Morgunblaðið - 18.04.1993, Page 22

Morgunblaðið - 18.04.1993, Page 22
MORGUNBLAÐIÐ SÚNNUDAGL'R 18. APRÍL 1993 KVIKMYNDIR/Sambíóin hafa tekið til sýninga kvikmyndina Forever Young með hinum ástralska Mel Gibson í aðalhlutverki. Þessi rómantíska ævintýramynd Qallar um tilraunaflugmann sem er frystur árið 1939 og vaknar 53 árum síðar Einn sá vinsælasti á hvíta tjaldinu MEL Gibson er vafalítið einn vinsælasti kvikmyndaleikari nútimans, en þessi 37 ára gamli ástralski leikari hefur eignast fjölda aðdáenda um víða veröld allar götur síðan hann lék í Mad Max, sem tíeorge Miller (Lorenzo’s Oil) leikstýrði. ftir að hafa lokið menntaskólaprófí í Ástralíu stundaði hann nám í Leiklistarskóla ríkisins í Sydney (NIDA), og að loknu prófí þaðan fékk hann hlutverkið í Mad Max sem umsvifalaust gerði hann að stjömu á hvíta tjaldinu. Þrátt fyrir velgengnina í Mad Max innritaðist Gibson á nýjan Ieik í NIDA til frekara náms og einnig til að afla sér reynsiu sem sviðsleikari. Hann fluttist síðan til borgarinnar Adelaide þar sem hann gekk til liðs við Ríkisleikhús Suður-Ástralíu og fékk hann mikið lof fyrir frammistöðu sína á sviði. Gibson snéri sér fljótlega aftur að kvikmyndaleik og fyrir hlutverk sitt í myndinni Tim hlaut hann verðlaun áströlsku kvikmyndastofnunarinnar sem besti leikari í aðalhlutverki. í kjölfarið fylgdu svo stríðsmyndirnar Attack Force Z og Gallipoli, sem Peter Weird leik- stýrði, en fyrir leik sinn í henni fékk hann aftur verð- laun áströlsku kvikmyndastofnunarinnar sem besti leik- arinn. Persónan sem Gibson lék í Mad Max öðlaðist líf á nýjan leik i höndum hans í Kvikmyndinni The Road Warrior (1982) og aftur í Mad Max Beyond the Thund- erdome (1986), en í þeirri mynd lék Gibson á móti Tinu Tumer. í millitíðinni lék hann aftur undir stjóm Peters Weirs, og þá í myndinni The Year of Living Dangerously á móti Sigoumey Weaver. Einnig lék hann á sviði í Sölumaður deyr eftir Arthur Miller og í kvik- myndinni The Bounty þar sem hann Iék Fletcher Christ- ian. Fyrsta bandaríska kvikmyndin sem Mel Gibson lék í var The River þar sem hann lék á móti Sissy Spac- ek. Því næst lék hann fanga sem dregur eiginkonu fangavarðar á tálar (Diane Keaton) í myndinni Mrs. Soffel, og árið 1987 lék hann í fyrsta sinn hinn hvik- lynda Martin Riggs í myndinni Lethal Weapon. Síðan lék hann á móti Michelle Pfeiffer, Kurt Russel og Raul Julia í Tequila Sunrise, og árið 1989 var hann mjög afkastamikill, því þá lék hann í Lethal Weapon 2, gam- anmyndinni Bird on a Wire með Goldie Hawn, Air America og síðan Hamlet sem kvikmynduð var í Skot- landi og Englandi. Rólegri tími fylgdi svo í kjölfarið en í fyrra var Lethal Weapon 3 fmmsýnd. Vinsældir Mel Gibson hafa skilað sér í góðum tekjum fyrir hann, því núorðið tekur hann ekkert hlutverk að sér fyrir minna en 12 milljónir dollara. Það eru þó ekki aðeins peningamir sem freista hans, en hann Iegg- ur orðið mikla áherslu á að myndimar sem hann leikur í séu vandaðar í alla staði. Næsta sumar verður frum- sýnd fyrsta kvikmyndin sem hann leikstýrir, The man Without a Face, en í henni leikur hann einnig aðalhlut- verkið. Myndin er byggð á skáldsögu eftir Isabelle Holland og fjallar um samband fyrrverandi kennara sem skaddast hefur í andliti og 14 ára gamals drengs. Ungur að eilífu KVIKMYNDIN Forever Young með Mel Gibson í aðalhlutverki hefur verið tekin til sýninga hjá Sambíóunum, en þetta er rómantísk ævintýramynd með vísinda- skáldsögulegu ívafi. I myndinni leikur Gibson bandarískan tilraunaflugmann sem skömmu fyrir síðarí heimsstyijöld- ina verður fyrir áfalli þegar hann missir sína heittelskuðu skyndilega og býðst hann þá til að taka þátt í tilraunaverk- efni þar sem hann er frystur með þeim afleiðingum að hann vaknar ekki úr dva- lanum fyrr en 53 árum síðar. Ráðvilltur í heimi sem hann þekkir ekki kemst hann í kynni við 11 ára gamlan dreng og móður hans, sem á vissan hátt gefa hon- um annað tækifærí í