Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1993
Morgunblaðið/Þorkell
Ferlíki
TÓMAS Skúlason með urriðan stóra, en svo miklir bolar eru
sárasjaldgæfir í vatninu. Og raunar þótt víðar væri leitað.
Veiddi
risaurr-
iða í Ell-
iðavatni
„ÉG ÁTTAÐI mig í fyrstu ekki
á því hve stór fiskurinn var.
Ég dró hann bara upp að, en
sá þá hvað um var að vera og
hægði á mér. Fór að vanda
mig. Hann var erfiður, en samt
kannski ekki mjög miðað við
hversu stór hann var,“ sagði
Tómas Skúlason, 16 ára gamall
stangaveiðimaður sem veiddi
rúmlega 12 punda urriða í Ell-
iðavatni á laugardaginn. Fisk-
urinn tók maðk sem Tómas
notaði með sökku.
Tómas sagði að hann hefði ver-
ið við stífluna. „Ég er þar alltaf,
það er góður staður. Ég fékk til
dæmis 18 bleikjur þar fyrir stuttu.
Yfírleitt veiði ég á fluguna og það
var bara tilviljun að ég var að
bauka með maðk þarna í þetta
skipti. Eiginlega bara til að sjá
hvað myndi gerast.
Veiði hefur verið að glæðast í
Elliðavatni að undanförnu og
munar þar mest um að bleikjan
er nokkuð farin að gefa sig. Auk
18 físka sem Tómas veiddi hefur
Morgunblaðið fregnað af mönnum
sem hafa verið að fá upp í 24
bleikjur á stuttum tíma. Undan-
tekningalaust eru slík „skot“ tek-
in á flugu.
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00
Heimíld: Veöurstofa íslands
(Byggl á veöurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 18. MAÍ
YFIRLIT: Um 400 km suður af Hornafiröi er minnkandi 995 mb lægð,
en yfir írlandi er 983 mb vaxandi lægð sem hreyfist norðnorðvestur.
1030 mb hæð er yfir N-Grænlandi og hjaðnar hún heidur.
SPÁ: Áframhaldandi norðaustanátt, víða stinningskaldi. Slydduél um
landið norðanvert, en þurrt og nokkuð bjart syðra. Síðdegis herðir aftur
vind og austanlands fer að rigna. Veður fer hægt hlýnandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Allhvöss austan- og suðaustanátt á landinu.
Rigning um austanvert landið en úrkomulaust eða úrkomulítið annars
staðar. Hiti 6 til 7 stig.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Fremur hæg suðaustan- og austanátt, lítils
háttar súld eða rigning austanlands en víða bjartviðri í öðrum landshlut-
um. Hiti 5 til 6 stig.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Sunnan- og suðaustangola, skýjað um sunnan-
vert landið, en bjartviðri annars staðar. Hiti 2 til 4 stig.
Nýir vefturfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsimi Vefturstofu íslands — Vefturfregnir: 990600.
o o -o Uk Sunnan, 4 vindstig. Vindðrin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk,
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig..
/ / / * / * * * * • .?7 * 10° Hitastig
f f f f f * / / * f * * * * * V V V V Súld J
Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El = Þoka '
—
FÆRÐA VEGUM:
(Kl. 17.30 ígaer)
Greiöfært er á vegum í nágrenni Reykjavíkur, og góð færð um Suður-
land. Á Austurlandi er ófært um Breiðdalsheiðí, Vopnafjarðarheiði og
Möðrudalsöræfi og talsverð hálka er á heiðum og fjailvegum. Á Vestur-
landi er víðast fært en hálka er á Fróðárheiði. Á Vestfjörðum eru vegir
víðast færir en hálka á heiðum. Greiðfært er um Norðurland en á Norð-
Austurlandi er talsverð hálka en vegir víðast færir.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænnilfnu 99-6315. Vegagerftin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 1 snjóél
Reykjavfk 6 skýjað
Bergen 11 rignlng
Helslnki 20 léttskýjað
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Narssarssuaq 4 léttskýjað
Nuuk 3 alskýjað
Osló 16 skýjað
Stokkhólmur 19 léttskýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Algarve 19 þokumóða
Amsterdam 22 hélfskýjað
Barcelona 19 skýjað
Berlín 20 léttskýjað
Chicago 9 léttskýjað
Feneyjar 24 heiðskírt
Frankfurt 22 léttskýjað
Glasgow 16 rigning
Hamborg 21 heiðskírt
London 19 rigning
LosAngeles 17 alskýjað
Lúxemborg 20 léttskýjað
Madríd 23 skýjað
Malaga 22 skýjað
Mallorca 25 skýjað
Montreal 8 léttskýjað
NewYork 13 léttskýjáð
Orlando 20 þokumóða
Parls 23- skýjað
18
Madelra 20 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Vln 21 léttskýjað
Washington 16 léttskýjað
Winnlpeg 5 úrkoma
Flug til Hamborgar tvisvar á dag í sumar
Daglegur aðgangur
að flugi til og frá
landinu 1 fyrsta sinn
UM næstu niánaðamót
munu Flugleiðir hefja
flug til Hamborgar,
með millilendingu í
Kaupmannahöfn,
tvisvar á dag alla daga
vikunnar utan sunnu-
daga er ein ferð verð-
ur. Einar Sigurðsson
blaðafulltrúi Flugleiða
segir að með þessu
fyrirkomulagi eigi farþegar í
fyrsta sinn aðgang að daglegu
flugi til og frá landinu bæði
fyrir og eftir hádegi. Flug þetta
hefst 1. júní.
