Morgunblaðið - 15.05.1993, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1993
25
Full samstaða á
Þj óðminj asafni
ÞJÓÐMINJARÁÐ, sem fer með yfirstjórn Þjóðminjasafns ís-
lands, kom saman til sérstaks fundar í hádeginu fimmtudaginn
13. maí sl., til að ræða frétt á útvarpsstöðinni Bylgjunni degin-
um áður, þar sem staðhæft var að starfsmenn Þjóðminjasafns
væru óánægðir með vinnubrögð þjóðminjavarðar í sambandi við
fyrirhugaða nýbyggingu safnsins á háskólasvæðinu. Á fréttinni
mátti einnig skilja að óeining væri meðal starfsmanna um þau
áform sem uppi eru i húsnæðismálum safnsins.
Fram kom á fundinum að frétt
þessi er tilhæfulaus uppspuni og lýsti
fullskipað þjóðminjaráð einróma yfir
stuðningi við störf Guðmundar
Magnússonar þjóðminjavarðar að
húsnæðis- og byggingarmálum Þjóð-
minjasafns. Lilja Árnadóttir safn-
stjóri sat fund þjóðminjaráðs og bók-
aði að hún styddi ályktun þjóðminj-
aráðs heilshugar.
Starfsmenn Þjóðminjasafns ís-
lands komu saman til almenns fund-
ar síðdegis fimmtudaginn 13. maí
og samþykktu þar samhljóða að vísa
frétt Bylgjunnar á bug og lýstu jafn-
framt yfir fullum stuðningi við álykt-
un þjóðminjaráðs.
(Fréttatilkynning)
Morgunblaðið/Silli
Finnur Kristjánsson við bréfasafn Helga Benediktssonar.
Safnahúsið hefur
margt að geyma
Húsavík.
SAFNI - blað Safnahússins á Húsavík er nú nýútkomið í 13.
sinn en það hefur að geyma upplýsingar um starf og þróun
safnamála í Þingeyjarsýslu á liðnu ári og er þar margt fróð-
legt að finna.
Safnahúsið á Húsavík og byggða-
safnið að Grenjaðarstað eru undir
sömu stjóm. Byggðasafnsmunir eru
996 að Grenjaðarstað og 1106 í
Safnahúsinu á Húsavík og alls eru
í söfnunum 2100 skráðir munir og
fér þeim árlega-fjölgandi. Húsavíkur-
safnið hefur og að geyma náttúru-
gripasafn með mörgum íslenskum
fuglum, nokkur uppstoppuð dýr og
þar á meðal hinn þjóðþekkta ísbjörn,
sem drepinn var í Grímsey 1969.
Einnig merk steina- og plötusöfn.
Skjalasafnið hefur margt merkra
skjala að geyma, má þar meðal ann-
ars nefna bréfasafn Helga Bene-
diktssonar frá Vestmannaeyjum
(hann var uppalinn á Húsavík til
tvítugs aidurs) en það eru 2.569 bréf.
Einnig bréfasafn Theodórs Gunn-
laugssonar frá Bjarmalandi, sem tel-
ur 7.500 bréf. Málverkasafn með
rúmlega 200 listaverkum og þar á
meðal mjög merkar myndir eftir
Arngrím Gíslason málara, en fá verk
eru til eftir hann í landinu. Ljós-
myndasafn með 4.400 ljósmyndum
og 8.400 ljósmyndafilmur teknar um
og eftir aldamótin af Eiríki Þorbergs-
syni og síðan Sign'ði Ingvarsdóttur.
5 byggingu er hús, sem á að hýsa
sjóminjar, sein safnið hefur þegar
eignast nokkuð af og þar á meðal
gamla báta og er mikill áhugi fyrir
að þeirri byggingu geti lokið sem
fyrst, en til þess skortir enn fé.
I gestabók á Grenjaðarstað skrif-
uðu 3.525 og á Húsavík 3.737. Það
sem eftirtektarvert er við það að
skoða gestabækumar er að í safninu
á Grenjaðarstað eru flestir gestanna
á vegum ferðaskrifstofa en á Húsa-
vík mikill meirihluti einstaklinga,
sem áhuga hefur fyrir því sem þar
er að sjá, en ferðaskrifstofurnar virð-
ast ekki hafa mikinn áhuga á því
að sýna söfnin á Húsavík.
