Morgunblaðið - 30.04.1993, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 30.04.1993, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1993 Leyfa 30 útlögnm að snúa heim ÍSRAELSK stjórnvöld tilkynntu í fyrrakvöld að 30 af um 2.000 Palestínumönnum, sem sendir hafa verið í útlegð frá hernumd- um svæðum ísraela frá 1967, fengju að snúa heim í dag. Er ákvörðunin liður í tilslökunum, sem ísraelsstjórn féllst á til að laða Palestínumenn aftur að samningaborði í Washington. Útlagarnir 30 eru flestir félagar í Frelsissamtökum Palestínu- manna (PLO) og þeim var vísað úr landi áður en uppreisn Pal- estínumanna á hemumdu svæð- unum hófst árið 1987. Margir þeirra eru aldraðir og hafa ver- ið í útlegð í 20 ár eða lengur. Lloyd’s berst fyrir lífinu LLOYD’S of London, heimsins elsta tryggingafélag, kynnti í gær fyrstu eiginlegu viðskipta- eða starfsáætlun sína í 305 ár. Er litið á hana sem síBustu til- raun til að bjarga félaginu en það hefur tapað gífulegum upp- hæðum á síðustu árum, um 600 milljörðum_ kr. á árunum 1988-91. í nýju áætluninni er gert ráð fyrir, að mörgum, gömlum hefðum verði kastað fyrir róða, markaðsmálin end- urskoðuð og áhættufé fyrir- tækja hleypt að í fyrsta sinn. Verður ýmislegt gert til að hjálpa „nöfnunum", sem svo eru kölluð, eintaklingum, sem eru í ótakmarkaðri ábyrgð fyrir tryggingum Lloyd’s. Aður voru það mikil forréttindi að fá að vera „nafn“ hjá Lloyd’s • enda gróðavonin mikil en nú eru margir þessara manna gjald- þrota. Skotárás á N-írlandi FIMM manns særðust, þar af einn lífshættulega, þegar ráðist var í gær með kúlnahríð á veð- mangarastofu í Belfast. Er hún í kaþólsku hverfi og eru hryðju- verkamenn mótmælenda grun- aðir um verknaðinn. Hafa þeir oft áður ráðist á veðmangara- stofur en þar er jafnan margt um manninn á sumum tímum. í febrúar í fyrra féllu fimm menn í slikri árás. Afsögn vegna Waco? BÚIST er við, að Stephen Higg- ins, yfirmaður þeirrar stofnunar FBI, bandarísku alríkislögregl- unnar, sem stjórnaði atlögunni að David Koresh og áhangend- um hans, verði beðinn að segja af sér. Kom þetta fram í The New York Times í gær og vitn- að í því sambandi í Lloyd Bents- en fjármálaráðherra. Hann sagði á miðvikudag, að hann væri „afar óánægður með mis- vísandi" yfirlýsingar um árás- ina á Koresh og búgarð sértrú- arsafnaðarins í Waco í Texas. Fjölflokka- kosningar í Jórdaníu HUSSEIN Jórdaníukonungur sagði í gær að efnt yrði til fyrstu fjölflokkakosninganna í Jórdan- íu í meira en þrjá áratugi síðar í árinu, líklega í nóvember. Hann kvað ekki víst hvort hægt yrði að breyta kosningalöggjöf- inni, sem margir jórdanskir stjórnmálamenn segja úrelta. Díana Bretaprinsessa fær kvenmann sem lífvörð í fyrsta sinn Reuter Díana og valkyrjan Carol Quirk liðþjálfi fylgist hér með þegar Díana yfirgefur bílinn á leið til fundar í breska innanríkisráðuneytinu. Quirk þykir hörð í horn að taka þegar það á við og hún er fyrsta konan í lífverði prins- essunnar af Wales. Kemur sér vel í verslunarferðum London. The Daily Telegraph. DÍANA prinsessa fær á næstunni konu sem lífvörð í fyrsta sinn, Carol Quirk, 36 ára gamlan liðþjálfa. Eru lífverðirnir alls fjórir en Quirk kemur í staðinn fyrir Des Stout lögregluforingja, sem fékk viðurnefnið „Robocop" þegar hann skaut sjálfan sig í lærið í fyrra. Segist Díana vera mjög ánægð með þessa nýbreytni