Morgunblaðið - 30.04.1993, Qupperneq 37
allt tandurhreint og arfinn virtist
hverfa úr garðinum af sjálfu sér.
Allur matur varð að krásum í hönd-
um hennar og var þó ekki verið að
bruðla. Og þegar sólin skein á Akur-
eyri var morgunverðurinn borðaður
úti á tröppum og kaffið drukkið út
undir vegg. Allt gerðist þetta fyrir-
hafnarlaust að því er virtist, svo
hægleg og þokkafull voru öll hennar
störf.
Bamabörnin nutu ríkulega allra
hennar kosta, enda ófáar ferðimar
farnar norður á sumrin og um páska
og öll dvöldust þau hjá henni um
lengri eða skemmri tíma.
En innan í þessari prúðu og þokka-
fullu konu leyndist held ég önnur,
sem aidrei blómstraði. Þeirri konu
verður e.t.v. helst lýst með því að
hún hafi verið lífsglaður bóhem, með
listrænu ívafi. Hún skaust stundum
upp á yfirborðið, stundum í dálítið
litskrúðugri og óhefðbundnari
klæðnaði en maður átti að venjast
hjá „vammlausri húsmóður á Akur-
eyri“, stundum í dálítið óvenjulegum
uppátækjum, en helst í frásögnum
hennar, sem oft einkenndust af ein-
hverri óskilgreindri þrá. Ekki veit ég
hvort hugur hennar stóð til annarra
hluta en fyrir henni áttu að liggja,
um það ræddi hún aldrei og ég hafði
kannski ekki vit á að spyija hinna
réttu spurninga sjálf. Við sem yngri
emm, höfum oft ekki þann áhuga
sem til þarf til að kynnast okkur
eldra fólki nógu vel. Ég held að
Adda hafí verið margræðari kona en
hún vildi vera láta. Kannski er þetta
bara ímyndun hjá mér — og þó held
ég ekki — en hitt veit ég að þar er
góð kona gengin.
Þórhildur Þorleifsdóttir.
í dag kveðjum við Öddu ömmu
og okkur langar til að minnast
hennar í nokkrum orðum. Við frétt-
um á sumardaginn fyrsta að amma
væri farin. Úti skein sólin og okkur
fannst það alveg í anda hennar að
hafa beðið eftir sumrinu, það var
alltaf hennar tími.
Flestar minningar okkar um
hana tengjast sólríkum dögum á
Byggðaveginum með pönnukökuáti
og randalínum. Á haustin voru það
ferðirnar í beijamó og um páskana
skíðaferðirnar í fjallið, ávallt klifj-
aðar nesti sem amma útbjó.
Allt fas ömmu var rólegt og ljúft,
aldrei nein læti. Þessi friðsæld hafði
þau áhrif að hvergi dundaði maður
sér betur en í návist hennar. Amma
helgaði líf sitt fjölskyldunni, var
alltaf tilbúin að hjálpa og áttum við
barnabörnin og barnabarnabörnin
öruggt athvarf hjá henni. Sjálfs-
elska og eigingirni voru ekki til í
ömmu.
Við kveðjum ömmu með þakk-
læti í hjarta og sól í huga.
Guðrún Helga og Sólveig
Arnarsdætur.
Mig langar til að minnst móður-
systur minnar, Öddu, fyrst og
fremst vegna þeirrar gæsku sem
hún hafði til að bera, ástúðar og
gjafmildi gagnvart öðru fólki.
Frá því ég man eftir mér, lítill
hnokki að skríða í garðinum á
Byggðaveginum, þá birtist þessi
fallega kona með krakkaskarann í
kringum sig er öll heimtuðu at-
hygli og fengu hana óskipta, því
að enginn varð útundan af góðvild
hennar. Það var eitthvað í návist
Öddu sem hvorki verður sagt né
túlkað, það geislaði einfaldlega af
henni mannleg hlýja sem hver og
einn skynjaði á sinn hátt.
Oftast þegar ég hitti hana, gauk-
aði hún einhverju að mér, svo að
Sfrfræðingar
í blóiiisiskrtiyliiifítiin
við öll (irkilæri
Skólavöi'dustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 19090
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1993
-----------------------------neet j
lítið bæri á, hvort sem hún saumaði
tölu á jakkann, straujaði buxurnar
fyrir ball, stakk á mann heimapijón-
uðum vettlingum eða laumaði pen-
ingum í vasann á leiðinni út. í köku-
bakstri og matargerð var hún snill-
ingur sem enginn fór varhluta af.
Listhneigð Óddu birtist í mann-
eskjunni sjálfri, í kærleikanum sem
er það dýrmætasta sem nokkur á.
Hún var gjöful, næm og skilnings-
rík, stundum óákveðin og hikandi,
en djúp og athugul á bak við. Hún
var mikil fjölskyldukóna, hvort sem
það var á heimili þeirra hjóna á
Akureyri eða heima hjá bömunum
í Reykjavík. Heimilið var hennar
heimur og þar skapaði hún sína
töfra.