Góðar gjafir
Safninu hlotnuðust ýmsar góðar
gjafir. Þar var stærst dánargjöf Sig-
ríðar Víðis Jónsdóttur 3,4 millj. kr.
Áður hafði hún og maður hennar
Jóhann Skaptason sýslumaður, gefið
safninu stærri fjárhæðir, en Jóhann
var frumkvöðull byggingu Safna-
hússina á Húsavík, og óvíst er að
það hefði verið risið, nema fyrir hans
áhuga og framtak.
Það hefur farið í vöxt að haldn-
ar séu sýningar og tónleikar í
Safnahúsinu og á síðasta ári voru
þar 4 málverkasýningar og 6 tón-
leikar.
Finnur Kristjánsson, sem hafði
verið forstöðumaður Safnahússins á
Húsavík í 13 ár lét af því starfi 1.
ágúst sl. en við tók Guðni Halldórs-
son en umsjón með byggðasafninu á
Grenjaðarstað hafði maddaman Mar-
grét Bóasdóttir þar til hún fluttist
að Skálholti sl. haust. Formaður
safnstjómar er Halldór Kristinsson,
sýslumaður. . Fréttaritari.
Morgunblaðið/Júlíus
Þj ónustudeildin
STARFSMENN þjónustudeildar Globus hf. og Slysavarnafélagsins.
F.v.: Þórarinn Guðnason, Karl Viðar Pálsson og Skúli Hjaltason.
Atak gegn slys-
um í landbúnaði
ÁTAK stendur nú yfir til að fækka slysum í landbúnaði og
stendur Slysavarnafélag íslands að því í samvinnu við Globus
hf. Mörg alvarleg slys hafa orðið vegna lélegra drifskafts-
hlífa og könnun sem gerð var sýndi að ástand drifskaftshlífa
væri almennt lélegt. Var því ákveðið að aðstoða bændur við
að koma þessum málum í lag.
Átakið hófst síðastliðið sumar og
var þá farið á yfir 350 bæi og bænd-
um boðnar öryggishlífar til kaups
en öll vinna við að setja hlífarnar á
var ókeypis. Kom í ljós að margir
bændur eru í vandræðum með að
fá rétta gerð af öryggishlífum á
tæki sín.
Hlífar á öll drifsköft
Á þessu sumri halda Slysavama-
félag íslands og Globus áfram með
átakið og verður bytjað við Höfn í
Hornafirði og haldið vestur að Mýr-
dalssandi. Að því loknu verður farið
til Raufarhafnar og haldið vestur
eftir Norðurlandinu. Mismikil vinna
er á hveijum bæ og getur þjónustu-
deildin því ekki sagt fyrir um hvar
hún verður stödd á hveijum tíma.
Em bændur hvattir til að bíða ekki
eftir heimsókn heldur koma hlífum
á öll drifsköft, því slysin gera ekki
boð á undan sér. Ef upplýsingar
skortir geta bændur haft samband
við þjónustudeildina eða varahluta-
deild Globus.
Reykhólahreppur
Sjaldan
jafnmikið
um tófur
o g minka
Miðhúsum.
í STUTTU samtali við Samú-
el Sakaríasson, bónda í
Djúpadal í Gufudalssveit,
sagði hann að óvenju mikið__
væri um tófur og minka þar
um slóðir og hefði hann og
sonur hans, Leifur, sjaldan
séð eins mikið af tofuförum
og í haust.
í vetur og vor eru þeir feðgar
búnir að veiða 16 tófur og 12 minka
sem er óvenju mikið.
Eftir því sem byggð stijálast þá
eiga þessi dýr auðveldara með að
koma upp afkvæinum sínum og á
vetrum er ijúpan aðalfæða refsins
og silungur minksins. Hins vegar
þarf refurinn mikið að éta eftir að
tófan hefur grenjað sig og munn-
arnir fleiri að metta. Þá er ekkert
kvikt óhult sem hann ræður við^
Um þennan tíma er karlminkurinn
hinn mesti skaðvaldur því að hann
drepur sér til ánægju og hvar sem
leið hans liggur er blóðslóð eftir
hann.