en hún hefur margsinnis óskað eftir konu sér til halds og trausts. Díana segir, að oft sé miklu þægi- legra að hafa konu í lífverðinum, sérstaklega í verslunarferðum, til dæmis í Marks & Spencer eða Turn- bull & Asser í Jermyn-stræti þar sem hún náði sér í fallega peysu úr kasm- írull í síðustu viku. Frábær skytta Quirk liðþjálfi verður vopnuð Smith & Wesson-skammbyssu en hún er frábær skytta og sérfræðing- ur í júdó. Var hún valin lífvörður Díönu vegna góðrar frammistöðu sinnar í fyrra þegar hún gætti örygg- is Játvarðar prins á hrossasýning- unni í Windsor. Þegar ljósmyndari nokkur ætlaði að gerast of nærgöng- ull við prinsinn sýndi hún hvað í sér bjó og sagði ljósmyndaranum að hypja sig og endurtók það. „Hún þurfti ekki að segja honum það í þriðja sinn,“ sagði lögreglumaður, sem fylgdist með. I lögreglusveitinni, sem gætir enska konungsfólksins og erlendra hátigna, eru um 800 manns og er venjan að kalla þá til þegar þörf er á en sumir fá fast starf við gæslu ákveðinna manna. Guardian festir kaup á Observer Lundúnum. Reuter. EIGENDUR elsta sunnudags- blaðs heims, Observer, sögðu í gær að blaðið yrði selt út- gefendum breska dagblaðs- ins Guardian. Breska útgáfufyrirtækið Lonhro Plc, sem keypti Obser- ver árið 1981, sagði í stuttri yfirlýsingu að það hefði fengið „ásættanlegt" tilboð frá eigend- um Guardian. „Við höfum handsalað samninginn við Gu- ardian,“ sagði Nick Morrel, einn af framkvæmdastjórum Lon- hro, en hann vildi ekki upplýsa hversu hátt kaupverðið væri. Útgáfustjórn Observer myndi taka lokaákvörðun um söluna á fundi á þriðjudag. Reuter Hervirki í Bosníu Breskir hermenn á vegum Sameinuðu þjóðanna fara framhjá mosku að 60 manns hafi beðið bana. Harðir bardagar hafa geisað milli sem eyðilagðist I stórskotaárás Króata á bæinn Ahmici í Bosníu. Króata og múslima í Mið-Bosníu í rúma viku. Hermennirnir eru að leita að fórnarlömbum árásanna, en talið er Fulltrúasamkunda Bosníu-Serba verður við beiðni Milosevic Friöaráætlun Belgrad. Reuter. FULLTRÚASAMKUNDA Bosníu-Serba kemur saman á miðvikudag í næstu viku til að ræða á ný friðaráætlun Sameinuðu þjóðanna sem hún hafnaði fyrr í vikunni. Warren Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Douglas Hurd, starfsbróðir hans í Bretlandi, ræddust við í síma og ákváðu að styðja tillögu Rússa um að efna til ráðherrafundar um stríðið í Bosníu. Christopher og Hurd töldu þó of landi, Bandaríkjunum, Bretlandi, snemmt að halda fundinn á miðviku- Frakklandi og Spáni sitji fundinn. dag eins og Rússar lögðu til. Gert Tanjug-fréttastofan í Belgrad er ráð fyrir að ráðherrar frá Rúss- sagði að Radovan Karadzic, leiðtogi SÞ rædd á ný Bosníu-Serba, hefði fallist á tillögu Slobodans Milosevic um að fulltrúa- samkundan kæmi saman á miðviku- dag til „að meta í smáatriðum allar hliðar friðaráætlunarinnar, meðal annars nýjar upplýsingar". Sam- kundan hundsaði fyrr í vikunni til- mæli Milosevic um að samþykkja friðaráætlunina. Talsmaður Bills Clintons Banda- ríkjaforseta sagði að hann myndi taka ákvörðun í dag eða á morgun um frekari aðgerðir í Bosníu. Að- stoðarmenn hans sögðu að forsetinn væri að íhuga takmarkaðar loftárás- ir á serbnesk skotmörk í Bosníu, afnám vopnasölubanns svo múslim- ar gætu varið sig og hvort hægt væri að koma á griðasvæði fyrir múslima.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.