Morgunblaðið - 03.04.1993, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 03.04.1993, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1993 37 Jtteöður r a morgun ASKIRKJA: Ferming og altaris- ganga kl. 11. Ferming og alt- arisganga kl. 14. Árni Bergur Sigurbjörnsson. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón- usta Grafarvogssafnaðar kl. 10.30. Fermingarguðsþjónusta Árbæjarsafnaðar kl. 14. Altaris- ganga. Organleikari Sigrún Steingrímsdóttir. Barnaguðs- þjónusta verður í Ártúnsskóla og Selásskóla kl. 11. Sr. Guð- mundur Þorsteinsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í Bústöðum. Fermingar- messa kl. 10.30. Fermingar- messa kl. 13.30. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Pálmi Matthíasson. BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Fermingar- guðsþjónusta kl. 13.30. Altaris- ganga. Ath. breyttan messu- tíma. Organisti: Daníel Jónas- son. Samkoma ungs fólks með hlutverk kl. 20.30. Sr. Gísli Jón- asson. DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma í safnaðar- heimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Fermingarguðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 10.30. Séra Þorbergur Kristjánsson. DÓMKIRKJAN: Kl. 11. Fjöl- skylduguðsþjónusta. Prestur sr. María Ágústsdóttir. Kór Vesturbæjarskólans syngur undir stjórn Kristínar Valsdótt- ur. Skírn. Kl. 17. Föstumessa með altarisgöngu. Prestur sr. Hjalti Guðmundsson. Organisti Marteinn H. Friðriksson. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs- þjónusta kl. 10. Sr. Ólafur Jó- hannsson. FELLA- OG HOLAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11 í umsjá Sigfúsar Ingvarssonar. Fermingarguðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Organisti Violeta Smid. Prestarnir. GRAFARVOGSPRESTAKALL: Barnaguðsþjónusta kl. 11 í Fé- lagsmiðstöðinni Fjörgyni. Ferm- ingarguðsþjónusta í Árbæjar- kirkju kl. 10.30. Organisti Sigur- björg Helgadóttir. Vigfús Þór Árnason. GRENSÁSKIRKJA: Fermingar- messa og altarisganga kl. 10.30 og kl. 14. Prestar sr. Halldór S. Gröndal og sr. Gylfi Jónsson. Organisti Árni Arinbjarnarson. HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslu- stund kl. 10. Sr. Sigurður Páls- son flytur erindi um Biblíuna. Messa kl. 11. Altarisganga. Barnastarf á sama tíma. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Mótettu- kór Hallgrímskirkju syngur. Org- anisti Hörður Áskelsson. Aftan- söngur kl. 17. Sr. Sigurður Páls- son. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Organisti Hörður Áskelsson. HJALLAPRESTAKALL: Messu- salur Hjallasóknar Digranes- skóla. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Organisti Oddný Þorsteins- dóttir. Sóknarprestur. KÁRSNESPRESTAKALL: Barnastarf í safnaðarheimilinu Borgum kl. 11. Fermingar- messa í Kópavogskirkju kl. 14. Kór Kópavogskirkju syngur. Organisti Stefán R. Gíslason. Ægir Fr. Sigurgeirsson. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Guðspjall dagsins: (Lúk. 19.) Innreið Krists í Jerúsalem. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 10.30. Ferming. Prestarnir. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Kirkjubíllinn fer um Hlíðar og Suðurhlíðar á undan og eftir messu. Messa kl. 13.30. Ferm- ing. Prestarnir. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Fermingar- messa kl. 11. Prestur sr. Flóki Kristinsson. Organisti Jón Stef- ánsson. Kór Langholtskirkju (hópur II) sýngur. LAUGARNESKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11. Drengjakór Laugarneskirkju og Schola Cantorum syngja. Drengjakór- inn syngurfrá kl. 10.45. Prestur sr. Jón D. Hróbjartsson. Organ- isti Ronald Turner. Barnastarf á sama tíma í umsjá Þórarins Björnssonar. Heitt á könnunni eftir guðsþjónustu. Fermingar- messa kl. 13.30. Prestar sr. Jón D. Hróbjartsson og sr. Sigrún Óskarsdóttir. NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Munið kirkjubílinn. Ferm- ingarmessur kl. 11 og kl. 14. Prestarnir. SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Sol- veig Lára Guðmundsdóttir. Organisti Hákon Leifsson. Sig- ríður Guðmundsdóttir guð- fræðinemi prédikar. Barnastarf á sama tíma í umsjá Eirnýjar og Erlu. SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón- usta laugardag kl. 11. (Ath. breyttan dag.) Fermingarguðs- þjónustur kl. 10.30 og kl. 14. Altarisganga. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Sóknarprestur. ÓHÁÐI söfnuðurinn: Ferm- ingarguðsþjónusta kl. 11. Lauf- ey Sigurðardóttir leikur á fiðlu. Félagar úr Mótettukór Hall- grímskirkju syngja undir stjórn Kára Þormar organista. Safnað- arprestur. FRÍKIRKJAN, Rvík: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Organisti Pavel Smid. Cecil Haraldsson. KRISTSKIRKJA, Landakoti: Pálmasunnudag messa kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Messa kl. 14 og ensk messa kl. 20. Pálma- vígsla og helgiganga verður á undan hámessunni kl. 10.30. Laugardaga messa kl. 14 og ensk messa kl. 20. Aðra rúm- helga daga messur kl. 8 og kl. 18. KFUM og KFUK: MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Pálmasunnudag pálmavígsla í safnaðarheimilinu kl. 11 og helgiganga til messu ef veður leyfir. Helgistund kl. 20.30. Alla rúmhelga daga messa kl. 18.30. HVÍTASUNNUKIRKJAN Filad- elfía: Hátíðarsamkoma kl. 16.30 vegna 20 ára afmælis Samhjálpar. Barnagæsla. Barnasamkoma á sama tíma. Öllum opið. HJÁLPRÆÐISHERINN: Helgunarsamkoma og sunnu- dagaskóli sunnudag kl. 11. Flokksforingjarnir Thor Narve og Elbjörg Kvist stjórna og tala. Kl. 19.30 bænasamkoma. Hjálpræðissamkoma kl. 20. Elna Fredhoy frá Noregi talar guðs orð. Áslaug Haugland stjórnar. GARÐASÓKN: Sunnudagaskóli í Kirkjuhvoli kl. 13. Fermingar- guðsjjjónustur í Garðakirkju kl. 10.30 og kl. 14. Bragi Friðriks- son. VÍÐISTAÐASÓKN: Fermingar- guðsþjónustur kl. 10 og kl. 14 í Víðistaðakirkju. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Fermingarmessur kl. 10.30 og kl. 14. Gunnar Gunnarsson leik- ur á flautu. Organisti Helgi Bragason. Báðir prestarnir þjóna. FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Fermingarguðsþjónusta kl. 10.30-14. Einar Eyjólfsson. KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Þýsk messa kl. 10. KAPELLAN, St. Jósefsspítala: Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga messa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Messa kl. 8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8. KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkju- skóli í dag í Stóru-Vogaskóla kl. 11 í umsjá Bjarna Franks og Sesselju. KEFLAVIKURKIRKJA: Ferm- .ingarguðsþjónustur kl. 10.30 og kl. 14. Sóknarprestur. KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík: Messa kl. 16. YTRI-Njarðvíkurkirkja: Ferm- ingarmessa pálmasunnudag kl. 10.30. Baldur Rafn Sigurðsson. MOSFELLSPRESTAKALL: Fermingarguðsþjónustur í Lágafellskirkju pálmasunnudag kl. 10.30 og kl. 13.30. Jón Þor- steinsson. ÚTSKÁLAKIRKJA: Fermingar- messa pálmasunnudag kl. 10.30 og kl. 14. Hjörtur Magni Jóhannsson. HVERAGERÐISKIRKJA: Ferm- ingarmessa pálmasunnudag kl. 13.30. Sóknarprestur. ÞORLÁKSKIRKJA: Fermingar- messa pálmasunnudag kl. 