Morgunblaðið - 18.03.1993, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1993
47
Bannið hundahald
í þéttbýli
lagi að varða við barnaverndarlög
en ekki sérstök lög um smekklegar
nafngiftir. Þjóðin komst ágætlega
af án slíkra laga í meira en þúsund
ár.
Ýmis önnur ákvæði manna-
nafnalaganna eru löggjafanum lítt
til sóma, t.a.m. ákvæði sem skerðir
mannréttindi fólks af erlendum
uppruna, þess efnis að gefa verði
börnum þeirra útlendinga sem ger-
) ast íslenskir ríkisborgarar íslensk
nöfn. Hætt er við að heyrðist hljóð
úr heimóttarhorni íslenskra fjöl-
| miðla ef Kanadamenn tækju upp á
því að banna Vestur-íslendingum
að heita Egill og Grettir. Það er
mesta armæða hversu seint íslend-
ingum ætlar að lærast að ganga
uppréttir í samfélagi þjóðanna.
Alþingismenn hafa sett ófram-
kvæmanleg lög sem skerða sjálf-
sögð mannréttindi og láta sér síðan
sæma, sumir hverjir, að veitast að
því fólki sem falið var að fram-
fylgja lögunum og reyndi að gera
það eftir bestu samvisku og í góðri
trú um fulltingi framkvæmdavalds-
ins. Þessum sömu alþingismönnum
væri sæmra að reyna að hemja
bannfýsn sína og hugsa áður en
þeir setja landsmönnum lög. Von-
andi verður sú raunin þegar þeir
afnema núgildandi mannanafnalög
) og setja ný.
HALLDÓR ÁRMANN
SIGURÐSSON, dósent,
forstöðumaður Málvísindastofnunar
Háskóla íslands.
Frá Einari Vilhjálmssyni
Hundgá, hundaskítur og hunds-
bit er sá menningarauki sem
hundaeigendur í Garðabæ bjóða
samborgurum sínum, með góðfúsu
leyfi bæjaryfirvalda.
Fyrir nokkrum árum voru engir
hundar hér eða í nágrannabæjum,
nema leitarhundar skáta. Þetta
hefur breyst og nú er svo komið
að vegfarendur í Garðabæ geta
vænst þess, að á þá ráðist stórir
grimmir hundar, eins og dæmin
sanna.
Hundaeigendur virða engar
reglur og láta margir hunda sína
ganga lausa og smábörn eru látin
leiða stóra, grimma hunda sem
þau ráða ekki við. Börn á leið í
skóla hafa orðið fyrir áreiti hunda
og dæmi eru um konu sem heim-
sótti ættingja í Garðabæ síðastlið-
ið sumar og þorði vart út úr húsi
fylgdarlaust vegna ágangs stórra
grimmra hunda, sem gengu að
staðaldri lausir í hverfinu. Æski-
legt væri að banna hundahald í
þéttbýli og lágmarks krafa að
hundar hverfi af almannafæri og
hundaeftirlitsmenn látnir sjá svo
um. Mjög skortir á um eftirlit með
hundahaldi og fjöldi hunda orðinn
mikill í bænum.
Sagt er að hvolpar seljist jafn-
vel á hundruð þúsunda og hvolpa-
sala orðin mikill gróðavegur, ekki
síst vegna þess að hundabúskapur
er talinn eiga hægt með að kom-
ast hjá því að tíunda til skatts.
Umhverfisráðherra hlýtur að láta
þetta hundahald til sín taka.
Spyija má hvort eðlilegt hafi verið
að flytja til landsins öll þessi
hundakyn. Nægði ekki að hafa
íslenska hundinn, auk sérþjálfaðra
hunda fyrir löggæslu og björgun-
arsveitir.
Þetta hundaæði, sem hefur
gripið þjóðina, má rekja til þess,
að nokkrir „góðborgarar“ fengu
sér hunda, þrátt fyrir að hunda-
hald væri bannað og óvirtu þannig
lög og reglur.
