Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1993
Hundruð
falla í Kabúl
ALÞJ ÓÐ ANEFND Rauða
krossins áætlar að 600 manns
hafi beðið bana og þúsundir
manna særst í bardögum í
Kabúl milli afganska stjórnar-
hersins og liðsmanna skæru-
liðaleiðtogans Gulbuddins Hek-
matyars frá því á miðvikudag.
Óvænt úrslit í
Austurríki
HÆGRIMENN í Þjóðarflokkn-
um í Austurríki misstu meiri-
hluta sinn á þingi Neðra Aust-
urríkis í kosningum á sunnu-
dag. Þetta er í fyrsta sinn frá
árinu 1945 sem flokkurinn hef-
ur ekki meirihluta á þinginu.
Frjálslyndur vettvangur, klofn-
ingsflokkur frá Frelsisflokkn-
um, sem telst lengst til hægri,
kom á óvart með því að tryggja
sér fyrstu þingsæti sín á þing-
inu.
Móðir Teresa
þjáist
MÓÐIR Ter-
esa er nú á
sjúkrahúsi í
Róm eftir að
hafa hrasað
og brotið þijú
rifbein. Tals-
maður sjúkra-
hússins sagði
að hún væri að jafna sig en liði
„talsverðar kvalir".
Verkfallslok í
Saxlandi
BÚIST var við í gær að verka-
menn í stálfyrirtækjum í Sax-
landi myndu samþykkja að
binda enda á tveggja vikna
verkfall sitt en samningavið-
ræður í öðrum fylkjum í austur-
hluta Þýskalands sigldu f
strand.
Sjö myrtir í
hefndarskyni
TVEIR menn réðust með
skammbyssum inn í nætur-
klúbb í Fresno í Kaliforníu að-
faranótt sunnudags og skutu
sjö eigendur og starfsmenn
klúbbsins til bana. Mönnunum
hafði verið kastað út af staðn-
um kvöldið áður.
Njósnarar
innan NATO
handteknir?
ÞÝSKA tímaritið Spiegel skýrði
frá því á laugardag að verið
væri að undirbúa handtöku
embættismanna innan Atlants-
hafsbandalagsins, sem hefðu
njósnað fyrir kommúnistastjórn-
ina í Austur-Þýskalandi. Tíma-
ritið sagði að verið væri að af-
hjúpa njósnahring, sem nefndur
hefur verið „Topaz“ og talinn
er hafa veitt Austur-Þjóðverjum
upplýsingar um hersveitir og
vopn bandalagsins, svo og lang-
tímaáætlanir þess.
Friðaráætlun-
in „ófram-
kvæmanleg“
TENGIZ Kitovani, fyrrverandi
varnarmálaráðherra Georgíu,
sagði í gær að áætlun Borísar
Jeltsíns Rússlandsforseta og
Edúards Shevardnadze, leið-
toga Georgíu, um um frið í
Abkhazíu-héraði væri algjör-
lega óframkvæmanleg, én sam-
kvæmt henni á vopnahlé að
taka þar gildi á fimmtudag.
Leiðtogi aðskilnaðarsinna í
Abkhazíu tók áætluninni einnig
fálega.
Móðir syrgir serbneskan hermann
Reuter
SERBNESK kona í Bosníu syrgir son sinn og þrýst-
ir höfuðkúpu hans að sér. Múslimskir hermenn drápu
son konunnar í fyrra nálægt Srebrenica í austur-
hluta landsins. Bein hans og 20 félaga hans fundust
í grennd við borgina nýlega. Mennirnir höfðu allir
verið grafnir í sömu gröf.
Spillingarmál stjórnmálamanna og fyrirtækja á Italíu
Olivetti greiddi 430
milljónir kr. í mútur
Benedetti segir stjórnmálamennina
hafa haldið efnahagslífinu í „gíslingu“
Róm. Reuter.
CARLO De Benedetti, forseti Olivetti-tölvufyrirtækisins og einn
kunnasti kaupsýslumaður á Ítalíu, viðurkenndi á sunnudag, að
fyrirtækið hefði fengið opinbera verksamninga með því að múta
stjómmálamönnum. Sagði hann, að ekki hefði verið um annan
kost að ræða og sakaði ítalska stjórnmálamenn um að hafa hald-
ið öllu efnahagslifinu í Iandinu í gislingu í langan tíma.
„Ég gafst upp fyrir þrýstingn-
um þegar ég var orðinn viss um,
að um líf eða dauða væri að tefla
fyrir fyrirtækið, fyrir atvinnu tug-
þúsunda manna og fyrir hluthaf-
ana,“ sagði Benedetti og bætti
við, að á fjórum árum hefði Oli-
vetti greitt nærri 430 millj. kr. í
mútur vegna samninga við póst-
þjónustuna.
„Beittu valdi sínu til að þjóna
lyginni“
Benedetti hafði áður sagt, að
Olivetti hefði aldrei komið nærri
mútugreiðslum en á sunnudag
kvaðst hann sjálfur mundu axla
alla ábyrgð á þeim. Hann fór líka
hörðum orðum um þá stjórnmála-
flokka, sem ráðið hafa á Ítalíu í
áratugi.
„Ég gat aldrei sætt mig við
starfsaðferðir stjómmálamann-
anna, sem beittu valdi sínu, eink-
um síðustu 10-15 árin, til að þjóna
lyginni og til að halda öllu efna-
hagslífinu í gíslingu," sagði hann.
