Morgunblaðið - 03.04.1993, Síða 10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1993
...........—;-----------—|-j---------
Listahátíð í Hafn-
arfirði í júní 1993
Alþjóðleg hátíð helguð tónlist
LISTAHÁTÍÐ verður haldin í Hafnarfirði dagana 4.-30. júní, og er
þetta í annað sinn sem slík hátíð er haldin þar í bæ. Að þessu sinni
verður megináhersla hátíðarinnar á tónlist, og meðal þeirra sem
koma fram verða breski fiðlusniilingurinn Nigel Kennedy, Sinfóníu-
hljómsveit íslands, Sigrún Hjálmtýsdóttir, hafnfirskir kórar, kúb-
verski gítarleikarinn Manuel Barrueco, Antidogma Musica, ein þekkt-
asta kammerhljómsveit ítala, og Cambrian Brass Quintet frá Bret-
landi. Ennfremur koma fram á hátíðinni bandarisku blússöngvararn-
ir Chicago Beau og Deitra Farr og margir fleiri.
Á hátíðinni verða frumflutt ný
tónverk eftir tónskáldin Atla Ing-
ólfsson og Hjálmar H. Ragnarsson,
auk þess sem íslenski dansflokkur-
inn flytur tvö ný dansverk. Einnig
munu verða flutt þrjú ný leíkrit á
iistahátíðinni, eftir Kristínu Ómars-
dóttur, Áma Ibsen og Jón Friðrik
Arason.
Nigel Kennedy
Nigel Kennedy mun vera í hópi
færustu fiðlusnillinga í heiminum í
dag. Kennedy er frægur fyrir
óvenjulega framkomu og klæðaburð
og fer lítt eftir þeim venjum sem
klassískir tónlistarmenn hafa þar
skapað. Kennedy hefur í auknum
mæli snúið sér að gerð annarrar
tónlistar en klassískrar, og á tón-
leikunum á Kaplakrika mun hann
leika kvartetta eftir Beethoven, verk
eftir Jimi Hendrix og jazz.
Að sögn Steve Lewis, markaðs-
stjóra umboðsfyrirtækisins TKO í
Bretlandi, hefur Nigel Kennedy
fært sig úr klassískri tónlist í áttina
til einhvers mitt á milli Segovia og
Erics Claptons, og hefur að sögn
mikinn áhuga á að færa popp og
klassík nær hvort öðru. „Nigel hefur
áður spilað á smástöðum í Birming-
ham og á einni listahátíð, en kemur
svo hingað,“ sagði Lewis. „Það er
ótrúlegt að það skuli hafa tekist að
fá hann til að koma til íslands og
ég held að áhugi hans á landinu
hafí haft úrslitaþýðinguna."
Þótt hátíðin sé að mestu tileinkuð
tónlist, mun einnig nokkuð bera á
myndlistarmönnum á hátíðinni. Má
þar nefna Manuel Mendive, sem af
mörgum er talinn einn athyglisverð-
asti myndiistamaður Suður-Ámer-
íku. í list Mendives er maðurinn í
fyrirrúmi, og homum er ekkert óvið-
komandi af því sem mannlegt er.
Hann hefur sýnt verk sín í mörgum
löndum heims, og skipta sýhingarn-
ar tugum.
Himnaskúlptúrar
Þýski iistamaðurinn Peter Mal-
inski hefur farið lítt troðnar slóðir
í skúlptúr, og hefur gefið verkum
sínum nýja og óvenjulega vídd, með
því að útfæra þau í formi flug-
dreka. Þessir flugdrekar eða himna-
skúlptúrar eru að jafnaði risastórir,
eða allt að 100 metrar að. lengd.
Auk þess að vera fögur smíð, bera
drekarnir vott um verkfræðilega
snilld. Þess má geta að Malinski
mun halda námskeið í flugdreka-
gerð í Myndlistaskóla Hafnarfjarðar
frá 7.-12. júní, sem lýkur með sýn-
ingu í Höggmyndagarðinum.
Guðmundur Árni Stefánsson,
bæjarstjóri í Hafnarfirði, sagði að
stefna bæjarfélagsins í lista- og
(fc
íbúðir fyrir aldraða
Til endursölu eru 2ja og 3ja herb. íbúðir við Skúlagötu
40 og 40b í Reykjavík.
Allar upplýsingar gefur Svan Friðgeirsson á skrifstofu
Félags eldri borgara, Borgartúni 31, á virkum dögum
frá kl. 9-12 og 13-16.
. „FELAG
ELDiiI
BORGARA
FEB
söluskrifstofa,
Borgartúni 31, sími 621477.