10.30 og kl. 14. Svavar Stefáns- son. STOKKSEYRARKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 11. AKRANESKIRKJA: Barnasam- koma í kirkjunni í dag laugardag kl. 11.30 í umsjá Hauks Jónas- sonar. Kirkjuskóli yngstu barn- anna í safnaðarheimilinu Vina- minni kl. 13 í umsjá Axels Gú- stafssonar. Fermingarguðs- þjónustur á sunnudag kl. 11 og kl. 14. Á mánudag altarisganga fermingarbarna og aðstand- enda þeirra kl. 19.30. Björn Jónsson. BORGARPRESTAKALL: Fjöl- skylduguðsþjónusta verður í Borgarneskirkju kl. 11. Sóknar- prestur. HVAMMSTANGAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Síð- asta barnasamvera fyrir páska. Byrjum aftur sunnudaginn 18. apríl á sama tíma. Kristján Björnsson. BREIÐABÓLSSTAÐARKIRKJA: Hátíðarmessa vegna 100 ára vígsluafmælis kirkjunnar á pálmasunnudag kl. 14. Herra Bolli Gústavsson, Hólabiskup, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sóknarpresti; kirkjukórar úr Víðidal og frá Hvammstanga, Vatnsnesi og úr Vesturhópi leiða söng og flytja kórverk auk þátta úr þýskri messu, og kvint- ettinn Voces Thules syngur messuþætti frá 16. öld. Kirkju- kaffi í Vesturhópsskóla efrir messu. Kristján Björnsson. Minning Páll Sigurgeirsson, Fiijum íKöldukinn Fæddur 22.- september 1925 Dáinn 26. mars 1993 Páll Sigurgeirsson, bóndi og bif- reiðastjóri á Fitjum í Köldukinn, lést hinn 26. þessa mánaðar eftir langa og stranga sjúkdómsbaráttu. Hann var því á 68. aldursári sem ekki telst hár aldur, auk þess sem hann bar aldur sinn ávallt svo vel að hann leit út fyrir að vera miklu yngri. Þeim mun sviplegra er frá- fall hans. Páll var sonur hjónanna Sigur- geirs Pálssonar og Kristínar Hólm- fríðar Jónsdóttur sem voru búendur á Granastöðum í Kinn. Hann ólst upp í stórum systkinahópi. Bræður hans, sem komust á legg, voru Jón í Arteigi og Klemens í Artúni. Syst- urnar voru fjórar: Stefanía og Sig- ríður, báðar látnar, og Ólína og Alfheiður sem búa í Reykjavík. Reyndar var hópurinn stærri ef frændsystkinin eru talin með, en á Granastöðum bjuggu einnig bræður Sigurgeirs, Jón og Vilhelm. Um skeið bjuggu í gamla Granastaða- bænum hátt í 20 manns sem litu á sig nánast sem eina fjölskyldu. Sigurgeir Pálsson lést árið 1945 þegar yngri systkinin voru enn á barnsaldri. Hann hafði þá hafið byggingu nýbýlis í landi Grana- staða, Ártúns, og kom það í hlut eldri systkinanna að ljúka bygging- unni, taka við búskap og halda heimili móður þeirra sem átti lengi við vanheilsu að stríða. Hafa þeir bræður æ síðan haldið sig á heima- slóðum og löngum verið orðlagðir fyrir samheldni, dugnað og hagleik sem þeir áttu kyn til. Staðurinn hefur blómstrað og nú búa afkom- endur Sigurgeirs og Kristínar þar í fimm íbúðarhúsum. Páll stundaði nám í Héraðs- skólanum á Laugum, en vann síðan við búskap og vörubílaakstur. Síð- ari árin annaðist hann akstur skóla- barna í Hafralækjarskóla í Aðaldal. Árið 1974 steig Páll mikið gæfu- spor þegar hann kvæntist Margréti Jónsdóttur frá Fljótshólum í Árnes- sýslu. Þau reistu sér fljótlega nýbýl- ið Fitjar þar sem þau bjuggu sér myndarlegt heimili ásamt sonum sínum, þeim Sigurgeiri, sem nú er tvítugur, Þorvaldi 18 ára og Gesti á tíunda ári. Þau hjón voru sérlega góð heim að sækja, gestum var tekið af alúð og rausnarskap. Páli fylgdi jafnan glaðværð og oft gust- aði hressilega af honum þegar hann lét skoðanir sínar í ljós, enda hafði hann viðkvæma og ákafa lund. Ekki leyndi sér að ástríki og ein- drægni ríkti með þeim hjónum og kom það best í ljós þegar heilsu Páls tók að hraka. Þá var Margrét honum ómetanlegur styrkur. Páll mágur