Morgunblaðið - 14.05.1993, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR FÖSTUDAGUR
14. MAI 1993
51
KNATTSPYRNA
I
I
I
í
I
I
I
I
Knattspyrnumenn Vals ekki eftirbátar handknattleiksmanna í afmælisvikunni:
Bikarínn þriðja
áriðíröð
að Hlíðarenda
BIKARMEISTARAR Vals tryggðu sér nafnbótina meistarar meist-
aranna þriðja árið í röð, er þeir lögðu íslandsmeistara ÍA að velli
á Akranesi í gærkvöldi, 2:1 f árlegum leik bikarhafanna tveggja
frá keppnistímabilinu á undan. Leikurinn var ágætlega spilaður
af báðum liðum, og hefði sigurinn í raun getað lent hvorum
megin sem var. En Valsarar höfðu heppnina með sér og tryggðu
sér sigur. Varnarmaðurinn kunni Sævar Jónsson gerði bæði
mörk Vals, og var það fyrra sérlega glæsilegt — þrumuskot úr
aukaspyrnu efst í markvinkilinn.
Skagamenn hófu leikinn af
krafti og eftir aðeins þriggja
mín. leik lá knötturinn í neti Vals-
manna. Haraldur
Sigþór Ingólfsson átti fasta
Eiríksson sendingu fyrir
skrifar markið eftir gott
gegnumbrot vinstra
megin og þar var Þórður Guðjóns-
son mættur og renndi af öryggi
framhjá Bjarna af stuttu færi.
Heimamenn höfðu undirtökin og
fengu nokkur góð tækifæri til að
bæta við marki. Það besta fékk
Haraldur Ingólfsson eftir hálftíma
leik er hann átti þrumuskot af
stuttu færi, en knötturinn fór í
stöngina utanverða og framhjá.
Skömmu áður átti Þórður góðan
skalla rétt framhjá. Eftir þetta
komu Valsmenn mun meira inn í
leikinn og fengu nokkur góð færi.
Næst því að jafna komst Anthony
Karl Gregory er hann skallaði
knöttinn ofan á þverslána eftir fyr-
irgjöf frá hægri.
Jafnræði var með liðunum í byij-
un síðari hálfleiks. Á 53. mín. fengu
Valsmenn. aukaspyrnu rétt utan
vítateigshorns vinstra megin. Sæv-
:
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Hetja Valsmanna
Sævar Jónsson var hetja Valsmanna í leiknum gegn Skagamönnum í
meistarakeppni KSÍ sem fram fór á Akranesi í gær. Hann skoraði bæði
mörk Vals í 2:1 sigri.
ar fyrirliði Jónsson gerði sér lítið
fyrir og sendi knöttinn með þrumu-
skot efst í homið ijær. Stórglæsi-
legt mark! Aðeins tveimur mín. síð-
ar voru Skagamenn hársbreidd frá
því að ná forystu að nýju er Harald-
ur átti góða fyrirgjöf og Þórður
skallaði naumlega yfir úr góðu færi.
Eftir þetta voru heimamenn með
góð tök á leiknum og sóttu mun
meira en Valsmenn beittu mjög
hættulegum skyndisóknum og eftir
eina slíka skoruðu þeir. Þórði Birgi
Bogasyni var brugðið við vítateigs-
homið — og vítaspyma réttilega
dæmd. Úr henni skoraði Sævar
Jónsson af öryggi. Skagamenn
reyndu hvað af tók að jafna metin
og komust næst því á 84. mín. er
Jón S. Helgason bjargaði á mark-
línu skoti Haraldar Ingólfssonar.
Sævar Jónsson var sem klettur
í vöm Vals, Bjarni mjög ömggur í
markinu og Þórður Birgir var
hættulegur. Hjá ÍA var Þórður
Guðjónsson mjög góður og hafði
gífurlega yfírferð, sömuleiðis Ólaf-
ur Þórðarson og Luca Kostic var
einnig góður, sem fyrr.