EINAR VILHJÁLMSSON
Garðabæ.
Pennavinir
Tékkneskur 26 ára karlmaður
með áhuga á fjallaklifri og auk
þess mikinn íslandsáhuga:
Radek Korec,
DP-Druzba 187,
Petrvald U Karvine,
735 41,
Czechoslovakia.
Ghanastúlka, 23 ára, með áhuga
á bréfaskriftum, íþróttum og tón-
list:
Rosemond Quarshie,
P.O. Box 1124,
Oguaa City,
Cape District,
Ghana.
LEIÐRÉTTIN G AR
RangT föðurnafn
Undir mynd sem birtist með
grein um maraþon til styrktar
eyðnisjúkum og birtist hér í blaðinu
þriðjudaginn 9. mars sl. misritaðist
föðurnafn eins ungmennanna. Heit-
ir sá Pétur Johnson en ekki Jón-
son. Morgunblaðið biðst velvirðing-
ar á mistökunum.
ÍMARK
leiðrétting
Í síðasta viðskiptablaði þar sem birt
var opna með útnefningum á at-
liyglisverðustu auglýsingum ársins
1992 slæddist inn villa í flokknum
umhverfisgrafík vegna auglýsing-
arinnar Þad eyðist sem af er tekið.
Þar segir að auglýsandi sé Hér &
Nú auglýsingastofa og framleiðandi
sé Endurvinnsla málma. Það rétta
er að sjálfsögðu að auglýsandi er
Endurvinnsla málma en framleið-
andi er Hér & Nú auglýsingastofa.
Þá var rangt farið með framleið-
anda fyrir auglýsinguna Gott er að
eigagóðan aðí flokki óvenjulegustu
auglýsinganna. Framleiðandinn er
starfshópur í íslandsbanka, Lækjar-
götu 12 og Eiðistorgi en ekki aug-
lýsingastofan Ydda eins og fram
kom í textanum.
V^terkurog
KJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
VELVAKANDI
LJUFSTUNDI
LÆKJAR-
BREKKU
Nokkrum sinnum á ári geri
ég mér dagamun og fer á veit-
I ingahús og fæ mér að borða.
Núna síðast varð Lækjar-
brekka fyrir valinu og átti ég
| þar ljúfar stundir með mat og
drykk. Maturinn var frábær, á
góðu verði og þjónustan mjög
góð.
Að mínu mati er Lækjarbrekka
eitt fallegasta veitingahús í
Reykjavík.
120641-7869
ÓMÖGULEGUR
MIÐBÆR
Sonja hringdi og var mjög
óánægð með það hvernig búið
er að fólki sem þarf að sinna
. erindum í miðbænum.
F
Hún er orðin fullorðin og
langar að nýta sér þá þjónustu
) sem miðstöð aldraðra á Vestur-
götu 3 hefur upp á að bjóða.
Erfitt er að finna bílastæði
) þarna og einhveiju sinni þegar
hún lagði bílnum á Vesturgöt-
unni fyrir framan húsið fékk
hún sektarmiða sem hljóðaði
upp á eitt þúsund krónur. Hún
var óánægð með þetta og hafði
samband við Bílastæðasjóð sem
benti henni á að nota bílastæði
í kjallara hússins við Vestur-
götu. Ekki tókst betur til en
svo að þegar hún átti næst ferð
um miðbæinn og ætlaði inn í
þessa bílageymslu rak hún bíl-
inn utan í húsið og stór-
skemmdi hann og viðgerðin á
bílnum kostaði hana tugi þús-
unda.
Henni finnst aðkoman að
þessari bílageymslu mjög óað-
gengileg; þar sé þröngt um vik
bæði utan geymslu sem innan.
Hún vildi því koma með þá
tillögu, að fullorðið fólk sem
ætlar í Félagsmiðstöðina á
Vesturgötu 3 hafi forgang að
bílastæðunum á Vesturgötunni
fyrir framan húsið og það geti
auðkennt bíla sína með ein-
hvers konar skírteini sem ein-
ungis aldraðir hafi aðgang að.
