Morgunblaðið - 18.04.1993, Side 26

Morgunblaðið - 18.04.1993, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1993 Margrét S. Bjarna- dóttír - Minning Fædd 26. október 1902 Dáin 10. apríl 1993 Margrét Sigurlína Bjamadóttir lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 10. apríl sl. Margrét var fædd í Kötluholti í Fróðárhreppi á Snæfellsnesi og ólst þar upp í hópi tíu systkina sem öll eru látin nema eitt, Bjami Jóhannes. For- eldrar hennar voru hjónin Bjami Sigurðsson og Ingibjörg Gunn- laugsdóttir. Móður sína missti Margrét, þegar hún var á 13. ári og eftir það vora yngstu systkinin með pabba sínum í .Kötluholti, ásamt seinni konu, Kristjönu að nafni. Margrét ólst upp í föðurhús- um til tvítugs, en þá fór hún til Reykjavíkur og vann þar við ýmis störf, meðal annars í fiskvinnslu hjá Thor Jensen. Margrét talaði oft um upp- vaxtarár sín og alltaf var bjart yfir þeim minningum og þó að lífs- baráttan hafi verið hörð gætti aldrei kala til þeirrar tíðar í frá- sögn hennar. Hún sagði að þau hefðu alltaf haft nóg að borða, en að hún hefði gengið berfætt öll sumur því að ekki vora til skór á 'allan bamahópinn. Einnig sagði hún okkur frá því þegar þau systk- inin vora send til að snara rjúpu í matinn. í Reykjavík kynntist hún eigin- manni sínum, Kristjáni Kristjáns- syni, sem þá var nemi í Stýri- mannaskólanum. Þau giftu sig 13. júní 1925. Hún fór síðan með hon- um til Flateyrar og þar bjuggu þau til haustsins 1963, er þau fluttust suður til Reykjavíkur. Á Flateyri vora þau með smá búskap ** eins og gerðist í þá daga. Kristján var á sjónum eða sem landróðra- maður. Margrét vann við físk- vinnslu með húsmæðrastörfunum. Hjónaband Margrétar og Kristjáns var einstaklega farsælt og þau hjón mjög samhent. Þau eignuðust fjögur böm, tvær dætur og tvo drengi. Böm þeirra era: Anna, - fædd 1925, gift Vilhelm Þorsteins- syni, búsett á Akureyri og eiga þau fímm böm; Sigurður Ásgeir, fæddur 1928, giftur Emu Jens- dóttur, búsettur í Reykjavík og eiga þau fjóra syni; Ingibjörg Margrét, fædd 1934, fyrri maður hennar var Fred Nelson og áttu • þau fímm böm, seinni maður A1 Duhon en hann er nú látinn. Hún er búsett í Nýju Mexíkó í Banda- ríkjunum; Guðmundur Kristján, fæddur 1944, giftur Matthildi Kristjánsdóttur, búsettur í Reykja- vík og eiga þau fjögur börn. Þegar Margrét missti mann sinn árið 1979 átti hún mjög erfítt um tíma að sætta sig við það. Mar- grét var hannyrðakona mikil og hafði næmt auga fyrir hvers konar útsaumi og öðrum hannyrðum og liggja eftir hana ótalin verk sem verða til gleði fyrir afkomendur hennar. Og er eiginlega óskiljan- legt hversu miklu hún afkastaði þegar þess er gætt að hún vann utan heimilis mestan sinn búskap. Margrét var dul kona sem ekki flíkaði tilfinningum sínum, en var í þess stað raungóð með afbrigð- um. Veit ég að hún hjálpaði oft þar sem þess þurfti með, en vildi ekki að um það væra höfð mörg orð. Ég kynntist Margréti fyrst þegar ég kom til Reykjavíkur til að hitta Guðmund, son hennar. Það er óhætt að segja að mér var tekið opnum örmum. Ég hafði þá fengið mér leigt herbergi úti í bæ, en þau vildu ekki heyra annað nefnt en ég flyttist til þeirra í Sörlaskjól 72 þar sem þau bjuggu í tveggja herbergja íbúð. Við bjuggum hjá þeim í fjögur ár, á