Nú er Adda horfin sjónum okkar
sem nutum hennar svo ríkulega.
Hún kvaddi þennan heim aðfara-
nótt sumardagsins fyrsta sem er
hátíðisdagur barna og er það vel
við hæfi.
Elsku frænka, ég sakna þín og
mun ætíð minnast þín með birtu í
huga nú þegar ég lít framan í vor-
ið, gróður jarðar sem grænkar með
hveijum deginum og fuglum sem
kvaka á björtum nóttum framund-
an. Og ég hugsa að þú sért ein af
þeim. Megir þú hvíla í friði.
Vorkvöld
Hníga vötn
af himinfjöllum skýja
hjúfurregn
í grasið mjúka nýja
allt er nýtt og ungt
á slíku kvöldi
ekkert raunaþungt
nema sporin burt
frá bemskri jurt.
(Snorri Hjartarson)
Ég votta eftirlifandi eiginmanni,
Jóni Kristinssyni, og börnum þeirra,
.ilHA .úf; ifJOAqijTeo'.j >.»j. . !'"•/ ;i
Arnari, Helgu Boggu og Öddu
yngri, mína dýpstu samúð.
Halldór Ásgeirsson.
Sumardagurinn fyrsti rann upp,
það andaði köldu, sem oftar á þessu
vori. Fyrsta fregn þessa dags var
andlát Óddu minnar, hún hafði and-
ast aðfaranótt þessa fyrsta sumar-
dags. Adda hafði barist fyrir lífinu
um nokkurt skeið, en varð undir í
baráttunni, dauðastundin rann upp,
allt búið nema minningarnar, sem
aldrei verða teknar svo lengi sem
lifír.
Hún hét fullu nafni Arnþrúður,
ættuð frá Þórshöfn á Langanesi,
dóttir þeirra sæmdarhjóna Oddnýj-
ar Árnadóttur og Ingimars Bald-
vinssonar. Voru þau hjón annáluð
fyrir atorku og mannkosti. Eignuð-
ust þau átta dætur og þijá syni,
en einn drengjanna lést í bemsku.
Þetta fjölmenna heimili var róm-
að fyrir myndarskap. Adda fékk
gott veganesi út í lífið er hún ung
að árum fór úr föðurhúsum á Þórs-
höfn og kom hingað til Akureyrar.
Hér kynntist hún manni sínum,
Jóni Kristinssyni rakara. Varð þeim
tveggja barna auðið. Þau eru Amar
og Helga, sem bæði eru vel þekkt
fyrir leiklist sína. Þá ólu þau upp
Árnþrúði, alnöfnu og frænku Öddu,
en komung kom hún á þeirra heim-
ili og gengu þau Adda og Jón henni
í foreldrastað.
Árið 1948 voru risin nokkur ný
hús á syðri brekkunni. Þessi hús
byggðu ungt fólk sem átti framtíð-
ina. Eitt af þessum nýju húsum
áttum við Halli og húsið við hliðina
á okkur áttu þau Adda og Jón. Ég
held að forsjónin hafi ekki getað
gert betur en velja okkur þessa
ágætu nágranna. I 40 ár bjuggum
við saman, þá kynntist ég mann-
kostum Öddu.
Adda var falleg kona, allt sem
hún gerði var frábært, hvemig hún
hengdi þvottinn sinn á snúmrnar,
q j i ) ‘i‘--------------------------
kleinurnar, partarnir og sveskju-
tertan var lostæti sem og annar
matur sem hún tilbjó. Það var stutt
á milli húsanna okkar, enda voru
þær óteljandi ferðirnar sem famar
voru á milli, margur kaffisopinn
drukkinn og rætt um allt milli him-
ins og jarðar. Við Adda tókum þátt
í gleði og áhyggjum hvor annarrar,
mér finnst það alltaf hafa verið
gleði. Börnin okkar léku sér saman,
ef eitthvað vantaði á öðru hvoru
heimilinu bættum við Adda úr því
til skiptis.
í kvenfélagið Framtíðina geng-
um við Adda á sama fundi, en þá
vann kvenfélagið fyrir nýju sjúkra-
húsbygginguna, síðar fyrir dvalar-
heimilin. Til fjáröflunar var merkja-
sala, margskonar skemmtanir, þar
á meðal Jónsmessuhátíðin, sem um
árabil var haldin á túninu þar sem
íþróttahöllin er nú, öllum bæjarbú-
um til mikillar ánægju. Allar félags-
konur vom í nefnd. Við Adda lent-
um alltaf í sömu kaffinefndinni.
Mörg voru sporin okkar við merkja-
söluna, margt varð spaugilegt á
þeirri göngu okkar.
Við vorum saman í saumaklúbbi
í mörg ár, þar var oft glatt á hjalla
og margt bar á góma. Þar fór Ádda
á kostum þegar hún sagði frá, og
hvernig hún sagði frá, smáatvik
urðu að skemmtiatriði. Þá var mik-
ið hlegið. Mörg skemmtileg atvik á
ég um Öddu sem eru ógleymanleg
og fjársjóður í minningunni.
