Morgunblaðið - 03.04.1993, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1993
Reuter
Táknræn mótmæli
TYRKNESKA stjórnin hóf í gær herferð gegn
einkareknum útvarps- og sjónvarpsstöðvum í
landinu, 500 að tölu, og var lögreglu skipað að
leggja hald á allan tækjabúnað þeirra. Ráðherr-
ar gáfu í skyn fyrir ári, að einkarekstur ríkisins
yrði afnuminn og spruttu þá stöðvamar upp
um allt Tyrkland þótt ólöglegar væru enn.
Stjórnvöld segja, að útsendingar þeirra séu farn-
ar að trufla önnur fjarskipti, til dæmis flugvéla,
en ótti við, að öfgafullir múslimar notfæri sér
fjölmiðlafrelsið mun einnig ráða nokkru. Hér
eru tveir starfsmenn einkarekinnar sjónvarps-
stöðvar að mótmæla lokuninni og hafa á tákn-
rænan hátt ýmist bundið fyrir augu eða vit.
NATO mun framfylgja flugbanni yfir Bosníu
Stoltenberg tekur
víð sem sáttasemjarí
Ósló, Brussel. Frá fréttaritara Morgunblaðsins, Jan Gunnar Furuly. Reuter.
THORVALD Stoltenberg, utanríkisráðherra Noregs, þá í
gær boð Boutros Boutros-Ghalis, framkvæmdastjóra Samein-
uðu þjóðanna, um að taka við af Cyrus Vance sem sáttasemj-
ari í deilunum í Júgóslavíu. Talið er, að brotthvarf Stolten-
bergs verði til að veikja ríkisstjórn Gro Harlem Brundtlands
en þingkosningar verða í september. Hermálanefnd Atlants-
hafsbandalagsins, NATO, er að leggja síðustu hönd á undir-
búning undir að framfylgja flugbanni yfir Bosníu.
Brundtland ákvað í gær, að Johan
Jörgen Holst vamarmálaráðherra
tæki við af Stoltenberg sem utanrík-
isráðherra en Jörgen Kosmo, formað-
ur dómsmálanefndar þingsins, við
af Holst sem vamarmálaráðherra.
Stjómarandstaðan á Stórþinginu tel-
ur augljóst, að þessar breytingar
veiki ríkisstjórnina enda er Stolten-
berg einn helsti þungaviktarmaður-
inn þar á bæ. Það hefur líka vakið
furðu, að Kosmo, sem er fyrrum
byggingaverkamaður, skuli hafa ver-
ið skipaður vamarmálaráðherra. Af
vamarmálunum hefur enga reynslu
eins og hann raunar viðurkennir.
Talar serbó-króatísku
Thorvald Stoltenberg er að mörgu
leyti vel fallinn til að gerast sátta-
semjari í Júgóslavíu. Hann var sendi-
fulltrúi í Belgrad á árunum 1961-64
og náði þá góðum tökum á serbó-
króatísku auk þess sem hann þekkir
vel til í lýðveldunum.
Hermálanefnd NATO ræddi í gær
um eftirlit með flugbanninu yfir
Bosníu en líkegt er talið, að allt 100
bandarískar, franskar, breskar og
hugsanlega hollenskar orrustuþotur
muni fylgja því eftir. Bosníu-Serbar
hafa brugðist mjög illa við því og
segja það munu stórauka átökin í
landinu.
ISUZU vörubílagrindur árgerö '92
á hagstæöu veröi
Burðargeta á grind frá þremur til sex tonn,
einnig 4x4
BÍLHEIMAR
ISUZU Höfðabakka 9, sími 634000 og 634050 ISUZU
AZT-alnæm-
islyfið gerir
ekkertgagn
NÝJAR rannsóknir benda til, að alnæmislyfið AZT, það fyrsta
á almennum markaði, hafi engin áhrif á þróun sjúkdómsins.
Eru niðurstöðurnar mikið áfall fyrir þúsundir manna, sem
tekið hafa lyfið í þeirri trú, að það tefði fyrir veirunni og fram-
lengdi þar með líf þeirra, sem eru smitaðir en hafa enn engin
sjúkdómseinkenni fengið. Skýrðu Reuíers-fréttastofan og
breska blaðið Daily Telegraph frá þessu í gær en að sögn
Arthurs Löve, læknis á Rannsóknastofu í veirufræði við Há-
skóla Islands, koma þessar niðurstöður ekki á óvart. Hafi
marga verið farið að gruna, að lyfið hefði lítil áhrif.
urnar af söiu þess á hálfu ári fram
til febrúar sl. 12,6 milljarðar króna.
Fréttir af niðurstöðum rannsóknar-
innar urðu til þess, að hlutabréf í
fyrirtækinu lækkuðu verulega í
verði. í Bandaríkjunum einum nota
125-150.000 manns lyfið reglulega.
AZT notað hér
Arthur Löve, læknir á Rannsókna-
stofu í veirufræði, segir, að vaxandi
efasemdir hafí verið um gagnsemi
AZT en nú sé verið að gera tilraun-
ir með að beita mörgum lyfjum sam-
tímis. Þá sagði hann, að AZT væri
nokkuð notað hér.
Rannsóknirnar voru gerðar á
1.749 sjálfboðaliðum og voru helm-
ingnum gefin 250 milligrömm af
AZT íjórum sinnum á dag en hinir
fengu skammt af öðru og óvirku
efni. Eftir þijú ár voru 8% þeirra,
sem tóku AZT, látin og 7% þeirra,
sem fengu óvirka efnið. Ekki kom
fram neinn munur á þróun sjúk-
dómsins hjá hópunum tveimur, 18%
í hvorum létust eða sýndu einkenni
á lokastigi.
Gífurlegur hagnaður
AZT er framleitt hjá breska lyfja-
fyrirtækinu Wellcome og voru tekj-
Reuter.
Allen mætir
HÉR MÁ sjá leikarann Woody Allen mæta í dómshús New York
borgar ásamt lögfræðingi sínum, Elkin Abramowitz, í gær.
Sálfræðingur vill
að Allen hitti Dylan
New York. Reuter.
SÁLFRÆÐINGUR, sem kallaður var til vegna forræðis-
máls Ieikaranna Woody Allen og Miu Farrow, telur að
Allen eigi að fá að umgangast sjö ára ættleidda dóttur sína
Dylan, jafnvel þó í ljós komi að hann hafi í raun misnotað
hana kynferðislega.
Allen hefur verið meinað að um-
gangast Dylan allt frá því að Farrow
sakaði hann í fyrra um að hafa mis-
notað barnið kynferðislega. Allen
hefur aftur á móti vísað öllum slíkum
ásökunum staðfastlega á bug læknar
segja ekkert benda til að misnotkun
hafí átt sér stað.
Sálfræðingurinn Susan Coates
sagði við vitnaleiðslur á fimmtudag
að það ætti ekki að útiloka föðurinn
úr lífi barnsins. Hún taldi rétt að
veita Allen umgengnisrétt „þegar
fram líða stundir" jafnvel þótt rann-
sókn leiddi í ljós að fótur væri fyrir
ásökununum.
Yfírgaf Farrow réttarsalinn grát-
andi þegar hún heyrði vithisburðinn.