Morgunblaðið - 30.03.1993, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1993
DRAKULA
★ ★★ Mbl.
★ ★★ DV.
Tilnefnd til
4 Óskarsverðlauna
MIÐAVERÐ KR. 350
Sýnd kl. 9 og 11.15.
B. i. 16ára.
HJÓNABANDSSÆLA
Tilnef nd til 2
Óskarsverðlauna.
Sýnd kl. 4.50. Kr. 350.
HEIÐURSNIENN
Tilnefnd til 4
Óskarsverðlauna.
Sýnd kl. 6.40. Kr. 350.
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★ ■
★
★
★
★
★
★
Sími.
16500
SYNDI
SPtCTB*!. BtcoRDíOG.
BRAGÐAREFIR
Þessi stórskemmtilega
mynd er full af fjöri, hraða
og spennu og kitlar hlátur-
taugarnar svo um munar!
Aðalhlutverk: Damon Way-
ans, Marlon Wayans, Stacey Dash,
Joe Santos og John Diehl.
TÓNLISTIN í MYNDINNI ER EIN SÚ
VINSÆLASTA í HEIMINUM í DAC
0G MÁ ÞAR NEFNA „THE BEST
THINGSIN LIFE ARE FREE" MEÐ
LUTHER VANDR0SS 0G JANET
JACKS0N. „F0REVER L0VE" MEÐ
RALPH TRESVANT 0G „ICE CREAM
DREAM" MED MC LYTE.
Sýnd kl. 5,7, 9og 11.
B. i. 16 ára.
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
Myndakvöld Ferðafélags Islands
Gönguferð í Nepal
FERÐAFÉLAGIÐ verður með myndakvöld í Sókn-
arsalnum, Skipholti 50a, miðvikudaginn 31. mars
nk. kl. 20.30.
Helgi Benediktsson
segir frá í máli og mynd-
um 15 daga ævintýralegri
gönguferð sem hann fór í
okt. sl. í Nepal. Land
Sherpanna, Nepal, liggur
á milli Indlands í suðri og
Tíbets í norðri. Gönguleið
Helga liggur um hlíðar,
fjöll og dali, ótrúleg ævin-
týraveröld. Það verður
forvitnilegt að fræðast um
þetta liðlega tvö þúsund
ára menningarríki, Nepal,
þar sem Buddha fæddist
á 6. öld fyrir Krist.
(Fréttatilkynning)
Skákþing
hefst senn
SKÁKÞING íslands 1993,
áskorenda- og opinn flokk-
ur, verður haldið í Faxafeni
12, Reykjavík, dagana
3.-12. apríl nk.
Fyrsta umferð hefst laug-
ardaginn 3. apríl kl. 14. Tefld-
ar verða 9 umferðir Monrad,
2 klst. á 40 leiki og 1 klst. á
næstu 20 leiki áður en skákin
fer í bið, síðan 1 klst. á 20
leiki eftir bið.
Skráning hefst á mótsstað
klukkustund áður en 1. um-
ferð hefst. (Fréttatilkynning)
UR DAGBOK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
26. - 29. mars
Þrátt fyrir að þessi helgi
hafi verið sú síðasta í mán-
uðinum var um umtals-
verða ölvun að ræða. Þann-
ig þurfti lögreglan 56 sinn-
um að sinna ölvuðum ein-
staklingum, auk fjöl-
margra annarra tilvika þar
sem ölvaðir einstaklingar
komu við sögu, s.s. vegna
9 líkamsmeiðinga, 14
vegna ölvunaraksturs og
aðrir vegna rúðubrota,
skemmdarverka, hótana
o.s.frv. Þessa helgi, eins
og reyndar flestar aðrar,
var eins og allmargt fólk
geti ekki drukkið áfengi
án þess að missa vald á
sjálfu sér svo og öllu því
er skynsamlegt þykir.
Föstudagsnóttin var
fremur róleg framan af en
er líða tók á vaktina varð
fremur annasamt. Ölvun
var mikil og miklir snún-
ingar lögreglumanna henni
tengdri. Tvö umferðarslys
urðu um nóttina. Sex öku-
menn voru grunaðir um
ölvun við akstur. í eiíiu til-
vika stakk ökumaðurinn af
eftir að hafa ekið á Ijósa-
staur, en hann náðist
skömmu síðar á hlaupum.
Tólf ökumenn voru kærðir
fyrir of hraðan akstur og
tveir ökumanna reyndust
réttindalausir.