lífinu. Flugkennsla Daniel kennir hinum unga vini sínum að fljúga. Ástin blómstrar Veröldin hrynur skyndilega hjá Daniel þegar kærastan hann fellur skyndilega frá. Sagan hefst árið 1939, en þá leikur lífíð við tilraunaflug- manninn Daniel McCormick (Mel Gibson) og skemmtir hann sér konunglega við allt sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann er í draumastarfínu sem flugmaður á B-25 sprengju- flugvél og í tygjum við konuna sem hann hefur elskað frá unglingsár- unum, Helen (Isabel Glasser), og Harry (George Wendt), er besti vinur hans og félagi, en hann er með afbrigðum snjall vísindamað- ur. Þannig leikur lífíð við Daniel sem hefur öðlast allt sem hugur hans gimist, en þó á hann við ákveðið vandamál að stríða. Þessi maður sem getur óhræddur horfst í augu við hvetja hættuna á fætur annarri í starfi sínu fer nefnilega allur í hnút þegar hann leiðir hugann áð málum sem eru tilfínningalegs eðl- is og ef hann þarf að tjá tilfínning- ar sínar verður hann alveg Iqaft- stopp. Þannig fær hann brauðfætur aðeins við tilhugsunina um að biðja Helenar og í hvert skipti sem það hvarflar að honum ákveður hann að sá gjömingur að bera upp bón- orðið geti beðið morgundagsins. En allt í einu dynur óhamingjan yfír í lífí Daniels við skyndilegt frá- fall Helenar. Hann verður nú að horfast einsamall í augu við lífið og tilveruna, vitandi að hann hafði aldrei tjáð einu konunni sem hann hefur elskað tilfinningar sínar til hennar á fullnægjandi hátt. Harmi lostinn ákveður Daniel að taka þátt í leynilegu tilraunaverkefni á sviði lághitafræði þar sem líkami hans er frystur, og fyrir slysni fellur hann í dvala sem varir í 53 ár. Hann vaknar á nýjan leik einn og yfirgefinn árið 1992, og í breyttum heimi og umhverfí sem hann þekk- ir ekki er hann vægast sagt mjög ráðvilltur. Fljótlega kemst Daniel í kynni við 11 ára gamlan dreng, Nat Coo- per (Elijah Wood), sem misst hefur föður sinn og móður hans (Jamie Lee Curtis). Hjartnæmt samband þeirra leiðir Daniel þá staðreynd fyrir sjónir að þó tíminn bíði ekki eftir neinum manni þá gildi það sama ekki um hina einu sönnu ást. Höfundur handritsins að Forever Endurvakinn Þeir félagar Nat og Felix hrökkva í kút þegar þeir uppgötva til- veru Daniels sem legið hefur í dvala í 53 ár. Young er hinn 24 ára gamli Jeffrey Abrams, en hann hreifst af þeirri hugmynd að fjalla um mann sem skyndilega er kastað inn f veröld sem hann þekkir ekki. Hann ákvað hins vegar að nota ekki þennan efnivið til þess að gera venjulega tímaflakksmynd heldur raunveru- lega ástarsögu. Abrams skrifaði handritið þegar hann var að vinna við annað verkefni sitt sem var kvikmyndin Regarding Henry með Harrison Ford í aðalhlutverkinu. Hann var að vinna við klippingu þeirrar myndar þegar honum barst sú fregn að Mel Gibson vildi taka að sér aðalhlutverkið í Forever Young og kom það honum algjör- lega úr jafnvægi. Leikstjóri forever Young er Steve Miner, en hann hafði getið sér gott. orð fyrir að leikstýra bæði róman- tískum ástarmyndum og myndum með börnum í aðalhlutverkum, en þungamiðjan í Forever Young ér það samband sem myndast milli Daniels og hins 11 ára gamla Nats Coopers, sem fínnur í Daniel þann föður sem hann hefur aldrei eign- ast. Steve Miner hlaut á sínum tíma bandarísku leikstjóraverðlaunin fyrir að stjórna fyrsta þættinum í hinni vinsælu sjónvarpsþáttaröð Bemskubrek og stjómaði hann gerð þeirra þátta og leikstýrði á árunum 1988-1989, en þá féllu honum einnig tvenn Emmy-verðlaun í skaut. Meðal kvikmynda sem hann hefur leikstýrt eru Wild Hearts Can’t Be Broken, sem er rómantísk mynd byggð á sönnum atburðum, og gamanmyndimar Soul Man og House. Meðal sjónvarpsmynda sem hann hefur gert eru þættimir um æskuár Elvis Presley, sem sýndir hafa verið í sjónvarpi hér á landi. Vinsæll MEL Gibson tekur til hend- inni í kvikmyndinni Forever Young sem Sambíóin hafa tekið til sýninga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.