meðan við voram að koma undir okkur fótunum og eignast íbúð. Þar fæddist fyrsta barnið okkar og Margréti munaði ekkert um að passa það svo að ég gæti unnið úti. En þá vann hún sjálf úti hálf- an daginn. Þar sem íbúðin var ekki stór létu þau okkur eftir svefnherbergið en sváfu sjálf í stofunni. Ég er eiginlega alveg undrandi á því í dag hvernig þau þoldu okkur svona lengi. Ég man að ég var ekki alltaf sammála tengdaföður mínum. Hann hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum, en okkur Margréti varð aldrei sund- urorða. Það þakka ég henni því að hún var einstök geðprýðis- manneskja og gerði alltaf gott úr öllu. Ég man t.d. að Margrét sagði oft við mig þegar ég hjálpaði til við húsverkin: „Láttu þetta eiga sig, þú færð nóg af þessu þegar þú ferð sjálf að búa.“ Hún var sjálf dugnaðarforkur og ósérhlífín. Margrét var trúuð kona, þótt hún kysi að geyma þær skoðanir með sjálfri sér. Hún var ekki að keppa í lífsgæðakapphlaupinu, heldur skipti það hana mestu máli að börnunum hennar vegnaði vel. Margs góðs er að minnast og margt að þakka nú að leiðarlokum. Ég vil þakka tengdamóður minni fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og ég veit að bömin hennar þakka henni allt. Hún var góð móðir. Ég veit að nú líður henni vel. Ég vil fyrir hönd bama hennar þakka öllu starfsfólki á Elli- og hjúkranarheimilinu Grand fyrir umönnun hennar seinustu árin. Matthildur. Margrét Sigurlína Bjamadóttir lézt á Elli- og hjúkranarheimilinu Grand í Reykjavík 10. apríl sl. í hárri elli, rúmlega níræð. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskapellu, mánudaginn 19. apríl kl. 15. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, AUÐUR HARALDSDÓTTIR, Grettisgötu 90, sem lést þann 10. apríl, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 19. apríl kl. 10.30. Ari Pálsson, Míldríður H. Kay, Tryggvi Eiríksson, Haraldur Arason, Jenný B. Sigmundsdóttir, Halldóra Aradóttir og barnabörn. t Föðursystir okkar, KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR, Furugerði 1, Reykjavík, áður til heimilis Vonarstræti 3, Iðnó, lést í öldrunardeild Landspítalans, Hátúni 10b, 16. apríl. Fyrir hönd vandamanna, Erla Bjarnadóttir, Guðrún Jósteinsdóttir. Margrét fæddist og ólst upp í Kötluholti á norðanverðu Snæ- fellsnesi (Kunnum sögustað úr Eyrbyggju) í hópi tíu systkina. Móður sína missti hún ung að áram. Eins og títt var um börn og unglinga á þeim árum varð skólagangan ekki löng, far- kennsla, brot úr vetri um þrjú til fjögur ár. Foreldrar hennar vora: Bjarni Sigurðsson, fæddur 18. júní 1863, dáinn 14. apríl 1947, bóndi og sjómaður jöfnum höndum, og Ingibjörg Gunnlaugsdóttir fædd 25. maí 1865, dáin 25. júní 1916, þegar Margrét dóttir hennar, sem hér er minnst, er á fermingar- aldri. Þau hjón Bjarni og Ingibjörg bjuggu á Höfða og í Kötluholti. Lífsbaráttan var hörð á þessum áram. Ung fór Margrét að vinna fyrir sér. Um tvítugt fór hún til Reykjavíkur til þess að freista gæfunnar og vinnur m.a. í físki hjá Thor Jensen. Á sínum fyrstu misseram í Reykjavík kynnist hún Kristjáni J. Kristjánssyni frá Flat- eyri við Önundarfjörð, en hann var þá í Stýrimannaskólanum og lauk fískimannaprófi 1924. (Kristján var móðurbróðir undirritaðs, bróð- ir Lovísu, sem gift var Ibsen