Á laugardagsnóttina var
vaktin í meðallagi erilsöm.
í dagbókinni segir hins
vegar að fólk hafi verið
með ruglaðra móti. T.d.
hringdi ölvuð kona, sem
heimtaði að lögreglan
kæmi henni til aðstoðar við
að stilla útvarpstækið
hennar og ölvaður maður
hringdi og heimtaði lög-
regluaðstoð við að velja
fyrir sig myndband í mynd-
bandstækið.
Aka þurfti stúlku á
slysadeild eftir barsmíðar
kunningja hennar í Ármúla
aðfaranótt laugardags. Þá
um nóttina var manni veitt-
ur áverki á Ingólfscafé.
Hann var fluttur á slysa-
deild og árásarmaðurinn
var handtekinn. Aðfara-
nótt sunnudags varð að
flytja mann á slysadeild
eftir slagsmál á Café Amst-
erdam. Þá var 16 ára ung-
menni handtekið eftir að
hafa stungið einn félaga
sinn grunnu stungusári í
Lækjargötu og undir morg-
un var maður handtekinn
eftir slagsmál manna í húsi
í Þingholtunum. Flytja
þurfti annan á slysadeild.
Um svipað leyti var konu
í partíi á Seltjarnarnesi
veittur áverki og varð að
flytja hana á slysadeild.
Síðdegis á sunnudag varð
að flytja enn einn á slysa-
deild eftir slagsmál á veit-
ingastað við Rauðarárstíg.
í flestum tilvikum var um
að ræða slagsmál eða átök
milli fullorðins fólks, sem
þekktist.
Á föstudagskvöld var til-
kynnt um að bifreið hefði
verið stolið í Keflavík fyrr
um kvöldið. Skömmu síðar
stöðvuðu lögreglumenn
bifreiðina á Kringlumýrar-
braut. Þar reyndist vera
um fjóra ölvaða unglinga
að ræða.
Á föstudagskvöld kom
þrítugur ölvaður karlmaður
inn á lögregluvarðstofuna
í miðborginni, stakk hendi
undir yfírhöfn sína, tók
fram byssu og beindi henni
að lögreglumanni, sem þar
var á vakt. Sá sló byssuna
þegar frá sér, stökk yfír
afgreiðsluborðið og hand-
járnaði manninn. Um eftir-
líkingu af byssu reyndist
vera að ræða með hagla-
byssuskoti í.
Á laugardagsmorgun
var tilkynnt um innbrot í
íbúð á annarri hæð húss í
Skjólunum. Stigi, sem legið
hafði við húsið, hafði verið
reistur upp, gluggi brotinn
í eldhúsi og stolið þaðan
afruglara, útvarpstæki og
fatnaði.
Um morguninn var til-
kynnt um vinnuslys á hús-
gagnaverkstæði í Vogun-
um. Þar hafði maður verið
að saga með vélsög og var
hann svo óheppinn að saga
í tvo eða þrjá fingur vinstri
handar.
STÆRSTA BIOIÐ ÞAR SEM
ALLIR SALIR ERU (
FYRSTA FLOKKS
HASKOLABIO SIMI22140
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MIÐAVERÐ KR. 350 Á ALLAR MYMDIR IMEMA Á UPPGJÖRIÐ OG KARLAKÓRIMN HEKLU.
UPPGJÖRIÐ
| ARTICLI
RAY LIOTTA - KIEFER SUTHERLAND
Stórgóð mynd með RAY LIOTTA, KIEFER SUTHERLAND og FOREST WHITAKER
i aðalhlutverkum.
UPPREISIMAR ÁSTAIMD Á SJUKRAHÚSI.
GRÍPA ÞARF TIL ÖRÞRIFARÁÐA TIL AÐ HALDA LÍFi.
Leikstjóri: HOWARD DEUTCH.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
BOHEMALIF
Enn einn gull-
molinn frá AKI
KAURISMAKI.
Sýnd kl. 5, 7
og 11.15.
SPENMA FRA FYRSTU MIM-
ÚTU TIL HINNAR SÍÐUSTU!
Sýnd kl. 9 og 11.10.
HOWARDS EIMD
Tilnefnd til 9
Óskarsverðlauna.
Sýnd kl. 5 og 9.
BAÐDAGURINN MIKLI Mynd fyrir alla fjölskylduna, Kl. 7.30.
m 4MÖ líó
Góöandaginn!