Morgunblaðið - 30.01.1993, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANUAR 1993
33
Short er með pálm-
ann í höndunum
Skák
Margeir Pétursson
ÞAÐ þarf nú mikið að fara
úrskeiðis hjá Englendingnum
Nigel Short til að hann verði
ekki næsti áskorandi heims-
meistarans Gary Kasparovs.
Short hefur nú hlotið sjö vinn-
inga, en Hollendingurinn Jan
Timman fimm, í úrslitaeinvígi
þeirra í Escorial á Spáni sem
nú er að ljúka. Short þarf aðeins
eitt jafntefli til viðbótar til að
tryggja sigurinn og þrettánda
skákin verður tefld í dag.
Á fimmtudaginn vann Short
tólftu skákina og jók forskot sitt
aftur upp í tvo vinninga. Eftir að
hafa nokkurn veginn jafnað taflið
í byijuninni með svörtu fór Timman
að tefla með offorsi upp á vinning.
Hann hóf 'peðasókn á báðum
vængjum og veikti stöðu sína. En
þegar hann virtist loksins vera að
fá einhver sóknarfæri gegn kóngs-
stöðu Shorts lumaði Englendingur-
inn á snjöllu úrræði. Hann fómaði
skiptamun í 34. leik og gersamlega
rústaði stöðu andstæðingsins. Tim-
man lagði þá allt í sölurnar fyrir
sóknarfæri, en með laglegu frá-
skákarstefi í 40. leik gerði Short
allar vonir hans að engu.
Fjórar skákir hafa nú unnist í
röð í einvíginu, þar af þijár síðustu
á hvítt. Þær hafa allar verið stór-
skemmtilegar fyrir áhorfendur og
skákunnendur víða um heim sem
fylgjast með einvíginu í gegnum
textavarp eða sjá þær í dagblöðum.
í Frakklandi og Hollandi koma leik-
irnir í textavarpi um leið og þeim
er leikið.
En það mun ekki duga Short að
tefla skemmtilega gegn Kasparov.
Taflmennskan á svart síðustu þijár
skákir hefur verið bágborin. Verði
eitthvað svipað upp á teningnum í
heimsmeistaraeinvíginu getur
Kasparov sigrað áhættulaust með
því að tefla af öryggi. Það er þó
reyndar líklegra að heimsmeistar-
inn muni stefna að því að sigra
með miklum mun og setja nýtt met
í bursti.
Tólfta einvígisskákin:
Hvítt: Nigel Short
Svart: Jan Timman
Spánski leikurinn
1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5
— a6 4. Ba4 — Rf6 5. 0-0 — Rxe4
6. d4 - b5 7. Bb3 - d5 8. dxe5
Opna afbrigði spánska leiksins,
sem hefst með 5. — Rxe4, hefur
verið aðalvopn Timmans með
svörtu. í áttundu skákinni reyndi
hann gamla leikinn 8. Rxe5!?, en
tókst ekki að breyta því jafnteflis-
orðspori sem fer af þeim leik.
— Be6 9. c3
Í sjöttu skákinni lék Short 9.
De2 - Be7 10. Hdl - 0-0 11. c3,
sem reyndist svarti meinalaust.
9. - Bc5 10. Rbd2 - 0-0 11. Bc2
- f5 12. Rb3 - Bb6 13. Rfd4 -
Rxd4 14. Rxd4 - Bxd4 15. Dxd4!
Allar götur frá 1881, skák
Fleissig og Mackenzie á móti í Vín
það ár, hefur verið vitað að 15.
cxd4 — f4 16. f3 — Rg3! væri
varhugavert fyrir hvít.
15. - c5 16. Ddl - h6!?
Þetta mun vera ný hugmynd
Timmans í þessari stöðu, sem oft
hefur komið upp á síðustu öld.
Áður hefur hér jafnan verið leikið
16. — f4, sem svarað er með 17.
f3! - Rg5 (Nú er 17. - Rg3? þýð-
ingarlaust vegna 18. hxg3 — fxg3
19. Dd3 - Bf5 20. Dxf5 - Hxf5
21. Bxf5 - Dh4 22. Bh3) 18. a4!
og hvítur stendur vel.
17. f3 - Rg5 18. Be3 - Hc8 19.
Dd2 - a5
Peðaframrás svarts á drottning-
arvæng kemur ekki miklu til leið-
ar. Hún virðist þó nokkuð eðlileg
áætlun í stöðunni og staðan virðist
vera nokkurn veginn í jafnvægi
hefði Timman getið setið á sér á
kóngsvæng. Það sem svartur verð-
ur fyrst og fremst að gæta sín á
er að opna ekki taflið svo biskupap-
ar hvíts fari að njóta sín.
