Morgunblaðið - 03.04.1993, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁPRÍL 1993
fclk f
fréttum
NEMEND ALEIKHÚ S FS
Sýningin hitti í mark
hjá áhorfendum
Leikfélag nemendafélags Fjöl-
brautaskóla Suðumesja, Vox
Arena, frumsýndi gamanleikinn
„Hreinn umfram allt“ („The Imp-
ortance of Being Earnest“) eftir
Oscar Wilde á sal skólans föstu-
dagskvöldið 26. mars og fékk
sýningin feiknarlega góðar við-
tökur hjá áhorfendum og greini-
legt að sýningin hitti í mark. Leik-
félagið Vox Arena var stofnað
árið 1981 og árið eftir stóð félag-
ið að sinni fýrstu sýningu sem var
Gildran eftir Robert Thomas.
Engin starfsemi var hjá félaginu
þar til árið 1986 en síðan hefur
það verið með leiksýningar á
hverju ári. Nú voru viss tímamót
í sögu Vox Arena því þetta var í
fyrsta skipti sem leikfélagið sýnir
verk í húsnæði skólans en leikur-
inn var sýndur í hinum nýja sal
sem tekinn var í notkun í haust.
Stjórn uemendafélagsins lét sig ekki Biöndai
vmstri til hægri eru: Ingvar Evfiöra Ú frunisymnguna, frá
FS Maddý AndrésdóttirÍjaldkeri nínemendafélags
mað“r to«‘ «W».ari ASZM.Si^,ðM»«
Skólafólk á frumsýningu. F.v.:
Ester Hjartardóttir nemandi í
Verzlunarskóla íslands, Hrund
Hólm nemi í FS og Kristín
Gunnarsdóttir nemi í FS.
Eftir vel heppnaða frumsýningu. Frá vinstri
eru: Heiða Rafnsdóttir, þá Maríurnar þijár,
María Guðmundsdóttir, María Rut Reynisdóttir,
María Júlía Pálsdóttir og Burkni Birgisson.
Þorsteinn Bachmann leikstjóri er fyrir miðri
mynd og hægra megin við hann ér Gísli Níels
Einarsson.
Bylting í háreyðingu
ONETOUCHVAXTÆKI
Auðveld langtíma eyðing á
óæskilegum hárum með heitu vaxi.
Einfalt og hreinlegt í notkun.
Pakkningin inniheldur hitatæki,
tvær stærðir af vaxfyllingum
og vaxborða.
Útsölustaðir:
flestar snyrtivöruverslanir, apótek
og snyrtivörudeildir stórmarkaða.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Það ætti að verða páskaiegt á heimilum þessara stúlkna.
ss
Páskaskraut í Vogum
Að undanförnu hefur æskulýðs-
ráð í Vogum staðið fyrir
öflugu æskulýðsstarfi í félagsheim-
ilinu Glaðheimum, þar sem tekið er
í margvísleg spil og farið í leiki og
nokkur kvöld hafa krakkarnir
föndrað fyrir páskana. Á myndinni
sjást ungar Vogastúlkur með
páskaföndur sem þær unnu á þess-
um kvöldum og munu síðan nota
til að skreyta heima hjá sér um
páskana.
FYRIRSÆTUR
Elite-kóngnrinn
genginn út
Það var engu líkara en um tískusýn-
ingu væri að ræða þegar hinn fimm-
tugi John Casablancas, eigandi Elite-
skrifstofunnar, gekk að eiga hina 17 ára
brasilísku Aline Wermelinger nú fyrir
stuttu. Þegar athöfninni var lokið tóku
rúmlega tuttugu ljósmyndarar að mynda
hjónin í móttökusalnum, sem allur var
skreyttur liljum og orkídeum.
John Casablanca, sem hefur sjálfur
kallað sig glaumgosa á undanförnum
árum, hefur tvívegis áður verið giftur og
á börnin Cecile, 22 ára, og Julian, 14
ára, hvort með sinni konunni.
Áline Wermelinger hefur aftur á móti
vart komið nálægt karlmönnum og er
trúuð, saklaus ung kona, að eigin sögn.
í ágúst síðastliðnum var hún valin til að
taka þátt í Elite-keppninni og í þeim til-
gangi flaug hún til New York í septem-
ber. Henni tókst ekki að sigra í keppn-
inni en vann hins vegar hjarta Casablanc-
as, sem segir að þegar þau fóru að vera
saman hafi tilfinningin verið eins og að
vera í framhaldsskóla. Hann segist hafa
skilað Aline heim snemma á kvöldin og
þau hafi sofið hvort í sínu hótelherberg-
inu.
Þremur mánuðum eftir að þau kynnt-
ust fór John Casablancas til Cordeiro,
þar sem Aline bjó, til að hitta foreldra
hennar, föðurinn José Augusto, 49 ára
bókhaldara, og móðurina Ednu 47 ára
saumakonu. Þau urðu strax hrifin af
væntanlegum tengdasyni — enda jafn-
aldrar hans.
Aline hefur bæði gefið skólann og fyr-
irsætustörfin upp á bátinn tii að geta
John Casablancas segist
ekki geta lofað að hjóna-
band þeirra Aline Wermel-
inger endist, enda er 33ja
ára aldursmunur á þeim.
fýlgt eiginmanni sínum eftir
og snúast alfarið í kringum
hann. Þetta eru hans kröfur,
en í staðinn segist hann von-
andi geta gefið henni ást og
tryggð, því hann viðurkennir
að enn renni heitt, ólgandi
blóð í glaumgosaæðum hans.
„Ég er ekki að segja að hljóna-
bandið endist um alla ævi, en
hver veit?“ segir hinn nýgifti
John Casablancas með bros á
vör.
COSPER
Megum við fá lánaða óbijótanlegu dúkkuna þína í smá-
stund?