Morgunblaðið - 15.05.1993, Blaðsíða 41
L
I-
j
i
I
I
I
J
J
I
I
I
I
I
I
\
MORGUNBLAÐIÐ LAÚGARDÁGUR 15. MAÍ 1993
Opið bréf tU Morgunblaðsins
Frá Bengt Forslund:
Ýmsir hafa vakið athygli mína á
bréfí Hrafns Gunnlaugssonar til
menntamálaráðuneytisins frá októ-
ber 1992, að hluta þýtt og sent frá
menntamálaráðuneytinu til Nor-
ræna kvikmynda- og sjónvarps-
sjóðsins 29. október 1992, og auk
þess grein Hrafns í Morgunblaðinu
29. apríl 1993, og vil ég gjarna
gera eftirfarandi athugasemdir og
leiðréttingar:
Hrafn sendi mér ágrip að hand-
riti, 40 blaðsíður að lengd, 7. febr-
úar 1992, og vildi fá álit mitt með
hraði vegna utanferðar. Handritið
barst mér 14. febrúar og ég svaraði
með faxi 17. febrúar.
Eg var jákvæður gagnvart hug-
myndinni sem slíkri, ?uppgötvun
barns á kynferðislífinu", en mælti
með samþjöppun, ?75 til 80 mínútna
langri kvikmynd. Ef til vill getur
þú þá einnig haldið þér innan tíma-
marka og fjárhagsáætlunar. Orð
það sem af þér fer í þeim efnum
er nú ekki eins og best verður á
kosið. En í listrænu tilliti hef ég trú
á þér og sögunni og vil gjarna vera
með að einhverju leyti [á sænsku:
vill gáma vara med pá ett hörn].
Ef meginhluti sögunnar gerist í
Svíþjóð hefur hún auk þess eðlileg
norræn tengsl."
I mínum augum var það mikil-
vægt sjónarmið að sagan ætti að
gerast að sumu leyti í Svíþjóð. Hug-
myndin að baki norræna sjóðnum
er öðrum þræði skapandi samvinna
þjóðanna í milli. Sé aðeins um pen-
inga að ræða gæti banki allt eins
tekið við minu starfi.
?Att vara med pá ett hörn“ fól
ekki í sér neitt ákveðið loforð af
minni hálfu á þessu frumstigi máls-
ins, en hið rammsænska orðatiltæki
er hægt að rangtúlka. ?Pá ett hörn“
þýðir þó ekki meira en ?a little bit“
(að litlu ieyti) og ljóst er að ég mun
aldrei framar nota þetta orðalag.
Framvegis þori ég varla að bregðast
jákvætt við. Hvað sem öðru líður
hef ég svo'sannarlega lært í þessu
starfi að rétti maður einhverjum
fingurinn, þá tekur hann allan hand-
legginn (ef nú þetta orðatiltæki er
til á íslensku).
Hvernig sem á það er litið var
bréf Hrafns ekki umsókn. Hún barst
fyrst 30. mars frá framleiðanda
Hrafns, Bo Jonsson. Þá fyrst fékk
ég einnig fjárhagsáætlun, sem ork-
aði tvímælis. Kvikmyndasjóður ís-
lands ábyrgðist aðeins 2 af 8 millj-
ónum. Ekkert handrit fékk ég að
heldur.
I vikunni áður, þann 23. mars,
höfðu Hrafn og Bo Jonsson hitt mig
á skrifstofunni. Hrafn, sem gjama
lítur á sig sem Ingmar Bergman
íslands, taldi sjálfgefið að verkefni
hans hlyti styrk. Hann vildi ekki
hlusta á neinar efasemdir og í aðal-
atriðum var ég vissulega jákvæður
gagnvart hugmyndinni.
30. mars sendi ég stutta álitsgerð
til stjórnarinnar um 14 umsækjend-
ur sem kæmu til álita. Ég benti
sérstaklega á að mér hefði enn ekki
borist handrit að verkefni Hrafns.
Á fundinum þann 6. apríl var
ákvörðun um verkefnið skotið á
frest. Næsti fundur var ákveðinn
26. maí.
Það var ekki fyrr en á Cannes-
hátíðinni um miðjan maí sem ég
fékk nýja handritið hjá Hrafni.
