Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1993 25 Valgeir. Eyþór. Valgeir Guðjóns- son og Eyþór Gunnarsson Samningur við banda- ríska útgáfu Tónlistarmennirnir Valgeir Guðjónsson og Eyþór Gunnarsson hafa gert samning við bandarísku útgáfuna Windham Hill um út- gáfu á hljómplötu þeirra Gaiu. Samningar um frekari útgáfu eru á lokastigi, en Eyþór segir að aðeins séu þar formsatriði eftir. Valgeir Guðjónsson, sem þekktur er meðal annars fyrir veru sína í Stuðmönnum, aukinheldur sem hann hefur sent frá sér hljómplötur á eig- in spýtur, og Eyþór Gunnarsson, sem helst er kunnur fyrir veru sína í Mezzoforte, gerðu hljómplötuna Gaiu meðal annars af tilefni sigling- ar víkingaskipsins Gaiu vestur um haf. Það var svo Steinar hf. sem gaf plötuna út hér, en Eyþór segir að það sé einmitt fyrir tilstilli Steinars Berg hjá Steinum að þeir félagar hafi komist á samning hjá Windham Hill. Sjö breiðskífur í samningaviðræðum vegna Gaiu kom svo snemma upp hugmyndin að þeir Eyþór og Valgeir gerðu samning til lengri tíma og Eyþór segir að samningar hafi tekist við Windham Hill Um sjö breiðskífur til viðbótar á næstu sjö árum. „Það má segja að það séu aðeins formsatr- iði eftir, við erum búnir að undir- skrifa samningana og senda þá út og eigum bara eftir að fá staðfest- ingu senda hingað,“ sagði Eyþór. Að hans sögn felur samningurinn ekki í sér neitt ríkidæmi fyrir þá félaga þó Windham Hill sé ein virt- asta útgáfa á sínu sviði, en þó að fyrirframgreiðslur auðnuðu þeim að gera góðar plötur, og svo væri bara að sjá til með söluna. -----»"♦.♦---- Blönduós og Húsavík Sótt um að koma á fót sambýlum SÓTT hefur verið um leyfi sam- starfsnefndar um opinberar framkvæmdir til þess að auglýsa eftir húsnæði fyarir sambýli fatl- aðra á Blönduósi og Húsavík. Gert er ráð fyrir að í hvoru sam- býli verði 5-6 vistmenn Vistheim- ilisins Sólborgar á Akureyri og 7 starfs- m<Slurlaugur Tómasson, deildar- stjóri í félagsmálaráðuneytinu, sagði að breytingin væri liður í að fækka á Sólborgu og leggja starfsemina þar smám saman niður. Hann sagði að fyrsta viðleitnin í þessa átt hefði verið þegar 15 af 42 vistmönnum vistheimilisins hefðu fluttst á sam- býli á Akureyri á árinum 1991- 1992. Með stofnun sambýlanna á Blönduósi og á Húsavík væri haldið áfram í sömu átt. Aðspurður sagði Sturlaugur að gert væri ráð fyrir að þeir sem flytt- ust á sambýlin væru úr næsta ná- grenni við þau enda teldist eðlilegt að bjóða upp á slíkan kost. Hann sagði að fólkið væri misjafnlega sjálfbjarga en gæti allt búið á sam- býli þó það þyrfti mismikla þjónustu. Snjó kyngdi niður um norðan- og austanvert landið um helgina Tvísýnt með lerkið á Héraði Einkum hávöxnu trén eru í hættu LERKI var víðast hvar farið að grænka á Héraði áður en óveðurs- kaflinn skall á um helgina, og að sögn Þórunnar Hálfdánardóttur hjá Skógrækt ríkisins á Egilsstöð- um er það nú sumsstaðar farið að gulna og því tvísýnt með hvaða varanleg áhrif veðrið hefur haft á það. Þetta ætti þó fyrst og fremst við um hávaxnari lerkitré, en lág- vaxnar plöntur myndu væntanlega sleppa við skaða þar sem þær væru víða á kafi í snjó. Samfelld snjókoma var á Héraði allt frá laugardagskvöldinu og fram á aðfaranótt mánudagsins, en eftir'hádegið~í gær var farið að birta þar til þó enn gengi á með éljum. Þórunn sagði að að ef ekki frysti meira á næstunni myndu lauftré á svæðinu væntan- lega sleppa við skaða vegna óveð- ursins sem skall á um helgina. Hún sagði að fregnir hefðu borist af því að greinar á tijám í görðum á Norðfirði hefðu verið farnar að brotna í gærmorgun þar sem trén hefðu víða sligast undan snjóþung- anum, en í gærmorgun var þar hnédjúpur snjór. Hún sagði að fólk þar hefði reynt að losa snjóinn af tijánum til að koma í veg fyrir skemmdir, en