20. Hadl - De7 21. Bbl - Kh8
22. Hfel - Hc7 23. Bf2 - b4 24.
h4 - Rh7 25. Dd3 - g5?! 26.
Da6 - Hfc8 27. He2!?
Eins og í níundu skákinni ber
Short mikla virðingu fyrir fómum
andstæðingsins. Það er þó ekki
annað að sjá en hvítur hefði hér
getað nælt sér í peð með 27. Dxa5,
án þess að drottningin verði veru-
lega utangátta. En eftir háðulega
útreið sína í sjöundu skákinni er
skiljanlegt að Short vilji ekki láta
afvegaleiða drottningu sína. Þá
króaðist hún af og féll fyrir réttum
og sléttum riddara.
27. - Hc6 28. Dd3 - gxh4 29.
f4! - Hg8 30. Df3 - bxc3 31.
bxc3 - Hb6 32. Bc2 - Hg4 33.
Kh2 - Hb8
• b c d • f g h
34. Hxd5! - Bxd5 35. Dxd5
Nú lifna hvítu biskuparnir heldur
betur við. og það fellur annaðhvort
á c5 eða f5.
35. - Hxf4 36. Bxc5 - Dg7 37.
Bd4 - He8 38. Dd6 - Dg3+ 39.
Kgl - h3 40. Hf2!!
• b e d • » g h
Timman hótaði máti í þremur
með 40. — h2+. E.t.v. hefur honum
yfirsést þetta glæsilega svar. Nú
er 40. — Hxf2 svarað með 41.
d6+! og opnar línur gegn báðum
svörtu hjónunum í einu. Þetta
glæsilega og listræna stef erþekkt
úr skákdæmum, en afar fátítt í
tefldum skákum. Þennan leik hefur
Guðmundur Arnlaugsson, yfirdóm-
ari í Escorial, örugglega kunnað
vel að meta, en hann er mikill unn-
andi skákdæma og hefur ritað bók
og margar greinar um þau efni.
Nú er svarta staðan gertöpuð
og í 45. leik flýtir Timman fyrir
úrslitunum.
40. - h2+ 41. Khl - Hxd4 42.
Dxd4+ - Rf6 43. He2 - Rh5 44.
e6+ - Dg7 45. Kxh2 - f4? 46.
Bg6 og Timman gafst upp.
Skákþing Reykjavíkur,
kvennaflokkur
Keppni í kvennaflokki hefst
þriðjudaginn 2. febrúar kl. 19.30
og er öllum skákkonum heimil
þátttaka. Tefldar verða sex
umferðir eftir Monrad-kerfi og
lýkur mótinu fimmtudaginn 11.
febrúar. Umhugsunartíminn er ein
og hálf klukkustund á 30 leiki og
síðan 45 mínútur til að ljúka
skákinni.
Teflt verður um farandbikar og
verðlaun verða veitt fyrir a.m.k.
fimm efstu sætin. Væntanlegir
keppendur eru beðnir að skrá sig
á skrifstofu Taflfélags Reykjavikur
í símum 681690 og 813540, alla
virka daga frá 9-12 og mánudaga
frá 13-17. Einnig er tekið við
þátttökutilkynningum á kvöldin í
síma 813540.
r
jleööur TJíj n ‘ HLiái
a Itfv. ’ ^ . .v-miUpj
morgun rV
Guðsþjónustur i Reykjavíkur-
prófastsdæmi vestra.
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi
eftir messu. Árni Bergur Sigur-
þjörnsson. Fimmtudag: Biblíu-
lestur kl. 20.30 í safnaðarheimil-
inu. Markúsarguðspjall.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.00.
Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson
messar. Einsöngur Soffía Vagns-
dóttir.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Prestur sr. Jakob Á. Hjálmars-
son. Dómkórinn syngur. Organ-
leikari Marteinn H. Friðriksson.
Barnastarf í safnaðarheimilinu á
sama tíma. Eftir messuna verður
fundur Safnaðarfélags kirkjunnar
í safnaðarheimilinu. Efni: Æsku-
lýðsstarf. Helgistund kl. 17.
Prestur sr. Hjalti Guðiiiundsson.
Forsöngvari Elín Sigurvinsdóttir.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Ólafur Jó-
hannsson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Messa kl. 14. Prest-
ur sr. Gylfi Jónsson. Organisti
Árni Arinbjarnarson. Þriðjudag:
Kyrrðarstund kl. 12.00. Orgel-
leikur í 10 mínútur. Fyrirbænir,
altarisganga og léttur hádegis-
verður. Þriðjudag: Biblíulestur kl.
