Morgunblaðið - 18.03.1993, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1993
VMA frum-
sýnir Fyrir
austanmána
Leikklúbburinn Locos í Verk-
menntaskólanum á Akureyri
frumsýndi á mánudagskvöld í
Gryfju skólans leikritið „Fyrir
austan mána“ eftir Caryl
Churcill í þýðingu og leik-
sljórn Jóns Bjarna Guðmunds-
sonar leikara hjá Leikfélagi
Akureyrar.
Leikritið er tvíþætt og gerist
fyrri hlutinn í Afríku árið 1880
og sá síðari í London hundrað
árum síðar, eða 1980, en sögu-
persónur upplifa þetta tímabil
þó einungis sem 25 ár.
Þetta verk hefur aldrei áður
verið sýnt hér á landi þannig að
um íslandsfrumsýningu er að
ræða hjá leikhópnum.
# Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fynr frumsýningu
KRAKKARNIR í leikhópnum Locos í Verkmenntaskólanum á Akureyri frumsýndu á mánudagskvöld
leikritið „Fyrir austan mána“.
Samningar í höfn um leigu á þrotabúi niðursuðuverksmiðju K.Jónssonar
Heimsmeistarkeppnin
Reynt að
fámillirið-
il norður
„ÉG fagna þessu mjög, þetta
er gott tækifæri til að kynna
bæinn,“ sagði Gísli Bragi Hjart-
arson bæjarfulltrúi Alþýðu-
flokks um þá samþykkt bæjar-
sljórnar að fela fulltrúum
íþróttafélaganna og íþróttafull-
trúa að vinna að því að fá millir-
iðil í heimsmeistarakeppninni í
handknattleik til Akureyrar.
Bæjarstjórn samþykkti ályktun
bæjarráðs um þetta efni á fundi
nýlega en þar segir að leggja beri
ríka áherslu á að fá til Akureyrar,
eða Norðurlands einn riðil og milli-
riðil í heimsmeistarakeppninni í
handknattleik, sem haldin verður á
íslandi í apríl 1995.
Hermanni Sigtryggssyni íþrótta-
fulltrúa Akureyrarbæjar hefur verið
falið að vinna að þessu máli ásamt
fulltrúum íþróttafélaganna Þórs og
KA.
Reynt að ráða flesta
starfsmenn KJ á ný
Lausafé og birgðir keypt en fasteignir og framleiðslutæki leigð í fjóra mánuði
NÝTT fyrirtæki, Strýta hf., tekur við rekstri þrotabús K.Jónsson-
ar og co í dag, fimmtudag, og hafa fyrrum starfsmenn K.Jónsson-
ar verið boðaðir til vinnu. Niðursuðuverksmiðja K.Jónssonar var
lýst gjaldþrota á fimmtudag í síðustu viku og hafa farið fram
viðræður síðan um stofnun nýs félags er tæki við rekstrinum tíma-
bundið. Eigendur Strýtu hf. eru Landsbankinn, Kaupfélag Eyfirð-
inga og Samheiji.
Hið nýja félag hefur keypt
lausafé og birgðir þrotabúsins, en
það mun leigja fasteignir og fram-
leiðslutæki þess í fjóra mánuði.
Vonast er til að á þeim tíma, eða
fyrir miðjan júlí í sumar komi fram
aðilar sem reiðubúnir eru að taka
við rekstri félagsins að loknum
leigutímanum. Aðalstarfsemi
Strýtu verður rækjuvinnsla og
framleiðsla á kavíar og skyldum
afurðum og mun fyrirtækið selja
afurðir sínar bæði innanlands og
utan.
Jón Þór Gunnarsson forstöðu-
maður sjávarútvegssviðs KEA
sagði að leitast yrði við að ráða
til starfa sem flesta fyrrverandi
starfsmenn niðursuðuverksmiðju
KJónssonar og co, en fyrir gjald-
þrotið störfuðu um 70 maniís hjá
fyrirtækinu. Starfsmennirnir voru
í gær boðaðir til vinnu í dag, en
einhveijir komu í verksmiðjuna
þegar í gær til að þíða upp hrá-
efni til vinnslunnar.
„Það er mikilvægt fyrir bæjar-
félagið og þar af leiðandi okkur
að rekstur þessarar verksmiðju sé
í gangi. Við vitum að það getur
farið illa með reksturinn ef hann
stöðvast viðskiptalega séð, fjár-
munir rýrna og viðskipta tapast
og erfitt gæti verið að koma þessu
af stað aftur,“ sagði Jón Þór.
Hlutafé Strýtu er 3 milljónir
króna, KEA leggur fram 500 þús-
und og Landsbankinn og Sam-
heiji til helminga það sern- á vant-
ar eða 1.250 þúsund krónur.