minn var vandaður og traustur maður, rækti störf sín af trúmennsku og kostgæfni og var vinur vina sinna. Góðvild hans og hjálpsemi fengu margir að reyna. Og þegar grimmur sjúkdómur svarf að honum síðustu árin, sýndi hann ótrúlegt baráttuþrek og þolgæði svo að eftir var tekið. Páll hafði því til að bera mann- kosti sem allir geta verið stoltir af. Megi það verða öllum eftirlifandi ástvinum hans til huggunar og gleði. Páll Bjarnason. í dag kveðjum við móðurbróður okkar Pál Sigurgeirsson á Fitjum í Köldu-Kinn, sem lést eftir erfiða sjúkdómslegu 26. mars sl. Páll var fæddur á Granastöðum 22. september 1925, sonur hjón- anna Kristínar Jónsdóttur og Sigur- geirs Pálssonar, sem þar bjuggu. Var hann þriðji í röð sjö barna sem upp komust, en þrjú dóu í bernsku. Á Granastöðum var þríbýli og margmennt. Systkinin ólust upp við fremur kröpp kjör þess tíma og þurftu snemma að leggja sitt af mörkum, lærðu ung að vinna. Fað- ir þeirra féll frá á miðjum aldri 1945, en það ár stofnuðu þau nýbýl- ið Ártún í landi Granastaða með móður sinni Kristínu. Samhliða félagsbúskap í Ártúni stundaði Páll alla tíð akstur. Hann var um skeið mjólkurbílstjóri, vann við vegagerð, greip í fólksflutninga og sá um akstur skólabarna hin síðari ár. Þessum starfsvettvangi tengjast fyretu minningarnar um frænda okkar. Leið hans lá oft um Húsa- vík. Þar sátum við um ferðir hans og slepptum engu færi á að fljóta með honum í bílnum. Á þessum árum var ekki bíll á okkar heimili og var oft leitað til Palla um akst- ur, hvort heldur um var að ræða heimsókir í Kinnina eða aðra snún- inga. Var hann alltaf aufúsugestur heima. í bílstjórastarfinu nutu eiginleik- ar hans sín vel. Honum var greið- vikni í blóð borin, dugnaður og sam- viskusemi einkenndu öll hans verk. Hann var varfærinn ökumaður, enda var ferill hans áfallalaus. Hann var hagleiksmaður og framfarasinnaður, lék allt í hendi er að vélum laut, sem kom sér vel í starfi hans. Páll var glaðsinna maður og fé- lagslyndur, átti létt með að kynnast fólki. Hann hafði ríka réttlætis- kennd og var ódeigur í baráttu þar sem hann beitti sér. Gat verið bráð- ur í hita leiksins en ekki langrækinn og góður vinur í raun. Árið 1973 kvæntist Páll Mar- gréti Jónsdóttur frá Fljótshólum í Árnessýslu. Með því varð mikil breyting á högum hans, og duldist engum hvað það var honum mikið ánægjuefni að stofna til fjölskyldu. Þau reistu nýbýlið Fitjar í landi Ártúns og bjuggu þar sjálfstæðu búi síðan. Þau eignuðust þijá syni, Sigurgeir f. 1973, sem siglir á far- skipum, Þorvald f. 1975, við nám í Bændaskólanum á Hvanneyri og Gest f. 1983. Sambúð þeirra varð skemmri en skyldi. Fyrir tæpum þremur árum kenndi Páll þess sjúkdóms, sem nú hefur dregið hann til dauða og hafa þessi ár síðan verið honum og fjöl- skyldunni mjög erfið. Hann þurfti að gangast undir hveija stóraðgerð- ina á fætur annarri, sem mikil áhætta fylgdi. í þessari baráttu sýndi hann fádæma æðruleysi og ótrúlegt þrek allt til síðustu stund- ar. Engu að síður hlaut það að taka á fjölskylduna að fylgjast með sjúk- dómsstríði hans, sem oft var kvala- fullt, og batavonin dvínandi eftir því sem tíminn leið. Margrét og synirnir hafa mikils misst, þar sem genginn er ástríkur eiginmaður og faðir. Megi minning- in um hans óbilandi baráttuþrek verða þeim aflgjafí á þessum erfiðu tímum og um alla framtíð. Um leið og við kveðjum frænda okkar með þökk, vottum við og fjöl- skyldur okkar Margréti og sonun- um, svo og öðrum ástvinum dýpstu samúð. Páll, Sigurgeir og Hólmfríður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.