Morgunblaðið - 18.04.1993, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 18.04.1993, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1993 47 F 20x20sm L 2Sx25sm I 30x30sm S 4Sx45sm A 50xS0sm R VERÐLÆKKUN E G G F ISxlSsm L ISxlOsm I 4Sx45sm S 15x25sm /V 20x2Ssm R 30 tegundir flísa í öllum stærðum. í vor bætast við margar nýjar gerðir. Þess vegna lækkum við verðið hressilega á öllum gólf- og veggflísum á meðan birgðir endast. Allar flísarnar eru í I. gæðaflokki. Flísalím með 20% afslætti. Notið tækifærið og sparið þúsundir króna. Við leigjum út flísaskera og sögum flísar eftir þínum óskum. Bendum á fagmenn til flísalagna. OPIÐ VIRKA DAGA 9. - 18. M • LAUGARDAGA 10. - 14. UMBOÐSMENN UM LAND ALLT TEPPAB0Ð1N ÖLL GÓLFEFNI Á EINUM STAÐ TEPPI • FLÍSAR • PARKET • DÚKAR • MOTTUR • GRASTEPPI • VEGGDÚKAR • TEPPAFLÍSAR • GÚMMÍMOTTUR • ÖLL HJÁLPAREFNI GÓLFEFNAMARKAÐUR • SUÐURLANDSBRAUT 26 • SIMI 91-681950 á Jónatan Livingston Mávi Quedo Fundido Bræddur ostur, hveititortoUa og guacamole kr. 360.- Molletes Brauð með baunum, osti og mexíkóskri sósu kr. 290.- Tacos Fritos Djúpsteiktar Tacos með kjúklingafyUingu kr. 410.- Cheviche Fiskur í sítrónulegi með lauk, avokato og tómötum kr. 380.- Xðalréttir Come a la tamþiquena kr. 2,160.- Nautolundir með baunum, enchilada, guocamole ogpaþriku Mole þoblano con arroz kr. 1,990.- Kjúklingur í gómsætri sósw (Mole) og mexikóskum hrísgrjónum Bacalao Saltfiskur á mexikóska vísu Pescado al mojo de ajo Fiskur steiktur í hvítlauk með mexikósku grænmetissalati Pollo en achiote Kjúklingur í achiotesósu Chile con came Svínakjöt með baunum, rauðri sósu og tortillu Chiles en nogada kr. 1,550.- FyUtar paprikur (nautahakk og ávextir) með rjómalagaðri hnetutósu kr. 1,530.- kr. 1,530.- kr. 1,890.- kr. 1,850.- JSÆexikós og mat eftir Elínu Pálmadóttur Faldi glæpuriim Nauðgun er einn af alvarleg- ustu glæpum sem beinast að einstaklingum. Þannig hefst grein um nauðgun og vaknandi vitund um þörf á úrbótum í riti Kvenréttindafélagsins „17. júní“. Árið 1991 bárust Rannsóknalög- reglu ríkisins 16 nauðgunarkær- ur og flest bendir til þess að mun fleiri nauðganir séu árlega framdar en kærur berast um til lögreglu. En ljóst er að loks er byrjað að taka á.slíkum málum hér. Konur sætta sig einfaldlega ekki lengur við ríkjandi viðhorf gegn þessum glæp. Umheimur- inn ekki heldur. Kannski vegna þess að nú á tækniöld neyðist fólk til að horfa framan í glæpinn í Júgóslavíu, þar sem nauðgun er beitt sem vopni í styrjöld. Af átakasvæðunum í Bosníu berast fregnir um fjöldanauðganir serbneskra her- manna á bosn- ískum konum, sem, eftir að yf- irvöld gáfu grænt ljós, urðu að fjöldanauðg- unum. Myndin skelfilegur hryll- ingur. Konunum safnað saman og nauðgað þar til þær eru ófrískar og svo langt gengnar með að ekki verði eytt fóstri. Þá sleppt. Þessi skipulega aðferð til útrým- ingar á ákveðnu þjóðarbroti eða trúflokkí, byggist á hinni gamal- grónu sektartilfmningu. Flestar eru konurnar aldar upp í islam, þar sem samræði fyrir giftingu er óafmáanleg skömm hvernig sem hún er til komin. Ungar telp- ur verða ógiftingahæfar eftir nauðgun og fjölskyldur hafa varpað giftum konum á dyr. Er ekki þetta viðhorf obbolítið kunn- uglegt, hvað sem sagt er? Lönd í Vestur-Evrópu hafa opnað dyr sínar fyrir 6.000 ófrískum konum frá Bosníu eftir nauðgun. Taldar vera um 10-15% af fórnarlömb- um. Þrátt fyrir þetta hafa ekki nema um 1.600 nýtt sér þetta tilboð um aðstoð annars staðar. Sambland af skömm og ótta læt- ur flestar þessara