&
011RA 01 LÁRUS Þ. VALDIMARSS0N framkvæmdastjóri
L I lUUBLl0/v KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiltur fasteígnasali
Nýjar á söluskrá meðal annarra eigna:
„Gamla“ húsnæðislánið kr. 5 millj.
Ný og glæsileg 3ja herb. íbúð 82,3 fm á 2. hæð á vinsælum stað í
Grafarvogi. Þvottakrókur á baði. Fullgerð sameign. Laus fljótlega.
Hagkvæm eignaskipti
Til sölu 4ra herb. töluvert endurnýjuð góð hæð við Miklubraut í skipt-
um fyrir 2ja-6ja herb. íbúð helst í Hlíðum eða nágrenni.
í Suðurhlíðum Kópavogs
Á móti suðri og sól húseign með 5 herb. íbúð á tveimur hæðum og
2ja herb. íbúð í kjallara. Stór og góður bílskúr. Mikið útsýni. Tilboð
óskast.
Skammt frá Árbæjarskóla
Nýtt og glæsilegt raðhús á tveimur hæðum með 6-7 herb. ibúð um
170 fm. Kjallari um 85 fm., innréttaður með frábærri fjölskylduað-
stöðu. Góður bílskúr. Góð lán fylgja.
Fellsmúli - sérhiti - laus strax
Stór og góð 3ja herb. íbúð á 3. hæð. Vel með farin sameign. Mikið
útsýni. Sólsvalir. Vinsæll staður. Sanngjarnt verð.
Lyngmóar - Stóragerði
Mjög góðar 4ra herb. íbúðir. Tilboð: óskast.
Fyrir smið eða laghentan
Rúmgóð 3ja herb. íbúð í reisulegu steinhúsi í gamla bænum. Þarfnast
nokkurra endurbóta. Teikn. á skrifst. Tilboð: óskast.
Glæsileg eign - útvals staður
Einbýlishús ein hæð 171,2 fm við Selvogsgrunn. Töluvert endurnýjuð.
Bílskúr 26,8 fm. Glæsilegur trjágarður. Einn vinstælasti staður í borginni.
1, ALMENNA
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944. LAUGAVEG118 SÍMAB 21150-21370
FASTEIGHASAUH
Sæberg
Aðstandendur Listahátíðar í Hafnarfirði
SVERRIR Ólafsson, framkvæmdaslgóri, Sonja B. Jónsdóttir, kynningarfulltrúi, Gunnar Gunnarsson, formað-
ur, Orn Óskarsson, listrænn stjórnandi, Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri og Arnór Benónýsson,
fjármálastjóri.
im
w*
Breski fiðlusnillingurinn Nigel
Kennedy.
menningarmálum hafi verið sú, að
listamennirnir ættu ekki einungis
þátt í sköpunarferlinu, heldur einnig
Peter Malinski með fljúgandi skúlptúra sína.
í stjórn og umsjón framkvæmda. gróska í listalífi Hafnarfjarðar, sem
Síðan iistamiðstöðin Hafnarborg var listahátíðirnar beri gleggst vitni.
opnuð árið 1988 hafi verið mikil
fiteDsö œd£D
Umsjonarmaður Gísli Jónsson
Prentvillur koma misjafnlega
illa út. Einna lakast hefur um-
sjónarmanni þótt, þegar ð hefur
fallið úr orðinu maður í minn-
ingargreinum. Þannig hefur
„einstakur heiðursmaður"
breyst í einstakan heiðursmaur.
Örnólfur Thorlacius minnti mig
líka á þá slysalegu villu, þegar
ráðherra breyttist í rápherra.
Mér dettur í hug í þessu sam-
bandi, að áður fyrr gátu setjarar
gert mönnum gramt í geði bæði
viljandi og óviljandi. Oft hefur
verið til þess vitnað, er setjari
breytti í markaskrá (3. próförk)
bæjarnafninu Svertingsstaðir í
„Svertingjastaðir", af því, sagði
hann ávíttur, að honum fannst
hitt svo asnalegt.
En gefum Órnólfi orðið um
sinn:
„Á ... útsölu voru vörur
boðnar á niðursprengdu verði.
Segi menn svo að tungan sé
ekki í þróun!
Það þarf víðar að huga að
lesbíum en í Bandaríkjaher. Oft-
ar en einu sinni hefur þess verið
getið í eftirmælum hér í blaði
allra landsmanna að hin látna
hafi verið tvíkvænt.
Báðum megin (eða báðumeg-
iri) er góð íslenska, svo og beggja
vegna. En faðir minn kenndi
mér fyrir hálfri öld að órökrétt
væri að slá þessum hugtökum
saman í beggja megin, sem því
miður má stundum lesa og heyra
hjá annars ritfærum mönnum
og málhögum. Enginn segir eða
skrifar hinna megin, sem væri
álíka gáfulegt ...