Guð- mundssyni bátsformanni á Suður- eyri við Súgandafjörð). Fljótlega, og reyndar við fyrstu kynni, felldu þau Margrét og Kristján hugi sam- an og gengu í hjónaband á fögram og sólríkum sumardegi vestur á Flateyri, heimkynnum brúðgu- mans, hinn 13. júní 1925. Dagur þessi, sem var svo fagur og bjart- ur og Flateyrin og Önundarfjörð- urinn skörtuðu sínu fegursta í veðurblíðunni, var eins og góður fyrirboði um sambúð og hjónaband Möggu og Stjána, en svo vora þau jafnan kölluð af okkur ættfólki þeirra og vinum. Þau vora einstak- lega samhent hjón, og samtaka og samlíf þeirra frá upphafi til leiðarloka fullt af birtu og sól- skini, svo að sjaldan eða aldrei bar þar skugga á. Var það mjög haft á orði í hópi þeirra, sem þau gerzt þekktu og þótti eindæmi, hversu samhuga þau vora í öllu, sem þau tóku sér fyrir hendur. Kristján Jónas, maður Margrét- ar, var'yngstur sex bama Krist- jáns Bjama Guðmundssonar og Önnu Guðmundsdóttur, sem bjuggu á Flateyri. Kristján Bjami tók ungur stýrimannspróf og var sjómaður og stýrimaður á ýmsum skipum framan af ævi. Hann var sonur Guðmundar í Hrafnseyrar- húsum, Jónssonar prests á Álfta- mýri, Ásgeirssonar prófasts í Holti í Önundarfírði (bróður Þórdísar, móður Jóns Sigurðssonar forseta). Anna var dóttir Guðmundar bónda í Breiðadal í Önundarfirði, Guð- mundssonar hreppstjóra á Hóli á Hvilftarströnd, Pálssonar hrepp- stjóra á Höfða í Dýrafirði. Margrét og Kristján Jónas hófu búskap sinn á Flateyri og vora í sambýli með foreldram hans, Önnu og Kristjáni Bjarna. Sam- býli þetta reyndist hið bezta og varð langvarandi, sem er nokkuð óvenjulegt, þegar um svo náin skyldmenni er að ræða. Hversu giftusamlega þetta tókst var ekki sízt geðprýði Margrétar að þakka. Kristján Bjami tengdafaðir henn- ar, var mikið ljúfmenni, svo mikið að segja mátti um hann að hann væri hugljúfí hvers manns, sem honum kynntist. Anna var kona mikillar gerðar, skapið mikið, sem hún að jafnaði fór vel með; hún var ekki allra, þótti hennar gat verið stór, en hún var trölltrygg, þar sem hún tók því og mátti í rauninni ekkert aumt sjá án þess að koma því til hjálpar. Anna fékk strax mikið álit á hinni fallegu tengdadóttur sinni, Margréti, og með þeim urðu miklir kærleikar og trygg vinátta, sem entist meðan báðar lifðu. Það var til þess tekið og rómað af öllum, sem til þekktu, hversu vel Margrét reyndist tengdaforeld- ram sínum, þegar þeir vora farnir kröftum og ellin var að koma þeim á kné. Allt frá fyrstu kynnum unz yfír lauk reyndist hún þeim sem bezta dóttir. Hin börnin þeirra, systkini Kristjáns manns hennar, vora fyrr farin. Hólmfríður, sú elzta, gift búhöldi að Heimabæ í Amardal við Djúp, Þuríður og Lovísa giftar bátsformönnum í Súgandafírði, Jón sjómaður í Súg- andafírði og Vilhjálmur í Reykja- vík farmaður alllengi hjá Eimskip og um skeið hjá Ríkisskip. Þau Margrét Bjamadóttir og Kristján Jónas Kristjánsson vora miklar auðnumanneskjur og áttu bamaláni að fagna. Börnin þeirra fjögur hafa getið sér hið bezta orð meðal samborgaranna þau era: Anna, fædd 12. september 1925, húsmóðir á Akureyri, gift Vilhelm Þorsteinssyni fyrrum togaraskipstjóra hjá „Útgerðarfé- lagi Akureyringa“ og seinna fram- kvæmdastjóra þar. Þau eiga fimm börn. Sigurður Ásgeir, fæddur 15. ágúst 1928, fyrram togaraskip- stjóri hjá BÚR og seinna verk- stjóri þar. Hann er kvæntur Ernu Guðrúnu Jensdóttur. Þau eiga fjögur börn. t KIRSTEN BRIEM Sólvallagötu 7, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 20. apríl kl. 15.00. Eggert Briem, Nanna Briem, Sverrir Briem. