Morgunblaðið - 03.04.1993, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1993
23
„Af engii tilefni“
eftir Kristján
Ragnarsson
Sverrir Hermannsson bankastjóri
Landsbankans sendir mér kveðju í
Morg-unblaðið á fimmtudag í tilefni
þeirra ummæla minna á aðalfundi
Islandsbanka, að ekki sé unnt að
jafna saman fjárstyrkingu ríkisins
til Landsbanka og_ hlutaijáraukn-
ingu íslandsbanka. Ég ætla að eftir-
farandi ummæli séu þau sem hann
leggur út af: „Annars vegar er fé
tekið án samþykkis skattgreiðenda
og fært Landsbanka, án þess að
þeir hafi nokkuð um það að segja
og hins vegar ákvörðun fyrirtækja
og einstaklinga um að leggja af
fúsum og fijálsum vilja fé í áhættu-
rekstur.“
í mínum orðum lá engin gagn-
rýni á þá ráðstöfun Alþingis að
styrkja eiginfjárstöðu Landsbank-
ans svo þýðingarmiklu hlutverki
sem hann gegnir í atvinnulífinu.
Ég hélt að bankastjóri sem hefur
verið þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins til margra ára teldi þessi aug-
ljósu sannindi ekki deiluefni út frá
þeim sjónarmiðum að atvinnurekst-
ur sé betur kominn í höndum einka-
aðila en ríkisins.
Ég var alinn upp vestur á fjörðum
og innrætt þessi sjónarmið og ég
hef ekki skipt um skoðun. Banka-
stjórinn hefur hingað til þóst hafa
hliðstæð sjónarmið en hann er hins
vegar þekktur af því til margra ára
að haga seglum eftir vindi og verð-
ur ekki skotaskuld úr því nú frekar
en fyrr.
Athygli vakti að heil vika leið
þegar málefni Landsbankans voru
til umfjöllunar á Alþingi, án þess
að frá honum heyrðust nein gífur-
yrði. Höfðu margir orð á því og
höfðu um það getspá hver hefði
afrekað það að láta manninn þegja
í heila viku. Svo brast stíflan. í síð-
asta sunnudagsblaði Morgunblaðs-
ins fyllti hann þijár síður í viðtali
við Agnesi Bragadóttur og voru þá
ekki spöruð stóru orðin. Þegar leið
á sunnudagsmorgun birtist hann
með samheija sínum um málefni
Landsbankans, Ólafi Ragnari
Grímssyni, á Bylgjunni og fyllti þar
klukkutíma. Mér er svo tjáð að
þegar leið enn lengra á daginn hafi
verið haft klukkustundar langt við-
tal við hann í Ríkisútvarpinu. Minna
mátti þetta ekki vera eftir viku-
langa þögn.
Nú hefur það verið svo að banka-
stjórar hafa, vegna eðlis starfs
þeirra og trúnaðar, ekki tekið mik-
inn þátt í fjölmiðlaumræðu. Það á
hins vegar ekki við um Sverri Her-
mannsson. Lítillætið hefur aldrei
verið hans sterka hlið.
Sverrir fullyrðir að íslandsbanki
hafi fengið 3,5 milljarða í heiman-
mund með kaupum á Útvegsbank-
anum, þetta stafi af því að ríkið
hafi þurft að taka á sig töpuð útlán
þegar Útvegsbankinn hafi orðið
Kristján Ragnarsson
Sverrir fullyrðir að ís-
landsbanki hafi fengið
3,5 milljarða í heiman-
mund með kaupum á
Útvegsbankanum,
þetta stafi af því að rík-
ið hafi þurft að taka á
sig töpuð útlán þegar
Útvegsbankinn hafi
orðið gjaldþrota. Þetta
er ekki rétt.
gjaldþrota. Þetta er ekki rétt.
íslandsbanki var ekki til og hafði
ekkert með það að gera hvernig
þáverandi ríkisstjórn kaus að endur-
reisa Útvegsbankann og gera hann
að hlutafélagi. Það var ekki fyrr
'en sumarið 1989 að bankarnir þrír,
Alþýðubanki, Iðnaðarbanki og
Verzlunarbanki sameinuðust um að
kaupa Útvegsbankann hf. og sam-
einast í ársbyijun 1990 um rekstur
hans. Það var samkomulag kaup-
enda (bankanna þriggja) og selj-
enda (ríkisstjórnarinnar) hvers virði
bankinn væri. Þessi nákunni maður
málinu, sem Sverrir nefnir til máls-
ins, misminnir eitthvað um röð at-
burða í þessu máli.