Ég las handritið í Cannes og varð
fyrir vonbrigðum. Föstudaginn 22.
maí kom ég aftur til Stokkhólms
og mánudaginn þann 25. faxaði ég
tveggja siðna langt bréf til Hrafns
og Bo Jonssons með gagnrýnum
athugasemdum mínum. Eg lauk
bréfínu með þessum línum:
?Hvað mig snertir stendur um-
fram allt eftir mikið traust til Hrafns
sem leikstjóra og Bosse [Bo Jons-
son] sem framleiðanda en það má
skollinn vita hvort það nægir með
þetta handrit í höndunum. Hefur
ekki orðið dálítið of mikil fljóta-
skrift á endasprettinum? Báðir eruð
þið færir byggingameistarar, en ég
held að þið hafið valið allt of ótraust
byggingarefni að þessu sinni.-
Við skulum sjá hvað stjórnin seg-
ir á morgun. Ingrid Dahlberg (TVl)
hefur lofað að koma og veita stuðn-
ing.“
Á stjórnarfundinum gaf ég vita-
skuld til kynna að ég væri ekki hrif-
inn af því handriti, sem ég fékk að
lokum til lestrar, og úr því að stjórn-
in ákvað (gegn mínum vilja) að kjósa
eitt verkefni frá hveiju landi var í
staðinn ákveðið að taka Karlakórinn
Heklu fram yfir, sem átti að hefja
tökur á 15. júní og var þess vegna
það íslenska verkefni sem mest reið
á, eins og það kom mér fyrir sjónir.
Þessi var niðurstaðan þó að ég hefði
einnig haft efasemdir um þetta
verkefni, m.a. vegna þess að mér
þótti sænska atriðið of ?utan á
hengt“ til þess að gera kvikmyndina
norræna.
Ég fékk engin viðbrögð hvorki
við bréfi mínu né ákvörðun stjórnar-
innar. Það var ekki fyrr en í ágúst,
sem ég frétti á skotspónum, að ráð-
ist hefði verið í gerð kvikmyndarinn-
ar. 15. september skrifar Bo Jons-
son að þeir séu i ijárhagslegum
vandræðum og muni ?enn einu sinni
skírskota til velvildar sjóðsins! Sjálf
umsóknin mun koma frá Hrafni.“
Það gerði hún ekki. Þess í stað
bárust hin alræmdu tilskrif frá
menntamálaráðuneytinu, sem voru
þó ekki send mér og sjóðnum heldur
eingöngu formanni stjórnarinnar,
sem flutti efni þeirra munnlega á
stjórnarfundinum 16. desember.
Það er ekki ofsagt að bréfíð hafi
vakið athygli, en stjórnin reyndi að
líta fram hjá því og ræða í staðinn
hvort ég hefði lofað einhveiju eða
ekki. Ákvörðunin varð að veita kvik-
myndinni 1 milljón af 2,1 milljón,
sem farið var fram á.
Eftir þetta faxaði ég þessar línur
til Hrafns:
?Já, svei mér þá ... þú fékkst
eina milljón, þess virði þótti stjórn-
inni það ?horn“ vera, sem iofað var
í febrúar.
Þessi þama misbeiting ráðherra-
valds féll heldur ekki í góðan jarð-
veg . . . og þér bætast sennilega
ekki fleiri vinir úr stétt starfsfélaga
þinna, leikstjóra, á íslandi. Allir
fengu neitun fímm kvikmyndir í
fullri lengd! eftir að þú fékkst þitt.
En ég vona að þú komir mér á óvart
með verulega góðri kvikmynd. Eng-
inn yrði fegnari en ég ef ég hef
haft á röngu að standa við matið á
handritinu."
Nú virðist sem kvikmyndin muni
koma þægilega á óvart eftir að
Hrafn fór eftir ráðgjöfinni um að
stytta hana í þá lengd, sem ég í
upphafi lagði til. En sérlega norræn
er hún ekki.
Eftir þessa greinargerð mína
ætti að vera augljóst að ásakanir
Hrafns um að ?sjóðurinn hafí farið
úr böndunum", að ég hafi gefið lof-
orð ?langt umfram getu sjóðsins“,
að ?enginn hafi farið fieiri hringi í
þessu máli en Bengt“ og að ég hafi
?lent í margfaldri mótsögn við sjálf-
an mig“, séu nákvæmleg sú lygi sem
þær í raun og veru eru.
Ég hef á hveiju stigi málsins
gefið skjót og ótvíræð svör með hlið-
sjón af þeim gögnum sem mér hafa
verið fengin. Þegar grundvallar-
gögnin tóku breytingum breyttust
vitaskuld svörin. Svo einfalt er það.