Æðarfuglinn er byijaður varp
hér og örnum fjölgar og við minka-
leit í kringum Reykhóla sagði Tóm-
as Sigurgeirsson, bóndi Mávatúni,
að einum karlminki hefði verið náð
og mikið er um sílamáf en hann
er tiltölulega nýr landnemi hér.
• - Sveinn. .
Nýr formaður kjörinn ^
í Reykjavíkurdeild RKÍ
AÐALFUNDUR Reykjavíkurdeildar Rauða kross íslands var
haldinn 5. maí sl. Arinbjörn Kolbeinsson, sem verið hefur
formaður deildarinnar síðan 1979, gaf ekki kost á sér til
endurkjörs. í hans stað var Þór Halldórsson kosinn formað-
ur. Aðalsljórn deildarinnar skipa auk formanns: Jóna Han-
sen, Logi Guðbrandsson, Ólafur Öm Haraldsson og Torben
Friðriksson, Sigurveig H. Sigurðardóttir, Guðrún Ólafsdóttir
frá Kvennadeild og Gísli Jökull Gíslason frá Ungmennadeild.
Haldin voru 10 barnfóstrunám-
skeið fyrir aldurshópinn 11 til 14
ára. 45 námskeið í skyndihjálp, 5
námskeið á „móttöku þyrlu á slys-
stað“' og 4 námskeið í „áfalla- og
stórslysahjálp".
Deildin tekur á móti notuðum
fötum allt árið, flokkar þau og
pakkar. Nokkuð af þessum fötum
er úthlutað hér á Iandi, en Iang
mestur hluti þeirra fer til útlanda.
Deildin er með frystan mat í pökk-
um, sem hún sendir til eldra fólks
eftir pöntun. Maturinn er sendur
út einu sinni í viku. Reykjavíkur-
deildin tekur þátt í rekstri Rauða-
krosshússins ásamt öðrum deildum
innan Rauða kross íslands.
Deildin rekur tvær dagvistar-
stofnanir fyrir aldraða í samvinnu
við SÍBS og Samtök aldraðra þ.e.
Múlabæ og Hlíðarbæ. Fjöldi ein-
staklinga í Múlabæ á starfsárinu
var 1.340 með 11.038 dagvistar-
daga, en í Hlíðarbæ voru 247 ein-
staklingar með 4.381 dagvistardag.
Biðlistar fyrir dvöl á þessum heimil-
um eru langir og er hver dvalargest-
ur aðeins 2-3 daga í viku á heimil-
inu. Reykjavíkurdeildin er því að
undirbúa stofnun nýs heimilis fyrir
Alzheimer-sjúklinga.
Viðamesta starfsemi Reykjavík-
urdeildar RKÍ eru sjúkraflutningar
í Reykjavík og nágrenni, þ.e.
Kópavogi, á Seltjarnamesi, í Mos-
fellsbæ og á Kjalarnesi. Deildin á
nú 6 sjúkrabíla, vel búna tækjum,
og einnig sér deildin um rekstur á
sjúkrabíl Rauðakrossdeildar Kópa-
vogs.
(Fréttatilkynmng)
50,60 og 70 ára ferm-
ingarböm í heimsókn
í Hafnarfjarðarkirkju
SVO sem tíðkast hefur undanfar-
in ár á bænadegi Þjóðkirkjunnar,
sem að þessu sinni er 16. maí,
munu 50, 60 og 70 ára fermingar-
börn heimsækja Hafnarfjarðar-
kirkju.
Að því loknu verður haldið kaffí-
samsæti í Veitingahúsinu Skútunni,
Hraunsholti 3, og fyrri kynni rifjuð
upp.
Þessar samverustundir hafa verið
einkar ánægjulegar og blessunar-
ríkar og þess er að vænta að svo
verði einnig nú.
Gunnþór Ingason sóknarprestur
Ríkfi -m -n i -n TTtii’i nn
Síbasti jpöntunardagur Macintosh-
töivubunabar meb verulegum afslætti er
Innkaupastofnun ríkisins
Borgartúni 7, Rvk. Sími: 91-26844