kvenna hörfa frá að fá nafn sitt á skrá, sem skylda er í Króatíu. Ekki er það bara til að veita ráð og hjálp, heldur jafnframt til að að safna sönnunargögnum gegn Serbum. Það er einmitt þetta sem skelfír marga konuna, sem óttast að verða einhvern tíma í óvissri framtíð aftur á valdi kvalara sinna. Þessar konur kjósa heldur að sitja á heimaslóðum en halda út í óvissuna mállausar í ókunnu landi, þaðan sem þær yrðu ein- hverntíma sendar heim og þá orðnar að aðskotadýrum. I öllu þessu erum við íslendingar að leggja agnarsmátt lóð - alltof smátt - á vogarskál með söfnun fyrir sjúkragögnum til aðstoðar í heimalandinu. Þessar skipulögðu nauðganir með kynþátta og trúarlegu ívafi á bosnísku konunum eru skil- greindar sem útrýming í grein II í Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um þjóðarmorð. Brjóta líka gegn fyrsta hluta Sáttmálans um pyndingar. Nauðgun, sem er við- tekin af serbneskum yfirvöldum, er pynding og niðurlægjandi ómannúðleg meðferð í skilningi 3. greinar Mannréttindasáttmála Evrópu, svo og 7. grein Sáttmála SÞ um borgaraleg réttindi. Samt kemur nú í ljós að slíkar skipuleg- ar nauðganir eru ekki til í upp- talningu á mannréttindabrotum SÞ né veita þær konunum rétt til hælis samkvæmt Genfarsátt- málanum um flóttafólk. Sýnir það kannski betur en nokkuð annað sérstætt viðhorf til þessa glæps. En allir þessir sáttmálar voru nær eingöngu samdir og samþykktir af karlmönnum. Þó voru Mannréttindasáttmáli SÞ frá 1948 og Flóttamannasam- þykktin 1951 gerð aðeins nokkr- um árum eftir skelfingar heim- styijaldarinnar síðari, þegar kon- ur voru fórnarlömb hermanna úr öllum herjum. Um 1,9 milljónum þýskra kvenna var nauðgað af sovéskum hermönnum, sem ekki var að fúllu Ijóst fyrr en eftir fall Austur-Þýskalands (sbr. mynd). En nú í sumar verður í Vínarborg ein af stórráðstefnum SÞ um mannréttindi, þar sem tveir austurrískir kvenráðherrar leggja fram tillögur um úrbætur. Þar höfum við smáþjóðin tæki- færi til að leggja lið. í gervallri mannkynssögunni hafa konur verið fórnarlömb í stríðum. Persar, Grikkir og Róm- veijar tóku konur sem þræla og ástkonur og forfeður okkar írskar Melkorkur. Þrátt fyrir Hagsátt- málann frá 1907, sem skilgreindi nauðgun sem stríðsglæp, hefur ekki verið lát á. Þýski herinn var Rauða hemum ekkert betri með- an hann réði löndum. Ofbeldi Þjóðveija var nákvæmlega skipu- lagt, einkum í Austur-Evrópu. Heimakonur voru teknar í 500 vændishús hermanna tilað „bæta heragann" og koma í veg fyrir kynsjúkdóma. Gyðingakonur ekki undahþegnar þessari þjón- ustu fyrr en 1942. Til ertilskipun frá Wehrmacht, sem nálgast kyn- þátthreinsun þá sem við horfum nú upp á í Júgóslavíu. Hvernig á að ná tökum á ábyrgð og refsingum á slíkum giæp? Nokkuð ljóst er að enginn einn maður gaf beina skipun um fjöldanauðganir á bosnísku kon- unum, en markvisst heldur ekk- ert bann við þeim. Hljóta ein- staklingamir ekki að bera ábyrgð á sínum glæp ef á að stemma stigu við honum? Einu sinni hafa íslendingar staðið andspænis ákæru á íslenskan ríkisborgara um nauðgun á telpu og manndráp í Eistlandi í heimsstyijöldinni. Ömurlegt var að ‘horfa upp á ís- lenska ráðamenn fara undan í flæmingi, skipa nefnd sem ekki bað einu sinni um gögnin, líta undan í augsýn heimsins og loka eyrunum. Það vekur spumingu um hvað þetta þýði um siðferðis- vitund varðandi nauðganir og ís- lenskt réttarfar. En íslenskar konur ætla sýnilega ekki frekar en evrópskar konur að líta undan. V

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.