Morgunblaðið - 18.03.1993, Side 24

Morgunblaðið - 18.03.1993, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1993 Hjálpargögn í gegn SERBAR í Bosníu leyfðu í gær tveim bílalestum með hjálpar- gögn á vegum Sameinuðu þjóð- anna til Sarajevo og Gorazde að aka inn í Bosníu. Eftir sem áður er SÞ meinað að flytja mat og aðrar vistir til umset- inna múslima í borginni Sre- brenica þar sem skortur er á brýnustu nauðsynjum. Philippe Morillon, yfírmaður friðar- gæsluliðs SÞ, er enn í Sre- brenica og hyggst dvelja þar þangað til Serbar láta undan. Eftirlitmeð mannréttindum UT ANRÍKISRÁÐHERRAR Eystrasaltsríkjanna þriggja samþykktu í gær tillögu Rússa um að skipaður yrði sérstakur fulltrúi til fylgjast með því að mannréttindi séu í heiðri höfð í öllum löndum við Eystrasalt. Á fundi hins nýstofnaða Eystrasaltsráðs í Helsinki voru réttindi minnihlutahópa mjög til umræðu en Rússar eru helmingur íbúa Lettlands og þriðjungur í Eistlandi. Bókanir undir- ritaðar FULLTRÚAR 18 aðildarríkja hins væntanlega Evrópska efnahagssvæðis undirrituðu í gær bókun um nauðsynlegar breytingar á samkomulaginu um svæðið sem gera þurfti vegna þess að Sviss hætti við þátttöku. Fulltrúi íslands í Brussel var Hannes Hafstein. Heittrúar- múslimar felldir TÓLF manns féllu í gær er vopnaðir lögreglumenn í Egyptalandi réðust á leynileg- ar stöðvar hóps herskárra heit- tníar-múslima í borginni Ass- iut, rúma 300 km sunnan við Kaíró. Múslimarnir vilja að stofnað verði islamskt lýðveldi í landinu og eru taldir hafa staðið fyrir morðárásum á er- lenda ferðamenn sem þeir segja að svivirði trúarbrögð landsmanna. Tekjur af ferða- þjónustu eru afar mikilvægar fyrir Egypta. Frakkar úthýsa Mobutu FRÖNSK stjómvöld hafa bannað Mobutu Sese Seko, forseta í Zaire, að koma til Frakklands en þar á hann miklar eignir, m.a. á Rívíer- unni. Frakkar krefjast þess að Mobutu komi til móts við kröf- ur um aukið lýðræði en hann neitar að sætta sig við umbóta- sinnaðan forsætisráðherra, Etienne Tshisekedi, sem ráð- stefna um stjómarfarsumbæt- ur í Zaire styður. Engholm í fall- hættu KRÖFUR verða æ háværari í Þýskalandi um að Björn Eng- holm, kanslaraefni fiokksins og leiðtogi, segi af sér. Kristilegir demókratar segja að enginn trúi þeim fullyrðingum Eng- holms að hann hafi ekkert vitað um samsæri ráðamanns úr röð- um jafnaðarmanna í heimaríki flokksleiðtogans, Slésvík-Holt- setalandi, um að sverta mann- orð Uwe Barschels, kristilegs demókrata og þáverandi for- sætisráðherra ríkisins, með gróusögum fyrir nokkmm árum. Barschel fannst síðar látinn á hóteli í Sviss. Finnland Enn skylda að læra sænskuna Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. SÆNSKA verður áfram skyldu- fag í finnskum grunnskólum. Finnska ríkisstjórnin tók nýlega ákvörðun þess efnis eftir at- kvæðagreiðslu þar sem tíu voru með og sex á móti. Var þessi nið- urstaða mikill ósigur fyrir Riittu Uosukainen menntamálaráðherra sem hefur beitt sér fyrir því að gera sænskunám valfijálst í grunnskólum. Frá því í byijun áttunda áratugar- ins hafa öll finnsk börn lært tvö erlend tungumál auk móðurmálsins. Annað þeirra hefur verið sænska (finnska í skólum sænskumælandi Finna) og hitt aðallega enska. Uosukainen menntamálaráðherra, sem er finnskukennari að mennt, hefur viljað kenna börnum ensku en að sænska verði valfag. Norrænt hitamál Sænskukennsla hefur verið mikið hitamál undanfarið í finnskum fjöl- miðlum, á þjóðþingi Finna og síðast en ekki síst á þingi Norðurlandaráðs í Ósló. Voru Finnar þar svo mikið í sviðsljósinu vegna meintrar