Athyglisverð eru viðhorf banka-
stjórans til afkomu sjávarútvegsins,
sem fram koma í athugasemd hans
við mál mitt á aðalfundi íslands-
banka, og ennfremur í viðtalinu í
Morgunblaðinu. Svo er að skilja að
óþarft sé með öllu að bæta afkomu
sjávarútvegsins og áhyggjur hans
beinast allar að útgerð „krókaleyfis-
báta“ hvað svo sem það kemur
Landsbankanum við. Svo virðist að
hann leggi sérstaka áherslu á að
skerða veiðiheimildir þeirrar út-
gerðar sem skapa atvinnuöryggið
um allt land og þar með afkomu
þeirra sem þar búa.
Erfiðleikar Landsbankans hafa
verð taldir stafa af slæmri rekstrar-
afkomu sjávarútvegsins. Af orðum
bankastjórans má skilja að hann
telji engra ráðstafana þörf til að
bæta rekstrarskilyrði greinarinnar,
enda þótt hagsmunir þeirra séu
samtvinnaðir.
Ég get glatt Sverri Hermannsson
með því, að fullvissa hann um það
að flokksbræður hans í ríkisstjórn
hafa ekkert haft með það að gera
að mér hefur verið falin formennska
í bankaráði íslandsbanka. Það er
eingöngu ákvörðun félaga minna í
bankaráðinu.
Dylgjur hans um að ég _sé full-
trúi ríkisins í bankaráði Islands-
banka eru heldur broslegar, en það
á að tengjast því að Fiskveiðisjóður
hefur stutt mig til þessa starfs.
Fiskveiðasjóður er fjárfestingalána-
sjóður sjávarútvegsins og þar hafa
ríkt þau sjónarmið undir ágætri
forystu annars bankastjóra Lands-
bankans að hagur sjávarútvegsins
sitji í fyrirrúmi. Stjórn hans er að
meirihluta skipuð fulltrúum einka-
aðila.
Af orðum bankastjórans er svo
að skilja að hann telji sæti i banka-
ráði vera bitling. Ég hef skilið orð-
ið „bitlingur“ á þann veg að í því
felist að þiggja greiðslu fyrir eitt-
hvað sem ekki er unnið fyrir. Það
virðist því ljóst vera að hann telji
bankaráðsmenn Landsbankans, þar
sem hann þekkir best til, ekki vinna
fyrir kaupinu sínu. Mér sýnist að
bankaráðsmenn Landsbankans
ættu að taka þessi snupuryrði til
sín og vinna fyrir kaupinu sínu með
því að hafa eftirlit með störfum
þessa bankastjóra því þar er aug-
ljóslega af nægu að taka.
Höfundur er formaður LÍÚ.
Kynning
Heimsklúbbs-
ins er í dag
KYNNING á hnattreisu á vegum
Heimsklúbbs Ingólfs verður í dag
klukkan 16 í Arsal Hótel Sögu.
Um er að ræða ferð kringum
jörðina, sem stendur í 4 til 6 vik-
ur eftir óskum farþeganna, því
að þeir geta framlengt ferðina í
Ástralíu, Nýja Sjálandi eða á
Suðurhafseyjum og farseðillinn
gildir í tvo mánuði.
I Morgunblaðinu í gær, þar sem
birt var fréttatilkynning frá klúbbn-
um urðu þau mistök, að Ingólfur
Guðbrandsson var sagður forstjóri
Heimsferða, en þar átti að sjálf-
sögðu að standa Heimsklúbbs Ing-
ólfs, en klúbburinn rekur Ferða-
skrifstöfuna Primu. Þá varð einnig
misritun, er getið var, hvenær ferð-
in hæfist. Hún hefst 3. nóvember
næstkomandi.
2000 ÍSLEISTDINGÁR í ^YHIU
BÓK 1 i tVf SAM TÍIMK \1 EFNTN
ÓMISSANDI UPPLÝSINGAR
HEIMA OG í VINNUNNI
Nýttu þér sérstakt kynningarverð
8.760 Iop.
staðgreitt. Almennt verð er 14.600 kr. Pantaðu bókina
688300,
isima
' og við sendum þér hana heim!
VAKA-HELGAFELL
LIFANDI ÚTGÁFA - ALLT ÁRIÐ