14.00. Sr. Halldór S. Gröndal
annast fræðsluna. Kaffiveitingar.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslu-
stund kl. 10.00. Fjölskyldan og
hjónabandið. Sr. Þorvaldur Karl
Helgason. Messa kl. 11. Sr.
Ragnar.Fjalar Lárusson. Barna-
samkoma á sama tíma. Aftan-
söngur kl. 17.00 með tónlist og
ihugun. Orgeltónleikar kl. 20.30
á vegum Listvinafélags Hall-
grímskirkju. Björn Steinar Sól-
bergsson leikur verk eftir frönsk
tónskáld. Þriðjudag: Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum.
Kirkja heyrnarlausra: Messa
kl. 14.00. Sr. Miyako Þórðarson.
LANDSPÍTALINN:Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Morgun-
messa kl. 10. Sr. Arngrímur Jóns-
son. Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Kirkjubíllinn fer um Hlíðar og
Suðurhlíðar á undan og eftir
messu. Hámessa kl. 14. Sr. Tóm-
as Sveinsson. Mánudag: Biblíu-
lestur kl. 21.00. Kvöldbænir og
fyrirbænir eru í kirkjunni á mið-
vikudögum kl. 18.00. Fimmtu-
dag: Kvöldsöngur með Taizé tón-
list kl. 21.00. Kyrrð, íhugun og
endurnæring.
LANGHOLTSKIRKJA:Kirkja
Guðbrands biskups. Messa kl.
11. Prestur sr. Flóki Kristinsson.
Kór Kórskólans syngur stólvers.
Nemendur Kórskólans taka þátt
í messunni. Organisti Jón Stef-
ánsson. Barnastarf á sama tíma.
Kaffisopi eftir messu. Ritningar-
orð dagsins: Þú trúlitli hví efaðist
þú.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
11. Altarisganga. Fermingarbörn
aðstoða. Organisti Ronald Turn-
er. Sr. Sigrún Óskarsdóttir préd-
ikar. Sr. Jón D. Hróbjartsson
þjónar fyrir altari. Foreldrar ferm-
ingarbarnanna sérstaklega
boðnir velkomnir. Eftir messu
verður stuttur fundur með ferm-
ingarbörnum og foreldrum
þeirra. Barnastarf á sama tíma í
umsjá Guðmundar Sigurðsson-
ar. Heitt á könnunni eftir messu.
Guðspjall dagsins:
(Matt. 8). Jesús gekk í
skip.
Fimmtudag: Kyrrðarstund kl. 12.
Orgelleikur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safn-
aðarheimilinu að stundinni lok-
inni.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11.00. Munið kirkjubílinn. Guðs-
þjónusta kl. 14.00. Sr. Frank M.
Halldórsson. Fræðsluerindi kl.
15.15. Sr. Sigurður Pálsson
framkv.stj. Hins ísl. Biblíufélags
flytur erindi um Biblíuna. Mið-
vikudag: Bænamessa kl. 18.20.
Sr. Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Organisti Hákon
Leifsson. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir. Barna-
starf á sama tíma. Umsjón hafa
Bára, Eirný og Erla. Miðvikudag:
Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, alt-
arisganga, fyrirbænir. Léttur há-
degisverður í safnaðarheimilinu.
Guðsþjónustur í Reykjavíkur-
prófastsdæmi eystra.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Altarisganga. Organ-
isti Sigrún Steingrímsdóttir.
Sunnudagaskóli í Árbæjarkirkju,
Ártúnsskóla og Selásskóla á
sama tíma. Fyrirbænastund mið-
vikudag kl. 16.30. Sr. Guðmund-
ur Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Daníel
Jónasson. Barnaguðsþjónusta á
sama tíma. Samkoma „Ungs
fólks með hlutverk" kl. 20.30.
Bænasamkoma þriðjudag kl.
18.30. Sr. Gísli Jónasson.
DIGRANESPRESTAKALL:
Barnasamkoma í safnaðarheimil-
inu við Bjarnhólastíg kl. 11.
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 11. Sr. Þorbergur Kristjáns-
son.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr.
Hreinn Hjartarson. Einsöng
syngja: Ragnheiður Guðmunds-
dóttir og Kristín R. Sigurðardótt-
ir. Organisti Guðný M. Magnús-
dóttir. Barnaguðsþjónusta á
sama tíma í umsjón Sigfúsar og
Guðrúnar. Fyrirbænastund
mánudag kl. 18. Helgistund í
Gerðubergi fimmtudag kl. 10.30.
Prestarnir.