Fyrir nokkrum árum seldu þau
Jón og Adda húsið sitt við Byggða-
veginn og fluttust ofar í brekkuna.
Þó ekki sé langt frá Goðabyggðinni
upp í Hjallalund varð samt „vík
milli vina“.
Nú er þessi elskulega kona okkur
horfin, kona sem vildi öllum gott
gera. Það var yndislegt þegar kallað
var, ef ég var að hengja út þvott
eða eitthvað að bjástra úti við:
„Ninna mín, komdu og fáðu þér
kaffisopa, elskan.“ Aldrei var einn
tónn hærri en annar þessi 40 ár sem
við vorum nágrannar. Við Halli
vottum Jóni, bömum, barnabörnum
og öðrum ættingjum okkar dýpstu
samúð. Adda mín, innilegustu
þakkir fyrir allt og allt.
Áslaug Einarsdóttir.
Fleiri minningargreinar um
Amþrúði Ingimarsdóttur bíða
birtingar og munu birtast næstu
daga.
Ljóðlínur
féllu niður
Nokkrar línur féllu niður úr ljóði
Sigrúnar Gunnarsdóttur, Vinátta,
sem birt var með minningargrein í
Morgunblaðinu 28. mars síðastlið-
inn. Beðist er afsökunar á mistök-
unum. Ljóðið birtist hér á eftir í
heild:
Vinátta
Vinátta,
dýrmæt sem gull.
Þú átt hana
og gefur í senn.
Vinátta,
einstök sem demantur.
Endist um aldur
og ævi.
Vinátta,
verðmæti, ekki í krónum talin.
Þú hvorki kaupir hana
né selur.
Vinátta,
sterk sem stál.
Þú getur ávallt leitað hennar
hjá sönnum vini.
Vinátta,
Kærleikurinn í vinarmynd.
Þakkaðu Guði fyrir, þá bestu gjöf
sem þú færð og gefur.
■»
t
Útför
ÓLAFS HELGA ÓLAFSSONAR
bifreiðastjóra,
Tangagötu 10,
ísafirði,
fer fram frá ísafjarðarkapellu, laugardaginn 1. maí kl. 11.00.
Guðmundur Ólafsson, Guðbjörg Valgeirsdóttir,
Halldór Ólafsson, Ingibjörg Gestsdóttir,
Magnúsína Ólafsdóttir, Agnar Hallvarðsson,
Eyjólfur Guðmundur Ólafsson,
t
Útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÞORLÁKS EIRÍKSSONAR,
Tómasarhaga 16,
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Maria Guðjónsdóttir,
Móeiður Þorláksdóttir, Árni Magnússon,
Þorlákur Þorláksson, Elfn Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Við þökkum innilega öllum þeim, sem vottuðu okkur samúð sína
og hluttekningu við andlát og útför
KIRSTENAR BRIEM
félagsráðgjafa.
Eggert Briem,
Nanna Briem, Sverrir Briem.
+
Hjartanlegt þakklæti fyrir auðsýnda samúö og vináttu við andlát
og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
ÓSKARS ÞÓRÐARSONAR,
Grenimel 8.
Þóra Þorkelsdóttir,
Þorkell Guðmundsson, Jódís Normann,
Hjalti Þorkelsson,
Óskar Þorkelsson,
Þorkell Þorkelsson,
Marteinn Þorkelsson,
Þóra Þorkelsdóttir,
tengdabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem auðsýnt hafa mér samúð
vegna fráfalls eiginmanns míns,
JOHNV. CARROLL.
Úlfhildur J. Carroll.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar eig-
inkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
VALGERÐAR MARGRÉTAR
LÁRUSDÓTTUR
frá Heiði á Langanesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á 3. hæð
hjúkrunarheimilisins Skjóls.
Snorri H. Bergsson,
Bergur Vilhjálmsson, Kristbjörg Kristjánsdóttir,
Edda Snorradóttir, Þorkell Guðfinnsson,
Sæbjörg Snorradóttir, Þorgils Arason
og barnabörn.
+
Fóstrufélag (slands þakkar veittan hlýhug og kveðjur sem félaginu
hafa borist vegna fráfalls formanns félagsins,
SELMU DÓRU ÞORSTEINSDÓTTUR.
Jafnframt þakkar Fóstrufélag íslands framlög í Rannsóknasjóð
leikskóla, sem stofnaður var í minningu hennar.
Fóstrufélag íslands.
+
Við þökkum öllum þeim, sem heiðruðu
minningu
SELMUDÓRU
ÞORSTEINSDÓTTUR
formanns
Fóstufélags íslands,
og sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát hennar og útför.
Guðjón Agústsson,
Þorsteinn Pétur Guðjónsson,
Hrefna Ýr Guðjónsdóttir.