Morgunblaðið - 30.04.1993, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1993
Samtök á almennum vinnumarkaði
Tekjujöfmin ekki
eini tilgangurinn
með lækkun skatts
FRUMTEIKNING af væntanlegu skólahúsnæði norræna skólasetursins sem rísa á á Hvalfjarðarströnd.
Almenningshlutafélag stofnað í Borgarfjarðarsýslu
TEKJUJÖFNUN er ekki eini tilgangurinn með lækkun virðisauka-
skatts á matvælum að sögn Láru Júlíusdóttur, framkvæmdasljóra
ASÍ, og Þórarins Þórarinssonar, framkvæmdastjóra VSÍ. Þórarinn
bendir í þessu sambandi á áhrif lækkunar skattsins á verðlagsþróun
og samkeppni í ferðamannaiðnaðinum. Hann segist ennfremur
hyggja að í engu Evrópulandi með tveimur virðisaukaskattþrepum
sé matvælum ekki haldið í því lægra. Rannveig Sigurðardóttir,
hagfræðingur BSRB, leiðir rök að því að lækkun matarskatts sé
ómarkviss aðferð til tekjujöfnunar í grein í Morgunblaðinu nýlega.
Norrænar skólabúðir
á Hvalfjarðarströnd
Lára sagði að hún væri í sjálfu
sér ekki ósammála þeirri staðhæf-
ingu að lækkun matarskatts væri
ómarkviss aðferð til tekjujöfnunar.
„Enda má kannski segja að við höf-
um svo sem áður heyrt þessi sjónar-
mið og þessa gagmýni frá BSRB.
Þessi krafa um að lækka matarskatt-
inn kemur að okkar mati einkum
bamafólki og hinum lægst launuðu
til góða. Það er ekki þar með sagt
að þetta sé bein tekjujöfnunaraðgerð
vegna þess að hún kemur öðrum líka
til góða. Við lítum á þetta sem ákjós-
anlega leið, undir þeim kringumstæð-
um sem við búum við í dag, til þess
að bæta kjör fólks og einkum þeirra
tveggja hópa sem ég nefndi áðan,“
sagði Lára og minnti á að verkalýðs-
hreyfíngin hefði staðið á móti matar-
skattinurfi alveg frá því að hann var
settur á.
lækkun á matvælum eitt af því sem
er til þess fallið að styrkja samkeppn-
isstöðu okkar í þessari baráttu um
ferðamenn. Það er nefnilega þannig
að ísland sem ferðamannaland sker
sig kannski mest frá öðrum þjóðum
í því að matvara er hroðalega dýr.
Þriðji þátturinn sem ég vildi nefna
er sá að ég hygg að það sé ekkert
Evrópuland sem er með tvö skattþrep
í virðisaukaskattskerfi þar sem mat-
væli eru ekki í lægra þrepinu," sagði
Þórarinn.
Hann minnti á að tillögumar
kæmu fyrst og fremst frá ASÍ og
sagði að sér sýndist hér fyrst og
fremst um að ræða skæting milli
þessara tveggja systursamtaka.
Skorradal.
STOFNAÐ var á Hlöðum á
Hvalfjarðarströnd almennings-
hlutafélag til að byggja og reka
norrænar skólabúðir á Hval-
fjarðarströnd.
Undirbúningur og staðarval
hefur staðið yfir undanfarna mán-
uði en aðalhvatamaður að þessari
félagsstofnun er Sigurlín Svein-
bjamadóttir.
Búið er að gera frumteikningu
að væntanlegu skólahúsnæði sem
á að rísa í landi Saurbæjar á Hval-
fjarðarströnd en arkitekt er Gestur
Ólafsson, lögfræðilegur ráðunaut-
ur.
Á stofnfundinum var ákveðið
að hlutafé skyldi vera 20.000.000
kr. sem skiptist í 50.000 kr. hluti
og var þegar búið að skrifa sig
fyrir hlutafé á milli 14 og 15 millj-
ónir.
Hluthafar eru flest sveitarfélög
í Borgarfjarðarsýslu ásamt ein-
staklingum og félögum í Borgar-
nesi, á Akranesi og í nærsveitum.
