Morgunblaðið - 18.04.1993, Síða 34

Morgunblaðið - 18.04.1993, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1993 ATVIN WMM3AUGL YSINGAR Organisti óskast Organisti óskast við Stykkishólmskirkju. Nánari upplýsingar veitir Róbert Jörgensen, formaður sóknarnefndar, í síma 93-81410 eftir 18. maí nk. Umsóknarfrestur rennur út 31. maí 1993. Matreiðslumenn Bændaskólinn á Hvanneyri óskar að ráða matreiðslumann til starfa frá 1. júní til 1. september næstkomandi í mötuneyti skólans. Umsóknir óskast sendar til Bændaskólans á Hvanneyri, 311 Borgarnesi. Allar nánari upplýsingar verða veittar í síma 93-70000 á skrifstofutíma. Skólastjóri. Tvær kennarastöður eru lausar við Tónlistarskóla Eyjafjarðar næsta skólaár: 1. Staða blásarakennara Um er að ræða kennslu á málmblásturshljóð- færi og í kjarnagreinum, ásamt lúðrasveitar- stjórn. 2. Staða tónmenntakennara Starfið felst í tónmenntakennslu í grunnskól- um á starfssvæði Tónlistarskóla Eyjafjarðar, svo og forskólakennslu. Upplýsingar veitir skólastjóri, Atli Guðlaugs- son, í símum 96-31171 og 985-36571. Framkvæmdastjóri ÆSKR Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkur- prófastdæmum (ÆSKR) óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra í fullt starf frá 1. júní. Æskilegt að viðkomandi hafi menntun á sviði uppeldis- eða guðfræði. Reynsla í kristilegu starfi nauðsynleg. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu ÆSKR, Laugarneskirkju, s. 679488 eða 679466 frá kl. 9.00-12.00. Umsóknarfrestur er til 9. maí. Eitthvað fyrir þig? Nýir eftirlætisréttir er nýr og spennandi matreiðsluklúbbur - klúbburinn sem beðið hefur verið eftir. Boðið verður upp á vandað- ar myndskreyttar uppskriftir, ráðgjöf, nám- skeið, klúbbkort og ýmis fríðindi. Af því tilefni óskum við hjá Vöku-Helgafelli eftir að ráða áhugasamt fólk til sölu- og kynn- ingarstarfa í tengslum við klúbbinn. Vinsamlegast hafið samband við Sigríði Jón- asdóttur í síma 688300 mánudaga og þriðju- daga milli kl. 9-13. Tekjutrygging og góðir tekjumöguleikar fyrir gott fólk! Vaka-Helgafell. Reykjavík Hjúkrunarfræðinga - hjúkrunarnema vantar til sumarafleysinga á Hrafnistu. Einnig vantar sjúkraliða í 50% stöður. Upplýsingar gefa ída og Jónína í símum 35262 - 689500. ST JÓSEFSSPÍTAU 5U3I HAFNARFIRÐI Hjúkrunarfræðingar - stjórnunarstaða Staða hjúkrunardeildarstjóra á lyflækninga- deild er laus til umsóknar frá 1. ágúst 1993. Á deildinni eru 30 sjúkrarúm þar sem fram ferfjölbreytt og áhugaverð starfsemi. Deildin sinnir bráðamóttöku fyrir Hafnarfjörð og ná- grenni og er vel búin tækjum og starfsað- stöðu. Þróun í hjúkrun er góð hvað varðar fræðslu til sjúklinga og skráningu hjúkrunar. Áhugavert og skapandi starf í boði. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu í stjórnunarstörfum. Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skal skila til hjúkrunarforstjóra, Gunnhildar Sigurðardóttur, fyrir 15. maí 1993, sem gefur nánari upplýsingar í síma 50188. »FASTEIGNA MIÐSTÖÐIN SKIPHOLTIS0B - 105 REYKJAVÍK SÍMI622030 - SÍMBRÉF 622290 Sölumaður fasteigna Fasteignamiðstöðin hf. óskar eftir að ráða sölumann sem fyrst. Starfið, sem er mjög krefjandi, felst aðallega í ráðgjöf varðandi sölu fasteigna, markaðsöfl- un, samningagerð og þjónustu við viðskipta- vini. Æskilegt er að umsækjendur séu menntaðir lögfræðingar, þó ekki skilyrði. Leitað er eftir aðila sem getur starfað sjálfstætt og hefur tileinkað sér skipulögð vinnubrögð. Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl nk. Vinsamlegast athugið að aðeins verður tekið á móti fyrirspurnum og umsóknum á skrifstofu Liðsauka, sem opin er frá kl. 9-15. Aflcysmga- og ráðningaþjónusta Udsauki hf. Skólavörðustig 1a - 101 Reykjavik - Simi 621355 Aðstoðarmaður hæstaréttardómara Starf aðstoðarmanns hæstaréttardómara er laust til umsóknar. Ráðið verður í starfið frá 1. júlí eða öðrum degi fram til 15. septem- ber. Ráðningartími er tvö ár. Leitað er að lögfræðingi með gott embættispróf og nokkra starfsreynslu. Umsóknir sendist skrif- stofu réttarins fyrir 20. maí nk. Hugsanlegt er að staða annars aðstoðar- manns losni á þessu ári. Umsóknir um fyrr- greinda starfið verða metnar, ef til þess kem- ur, en um aðra auglýsingu verður ekki að ræða. Nánari upplýsingar gefur hæstaréttarritari i síma 13936. 13. apríl 1993 Forseti Hæstaréttar Þór Vilhjálmsson Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðing vantar til sumarafleysinga frá 11. júlí til 11. september 1993, 4 til 5 daga í viku. Vinnutími frá kl. 14.00-19.00. Upplýsingar gefur Dóra Hansen í símum 685788 og 685864 eftir hádegi. Læknahúsið. Húsvörður óskast \ Húsfélag í stóru fjölbýlishúsi (6 hæðir) í Breið- holti óskar eftir að ráða húsvörð til starfa frá og með 1. maí nk. Starfssvið: Hreingerning- ar og lagfæringar á sameign hússins ásamt daglegum samskiptum við íbúa. Vinnutími frá kl. 8.00 til 17.00. Umsækjendur þurfa að hafa til að bera: 1) Handlagni. 2) Samviskusemi. 3) Góða samskiptahæfileika. Umsóknum skal skilað inn á auglýsingadeild Morgunblaðsins í síðasta lagi 23. apríl nk., merktar: „Húsfélag - 1118“. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI Fra m kvæmdastjóri Staða framkvæmdastjóra við Fjórðungs- sjúkrahúsið á ísafirði ér laus til umsóknar með umsóknarfresti til 30. apríl nk. Við- skiptafræði eða sambærileg menntun æski- leg ásamt þekkingu á rekstri sjúkrastofnana. Umsóknir berist formanni stjórnar, Fylki Ágústssyni, Fjarðarstræti 15, 400 ísafirði, sem einnig veitir nánari upplýsingar, sími 94-3745. IANDMÆUNGAR ÍSIANDS Tæknimaður Landmælingar (slands óska að ráða tækni- mann með staðgóða þekkingu í notkun helstu tölvustýrikerfa s.s. Unix, DOS /Windows og Macintosh. Æskilegt er að við- komandi hafi einnig innsýn í notkun teikni- og landupplýsingakerfa og hafi menntun á sviði tölvunar-, verk- og tæknifræði. Skriflegar umsóknir berist Landmælingum íslands, Laugavegi 178, 105 Reykjavík, fyrir 25. apríl nk. NÁMSGAGNASTOFNUN Deildarsérfræðingur - námsefnisgerð Námsgagnastofnun óskar eftir að ráða deild- arsérfræðing til afleysinga í 15 mánuði frá og með 1. júní 1993. Starfið felur í sér umsjón með gerð og út- gáfu námsefnis, fyrst og fremst í íslensku en einnig lítillega í öðrum greinum. Leitað er að starfsmanni með kennara- menntun og kennslureynslu. Framhaldsmenntun og reynsla af námsefnis- gerð eða útgáfustörfum er æskileg. Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf, sendist Námsgagnastofnun, Nóa- túni 17,105 Reykajvík, eigi síðar en 1. maí nk. Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Jakobsson, deildarstjóri, í síma 91-28088.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.