Morgunblaðið - 30.01.1993, Side 48

Morgunblaðið - 30.01.1993, Side 48
MICROSOFT. einar j. WlNDOWS. SKÚLASONHF MORCUNBLADIÐ, AÐALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK SlMI 691100, SlMBRÉF 691161, PÓSTHÓLF 1556 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Borgarstarfsmenn Hvassviðri um land allt stóðu í ströngu við að opna niðurföll og hefta vatnsflóð DJÚP Iægð orsakaði hvassviðri með úrkomu um mestallt landið í gær. Víða um landið voru rign- ingarskúrir, en snjóaði þar sem land liggur hærra. í gærkvðldi voru 7-10 vindstig um allt land- ið nema á Vestfjörðum, þar sem skip voru að leggja úr höfn. í Reykjavík stóðu flestallir starfsmenn gatnamálastjóra í ströngu fram eftir kvöldi við að losa klakastíflur úr niðurföllum og hefta vatnsflaum á götum. Eitthvað var um að flæddi inn í kjallara, en að sögn borgarstarfs- manna virðast margir húseigend- ur hafa gripið til ráðstafana gegn flóðum. Dæmi voru þess að bílar fykju til á hálku og rækjust saman, en ekki urðu slys á mönnum eða miklar skemmdir af þeim sökum. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Bamsránið Urskurð- ur kærður HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úrskurðaði í gær Bandaríkja- mennina Donald Feeney, 39 ára, og James B. Grayson, 33 ára, í gæsluvarðhald til 10. febrúar að kröfu RLR, sem rannsakar brott- nám þeirra á dætrum Ernu Eyj- ólfsdóttur. Þeir kærðu úrskurðinn til Hæstaréttar, sem ber að fjalla um kæruna innan þriggja daga. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins ber Emu og Feeney saman um kvikmyndasöguna, sem greint hefur verið frá í aðdraganda brott- námsins, en ekki um önnur atriði. Ema segir að við meðferð skilnað- armáls síns fyrir dómstóli í Flórída hafi hún fengið ósanngjama meðferð vegna þess að hún er útlendingur. Þegar hún fór með dætur sínar frá Bandaríkjunum segist hún hafa verið með íslensk bráðabirgðavegabréf. Sjá fréttir á bls. 20 og 21 Kyiming’ á Islandi prentuð erlendis? EMBÆTTI ríkistollstjóra telur gerð landkynningarefnis Ráð- stefnuskrifstofu Islands virðis- aukaskattskylda. Ársæll Harð- arson, framkvæmdastjóri skrif- stofunnar, segir að ef sá úr- skurður standi, muni ráðstöfun- artekjur skrifstofunnar skerð- ast um 18% og hann íhugi þvi að láta vinna kynningarbækl- iiiga, myndbönd og annað efni á vegum Ráðstefnuskrifstofunn- ar erlendis. „Þetta er kannski eini möguleik- inn sem við höfum á þessum síð- ustu og verstu tímum til að auka gjaldeyristekjur af ferðaþjón- ustunni. Ef við stöndum frammi fyrir því að geta ekki nýtt okkur skattareglumar eins og önnur fyr- irtæki og dregið innskattinn frá, heldur þurfum að greiða fullan virðisaukaskatt af þjónustu, sem Bensínverð óbreytt að svo stöddu OLÍUFÉLÖGIN frestuðu ákvörðun um lækkun bensín- verðs fram yfir hélgi vegna ólgu á heimsmarkaði olíuvara í kjölfar frétta um fyrirhugað frumvarp á Bandarikjaþingi um skatt á innflutta olíu. Tonnið af bensíni var komið í 186 Bandaríkjadali síðdegis í 'gær og hafði hækkað um 10 dali á tveimur sólarhringum. Kristinn Bjömsson, forstjóri Olíufélagsins Skeljungs hf., segist vilja sjá hvar verðið leiti jafnvægis áður en ákveðið verði að breyta verðinu og því hafi því verið frestað fram yfír helgi. Gjaldeyristekjur Ársæll Harðarson telur skattheimt- una geta komið niður á tekjum af ferðaþjónustu. við kaupum hér, verðum við að velta því alvarlega fyrir okkur að kaupa þessa þjónustu erlendis og fjármunimir fara þá í viðskipti þar,“ sagði Ársæll. Hann hyggst leita til fjármálaráðuneytisins til að fá áliti tollsljóra hnekkt. flugleiðir segja upp 44 starfsmönnum Viðræður við evrópskt flugfélag um markaðssamstarf langt komnar FLUGLEIÐIR ætla að segja upp 44 starfsmönnum, 27 hér á landi og sautján erlendis, og spara allt að 100 milljónir kr. í auglýsingakostnað og 24 milljónir með eigin framleiðslu á mat um borð í flugvélum fyrirtækisins. Þetta er meðal þeirra aðgerða sem Flugleiðir hafa kynnt sem lið í