Morgunblaðið - 25.04.1993, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 25.04.1993, Qupperneq 6
GengsfalH sæðisfmmanna Danskar rannsóknir segja að nú séu um helmingi færri sóðfrumur í sæðisvökva karl- manna en fyrir 50 árum. Vilja þeir kenna mengun um hvernig komið sé Samantekt: Urður Gunnarsdóttir Afleiðingar mengunar á mannskepnuna eru hreint ekki að fullu ljósar, þó að mengun sé fyrst og siðast af mannavöld- um. Margir vísindamenn telja að fleiri þætti megi rekja.til mengunar en nú er gert og hafa Danir bent á ófrjósemi í því sambandi. Telja þeir að innan skamms muni þeir geta staðfest þann grun sinn en þeir vinna nú að rannsóknum í Danmörku og Austur-Evrópu á áhrifum mengunar á frjó- semi. Þetta kom nýlega fram í danska blaðinu Pðlitiken þar sem fjallað var um rannsóknirnar. síðustu 50 árum hefur gæðum sæð- is í karlmönnum á Vesturlöndum farið hrakandi, sæðisvökvinn inni- heldur nú um helmingi færri sæðis- frumur, segir í Politiken. Þeir sem vinna að rannsóknum á minna magni sæðis í sæðisvökva segjast ekki geta sagt með vissu hvort mengun sé aðalorsökin. Þó er ýmislegt vitað um áhrif þeirra eiturefna sem eru í andrúmsloftinu, til dæmis PCB, kadmíums og blýs. PCB hefur verið bannað hérlendis frá árinu 1988 en það er enn notað í Austur- Evrópu. PCB eru fjölklór- uð tvífenýl, lífræn efnasambönd sem leysast auðveldlega í fítu og eyðast mjög hægt í náttúrunni. PCB hefur fundist í sjó og er talið orsök þess að kópar fæðast með vansköp- uð kynfæri og að seyði klekjast út sem hvorki eru karl- eða kvenkyns. Vilhjálmur Rafnsson, yfirlæknir hjá Vinnueftirliti ríkisins segir að rannsóknir á ófijóum selum í Eystrasalti séu taldar staðfesta að PCB sé orsök ófrjóseminnar, auk þess sem margir kópar fæðist van- skapaðir. PCB hafi líklega svipuð áhrif á menn, berist það í of miklum mæli í líkamann. Full ástæða til að hafa áhyggjur? Woody Allen í hlutverki kvíðinnar sæðisfrumu í mynd sinni „Everyt- hing you always wanted to know about sex“. Gífurleg mengun í Austur-Evrópu Meðal þeirra sem hafa unnið að rannsóknum á þessu er dr. Niels Erik Skakkebæk á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn. Rannsóknir hans hafa hlotið viðurkenningu Alþjóða- heilbrigðisstofnunarinnar og vinnur Skakkebæk nú í samvinnu við stofnunina. Sjónir danskra vísindamanna hafa einkum beinst að Austur-Evr- ópu þar sem mengun hefur verið gífurleg og kemur nú æ betur í ljós hversu alvarleg áhrif hún hefur á íbúa þeirra landa þar sem ástandið er verst. Til dæmis í Armeníu, en í höfuðborginni Jerevan er nærri fjórði hver fullorðinn karlmaður ófrjór og rannsóknir sem gerðar hafa verið á svæðinu benda til þess að rúmlega átta prósent barna séu andvana fædd. Tölurnar eru svo geigvænlegar að Politiken segir lækna á Vesturlöndum veigra sér við að taka þær trúanlegar. Líkleg- asta orsökin er sögð efnaverksmiðja í Jerevan sem framleiðir gúmmí en við framleiðsluna eru notuð klór- sambönd. Á svæðinu næst verk- smiðjunni er ófijósemi óvenju út- breidd. Annað dæmi eru pólsk skólaböm sem komu til Danmerkur í frí. Þau áttu heima í iðnaðarborg og við læknisskoðun í Danmörku kom í ljós að kadmíum- og kvikasilfur- magn í líkama þeirra var langt yfir þeim mörkum sem talið er óhætt, svo og blýmagnið, sem taldist hrein og klár blýeitrun. Bömin, sem voru lifandi dæmi um hina óhugnanlegu þróun, komu hins vegar ekki í heilsubótarferð, þau vom í fríi. „Hér á landi getum við ekki metið áhrif mengunar í Austur-Evr- ópu en það er alveg ljóst að vegna hennar eru þessi lönd hrein gulln- áma fyrir vísindamenn. Þar geta þeir fengið svör við mörgum spurn- ingum um tengsl mengunar og ýmissa sjúkdóma," segir Olafur Örn Amarson, sérfræðingur í þvagfæ- raskurðlækningum við Landakots- spítala. Vesturlönd sleppa ekki Vandinn er inestur í Austur- og Mið-Evrópu. Alþjóðaheilbrigðis- stofnunin stefnir að því að koma á fót miðstöðvum sem kanna og halda yfirlit yfir tengslin milli mengunar og minni fijósemi. Rannsaka á viðmiðunarhópa i Danmörku og Austur-Evrópu, m.a. Tékklandi, Ungveijalandi og Litháen. En jafnframt er lögð áhersla á að vandinn sé ekki bundinn við Austur-Evrópu. í Bandaríkjunum og Vestur-Evrópu hefur einnig orð- ið breyting í átt til hins verra. Virk- um sæðisfrumum í sæðisvökvanum fer fækkandi, ófijósemi eykst og krabbamein í eistum eykst sífellt, tíðnin hefur þrefaldast í Danmörku á síðustu 40 árum. Vísindamenn telja samhengi á milli þessara þátta. Ólafur Örn segist ekki getað sagt til um rannsóknir Dananna án þess að sjá um þær itarlegri gögn. Það sé hins vegar rétt að starfsemi eistna sé viðkvæm fyrir utanaðkom- andi áhrifum. „Ég þori ekkert að fullyrða um hversu mikið sæðis- frumum í sæði hefur fækkað en þó

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.