Morgunblaðið - 18.03.1993, Side 52

Morgunblaðið - 18.03.1993, Side 52
j>REFALDUR 1. vinningur MOKGUNBLAniD. ADAIJTRÆTI C. 101 REYKJA VÍK StMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1655 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. 200maim- virki opin fyrir ifl- vu*kjum Tvær trillur fórust í innsig’lingunni að Akranesi í aftakaveðri í gær Í«»Í|Ég wttBi Morgunblaðið/Carsten Kristinsson Leitað úr lofti og á landi TF SIF, þyrla Landhelgisgæslunnar sveimar yfir Leyni, þar sem brak úr Akureynni fannst. Björgunarsveitarmenn gengu fjörur í gær og leit heldur áfram í birtingu í dag. Leitarsvæðið er um 20 km. A innfelldu myndinni eru félagar í Björgunarsveitinni Hjálpinni með dulu sem talin er vera úr Akurey. Morgunblaðið/Sverrir Tveir sjómenn fórust og eins er enn saknað TVEIR sjómenn fórust og eins er saknað eftir að tveir fimm tonna bátar, Akurey AK 134 og Markús AK 42 sukku í innsiglingunni til Akraness skömmu eftir hádegi í gær. Aftakaveður gekk yfir um þetta leyti, suðvestan 6-8 vindstig og gekk á með dimmum éljum og fjöldi báta á sjó. Ásrún AK 3 var samsíða Mark- úsi er hann fékk á sig brot. Tveir menn voru á Markúsi og tókst skip- vetjunum á Ásrúnu að ná þeim úr sjónum. Mennirnir voru úrskurðað- ir látnir þegar komið var með þá á sjúkrahúsið á Akranesi. Vorum samsíða bátnum „Við vorum samsíða bátnum þegar þetta gerðist. Ég sneri mín- um bát frá. Skömmu síðar sáum við öðrum manninum skjóta upp úr sjónum en hinn hékk í rekkverk- inu,“ sagði Skarphéðinn Arnason, skipstjóri á Ásrúnu AK. „Við renndum á milli bátsins og mannsins í sjónum og náðum hon- um upp með haka. Þegar við nálg- uðumst þann sem hékk í rekkverk- inu tók sig upp annað brot og allt fór í kaf,“ sagði Skarphéðjnn. Hann og félagi hans, Rúnar Óttarsson, náðu manninum um borð og héldu þegar til hafnar. Fimmtán manns úr Björgunar- sveitinni Hjálpinni og Hjálparsveit skáta á Akranesi tóku þátt í leit- inni að sjómanninum sem saknað er af Akurey. Laust fyrir kl. 15 í gær fann TF SIF, þyrla Landhelg- isgæslunnar, mannlausan gúmbát Akureyjar og rak hann síðan upp í fjöru ásamt braki úr bátnum. Leit að manninum verður haldið áfram í dag. Ekki er hægt að birta nöfn sjómannanna þriggja að svo stöddu. Sjá ennfremur fréttir og viðtöl á bls. 22-23. Kaup Draupnissjóðsins á hlutabréfum í Samskipum Riftunar krafist á kaup- unum en málshöfðun ella STJÓRN Draupnissjóðsins, sem keypti hlutabréf í Samskipum á sl. ári af Sambandinu fyrir milligöngu Landsbréfa, telur rétt að láta reyna á ábyrgð seljenda bréfanna, starfsmanna Samskips og ábyrgð verðbréfamiðlarans með málshöfðun gerist þess þörf. Telur stjórnin að ekki hafi að öllu leyti verið staðið að sölu bréfanna eins og ætlast er til í lögum. Þetta kom fram á aðalfundi Draupnissjóðsins sem hald- inn var í gær. Kom fram að stjórnin fól Brynjólfi Kjartanssyni hrl. að gera greinargerð um hugsanlega ábyrgð aðila málsins og í fram- haldi af þeirri greinargerð var honum falið að skrifa seljanda hluta- bréfanna bréf og krefjast riftunar á kaupunum. Engin viðbrögð hafa borist frá seljanda. „AÆTLAÐ er að á öllu landinu séu um 200 mikilvæg mannvirki opin fyrir hugsanlegum hermd- arverkum. Af þeim hafa 30 svo mikla þýðingu, að skemmd hvers og eins