and- stöðu við kennslu norrænna mála (þ.e.a.s. sænsku) að Esko Aho for- sætisráðherra varð að lýsa því yfir í Ósló að staða sænskunnar í finnsk- um skólum yrði tryggð áfram. Hefur ríkisstjómin nú lagt blessun sína yfir þessa stefnu. Enska mikilvægust Samkvæmt könnun sem gerð var á vegum háskólans í Jyvaskyla hefur sænskukunnátta Finna farið stöðugt vaxandi undanfarin ár þrátt fyrir sívaxandi andstöðu við að læra mál- ið. Þykir þetta benda til þess að Finnar eigi auðvelt með að tileinka sér málið en einnig til þess að þó nokkur eining sé um notagildi þess. Skoðanakönnun meðal nemenda sýnir að enska er álitin mikilvæg- asta fagið en sænskan lendir í átt- unda til níunda sæti með eðlis- og efnafræði. I hálfa stöng Reuter PALESTÍNSKIR útlagar á berangri í suðurhéruðum Líbanons flagga fána Sameinuðu þjóðanna í hálfa stöng í tilefni þess að liðnir eru þrír mánuðir síðan ísraelar ráku þá af hernumdu svæðunum vegna gruns um undirróður. Yitzhak Rabin, forsætisráðherra ísraels, segir að ekki verði að komið til móts við kröfur um að taka strax aftur við mönnunum sem eru um 400. Landnemar gyðinga á hernumdu svæðunum kveiktu í bensínstöðvum í gær til að mótmæla því sem þeir kalla linkind gagnvart hermdarverkamönnum. Palest- ínskir skæruliðar hafa myrt sex gyðinga undanfarnar vikur. Stjórn Carls Bildts heldur velli í Svíþjóð Sfnkkhólmi. Reut.er. Stokkhólmi. Reuter. RÍKISSTJÓRN Carls Bildts, forsætisráðherra Svíþjóðar, hélt velli þegar greidd voru atkvæði um vantrauststillögu á stjórnina í gær. Bildt bar þá grundvallaratriði efnahagsstefnu sljórnarinnar upp til atkvæða og lýsti því yfir áður, að ef tillögurnar féllu myndi hann boða til kosninga þegar í stað. Alls greiddu 175 þingmenn atkvæði með sljórninni, 150 á móti en 24 þingmenn flokksins Nýs lýðræðis sátu hjá. í sjónvarpsviðtali að lokinni at- kvæðagreiðslunni sagði forsætisráð- herrann að hann vonaðist til að hún hefði hreinsað pólitískt andrúmsloft í landinu. Mikil óvissa hefur ríkt um stöðu stjórnarinnar, sem er minni- hlutastjórn fjögurra borgaralegra flokka, alit frá því að þingmenn Nýs lýðræðis greiddu atkvæði gegn stjórninni í mikilvægu máli í síðustu viku. Nýtt lýðræði, sem stendur utan stjórnar, hefur farið fram á að stjórnin hafi nánara samráð við flokkinn varðandi stefnumótun í helstu málum því annars sé alls óvíst um stuðning þingmanna hans. Þessu hafa stjórnarflokkarnir hafnað með öllu. Þegar Bildt var spurður í gært hvort hættan á kosningum væri liðin hjá sagði hann svo ekki vera. Sam- skiptum stjórnarinnar við Nýtt lýð- ræði væri hvorki hægt að lýsa sem náinni samvinnu né illskeyttum deii- um. Ian Wachtmeister, annar leiðtoga Nýs lýðræðis, tók í svipaðan streng og sagði að það ætti eftir að bera mörg mál undir þingið á næstu mánuðum þar sem stjómin þyrfti á stuðningi þingmanna flokksins að halda. „Stjórn þarf á meirihluta að halda. Við sitjum ekki á þingi til að sitja hjá. Auðvitað viljum við hafá áhrif,“ sagði Wachtmeister. Brazauskas Litháensforseti hefur ekki þungar áhyggjur af Rússlandi Jeltsín verður ekki steypt ALGIRDAS Brazauskas, forseti Litháens, vill ekki gera mikið úr erfiðleikunum í stjórnmálalífi nágrannaríkisins Rússlands. Hann telur að Borís Jeltsin verði þar áfram við völd en bendir á að æskilegt væri að halda kosningar sem fyrst til að stuðla að mynd- un stjórnmálaflokka þar í landi. Brazauskas var áður leiðtogi komm- únista í Litháen en hafði forystu um að flokkurinn sliti tengslin við sovéska flokkinn og tæki upp sósíaidemókratíska stefnu. Flokk- urinn vann