GRAFARVOGSPRESTAKALL:
Barna- og fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11 í Félagsmiðstöðinni
Fjörgyn. Guðfræðinemarnir
Sveinn, Elínborg og Guðmunda
aðstoða. Guðsþjónusta verður
ekki kl. 14 vegna ferðar kirkju-
kórsins í Skálholt. Vigfús Þór
Árnason.
HJALLAPRESTAKALL: Messu-
salur Hjallasóknar, Digranes-
skóla. Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Organisti Oddný Þorsteinsdóttir.
Kristján Einar Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
starf í safnaðarheimilinu Borgum
sunnudag kl. 11. Sjómanna-
messa í Kópavogskirkju kl. 14.
Altarisganga. Organisti Stefán
R. Gíslason. Kirkjugestum verður
boðið upp á kaffi og meðlæti í
safnaðarheimilinu Borgum eftir
messu og á sama tíma munu
unglingar úr Æskulýðsfélagi
Kársnessóknar selja kökur til
fjáröflunar fyrir félag sitt. Ægir
Fr. Sigurgeirsson.
SEUAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Altarisganga. Organisti Kjartan
Sigurjónsson. Sóknarprestur.
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Messa kl. 8.30. Hámessa kl.
10.30. Messa kl. 14. Ensk messa
kl. 20. Laugardaga messa kl. 14
og ensk messa kl. 20. Aðra rúm-
helga daga messur kl. 8 og kl. 18,
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Messa kl. 11. Alla rúmhelga daga
messa kl. 18.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filad-
elfía: Almenn samkoma kl.
16.30. Ræðumaður Hafliði Krist-
insson. Barnagæsla.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Kl. 11
helgunarsamkoma og sunnu-
dagaskóli. Kl. 19.30 bæn. Kl. 20
Hjálpræðissamkoma. Ofursti-
lautinant Karsten Akerö og ma-
mor Berit Olsen frá aðalstöðvum
Hjálpræðishersins í Noregi
stjórna og tala á samkomum
dagsins.
VÍÐISTAÐASÓKN: Barnamessa
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kór
Víðistaðasóknar syngur. Organ-
isti Úlrik Ólason.
GARÐASÓKN: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 13 í Kirkjuhvoli. Lilja
Kristín Þorsteinsdóttir prédikar.
Fermingarbörn aðstoða. Börn úr
Tónlistarskóla Garðabæjar taka
þátt í athöfninni. Bragi Friðriks-
son.
FÆREYSKA sjómannaheimilið:
Samkoma á sunnudag kl. 17.
Ræðumenn eru Símon og Eiríkur.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Einar
Eyjólfsson.
KÁPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl.
8.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkju-
skólinn hefst í Stóru-Vogaskóla
í dag kl. 11. Bjarni Þór Bjarnason.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Sunnudaga-
skólinn vprður f kirkjunni kl.
13.30. Þriðjud. 2. feb. biskup (s-
lands heimsækir Útskálasöfnuð.
Heimsækir Gerðaskóla kl. 9.30,
dvalarheimilið Garðvang kl.
15.30 þar sem verður helgistund
og kaffisamsæti. Kl. 17.30 situr
hann sameiginlegan fund með
sóknarnefndum Útskála og
Hvalsnessókna.
HVALSNESKiRKJA: Sunnudaga-
skóli í Grunnskólanum í Sangerði
kl. 11. Biskup íslands heimsækir
Grunnskólann í Sandgerði kl. 11.
Hádegisverður í boði sóknar,-
nefndar og síðan verða vinnu-
staðir heimsóttir.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskólinn verður í Kirkjulundi
kl. 11. Myndasýning. Munið
skólabílinn. Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 14. Vænst er þátttöku
fermingarbarna og foreldra
þeirra. Kyrrðar- og bænastundir
í kirkjunni á fimmtudögum kl.
17.30. Ólafur Oddur Jónsson.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 16.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messa í Mosfellskirkju kl. 14.
Altarisganga. Barnastarf í safn-
aðarheimilinu kl. 11. Jón Þor-
steinsson.
STÓRA-NÚPSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta sunnudag kl. 14.
Vænst er þátttöku fermingar-
barna og foreldra þeirra. Axel
Árnason
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa
kl. 14.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11.
AKRANESKIRKJA: Messa kl. 14.
Messa á Dvalarheimilinu Höfða
kl. 12.45. Barnasamkoma í dag
laugardag kl. 11 í umsjá Hauks
Jónassonar. Kirkjuskóli yngstu
barnanna í safnaðarheimilinu kl.
13 í dag laugardag í umsjá Axels
Gústafssonar. Björn Jónsson.