Fékk fangelsisdóm í fyrra
De Benedetti vakti fyrst á sér
athyglí 1978 þegar hann tók við
Olivetti, sem þá var illa statt fyrir-
tæki í ritvélaframleiðslu, en á
nokkrum árum tókst honum að
gera það að stærsta framleiðanda
ýmiss konar skrifstofubúnaðar í
Evrópu. Á síðustu árum hefur þó
slegið í bakseglin og fyrirtækið
tapað miklu fé. Á síðasta ári var
Benedetti svo dæmdur í rúmlega
sex ára fangelsi vegna gjaldþrots
Banco Ambrosiano, banka, sem
tengdist Páfagarði, en hann var
varaforseti hans í stuttan tíma.
Áfrýjaði hann dóminum og bíður
þess, að málið verði tekið fyrir.
Reuter
CARLO De Benedetti.
Meint samtöl
Karls og Díönu
Voru upp-
tökumar
falsaðar?
London. Reuter.
BRESKA dagblaðið The Times
sagði í gær að verulegur vafi virt-
ist leika á því hvort að fréttir
ýmissa æsifréttablaða í síðustu
viku um nýjar upptökur af meint-
um samtölum konungsfjölskyld-
unnar hefðu byggt á nægilega
traustum grunni. Það var blaðið
Sun sem reið á vaðið með fréttir
af upptökunum, en það er gefið
út af sömu samsteypu og Times.
í frétt Times
segir að „sumar
heimildir hermi“ að
það hafi verið
spaugari að nafni
Joe Flynn, sem hafi
staðið að baki þess-
um fréttum. Þá
hafi maður að nafni
Rocky Ryan, sem
þekktur er fyrir að
útvega æsifrétta-
blöðum vafasamar
„einkafréttir",
hringt í blaðið og
sagst bera ábyrgð-
ina.
Blaðið Observer birti einnig um
helgina niðurstöður rannsóknar
þekkts sérfræðings á upptökunum
sem benda til að þær séu falsaðar.
Embættismenn konungsfjölskyld-
unnar, ráðherrar og jafnvel Karl
Bretaprins sjálfur hafa vísað því al-
gjörlega á bug að samtölin, sem
upptökurnar eiga að vera af, hafi
átt sér stað. Blaðamenn og ritstjórar
æsifréttablaðanna segja fréttirnar
hins vegar vera sannar.
Heimildir innan Buckinghamhallar
sögðu um helgina að Karl Bretaprins
og Díana prinsessa hefðu ekki verið
saman þennan dag og að hin meinta
upptaka væri „aðhlátursefni". Þá var
sagt að Karli Bretaprinsi líkaði það
mjög illa að vera leiksoppur í baráttu
æsifréttablaða um lesendur.
Bretadrottning næst
Fréttaflutningur af málefnum
konungsfjölskyldunnar heldur hins
vegar áfram og braut blaðið Sunday
Mirror um helgina fyrst allra blaða
þá óskrifuðu reglu að ekki séu sagð-
ar fréttir af einkalífi Elísabetar
Bretadrottningar. Sagði blaðið í frétt
að 45 ára hjónaband hennar og
Filippusar prins hefði verið ástar-
laust.
Bandarískur dómari úrskurðar að sígarettur séu hættulegar
Varnir tóbaksfram-
leiðenda að bresta?
New York. The Daily Telegraph.
EUGENE Bogen, dómari í bandarísku borginni Greenville í Miss-
issippi, hefur úrskurðað að sígarettur séu, lagalega séð, „gallaðar"
vegna þess að þær geti valdið sjúkdómum hjá neytendum þeirra.
Fjölmargir Bandaríkjamenn hafa höfðað skaðabótamál gegn tób-
aksframleiðendum vegna meintar veikinda og dauðsfalla af völdum
framleiðslu fyrirtækjanna og er því talið að úrskurður Bogens, sem
tengist fyrstu vitnaleiðslum i slíku máli, geti haft mikil áhrif fari
svo að hann verði talinn gilda í málinu og dómsyfirvöld í öðrum
sambandsríkjum landsins telji hann hafa fordæmisgildi.
Yfírheyrslumar eru undanfari áhættu með því að neyta vörunnar
máls ættingja Andersons Smiths
sem lést 63 ára að aldri og hafði
þá reykt að jafnaði 60 Pall Mall-
sígerettur á dag frá því snemma
á fímmta áratugnum. „Sígarettur
eru hættulegasta framleiðsluvara
sem seld er með löglegum hætti f
landinu,“ sagði Bogen dómari.
Vöm tóbaksfyrirtækjanna hefur
verið sú að neytandi taki sjálfur
en á sígarettupökkum er viðvörun
þar sem segir að varan geti valdið
heilsutjóni. Neytandinn hljóti því
að minnsta kosti að bera hluta
ábyrgðarinnar. Ennfremur full-
yrða lögfræðingar tóbaksfyrir-
tælq'anna að ekki hafí tekist að
sanna með óyggjandi hætti skað-
semi vörunnar en sígarettur eru
sagðar valda krabbameini, lungna-
þembu og hjartakvillum. Fram til
þessa hafa bandarískir dómstólar
talið þessar roksemdir gildar.
Misnotkun á sígarettum
Eftir niðurstöðu Bogens, sem
þegar var áfrýjað, verða talsmenn
American Brands-fyrirtækisins,
sem framleiðir Pall Mall, nú að
sanna að Smith hafí tekið „sérstak-
lega mikla áhættu" er hann ákvað
að byija að reykja. Ætli þeir sér
að fá dómara til að úrskurða að
Smith hafi að hluta til sjálfur graf-
ið sér gröf verða lögfræðingar fyr-
irtækisins að sýna fram á að Smith
hafí misnotað vöruna eða á ein-
hvern hátt notað hana á óeðlilegan
hátt.