Hlutafjársöfnun stendur enn yfir
og geta þeir sem vilja leggja fé í
fyrirtækið snúið sér til stjórnarinn-
ar en hún var þannig kjörin á
fundinum: Sigurlín Sveinbjarnar-
dóttir, formaður, Reykjavík, sr.
Jón Einarsson, ritari, Saurbæ,
Sæmundur Sigmundsson, með-
stjórnandi, Borgarnesi, Eiríkur
Ingólfsson, meðstjórnandi, Borg-
arnesi, og Konráð Andrésson,
meðstjórnandi, Borgamesi. Vara-
menn í stjórn eru: Gísli Einarsson,
Akranesi, og Reynir Ásgeirsson,
Svarfhóli.
Mikill áhugi og bjartsýni ríkti á
fundinum og er stefnt að hefja
framkvæmdir þegar í maímánuði.
- D.P.
Guðjón A. Kristjánsson tekur málefni Bolungarvíkur upp í þingflokknum
Aðrar leiðir
Rannveig vísar í grein sinni til
þess að norsk rannsókn hafi leitt í
ljós að með hækkun bamabóta mætti
ná þrisvar sinnum meiri tekjujöfnun-
aráhrifum en með lækkun matar-
skatts. Lára segir að þessi aðferð
hafí verið reynd. „Við höfum farið
þá leið í tengslum við kjarasamninga
að hækka bamabætur og það má
vissulega taka undir að það er mark-
vissari tekjujöfnunaraðgerð. En það
hefur sýnt sig að sú aðgerð hefur
ekki haldið."
Áhrif á verðlagsþróun
Þórarinn Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði að tillögur
um lægri skatt á matvæli horfðu til
mun fleiri þátta en einungis tekju-
jöfnunar. „Þær horfa m.a. að því að
hafa áhrif á verðlagsþróunina og þar
með á vístölumar sem mæia lánsfjár-
kostnað meðal annars. Þannig að
lækkun á matarskatti veldur lækkun
á fjármagnskostnaði. Annað er að
frá sjónarmiði ferðaþjónustunnar er
Veríð að selja atvinnu-
réttinn frá fólkinu
GUÐJÓN A. Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vara-
maður Matthíasar Bjarnasonar fyrsta þingmanns Vestfjarða,
hefur óskað eftir umræðum um málefni Bolungarvíkur í þing-
flokki sjálfstæðismanna. Hann segir að það fari eftir undirtekt-
um þar hvert framhald málsins verði af sinni hálfu og til greina
komi að taka það upp á Alþingi. Hann segir að hugsanleg sala
á báðum togurum Bolvíkinga ásamt kvóta úr byggðarlaginu
sýni ömurleika fiskveiðistefnunnar í sinni verstu mynd. Kristinn
H. Gunnarsson, þingmaður Alþýðubandalagsins í Vestfjarðakjör-
dæmi, segir að Bolvíkingar eigi nú hiklaust að lýsa því yfir að
nýttur verði forkaupsréttur bæjarsljórnar í bæði skipin, ekki
einungis annað.
LIGO kartöflu-
stráin í rauðu
dósunum
Ligrc
CRSSP
POTATO
STICKS
| Sölt, stökk
íog ótrúlega
góð strá.
NU flRU KARTOFLUSTRAIN I
DOSUNUM KOMIN AFTUR
Tilvalin með hvers kyns mat - með grillinu, sem snakk, í útileguna.
Heildsöludreifing: Ó. Johnson & Kaaber hf. Sími 6 24 000
„Þetta mál sýnir ömurleika fisk-
veiðistefnunnar í sinni verstu
mynd, verið er að selja atvinnurétt-
inn frá fólkinu," sagði Guðjón A.