Síðdegis hinn 12. febrúar
skall hann á með þrumur og
eldingar hér á suðvesturhorninu.
Óveðrið var í útvarpi og sjón-
varpi margsinnis kallað eldinga-
veður. Það lýsir fyrirbærinu
vissulega, en til þessa höfum við
komist af með þrumuveður.
Með hlýrri kveðju (þrumu-
kveðja ætti líka við eftir það sem
á undan er gengið).“
Umsjónarmaður þakkar Örn-
ólfi bréf og góðar kveðjur. Eg
tók líka eftir þessu með „eld-
ingaveðrið". Örnólfur minntist á
vísur sem nemendur hefðu oft
ort um kennslubækur sínar og
höfunda þeirra, og mátti ósjald-
an lesa á gömlum eintökum.
Flest það, sem umsjónarmaður
kann af því tagi, er óprenthæft.
★
Bréfi Örnólfs rektors marg-
nefndu fylgdi þessi gamansami
eftirmáli:
„Ps. Þú vitnaðir nýlega í pistli
þínum í ágætan skólastíl. Hér
kemur annar, trúlega tilbúinn
en ágætt dæmi um samþættingu
námsefnis, þar sem höfundur
slær saman í eina persónu ýms-
um köppum úr íslandssögu Jón-
asar afabróður míns frá Hriflu.
Ritsmíðin fjallaði um Eggert
Ólafsson og var á þessa leið:
Hann var manna vígfimastur
og stökk hæð sína í öllum her-
klæðum, jafnt afturábak sem
áfram. Ungur fór hann til Nor-
egs og drekkti þar Ólafi konungi
Tryggvasyni í ánni Níl. Eftir að
Eggert drukknaði á Breiðafirði
mælti kona hans, Guðrún Ósvíf-
ursdóttir: „Eigi skal gráta Egg-
ert bónda heidur safna liði.““
★
Dramblátum setur Drottinn skammt
með djörfung þeirra’ og hrekki,
þeim líðst svo sem hann lofar framt,
lengra komast þeir ekki.
Allt skal mitt traust
efunarlaust
á hans makt jafnan standa.
Hvað munu mér
þá mennirnir
mega í nokkru granda?
(Passíusálmar Hallgrims
Péturssonar, 35,7.)
★
Tíningur.
1) Eg hef tekið eftir því, eink-
um í ríkisútvarpinu (báðum
686. þáttur
vörpum), að menn hafa tekið
tilsögn um fjárveitingar. Helgi
Hálfdanarson hefur enn sýnt
fram á af venjulegum skýrleik
hvenær sögnin að veita stýrir
að réttu lagi þolfalli og hvenær
þágufalli. Fleiri menn eiga þar
líka góðan hlut að máli. Þetta
er ánægjulegt dæmi ‘ þess að
málvöndunarbarátta ber árang-
ur, þótt stundum ymji mér í
eyrum ljóðlínur Þorsteins: „Vort
ferðalag gengur svo grátlega
seint,/ og gaufið 'og krókana
höfum við reynt .../
2) Að lofa upp í ermina sína,
segir í orðtakasafni próf. Hall-
dórs Halldórssonar, merkir „að
„lofa e-u, sem hann ætlar sér
ekki að efna, getur ekki efnt“.
Orðtakið er kunnugt frá 19. öld:
Það er eiginlega að lofa upp
í ermina sína . . . Frá sömu öld
er dæmi um afbrigðið lofa (e-u)
upp í ermina á sér ... Upp-
runi orðtaksins er óvís.“ Síðan
kemst Halldór að þeirri niður-
stöðu að orðtakið sé erlent og
runnið frá loddaralistum.
Þetta orðtak er svo fast orðið
í máli okkar, að ekki sýnist brýn
ástæða til að breyta því í „að
lofa upp í hendina á sér“, eins
og heyra mátti í útvarpsviðtali
ekki fyrir iöngu.
3) Auk þess legg ég til að við
tölum fremur um öryggisleysi
en „óöryggi“. Það er svona
humm-humm að liefja orð á
tveimur forskeytum. Forskeytið
ör í öryggi er til að tákna neit-
un. í öryggi eru menn ugglaus-
ir.
★
Hlymrekur handan kvað:
Á Syðri-Hólsbrúnum hjá Brandi
var brýnasta huggunin landi.
Þegar kútana fyliti
þá klukkaði í pilti:
„Já, komdu nú kerlingarfjandi!"
Vegna frídaga í dymbilviku
kemur næsti þáttur á skírdag.