hann hafi verið blautur og þungur. Skaflar í maí ÞAÐ kyngdi niður snjó á Austurlandi um helgina og svona var um að litast á Egilsstöðum á sunnu- dag. Börnin brugðu hins vegar ekki vananum og nýttu sér þennan „vetrarauka“. Veður batnar ekki að ráði fyrr en undir helgi SPÁÐ ER áframhaldandi norð- austanátt um land allt næstu daga, en veður fer þó hlýnandi og er spáð rigningu og norð- austan hvassviðri á austan- og norðaustanverðu landinu í dag, en vestanlands verður úrkomu- laust að mestu. Samkvæmt upp- lýsingum frá Veðurstofu Is- lands er því búist við að snjóa leysi á láglendi á þeim stöðum þar sem snjó hefur kyngt niður síðustu daga, en snjókoma verður þó eitthvað áfram til fjalla víða austanlands. A föstu- daginn er gert ráð fyrir að ágætis veður verði komið um nánast allt land með hæglætis norðaustanátt og verður hita- stig eitthvað yfir frostmarki. Að sögn Gunnars Hvammdal veðurfræðings á Veðurstofu ís- lands var versta veður á Austur- landi alla helgina, allt frá Horna- firði og vestur með Norðurlandi, og einnig var vonskuveður á Vest- fjörðum. Snjókoma var víða mjög mikil, og þannig mældist úrkoman 30 mm á Dalatanga, en á svæðinu þaðan inn til Egilsstaða og allt norður á Langanes var linnulaus hríð frá aðfaranótt sunnudagsins og stóð hún í rúman sólarhring. í gærmorgun dró hins vegar víðast hvar úr veðrinu. Á Vestfjörðum var veðrið einna verst norðan til, en þar voru víða 6-7 vindstig með snjókomu sem náði allt suður í Dýrafjörð. „Það þarf ekki að fara mjög langt aftur í tímann til að finna svona vorhret, og þess er skemmst að minnast að í fyrra kom slæmt hret í júní þó ekki væri það jafn slæmt og þetta. Eg held því að þetta sé að mestu leyti eðlilegt því við fáum alltaf einhver hret á vor- in, en það er eins og vorið eigi afskaplega erfitt með að komast til okkar, að minnsta kosti til þess að vera,“ sagði Gunnar. Flestir fjallvegir opnir Nánast allir fjallvegir á Aust- fjörðum, Norðausturlandi og á Vestfjörðum lokuðust vegna fann- fergis um helgina, en samkvæmt upplýsingum frá vegaeftirliti Vegagerðar ríkisins var búið að opna flesta þeirra eftir hádegið í gær. Mest varð ófærðin á Vest- fjörðum, en þar voru allar heiðar ófærar um helgina. Þá lokuðust vegir á Norðurlandi, allt frá Öxna- dalsheiði og austur um land allt suður með Austfjörðum. Eftir há- degið í gær var víðast hvar var búið að opna fjallvegi austanlands en þar var þó ennþá víða snjór og hálka á vegum. Vopnafjarðarheiði, Möðrudalsöræfi og Breiðdalsheiði voru hins vegar enn ófær í gær, en að sögn vegaeftirlitsins verður athugað með að opna þessa vegi á morgun ef þörf krefur. Land í Rangárþingi fýk- ur burt í norðanáhlaupi SVEINN Runólfsson landgræðslustjóri segir norðanáhlaupið sem gengið hefur yfir undanfarna daga hafa farið sérstaklega illa með landið í austanverðum Rangárvallahrepp og ofanverðri Landsveit. Landgræðslustjóri sagði það lán í óláni að snjór væri enn yfir liálend- inu svo ekki blési þar jarðvegur burt en í byggð væri ástandið ömur- legt. Það ryki úr öllum jarðvegssárum, smáum og stórum. Þegar Morgunblaðið hafði sam- ástandinu sem ömurlegu; það ryki band við Sveinn Runólfsson land- græðslustjóra í Gunnarsholti í gær hafði ofsaveður verið um nóttina og var mikið moldarmistur í lofti. Runólfur sagði þá landgræðslu- menn þakka sínum sæla fyrir að enn skuli vera snjór yfir hálendinu. Þannig að ekki væri þessi uppblást- ur á hálendinu. Runólfi sýndist uppblásturinn að þessu sinni vera mjög mikinn í aust- anverðum Rangárvallahrepp, í of- anverðri Landsveit væri líka mold- argári og sandfok, einnig væri gíf- urlega mikið sandrok niðri á Lan- deyjasandi. Landgræðslustjóri lýsti úr öllum jarðvegssárum, smáum og stórum, og mikið úr öllum árfarveg- um. Það væri mjög skaðlegt þegar