Gunnar
Steinn Almarsson og Kolbrún Guðmundsdóttir.
Menningarvika á dval-
arheimilinu í Seljahlíð
MENNINGARVIKA verður haldin dagana 1. til 6. febrúar á
dvalarheimili aldraðra í Seljahlíð og er þetta 3. menningarvik-
an sem haldin er með vistmönnum og starfsmönnum heimilisins.
Mörg erindi verða flutt þessa
viku og má þar nefna hugleiðingu
Helga Seljan um ár aldraðra, er-
indi Bjöms Einarssonar sérfræð-
ings í öldmnarlækningum um
svefn og svefnvenjur. Laufey
Steingrímsdóttir næringarfræð-
ingur mun ræða um næringu og
heilsu, Helgi Valdimarsson læknir
og prófessor ræðir um ofnæmi og
ónæmiskerfi, Páll Skúlason pró-
fessor ræðir um tilgang lífsins og
síðasta dag menningarvikunnar
munu Bára Siguijónsdóttir og Ing-
ólfur Margeirsson rithöfundur lesa
úr bókinni Hjá Bám.
Undanfarin tvö ár hafa menn-
ingardagar af þessu tagi verið fjöl-
sóttir af hálfu vistmanna ekki sið-
ur en starfsfólks, en frá upphafi
starfseminnar í Seljahlíð hefur
vistmannaráð íbúanna unnið með
starfsmönnum að margvíslegri
starfsemi á heimilinu. Vistmanna-
ráð skipa nú eftirtaldir aðilar:
Agnes Kragh, Arinbjöm Árnason,
Axel Ólafsson, Björnfríður Sigurð-
ardóttir, Guðrún Möller, Oddur
Thorarensen og Rósa Blöndal.
Fyrirspumir og umræður
Á eftir hveiju erindi verða leyfð-
ar fyrirspumir og umræður og
hafa oft spunnist hinar fjömgustu
umræður um ólík efni enda er
margt fólk til staðar sem hefur
langa reynslu og mikla þekkingu
sem áhugavert er að gefa mikinn
gaum. Þá má einnig geta þess að
í tengslum við menningarvikuna
verður starfsfólk með sýningu á
ýmsum listaverkum.
Forstöðumaður Seljahlíðar er
María Gísladóttir hjúkmnarfræð-
ingur.
(Fréttatilkynning)