Góð kynning
Gísli Bragi sagðist fagna þessari
samþykkt, um góða kynningu á
bænum gæti orðið að ræða ef af
yrði, en búast mætti við að allt að
400 manna hópur dveldi í bænum
í upp undir 10 daga. Þá þyrfti að
prófa þá staði sem notaðir verða
ári fyrir keppnina þannig að búast
mætti við hópi ferðamanna hingað
strax á næsta ári yrði þetta að veru-
leika.
-----♦ ♦ ♦---
Skemmuþak-
ið illa farið
ÓSK um viðgerð á þaki íþrótta-
skemmunnar var vísað til endur-
skoðunar á fjárhagsáætlun Ak-
ureyrarbæjar síðar á árinu á
fundi bæjarstjórnar á þriðjudag.
Þakið er mjög illa farið, heldur
ekki vatni og getur innan tíðar orðið
stórhættulegt gestum hússins verði
ekkert að gert, að því er fram kem-
ur í bókun íþrótta- og tómstundar-
áðs.
Bæjarstjórn
Fasteigna-
skattar ör-
yrkja lækka
BÆJARSTJÓRN Akureyrar hef-
ur samþykkt starfsreglur um
lækkun fasteignaskatts af eigin
íbúðum tekjulítilla örorkulífeyr-
isþega á árinu 1993.
Fasteignaskattur verður lækkað-
ur um 18.500 krónur hjá einstak-
lingum með tekjur allt að 900 þús-
und krónur og hjá hjónum eða fólki
í sambúð með tekjur allt að 1.200
þúsund krónur.
Þá var samþykkt á fundi bæjar-
stjórnar tillaga frá byggingadeild
um viðbótarfjárveitingu til fram-
kvæmda við sambýli fyrir aldraða
við Skólastíg 5, en hækka þarf fjár-
v§itingu til verksins um 2 milljónir
króna, þar sem fyrirséð var að
kostnaður muni fara fram úr áætl-
un að minnsta kosti sem nemur
þeirri upphæð.
Einnig samþykkti bæjarstjórn að
kaupa lóðina við Strandgötu 13, en
kaupverð er rúmar 2 milljónir
króna.
Endurvinnslusvæði verður við Réttarhvamm í framtíðinni
Akureyrarbær
leggxir húsnæði
fram sem hlutafé
SAMÞYKKT hefur verið að Akureyrarbær muni leggja fram
rúmlega helming af húsnæði sínu við Réttarhvamm sem hlutafé
í nýtt fyrirtæki, Urvinnsluna hf. en stofnfundur félagins verður
haldin í næstu viku. A svæðinu við Réttarhvamm er gert ráð
fyrir að starfi fyrirtæki á sviði endurvinnslu í framtíðinni.
Söluverð hússins við Réttar-
hvamm liggur ekki fyrir, að því
er fram kom í máli Sigurðar J.
Sigurðssonar formanns bæjarráðs
á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag.
Hann sagði ekki óeðlilegt að bær-
inn legði fyrirtækinu lið, þar sem
um væri að ræða brautryðjendur,
en félagið mun endurvinna nýtan-
lega hluti úr pappír og plasti, sem
annars væri ekið á haugana.
Björn Jósef Arnviðarson (D)
sagði það hins vegar stríða á
móti sinni pólitísku tilfinningu að
bærinn tæki þátt í atvinnurekstri-
„og ég er því ekki tilbúinn til að
samþykkja að bærinn taki þátt í
enn einu fyrirtækinu. Hingað og
ekki lengra," sagði Björn Jósef.
Endurvinnslusvæði
Svæðið kringum Réttarhvamm
ofan Hlíðarbrautar hefur verið
tekið frá í skipulagi undir starf-
semi á sviði endurvinnslu, þar
hefur Gúmmívinnslan starfað um
nokkurra ára skeið og fyrirhugað
er að ásamt nýju fyrirtæki Ur-
vinnslunni muni Endurvinnslan
flytja starfsemi sína. Auk þess
að taka á móti tómum flöskum
og dósum gegn skilagjaldi hefur
Mbl Morgunblaðið/Rúnar Þór
Endurvinnslusvæðið
INNAN skamms er þess að vænta að þrjú fyrirtæki sem stunda
endurvinnslu verði starfandi á þessu svæði við Réttarhvamm,
Gúmmívinnslan, Úrvinnslan og Endurvinnslan.
komið til tals að Endurvinnslan
annist mótttöku spilliefna fyrir
Akureyrarbæ.
Stofnfundur Úrvinnslunnar
verður haldinn á fimmtudag í
næstu viku og eru hluthafar í
félaginu tæplega 20 talsins. Gert
er ráð fyrir að hlutafé verði 15
milljónir króna, en reiknað er með
að stofnkostnaður nemi á bilinu
22 til 25 milljónum króna. í fyrstu
mun fyrirtækið framleiða kubba
fyrir vörubretti úr pappír og
plasti, en árlega eru fluttir inn
rúmlega 2,5 milljónir trékubba til
vörubrettaframleiðslu.