Morgunblaðið - 18.04.1993, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
87. tbl. 81. árg.
SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1993
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
• •
Turgnt Ozal
forseti Tyrk-
lands látinn
Ankara. Reuter.
TURGUT Özal, forseti
Tyrklands, lést á
sjúkrahúsi í Ankara í
gærmorgun. Özal, sem
var 66 ára gamall, var
fluttur á sjúkrahús í
flýti í kjölfar þess að
blóðþrýstingur hans
lækkaði skyndilega
sem leiddi til hjarta-
truflana. Talsmaður (jzal
Özals sagði að hugsan-
lega hefði þreyta verið valdurinn að
veikindum forsetans en hann var ný-
kominn úr tveggja vikna ferð um Mið-
Asíu. Árið 1987 gekkst hann undir
mikla hjartaaðgerð. Árið 1988 er Özal
var forsætisráðherra var honum sýnt
banatilræði á þingi Föðurlandsflokks-
ins. Özal var aðstoðarforsætisráðherra
1980-1982, forsætisráðherra Tyrklands
1983-1989 og forseti Tyrklands frá
nóvember 1989 til dauðadags.
Husamettin Cindoruk, forseti tyrk-
neska þingsins, mun gegna embætti
forseta þar til þingið kýs arftaka Özals.
Maójakkinn
ekki í tísku
MAÓJAKKINN, sem um áratuga skeið
var helsti klæðnaður milljóna Kínveija,
virðist nú endanlega vera kominn úr
tisku. Að sögn blaðsins Beijing Daily
hætti stærsta fyrirtækið á sviði maó-
jakka framleiðslu í fyrra þar sem allar
birgðageymslur voru fullar. Nú hefur
fyrirtækið lækkað verð á jökkunum um
60% til að reyna að örva eftirspurn. Þá
hafa stór vöruhús orðið að loka sérdeild-
um fyrir jakkana vegna lítillar aðsóknar.
Clinton boðið
á saxófónhátíð
Á NÆSTA ári verða 100 ár liðin frá því
Adolphe Sax, sem fann upp saxófóninn,
fæddist. Mikil hátíðahöld verða vegna
þessa í fæðingaborg hans, Dinant í Belg-
íu. Haldin verður mikil saxófónhátíð, þar
sem um þúsund bestu saxófónleikarar
heimsins munu koma fram og hefur
m.a. Bill Clinton, forseta Bandaríkjanna,
verið boðið. Vonast skipuleggjendur há-
tíðarinnar til að forsetinn, sem er mikill
unnandi saxófóntónlistar, verði á ferð
um Evrópu á þessum tíma og geti skot-
ist til Dinant í leiðinni.
SNJOMOKSTUR
Morgunblaðið/Sverrir
Tveir sakfelldir, tveir sýknaðir í Rodney King-málinu
Hervörður á götum úti
vegna ótta við óeirðir
Los Angeles. Frá Benedikt Stefánssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
KVIÐDÓMUR í borginni Los Angeles í
Bandaríkjunum sýknaði í gær tvo lögreglu-
menn af ákæru um að hafa misþyrmt
blökkumanninum Rodney King. Tveir lög-
reglumenn voru hins vegar fundnir sekir.
Óttuðust yfirvöld síðdegis í gær að óeirðir
myndu bijótast út í borginni sökum þessa.
Málið þykir eitt það merkasta í sögu banda-
rískra dómsmála.
Áhugamaður tók upp á myndband er lög-
reglumennimir fjórir þeir Stacey Koon, Tim-
othy Wind, Laurence Powell og Theodore Bris-
eno, börðu á Rodney King við handtöku í
marsmánuði árið 1990 og hrakyrtu hann. Lög-
reglumennirnir voru sýknaðir af dómstól í
apríl í fyrra og brutust þá út mestu óeirðir í
sögu Bandaríkjanna sem kostuðu 53 menn líf-
ið. í kjölfar þess ákvað George Bush, þáver-
andi Bandaríkjaforseti að málið skyldi tekið
upp að nýju. í kviðdómnum sátu níu hvítir
menn, tveir blökkumenn og einn maður af
spænskum uppruna.
Mikill viðbúnaður hefur verið í borginni
undanfama daga af hálfu lögreglu. Öryggis-
gæsla í Los Angeles hafði verið aukin til
muna á föstudagskvöld að staðartíma er sú
tilkynning barst að kviðdómurinn hygðist gefa
út yfirlýsingu. Lögreglumönnum á vakt var
ekki leyft að fara til síns heima og voru í gær
tífalt fleiri lögreglumenn að störfum en á
venjulegum laugardegi. Þá em sveitir frá þjóð-
varðliði og sjóhemum einnig reiðubúnar að
láta til sín taka, gerist þess þörf.
Öryggisráðið lýsir Srebrenica griðasvæði
Hótar hertum aðgerðum
Sameinudu þjóðunum, Sarajevo, London. Reuter.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna sam-
þykkti aðfaranótt laugardagsins yfirlýs-
ingu þar sem bærinn Srebenica í Bosníu
er sagður griðasvæði undir vernd Samein-
uðu þjóðanna.
Var umsátursliði Serba skipað að hafa sig
á brott ella yrðu refsiaðgerðir hertar til muna.
Talstöðvaáhugamenn í Srebrenica sögðu í gær
að hart væri barist í bænum sjálfum.
Bílalest á vegum SÞ hélt í kjölfar yfirlýsing-
arinnar til Srebrenica með matvæli og lyf en
henni var snúið við er fregnir bárast af hörð-
um stórskotaliðsárásum á þeirri leið sem hún
átti að aka.
RÁÐHERRAR
ÓÁNÆGÐIRENLÉTU
G0TTHEITA
VGRÐBRÉÍ48ALI
Í WALL STRÍEt
LIFIÐ
í LANDINU
Ljósmyndasamkeppni
fréttaritara Morgunblaðsins
18