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MARGRÉT BJARNADÓTTIR frá Flateyri, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 19. apríl kl. 15. Anna Kristjánsdóttir, Vilhelm Þorsteinsson, Sigurður Á. Kristjánsson, Erna Jensdóttír, Guðmundur Kr. Kristjánsson, Matthildur Kristjánsdóttir, Ingibjörg M. Kristjánsdóttir Duhon, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Ingibjörg Margrét, fædd 7. des- ember 1934 verzlunarkona í Nýju Mexico, var gift Fred Nelson, era börn þeirra fimm. Seinni maður Ingibjargar var A1 Duhon, sem er látinn. Guðmundur Kristján, fæddur 4. ágúst 1944, stýrimaður og nú seinna skipstjóri hjá Eimskip, kvæntur Matthildi Herborgu Kristjánsdóttur skrifstofukonu. Þau eiga fjögur böm. í þessum systkinahópi ólst einn- ig upp, í skjóli afa síns og ömmu, Kristjáns Bjarna og Önnu, Sigríð- ur Jónsdóttir (Sigrid Renda), fædd 2. október 1928, gift Matthew Renda fasteignasala. Þau eru bú- sett á Palm-Beach á Florida og eiga tvö böm. Segja má einig um Sigríði að hún hafí alizt upp í skjóli Möggu og Stjána, sem afa síns og ömmu, því að þau komu fram við hana og unnu henni sem sínum eigin bömum. Það var mikið gæfuspor Krist- jáns J. móðurbróður undirritaðs, þegar hann gekk að eiga Mar- gréti S. Bjamadóttur. Hún bjó honum, bömum þeirra og tengda- foreldram sínum aðlaðandi og fag- urt heimili. Hún var listfeng og mikil hannyrðakona og hafði yndi af blómum og öllum fögram hlut- um. Blómin hennar þrifust vel og rósailminn lagði um allt hús hen- anr vor og sumar. Hún var elskuð og virt af öllum, sem hana þekktu og að sjálfsögðu mest af sínum nánustu. Dóttursynir hennar tveir á Akureyri, þeir Samheijamenn kunnu, skírðu einn togara sinn nafninu Margrét..Hefur togari sá verið mikil afla- og happafleyta. Reyndar tilheyrir Margrétarnafnið ömmunum þeirra báðum, því að amma þeirra í föðursett, móðir Vilhelms, heitir einnig Margrét. Undirritaður átti því láni að fagna sem barn að dveljast á heim- ili afa síns og ömmu, Kristjáni Bjarna og Önnu, og þá um leið hjá Stjána, móðurbróður og hans elskulegu eiginkonu, Möggu, sum- ar eftir sumar, allt frá fímm ára aldri og frama á 12. ár og svo alllöngu seinna sem 19 ára ungl- ingur. Dvölin hjá þeim á Flateyri á þessum árum hverfur aldrei úr minningunni. Þetta vora miklar hamingjustundir, sem hvorki fölna né fennir yfir í hugarfylgsninu. Nú er Magga mín öll, blessunin. Kristján var farinn. Hann lézt 6. júlí 1979. Við, eftirlifandi börn Lovísu Krisjánsdóttur og Ibsens Guðmundssonar, biðjum þeim báð- um guðsblessunar. Við efumst ekki um og vitum það reyndar að með lífi sínu hafi þau sýnt það, að þau eiga góða heimkomu skilið handan mæranna miklu og auðnist að halda áfram að ganga þar á Guðsvegum. Bömum þeirra, bamabörnum, mökum, og öllum þeirra nánustu vinum og vandamönnum færam við okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Þorgeir Ibsen. 108 Reykjavík. Sími 31099 Opiðöll kvöld til kl. 22,-einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.