Kristjánsson þegar leitað var álits
hans á stöðu mála í Bolungarvík
eftir að þrotabúið Einars Guðfins-
sonar hf. hefur ákveðið að ganga
til viðræðna við Grindvíkinga og
Hafnfirðinga um sölu á Heiðrúnu
og Dagrúnu, en þeir voru hæstbjóð-
endur. „Kauptúnið Bolungarvík
hefði aldrei orðið til nema vegna
þess að þar er verstöð sem liggur
vel við fiskimiðunum. Svo stendur
fólkið sem unnið hefur fyrir sér
með því að stunda fiskveiðar og
vinnslu sjávarafla með góðum
árangri í áratugi, frammi fyrir því
að frumburðarréttur þess til at-
vinnu og lífsafkomu og að vernda
eignir sínar er gjörsamlega fyrir
borð borinn. Til stendur að selja
hann eitthvað út á land,“ sagði
Guðjón.
Guðjón sagði að þingmenn hlytu
að ræða málefni Bolungarvíkur.
„Við hljótum að fara fram á að
þessi mál verði rædd innan ríkis-
stjórnar og jafnvel hér á Alþingi.
Ég sé ekki annað en að sams kon-
ar dæmi geti verið að koma upp á
fleiri stöðum eins og fréttir frá
Hornafirði benda til. Það er alger-
lega óviðundandi að atvinnuréttur
fólks í sjávarþorpum út um land
sé falur hverjum sem er og geti
farið hvert sem er og fólk geti
ekki haft neitt að segja um framtíð-
ina í sinni hermabyggð," sagði
Guðjón A. Kristjánsson.
Nýttur verði forkaupsréttur
að báðum togurunum
Kristinn H. Gunnarsson sagðist
ekki sjá margt nýtt í stöðu mála
eftir fund kröfuhafa þrotabúsins
þar sem ákveðið var að ganga til
samninga við hæstbjóðendur í tog-
arana. „Það eina sem er nýtt er
fremur jákvætt, það verð sem
mögulegt er að selja þessi skip og
veiðiheimildir á er lægra en upphaf-
lega var talið og verulega lægra
en mér skilst að kröfuhafar hafi
gert kröfu um. Hæstu tilboð í bæði
skipin eru samtals um 720 milljón-
ir kr. Mér skilst að áhvílandi veð-
skuldir séu uppgefnar um 860 millj-
ónir kr. Við höfum boðið 660 millj-
ónir og munar því ekki nema 60
milljónum á okkar tilboði og hæst-
bjóðendum. Mér sýnist að mögu-
leikar okkar til að halda báðum
togurunum með því að nýta for-
kaupsrétt hafí vaxið,“ sagði Krist-
inn.
Hann sagðist telja að fjárhags-
legur grundvöllur væri fyrir því að
bæjarsjóður leysi skipin til sín.
„Hafí menn talið fjárhagslegan
grundvöll fyrir 660 milljóna kr. til-
boði er ég ekki í vafa um að við
getum þrúað bilið upp í 720 milljón-
ir kr. Ég er ekki að segja að það
sé nein skemmtisigling út úr þessu,
en ég tel að við getum ráðið við
það. Ég tel að heimamenn ættu
að taka ákvörðun um að halda
báðum skipunum. Nú vitum við að
við þurfum ekki að borga hærra
verð en þetta, að því gefnu að lán-
ardrottnar fari ekíri að gera kröfur
á síðari stigum um hærra verð.
Landsbankinn og Byggðastofnun
verða nú að svara því hvort þeir
séu tilbúnir til að láta þetta verð
standa," sagði Kristinn.
Hann sagði að formlega séð
ætti málið að ganga þannig fyrir
sig að þrotabúið og kröfuhafar
gerðu samning við hæstbjóðendur
um söluna og alla greiðsluskilmála
og bæjarstjórn fengi síðan þann
samning til samþykktar eða synj-
unar. Hins vegar væri betra fyrir
Bolvíkinga að koma strax inn í
málið til að geta haft eitthvað um
efni samningsins að segja. „Liggi
fyrir sú afstaða heimamanna að
leysa til sín skipin væri eðlilegt að
helstu veðkröfuhafar hleyptu okkur
að málinu, að öðrum kosti væru
þeir að vinna gegn okkar hagsmun-
um,“ sagði Kristinn.
f
í:
I
i
►
r
»
i
>
i
i
t
i