Morgunblaðið - 30.04.1993, Síða 9

Morgunblaðið - 30.04.1993, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL1993 9 Langar þig að búa í London? Hugguleg íbúð í miðborg Lundúna stendur þér til boða í sumar í skiptum fyrir íbúð í Reykjavík.Tilvalið tækifæri til að breyta um umhverfi og lifa í stórborg. Vinsamlegast sendið upplýsingar til auglýsingadeildar Morgunblaðsins merktar: „London - 13746“. Franskir kjólar og dragtirfrá stcerb 34 iK K K V NEÐST VIÐ Opið virka daga ■ " 1:1 " \ DUNHAGA, kl. 9-18. r _ \S. 622230. Styrkur til rannsókna í ðldrunarmálum Rannsóknarsjóður Öldrunarráðs íslands auglýsir styrk til rannsókna í öldrunarmálum á Islandi. Umsóknir ásamt greinargerð um fyrirhugaó rannsóknaverkefni sendist Óldrunarráói íslands, Hrafnistu DAS, Hafnarfirði. Umsóknarfrestur er til 1. júlí 1993. Stjórn Öldrunarráós Islands. V__________________________________________________/ DRÁTTARYEXTIR leggjast á lán með lánskjaravísitölu DRÁTTARYEXTIR leggjast á lán með byggingarvísitölu HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS LJ LÁNADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24- 108 REYKJAVÍK • SÍMI91 -696900 f Vesturveldin eru ekki til lengur! í forystugrein brezka tímaritsins Specta- tor er því haldið fram að Vesturveldin, í hefðbundinni merkingu þess orðs, séu ekki til lengur og Vesturlönd skorti réttu stofnanirnar til að bregðast við hættum í umhverfi sínu, á borð við átökin í Bosn- íu. Sameinuðu þjóðirnar séu þess ekki megnugar að takast á við vandann og tal um að „samfélag þjóðanna" eigi að leysa hann sé út í loftið. Hvað er samfélag þjóðanna? Leiðarahöfundur The Spectator gagnrýnir tal um „samfélag þjóðanna" og segir að engum hafi tekizt að skilgreina hug- takið. Yfírleitt þýði það Bandarikjamenn og vin- veitt ríki þeirra, en ekki sé alltaf á hreinu hver þau séu á hveijum tíma. „Það er ekki hægt að skilgreina samfélag þjóð- aima. Hvemig tekur það þá ákvarðanir og hvemig fylgir það þeim eftir? „Víðtæk samstaða“ (eonsensus) er yfirleitt notað til að útskýra hvað samfélagi þjóðanna finnst um eitthvert ákveðið mál. En í „við- tækri samstöðu" felst órætt, almennt sam- komulag — andstætt ákvörðun (consent), sem felur í sér að fulltrúar þjóða kjósa um málin í pólitísku ferli. Yfirleitt er gert ráð fyrir að sam- félag þjóðanna nái við- tækri samstöðu á vett- vangi Sameinuðu þjóð- anna og láta sameigin- legan vi(ja sinn í Ijós með friðargæzluleiðöngrum og neyðaraðstoð. En Samemuðu þjóðiruai' em flókin stofnun með tugi aðildarrílga og þjónar aðeins tilgangi sínum þegar ákvörðun — and- stætt víðtækri samstöðu — hefur verið tekin ann- ars staðar.“ Vestrænar stofnanir úr takt við tím- ann Síðar í greininni segir: „Fyrir ekki löngu síðan var til hópur rikja, sem þekktur var undir nafn- inu Vesturveldin, sem hafði ákveðna stefnu í málefnum Evrópu og framkvæmdi hana með hjálp nokkurra stofnana, sem nutu nægra Ijárveit- inga, einkum NATO og Evrópubandalagsins. En Vesturveldin, sem efna- hagsleg og hemaðarleg eining, em ekki til leng- ur. Þrátt fyrir að NATO hafi misst óvin sinn, er enn eftir að koma á um- bótum innan bandalags- ins og Vestur-Evrópu- sambandið hefur ekki komið í stað þess. Þrátt fyrir að efnahagslegar aðstæður hafi breytzt al- gerlega, þjösnast Evrópu- bandalagið áfram í átt til I hins lieilaga kaleiks; myntbandalags og pólití- skrar samvinnu. Astæða þess að hið veika og sennilega merkingar- lausa hugtak „samfélag þjóðanna" hefur orðið til, er að stofnanir Vestur- landa hafa ekki þróazt í takt við tímann. Við búum í hættulegu tómarúmi, eins og deil- umar i Júgóslavíu sýna vel. Óljóst tal um samfé- lag hefur ekki orðið til að leysa deiluna. Þvert á móti hefur það orðið til þess að vestrænir stjóm- málamenn — einkum brezkir — hafa setið að- gerðalausir og trúað því að einhver annar gripi til aðgerða. „Við erum að bíða eftir víðtækri sam- stöðu samfélags þjóð- I anna“ er pólitísk skrúð- mælgi, sem þýðir: „Við getum ekki gert upp hug okkar.““ Friðkaup eða ábyrgð The Spectator líkir stefnunni í málefnum Bosniu við friðkaup Chamberlains af Hitler 1938 og segir: „Eins og við hefðum átt að hafa lært 1938, em friðkaup gagnleg til skamms tíma, en koma mönnum oft í koll síðar. Við höfum í hljóði samþykkt að leyfa Serbum að hertaka Aust- ur-Bosníu — munum við þá stöðva þá í Kosovo? Ef við látum þá hafa Kosovo — munum við stöðva þá í Albaníu? I Makedóníu? Verðum við að bíða eftir því að stríðið breiðist út, áður en ríkin, sem tilheyrðu Vesturveld- unum, gera sér Ijóst að aðgerða er þörf? Samfélag þjóðanna getur ekki ákveðið að vopna Bosníu-Múslima eða veita þeim vemd úr lofti. Samfélag þjóðanna getur ekki tekið neinar ákvarðanir, af þvi að það er ekki til. Gamlar vest- rænar stofnanir geta ekki heldur tekið þessar ákvarðanir, af því að þær vom ekki hannaðar til þess. Kreppan á Balkan- skaga leysist ekki fyrr en eitt ríki tekur af skarið og segist bera ábyrgð; þar til eitt ríki tekur að sér að leiða hin til að- gerða. Það væri kærkom- in tilbreyting að sjá Bret- land taka að sér slíkt hlut- verk.“ a<S l>íim valil LIFEYRIR SNIÐINN AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM! Nýjung í lífeyrismálum! s / I Oskalífeyri er m.a. val um: Sameignar- eba séreignarfyrirkomulag lífeyrisréttinda Lífeyrisaldur, þ.e.a.s. frá hva&a aldri lífeyrisgreibslur hefjast Á hve löngum tíma lífeyririnn er greiddur Vibbótartryggingarþætti, m.a. líftryggingu og afkomutryggingu Þú færb allar nánari upplýsingar hjá tryggingarráb- gjöfum Sameina&a líftryggingarfélagsins hf. m,íf Sameinaöa líftryggingarfélagiö hf. Kringlunni 5, Reykjavík. Sími 91 - 692500 í eigu Sjóvá-Almennra trygginga hf. og Tryggingamiðstöðvarinnar hf. r~

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.