BENGT FORSLUND
framkvæmdastjóri Norræna kvik-
mynda- og sjónvarpssjóðsins,
Pennavinir
Fimmtugur bandarískur karl-
maður, tekur fram að hann sé hvít-
ur á hörund, vill eignast íslenska
pennavini:
Bob Weick,
2740 Cropsey Ave.,
brooklyn,
New York 11214,
U.S.A.
Frá Ghana skrifar 23 ára stúlka
með áhuga á bréfaskriftum, dansi,
o.fl.:
Nancy Okwan,
c/o Mr. Akuko YAwson,
P.O. Box 908,
Oguaa State,
Ghana.
Frá Póllandi skrifar 21 árs há-
skólanemi sem getur ekki áhuga-
mála en kveðst ólmur vilja eignast
islenska pennavini:
Grzegorz Suszko,
Pl-16-031 Ogrodniczki 79,
Woj. Bialystok,
Poland.
LEIÐRÉTTIN G AR
Ekki gefins
í frétt af götukörfubolta sem birtist
í Morgunblaðinu 13. maí segir að
allir þátttakendur í Krabbameins-
hlaupinu fái T-boli frá Sportmönn-
um og má skilja að þeir séu gefins.
Hið rétta að það er Krabbameinsfé-
Iagið sem útdeilir bolunum til hlaup-
aranna enda er andvirði þeirra inni-
falið í þátttökugjaldi. Því má bæta
við að Sportmenn, Adidasumboðið,
er helsti styrkaraðili hlaupsins
ásamt Tóbaksvarnarnefnd og Al-
þjóðalíftryggingarfélaginu.
VELVAKANDI
ÓSMEKKLEGT
FRÉTTAEFNI
ÓSK hringdi til Velvakanda
vegna þess hún var ekki ánægð
með þær dýralífsmyndir sem
birtar hafa verið bæði í blöðum
og sjónvarpi sl. daga. Henni
finnst ósiðlegt og ekki viðeigandi
að sýna hross eðla sig, það væri
alveg nóg að sýna bara myndir
af lömbum og folöldum. Hún
segist ekki ein um þessa skoðun
og vonar að fleiri láti í sér heyra
um þetta mál.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Veski tapaðist
SVÖRT YSL-taska hvarf úr
verslun í miðbænum sl. þriðju-
dag. í töskunni voru seðlaveski
með skilríkjum og gullhringur
sem hefur tilfinningalegt gildi
fyrir eigandann. Ef einhver getur
gefið upplýsingar um töskuna er
hann vinsamlega beðinn að
hringja í síma 623275. Fundar-
laun.
Úlpujakki tapaðist
DÖKKBLÁR úlpujakki með
röndóttu fóðri og stóru merki á
bakinu tapaðist í Seljaskóla eða
á íþróttavellinum þar hjá nýlega.
Hafi einhver orðið jakkans var
er hann vinsamlega beðinn að
hafa samband í síma 76927 eftir
kl. 18.
Hringur fannst
SILFURHRINGUR með svörtum
steini fannst 2. í páskum. Upplýs-
ingar í síma 32617.
GÆLUDÝR
Kettlingar
TVEIR gulbröndóttir kettlingar
(dökkur og Ijós), 8 vikna gamlir,
fallegir, þrifalegir og kassavanir
óska eftir góðu heimili. Upplýs-
ingar í síma 77688.
Nýkomið
Smart sumarjakkar og kápur
með og án hettu.
Fjölbreytt úrval.
Verð frá kr. 7.900 — 17.900.
Alltaf eitthvað nýtt á
tilboðsslánni.
Opið laugardaga til kl. 16.
V?(,HI45IÐ
Laugavegi 21, sími 25580.
Stúdenta-
blónt
Stúdenta-
gjofir
4ÍLÚM 8ÁVEXTIR
HAFNARSTRÆTI 4, SÍMAR 12717 og 23317
ÞA VEISTU SVARIÐ.
FAÐU PIZZU SENDA HEIM
Láttu senda þér pizzu frá Pizza Hut og þú missir
ekki mínútu úr söngvakeppninni.
Viö sendum þér ilmandi og ljúffenga pizzuna heim.
Vib lijóiSum fjölskyldupizzur fyrir 4—6, sem henta
vel í samkvæmið. Muniö Pizzupariö.
COTT FÓLK/SlA.