Þorvaldur Örlygsson Þorvaldur frá Forest Ekki inni í myndinni hjá nýja framkvæmdastjóranum ÞORVALDUR Örlygsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, verð- leika knattspyrnu með félagsliði ur ekki áfram íherbúðum Nottingham Forest. Þaðskýrðist í sumar. Næsta verkefni væri í gær, eftir að hann ræddi víð Frank Clark, sem tók þá við landsleikurinn gegn Lúxemborg framkvæmdastjórn liðsins. ytra á fímmtudag í næstu viku ■Vlýji framkvæmdastjórinn tjáði ekki áfram hjá Forest. Algjörlega t ^ ný 1 ™ Þorvaldi það í gser að hann er óljóst, að hans sögn hvert Englands og skoðað, hvað vær, væri ekki inni í framtíðarmynd hann heldur. > bof.K \eTlð vær' f sinn hjá félaginu, og sagði landsl- Þorvaldur sagðist ekki reikna ekv? sWra'frá rbessTstid ' iðsmaðurinn því ljóst að hann yrði með að koma til íslands til að y P K1-
KÖRFUKNATTLEIKUR
Stálu sigrinum á
elleftu stundu
Eistlendingar sigruðu íslendinga
með tveggja stiga mun, 91:93,
í síðasta leik liðanna af þremur í
íþróttahúsi Vals að
ValurB Hlíðarenda í gær-
Jónatansson kvöldi. Eistland gerði
skrifar sigurkörfuna þegar
ein sekúnda var til
leiksloka í sveiflukenndum leik.
íslenska liðið byijaði af miklum
krafti, lék stífa pressuvörn og skor-
aði grimmt — komst í 10:1 og 15:3
þegar fjórar míntúr voru búnar. En
þá dofnaði yfir íslensku leikmönn-
unum og gestirnir söxuðu á forskot-
ið og komust yfir áður en flauta var
til leikhlés, 42:46.
Eistlendingar náðu mest 14 stiga
mun í seinni hálfleik 59:73 er 10
mínútur vom eftir. Þá kom góður
kafli þar sem Jón Arnar, Guðmundur
Bragason og Albert Óksarsson fóm
á kostum. Þegar fímm sekúndur voru
eftir jafnaði Jón Arnar leikinn úr
v>taskotum, 91:91. En það dugði
ekki til því gestirnir stálu sigrinum
á elleftu stundu.
Guðmundur Bragason var yfir-
burðamaður í liði Islands. Hann barð-
ist mjög vel í vörn og tók á annan
tug frákasta og gerði 25 stig. Jón
Kr. og Valur byijuðu vel en brást
síðan skotfímin. Jón Amar og Albert
Óksarsson komu mjög sterkir inní
leikinn í lokin. Annars virkaði liðið
þreytt eftir sex erfiða leiki á sjö dög-
um. Eistlendingar sýndu ekki nein
snilldartilþrif og á góðum degi eigum
við að vinna þá.
„Það var svekkjandi að ná ekki
framlengingu úr því sem komið var,“
sagði Torfi Magnússon, þjálfari. „Það
var sýnileg þreyta í liðinu en við
spilum með fjórtán leikmenn og
skiptum oft svo menn fengu hvíld
og það er því engin afsökun. Besti
leikmaðurinn i þessum leikjum er sá
sem hefur spilað mest, Guðmundur
Bragason,” sagði þjálfarinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Valur Ingimundarson reynir hér
körfuskot í leiknum í gær. Margus
Metstak, besti leikmaður Eistlendinga,
reynir hávörn.
Naumt tap
í Helsinki
Islenska unglingalandsliðið í
körfuknattleik tapaði naumlega
fyrir Finnum, 79:86, í fyrsta leik
sínum í undanriðli Evrópumótsins í
Helsinki í gær. Staðan í leikhléi var
36:48 fyrir Finna.
Að sögn Björns Björgvinssonar,
fararstjóra, voru liðin mjög áþekk
að getu, en munurinn var sá að
Finnar hittu betur, sérstaklega úr
vítaskotum. Þar var ísland með 52%
nýtingu á móti 77% nýtingu hjá
Finnum. Bestu menn íslenska liðs-
ins að sögn Björns voru Gunnar
Einarsson og Bergur Emilsson.
Stig íslands: Helgi Guðfinnsson
27, Gunnar Einarsson 17, Ómar
Sigmarsson 11, Bergur Emilsson
9, Friðrik Stefánsson 5, Páll Krist-
insson 3, Hafsteinn Lúðvíksson 3,
Baldvin Johnsen 2 og Arnþór Birg-
isson 2.
ísland mætir Litháen í dag, en
Litháen burstaði Hvíta-Rússland
121:60 í gær.