þessi norðan- og norðaustanþræs- ingur kæmi í maí. Gróður ekki kom- inn tfl, oft frostlyfting í jörðu og jarðvegsyfirborðið mjög berskjald- að fyrir rokinu. „Því miður eru miklar gróðurskemmdir í austan- verðum Rangárvallahrepp og efst í Landsveitinni,“ sagði landgræðslu- stjóri. Landgræðslustjóri sagði að þessi svæði hefðu verið illa undir það búin að fá á sig þetta rok núna. Þau svæði hefðu verið í hægri gróð- urframför síðasta ártuginn, þ.e. fram að aftakaveðrinu í febrúar 1991, Það hefði líka rokið mikið af þessu svæði í apríl í fyrra í snjó- lausum vetri. Sveinn Runólfsson sagði að engum ætti að dyljast hvað helst væri til úrbóta. Veðrinu réðum við ekki en hitt væri á okkar valdi að þekja þetta land með varan- legum gróðri; það sem þyrfti væri miklu stærri átök til landgræðslu heldur en hingað til. Sigbjartur Pálsson bóndi í Skarði í Þykkvabæ sagði víða hefði verið búið að plæga og tæta en tiltölulega lítið hefði enn verið sett niður af kartöflum. Nokkuð hefði verið búið að sá höfrum og byggi og það hefði fokið ofan af því. Sigbjartur sagði að moldrokið væri ofboðslegt og vonuðust bændur eftir vætu hið fyrsta. Pálmi Jónsson segist ekki vera að hóta stj órnarslitum varp og breytingartillögur óbreyttar í gegn. Valkostir færu PÁLMI Jónsson þingmaður Sjálfstæðisflokkisins segist ekki vera að hóta stjórnarslitum vegna mótstöðu Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra við breytingartillögur meirihluta landbúnaðarnefn- ar við frumvarp um breytingar á búvörulögum. En það sé ekki hlut- verk sjálfstæðismanna að gefa eftir í þessu máli; ef utanríkisráðherra vilja láta þetta varða stjórnarslitum það sé það hans ákvörðun. Á fundi með eyfirskum bændum Pálmi Jónsson þá lagatúlkun Jóns í Laugarborg síðasta föstudagskvöld var til umræðu frumvarp um breyt- ingar á búvörulögum vegna aðildar Islands að Evrópsku efnahagssvæði og breytingartillögur meirihluta landbúnaðarnefndar sem gera ráð fyrir ótvíræðu forræði landbúnaðar- ráðherra með innflutningi á búvör- um eða vörulíki þessara vara. Á bændafundinum gagnrýndi Baldvins Hannibalssonar utanríkis- ráðherra að EES-samningurinn væri ríkjandi yfir eldri lagasetningu s.s. búvörulögum. Pálmi Jónsson sagði sjálfstæðismenn ekki myndu fara hamskiptum í hinum þýðingarmestu málum og leggja til að búvörulögin yrði afgreidd hið fyrsta á haust- þingi. „Og ef utanríkisráðherra kýs að haga málum svo mun ég ekki hirða hvort hann situr lengur eða skemur í sínu embætti,“ sagði Pálmi Jónsson. 1 samtali við Morgunblaðið í gær sagðist Pálmi ekki vera að hóta stjórnarslitum en það hefði hins veg- ar utanríkisráðherrann gert. Hann hefði látið að því liggja að það hrikti í stjórnarsamstarfinu. „Og það er hans mál ef hann kýs að slíta stjórn- arsamstarfinu út af svona máli þeg- ar það verður afgreitt. Eg læt það ekki hafa áhrif á mig.“ Pálmi taldi það ekki vera hlutverk sitt eða ann- arra sjálfstæðismanna að gefa eftir fyrir hótunum utanríkisráðherra og sagðist hvetja til þess að þetta frum- Pálmi Jónsson sagðist vænta þess að Halldór Blöndal landbúnaðarráð- herra myndi leita lags við til að fá málið flutt að nýju sem stjórn- arfrumvarp. Ef það tækist ekki hefði landbúnaðrráðherra um tvær leiðir að velja. Að flytja frumvarpið sjálfur eða biðja landbúnaðarnefnd Alþingis að flytja málið í haust. „Þá er frum- varpið ekki stjórnarfrumvarp og þarf því ekki að ráða neinu um af- sögn einhvers ráðherra þó það yrði samþykkt með einhveijum mótat- kvæðum úr ríkisstjórninni. Jón Bald- vin hefur talað um að það hafi hrikt í stjórnarsamstarfinu út af þessu máli: Ef Jón Baldvin kýs að láta það ráða stjórnarslitum þá mun ég ekki hirða um það hvort hann situr leng- ur eða skemur i embætti.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.