Samhliða þessu byrja Flugleiðir
að flytja farþega milli Kaup-
mannahafnar og Hamborgar í
samræmi við ftjálslegri flugmála-
reglur í Evrópu. Að sögn Einars
er þetta gert í samvinnu við SAS
sem flogið hefur á þessari leið fjór-
um sinnum á dag. SAS dregur úr
sínum ferðum um helming eftir
að Flugleiðir byija á þessari leið
og segir Einar að þegar liggi fyrir
nokkur þúsund pantanir um ferðir.
Fjölgar möguleikum í
framhaldsflugi
Með aukinni tíðni í flugi til
Kaupmannahafnar fjölgar mögu-
leikum á framhaldsflugi og biðtími
styttist verulega. Einar segir að
jafnframt muni samstarfið við
SAS tryggja að fargjöld í fram-
haldsflugi verði hagstæð.
Hvað varðar flugið til Þýska-
lands má geta að í hverri viku eru
rúmlega 500 flug frá Hamborg til
annarra viðkomustaða í Þýska-
landi. Flugleiðir hafa flogið til
Frankfurt á sumrin og mun það
flug halda sér.
Staða Seðlabanka-
stjói-a verður auglýst
BANKARÁÐ Seðlabankans samþykkti samhljóða á fundi sinum í
gær að auglýsa í dag eftir umsóknum um stöðu bankastjóra við
bankann frá 1. júlí en Jóhannes Nordal Seðlabankasljóri lætur þá
af störfum við bankann. Er þetta í fyrsta skipti í sögu Seðlabank-
ans sem auglýst er eftir umsóknum um stöður bankastjóra, að
sögn Ágústs Éinarssonar, formanns bankaráðs.
Samkvæmt lögum um Seðla-
bankann skipar ráðherra í stöðu
bankastjóra að fengnum tillögum
bankaráðs. Umsóknarfrestur er til
15-Júní.
Ágúst sagði að ástæða þess að
ákveðið var að auglýsa banka-
stjórastöðuna með þessum hætti
væri sú að bankaráðið teldi að
þetta væru faglegri vinnubrögð en
áður hefðu tíðkast og í anda þess
frumvarps um Seðlabánkann sem
var til umfjöllunar á Alþingi sl.
vetur. „Við teljum að til þess að
við getum gert okkar tillögugerð
sem best úr garði sé eðlilegast að
gefa öllum tækifæri til að sækja
um þessa stöðu,“ sagði hann.
Enginn greinarmunur gerður
á umsóknum
Nokkrar umræður hafa verið um
það að undanförnu að Jón Sigurðs-
son viðskiptaráðherra kynni að
hafa áhuga á að hverfa úr ríkis-
stjóminni til að taka við stöðu
Seðlabankastjóra. Ágúst sagði að
sér væri ekki kunnugt um hvort
Jón myndi sækja um þessa stöðu
en ef hann gerði það yrði farið
með umsókn hans með nákvæm-
lega sama hætti og aðrar umsókn-
ir og engin greinarmunur gerður
þar á.
Fingur græddur á unga konu
Allar líkur á að hún
haldi fingrinum
IJNGA konan, sem missti tvo fingur í karfaflökunarvél á
Seyðisfirði fyrir tveimur vikum, hefur verið útskrifuð af Borg-
arspítalanum og eru allar líkur á að hún haldi öðrum fingrin-
um og geti notað hann í framtíðinni að sögn Magnúsar Páls
Albertssonar læknis. Hann gerði ásamt öðrum lækni, Rögn-
valdi Þorleifssyni, tvær aðgerðir til bjargar fingrinum.
Konan festist í karfaflökunar-
vél með þeim afleiðingum að hún
missti tvo fingur og skaddaði
aðra tvo. Hún var flutt á Borgar-
spítala og þess freistað að græða
á hana annan fingurinn í sólar-
hrings langri aðgerð en styttri
aðgerð fylgdi í kjölfarið.
Lítur vel út
Magnús sagði að konan, sem
er tvítug, væri útskrifuð af
spítalanum og allt útlit væri fyr-
ir að tekist hefði að bjarga fíngr-
inum. „Þetta lítur eins vel út og
hægt er að ætlast til. Við erum
hætt að vera hrædd um að hann
gefíst upp,“ sagði hann.
Hann sagði að fingurinn yrði
skoðaður um miðja vikuna og
hugsanlega fengi konan að fara
austur eftir það. „Við fylgjumst
hins vegar með hendinni þar til
hún er komin í eins gott ástand
og við búumst við að koma henni
í. Það getur skipt mánuðum en
hún getur að mestu leyti verið
heima og gert æfingar. Hún
kemur svo hér af og til,“ sagði
Magnús.