Þau mættu vera í gluggum bif-
reiðanna eða á mælaborðinu,
þar sem þau sjást.
Öll aðkoma í miðbænum er
með versta móti og kvaðst hún
vera hætt að nýta ýmsa þjón-
ustu í miðbænum, svo sem á
hárgreiðslustofu, því hún geti
ekki hugsað sér að þurfa að
þjóta út eftir klukkutíma með
rúllur í hárinu til að bæta við
peningum í stöðumælinn. Það
sé engin furða að miðbærinn
sé að lognast útaf.
GÆLUDÝR
Köttur í óskilum
Kolsvartur, ómerktur, hálf-
stálpaður högni, mjög kelinn,
fannst neðst við Laugaveg sl.
fimmtudag. Upplýsingar í síma
16863 og vinnusíma 11712.
K-BYGGING
LANDSPÍTALA
Velvakandi góður!
Það er mikið talað um að
flýta opinberum framkvæmd-
um, sem nauðsynlegar teljast,
til að sporna gegn atvinnu-
leysi. í þessu sambandi ætti
K-byggingu Landspítala, sem
komin er nokkuð á veg og leys-
ir mikinn vanda fullbúin, að
vera fremst í forgangsröð.
Á tímum verkefnaskorts er
hægt að fá mjög hagstæð
verktilboð. Þar ofan í kaupið
eru fjármunir, sem ella færu í
atvinnuleysisbætur, betur
komnir í framkvæmd -sem
þessari. Ríkið (og borgin) fær
og góðan hluta kostnaðar til
baka í sköttum. Fjárfesting,
sem þegar er til staðar, kemst
betur og fyrr í gagnið.
Drífum í því að ljúka K-
byggingu, bæði til að fjölga
störfum á höfuðborgarsvæðinu
og leysa viðamikinn húsnæðis-
vanda í heilbrigðiskerfinu.
Eldri borgari.
Rýmingarsala
Leðurskór frá 500
Strigaskór frá 390
Stígvél frá 990
ÓkcyiNS lögfræðiaðstoð
á hverju fimmtudagskvöldi milli
kl. 19.30 og 22.00 í síma 11012.
ORATOR, élag laganema.
Fæddir 59 hittumst í Risínu, Hverfisgötu 105,
laugardaginn 20. mars kl. 19.00.
Farið verður aftur í tímann í myndum og
máli, þetta voru frábærirtímar.
Mætum öll, skráning í síma 689689 og 13282.
Aðalfundur
ÍSLANDSBANKI
Aðalfundur íslandsbanka hf. árið 1993
verður haldinn í Borgarleikhúsinu
mánudaginn 29. mars 1993
og hefst kl. 16:30.
Dagskrá
1. Aðalfundarstörf í samræmi við
19. gr. samþykkta bankans.
2. Tillögur til breytinga á
samþykktum bankans.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
■ Hluthafar sem vilja fá ákveðið mál tekið til
meðferðar á aðalfundinum skulu í samræmi við
ákvæði 16. greinar samþykkta bankans gera
skriflega kröfu um það til bankaráðs, Kringlunni 7
(3. hæð), í síðasta lagi 22. mars 1993.
■ Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum
verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum
þeirra í íslandsbanka, Ármúla 7 (3. hæð),
Reykjavík, 24., 25. og 26. mars kl. 9:15 -16:00 sem
og á fundardegi kl. 9:15- 12:00.
■ Ársreikningur félagsins fyrir árið 1992 sem og
tillögur þær sem fyrir fundinum liggja verða
hluthöfum til sýnis á sama stað og tíma.
■ Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja
atkvæðaseðla og aðgöngumiða sinna fyrir kl. 12:00
á fundardegi.
Reykjavík, 3. mars 1993
s
Bankaráð Islandsbanka hf.