mundi leiða af sér meiri háttar röskun á þjóðlífinu. í öðr- um löndum er öryggis slíkra mannvirkja ávallt gætt,“ segir í skýrslu nefndar utanríkisráð- herra um öryggis- og varnarmál. Nefndarmenn fjalla m.a. í skýrslu sinni um innra öryggi á íslandi og benda á að alþjóðleg hryðjuverka- starfsemi sé nýtt og erfitt öryggis- l^Eandamál. Er minnt á að hermdar- verkamenn hafi sökkt hvalveiðiskip- um í Reykjavíkurhöfn og því séu það mikilsverðir öryggishagsmunir að veija landið í þessu tilliti. Trilla fékk á sig brot jt Vogrum. TRILLAN Þytur GK frá Vogum fékk á sig brot á Faxaflóa í gær- morgun. Feðgarnir Guðbergur Sigursteins- son og Magnús Guðbergsson, sem róa á trillunni, sögðu í samtali við Morgunblaðið að þetta væri versta veður sem þeir hefðu lent í og hefði litlu munað að illa færi en þeir hefðu þó ekki verið í hættu þar sem trillan hefði haldið fullu afli. Þytur er trébátur og varð fyrir nokkrum skemmdum. - E.G. -----» ♦ ♦----- Búnaðarbankinn "636 millj. á afskrift- arreikning BÚNAÐARBANKINN lagði alls 636 milljónir á afskriftarreikning á sl. ári samanborið við 354 miljj- ónir árið áður. Að auki voru vaxtatekjur bankans færðar niður um 300 milljónir í varúðarskyni. Afskriftarreikningur bankans nam um áramótin alls um 1.056 milljónum og hækkaði úr 672 "'inilljónum frá fyrra ári. Tap bank- ans á sl. ári nam alls um 31 millj- ón eftir skatta. Jón Adólf Guðjónsson, bankastjóri Búnaðarbankans, segir að í uppgjöri sl. árs hafi verið farið mjög vel yfir yfír öll útlán og mjög langt gengið í því að leggja til hliðar fyrir vafa- sömum útlánum. Ekki séu jafn háar upphæðir lagðar á afskriftarreikning á þessu ári. Hann segir þessi auknu framlög á afskriftarreikning skýra að mestu leyti slaka afkomu bank- ans. Einnig sé 135 milljóna framlag verna lífeyrisskuldbindinga íþyngj- anUi. Eigið fé Búnaðarbankans á sl. ári nam alls um 3.414 milljónum og er eiginíjárhlutfall samkvæmt svo- nefndum BlS-reglum áætlað á bilinu 10-10,5% eða nokkuð yfir tilskyldum 8% mörkum reglnanna. Sjá Bl: „Tap Búnaðarbankans Y var 31 milljón“ Draupnissjóðurinn keypti hluta- bréf í Samskipum á sl. ári að nafn- | virði 15 milljónir á genginu 1,12 eða | fyrir 16,8 milljónir. „Það er skoðun Draupnissjóðsins að mikilvægt sé, ekki síst í upphafí hlutabréfavið- skipta á opnum markaði að haldið sé til streitu lagaákvæðum sem ætlað er að vernda rétt fjárfesta í hlutafjár- sölu á markaði," sagði Ragnar Ón- undarson, stjórnarformaður í ræðu sinni á aðalfundinum. „Við getum ekki fallist á að þeir sem leita til sparifjáreigenda komist upp með að láta villandi upplýsingar í té og við getum heldur ekki fallist á að vottun söluaðila séu innantóm orð. Þrátt fyrir hina almennu viðskiptareglu að lagðar séu ríkar skyldur á kaupendur t.d. fasteigna og lausafjár um skoðun hins keypta, hafa nú verið í lög leidd- ar sérstakar kröfur til seljenda og söluaðila hlutabréfa á opnum mark- aði að erlendri fyrirmynd. Þrátt fyrir að ekki sé skemmilegt að gera misheppnaða fjárfestingu að opinberu máli telur stjórn Draupnis- sjóðsins að rétt sé að láta reyna á ábyrgð seljenda bréfanna, starfs- manna Samskips og ábyrgð verð- bréfamiðlarans með málshöfðun ger- ist þess þörf.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.