Ellert
afhendir
UEFA-
bikarinn
Ellert B. Schram, stjómar-
maður í Knattspymusam-
bandi Evrópu (UEFA) verður
eftirlitsmaður á síðari úrslitaleik
Evrópukeppni félagsliða —r _
UEFA-kepjminni svokölluðu — í
Tórínó á Italíu. Ekki nóg með
það, heldur á hann að afhenda
bikarinn að leikslokum, og verð-
ur þar með fyrsti íslendingurinn
sem það gerir. Þess má geta að
Ellert er varaformaður fram-
kvæmdanefndar Evrópukeppn-
innar. Það em ítalska stórliðið
Juventus og Dortmund frá
Þýskalandi sem eigast við. Ju-
ventus sigraði 3: l í fyrri úrslita-
leiknum í Þýskalandi þannig að
telja verður líklegt að EUert
muni afhenda hinum heims-
kunna Roberto Baggio, fyrirliða
ítalska liðsins, bikarinn eftir-
sótta. 9
ÚRSLIT
ÍA-Valur 1:2
Akranesvöllur, Meistarakeppni KSÍ,
fimmtudaginn 13. maí 1993.
Aðstæður: Góður grasvöllur, sól og gott
veður - örlítil gjóla.
Mark ÍA: Þórður Guðjónsson (3.)
Mörk Vals: Sævar Jónsson 2 (53., 72. vspj|
Gult spjald: Sturlaugur Haraldsson (34.)
ÍA, og Baldur Bragason (43.) Val.
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Guðmundur Stefán Maríasson.
ÍA: Kristján Finnbogason — Ólafur Adolfs-
son, Luca Kostic, Brandur Siguijónsson
(Sigurður Jónsson 72.) — Haraldur Hinriks-
son, Sigursteinn Gíslason (Stefán Þór Þórð-
arson 82.), Sigurður Sigursteinsson, Ólafur
Þórðarson, Haraldur Ingólfsson — Þórður
Guðjónsson, Sturlaugur Haraldsson.
Valur: Bjami Sigurðsson — Gunnar Gunn-
arsson, Sævar Jónsson, Hörður Már Magn-
ússon — Jón Grétar Jónsson, Steinar Adolfs-
son, Jón S. Helgason, Ágúst Gylfason, Bald-
ur Bragason — Þórður Birgir Bogason,
Anthony Karl Gregory (Kristján Brooks 46.)
llndankeppni HM
6. RIÐILL
Sofía, Búlgaríu
Búlgaria - ísrael....................2:2
Khristo Stoichkov (35. - vítasp.), Nasko
Sirakov (60.) - Ronen Harazi (52.), Ronnie
Rosenthal (53.). 25.000.
Túrku, Finnlandi:
Finnland - Austurríki................3:1
Mika-Matti Paatelainen, Marko Rajamaki,
Ari Hjelm - Michael Zisser.
Staðan
Frakkland..............6 5 0 1 11: 4 10
Búlgaría...............7 4 1 2 12: 7 9
Svíþjóð................4 3 0 1 7: 3 6
Austurríki.............5 2 0 3 9: 9 4
ísrael................5 0 1 4 5:16 1
Finnland...............5 1 0 4 4: 9 2
ísland - Eistland 91:93
íþróttahús Vals, vináttulandsle:kur í körfu-
knattleik — þriðji leikur, fimmtunagmn 13
mai 1993.
Gangur leiksins: 6:0, 18:1, 15:3, 17:8,
22:10, 25:14, 25:20, 33:33, 42:43, 42:46,
50:61, 54:68, 61:75, 68:78, 74:82, 77:84,
83:84, 85:86, 89:89, 91:91, 91:93.
Stig fslands: Guðmundur Bragason 25, Jón
Arnar Ingvarsson 16, Jón Kr Gtslason 14,
Valur Ingimundarson 8, Magnús Matthías-
son 7, Albert Óskarsson 6, Herbert Amar-
son 5, Guðjón Skúlason 3, Teitur Örlygsson
3, Henning Henningsson 3, Brynjar Harðar-
son 1.
Stig Eistlands: Metstak 25, Kuusmaa 19,
Kullamae 16, Rumma 12, Pekka 9, Sakssk-
ullm 6, Noormets 6.
Dómarar: Jón Otti Jónsson og Jón Bender.
Áhorfendur: Um 100.
FRJALSAR
Víðavangshlaup ís-
lands á sunnudag
Víðavangshlaup íslands fer fram
á Hamarsvelli í Borgarfirði sunnu-
daginn 16. maí og hefst kl. 14.00.
Mæting er við íþróttamiðstöðina í
Borgarnesi þar sem öll gögn varð-
andi hlaupið verða afhent.