því að draga úr rekstrarkostnaði um 4%, eða 500 miHjónir kr., á næstu 18 mánuðum. Nú á að hrinda í framkvæmd 200 tillögum um spamað sem komu frá 25 hópum starfsmanna Flugleiða. Þar á meðal er hugmynd um að fækka stöðugildum um 119, en rúmum helmingi þeirrar fækk- unar nær félagið með því að ráða ekki í störf sem losna á næstu mánuðum. Evrópskt samstarf Þrátt fyrir sparnaðaráformin er gert ráð fyrir 8% aukningu í starf- semi félagsins á þessu ári. Félagið tekur sjálft í notkun eina flugvél sem hefur verið í leigu. Þá hyggja Flugleiðir á landvinninga á evr- ópskum flugmarkaði og eru við- ræður við stórt evrópskt flugfélag um markaðssamstarf langt komn- ar. Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, segir að verði enn frek- ari dráttur á því að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið taki gildi muni félagið leita til stjóm- valda um að þau beiti sér fyrir gerð tvíhliða flugmálasamnings við Evrópubandalagið. Sjá ennfremur bls. 19. Sproti og rússneskir aðilar undirbúa stofnun dreifíngarfyrírtækis fyrír sfld í Moskvu Samið um sölu á 250 þús. tunnum af síld til Rússa SPROTI hf., fyrirtæki Orra Vigfússon- ar, gekk í gær frá rammasamningi um sölu á 250 þúsund tunnum af saltaðri síld til Rússlands. Samningsfjárhæðin samsvarar um 1 lA milljarði króna. Síld- in verður aðallega afhent á næstu síld- arvertíð. Kaupendurnir eru fimm fyr- irtæki í Rússlandi. Jafnframt er unnið að stofnun dreifíngarfyrirtækis fyrir saltsíld í Moskvu. Síldarvertíðin sem nú stendur yfir er sú þriðja, þar sem lítið eða ekkert er saltað af sfld fyrir Rússlandsmarkað. Orri Vigfússon er í Moskvu og var skrifað undir samninginn síðdegis í gær. Hann segist hafa notið aðstoðar Sfldarútvegsnefndar og ís- lenska sendiráðsins við samningsgerðina en bætir því við að eftir sé að ganga frá ýmsum atriðum. Kaöpendumir eru fímm fyrirtæki í Rúss- landi; tvær verslar.akeðjur, stórt frystihús og tvö útgerðarfyrirtæki í Múrmansk. Orri segist aðallega fá greitt í beinhörðum gjaldeyri en hluti síldarinnar verði greiddur með þorski úr Barentshafí. í samningnum er kveðið á um að síldin verði afhent á næstu fimmtán mánuðum. Orri segir að erfítt sé að fá sfld til söltunar á yfirstand- andi sfldarvertíð og eftir að salta upp í þegar gerða samninga þannig að sfldin verði aðallega afhent næsta haust. Þó sé gert ráð fyrir að nokkrir gámar verði sendir til Rússlands í vor. Orri á hlut í síldarsöltunarstöðinni Verktökum hf. á Reyðarfírði en hann segir að Sproti hf. verði að semja við fleiri fyrirtæki um söltun. Orri segir að jafnframt sé hugmyndin að stofna dreifingarfyrirtæki fyrir saltsfld í Moskvu. Sproti hf. og rússnesku kaupendumir standa að því auk þess sem reynt verður að fá fleiri rússnesk fyrirtæki til að taka þátt. Tilgangurinn með stofnun dreifíngarfyrirtækis- ins er að liðka fyrir viðskiptum í framtíðinni og að þar geti einnig farið fram frekari úr- vinnsla síldar. Samningur í gildi Síldarútvegsnefnd gerði í desember 1991 samning við rússneska ríkisfyrirtækið Rosvneshtorg um sölu á 300 þúsund tunnum af síld._ Samningurinn var háður því að Lands- banki íslands veitti Rússum 800 rnilljóna kr. lán vegna viðskiptanna. Hér heima stóð í stappi um þessa lánveitingu fram í febrúar, vegna þess að hún þótti áhættusöm, þar til Seðlabank- inn gerði greiðslusamning við rússneska út- flutningsbankann. Þá fóru fímm þúsund tunnur til Rússlands. í haust óskaði rússneska fyrir- tækið eftir að framkvæmd samningsins yrði frestað þar sem það hafði ekki fengið fjárveit- ingu í peningum eða vörum til að standa við hann. Einar Benediktsson, framkvæmdastjóri Síld- arútvegsnefndar, vildi í gær ekki tjá sig um samning Sprota hf. þar sem hann hefði ekki haft tækifæri til að kynna sér hann. Hann tók það fram að unnið hefði verið að málinu í góðu samstarfi og kvaðst fagna því ef rétt reyndist að kominn væri á samningur um saltsíldarsölu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.