stórsigur í þingkosningum sl. haust og Brazauskas var kjörinn forseti 14. febrúar síðastliðinn. „Ég tel að það sé ekki hægt að segja að ástandið í Rússlandi sé óstöðugt,“ segir Brazauskas. „Ég held að Jeltsín forseti muni áfram fara með völdin í landinu. En ég tel æskilegt að hraða myndun stjórnmálaflokka í Rússlandi. Það væri og hyggilegt að draga það ekki of lengi að efna til kosninga. Fulltrúaþing Rússlands hefur nefnilega ekki reynst gagnleg stofnun. Það má draga lærdóm af þróuninni í Litháen. Eftir tveggja ára umbrotaskeið fékk þjóðin loks tækifæri til að kjósa stjórnmála- flokka til valda eftir eigin höfði.“ Brazauskas var spurður hvort hann teldi að sjálfstæði Litháens stafaði hætta af þróuninni í Rúss- landi. „Nei, það tel ég ekki,“ svar- aði hann. „Það er útilokað að rétt- trúaðir kommúnistar á borð við þá sem sátu í fangelsi eftir valda- ránstilraunina í Moskvu komist til valda.“ En hvar vill forsetinn þá stað- setja menn eins og Rúslan Khasb- úlatov þingforseta og Alexander Rútskoj varaforseta? „Það er erfitt fyrir mig að lýsa mönnum sem ég þekki ekki persónulega. Rútskoj er að mínu mati leiðtogi raunsæs og jákvæðs stjórnmálaafls í Rúss- iandi. Þetta afl, Borgarasamband- ið, gæti verið upphafið að nýjum stjórnmálaflokki þótt erfitt sé að dæma um það á þessari stundu. Á meðan ég var leiðtogi Lýðræðis- lega verkamannaflokksins höfðum. við samskipti við þessa hreyfingu þar sem Rútskoj og [iðnrekandinn Arkadíj] Yolskíj eru í forsvari. En eins og áður segir þá yrðu kosning- ar gott tækifæri til að festa ný lýðræðisöfl í sessi — ekki í stað Jeltsíns, heldur honum við hlið.“ Ofuráhersla á Jeltsín? Er þá rangt af vestrænum ríkj- um að leggja allt sitt traust á Jelts- ín? „Þrátt fyrir allt er hann eini lýðræðislega kjörni valdhafinn í Rússlandi og því er rétt að hann sem slíkur fái mest allan stuðning- Morgunblaðið/Kristinn Algirdas Brazauskas inn. Auk þess fæ ég ekki séð hver gæti ógnað honum ef efnt yrði til nýrra forsetakosninga á næst- unni.“ Brazauskas var því næst spurð- ur hvort hann væri sáttur við þá aðstoð sem Litháen hefði fengið erlendis frá. „Ég er þakklátur fyr- ir þá hjálp sem við höfum fengið, það þarf ekki að fjölyrða um það að efnahagsástandið hjá okkur er mjög erfitt. Við þurfum mjög á aðstoð að halda og nú þegar stjórn- málaástand í landinu er orðið stöð- ugra er ekki ástæða til að ætla annað en að auka mætti slíkan stuðning. Á hinn bóginn hefur borið á því að við Litháar nýttum okkur ekki þá aðstoð sem bauðst. Stundum vorum við svo seinir að endurskipuleggja að tækifærunum var glutrað niður. Reynsluleysið í viðskipum háir okkur og kynning- arstarfið erlendis mætti vera betra.“ Ekki hægt að stroka út fimmtíu ár Landbúnaður er mikilvægasta atvinnugrein Litháens en þar eru vandamálin gífurleg og framleiðsla hefur dregist stórlega saman. For- setinn vill m.a. kenna því um hvernig fyrri valdhafar í Litháen breyttu eignarhaldi jarðnæðis eftir að landið fékk sjálfstæði. „Það gilti sú regla að gömlu eigendurn- ir frá því fyrir sovétstjórn fengu landið sitt aftur. Oft á tíðum er þar um smáskika að ræða, allt niður í fimm hektara. Eigendurnir búa í borgunum og landbúnaður hefur víða lagst af vegna þessa. Ég vil alls ekki mælast til þess að við hverfum aftur til samyrkjubú- skapar. En breytingarnar á fimm- tíu árum voru of miklar til þess að unnt væri að stroka þær út. í samyrkjubúskapnum bjó efna- hagsleg geta sem hefði átt að nýta að einhveiju marki." Viðtal: Páll Þórhallsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.