Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1993 Riss við Sólarljóð Myndlist Bragi Asgeirsson Það ætti að vera auðvelt að færa rök að því, að það er ekki einungis landið sem er óþrjótandi náma myndefnis heldur einnig sögumar, og þar á meðal forn kveðskapur og þá ekki síst Sól- arljóð og eddukvæðin. Þetta kemur ekki almennu mati á upplifun sjónreynslunnar né inntaki kvæðanna par við, heldur er það einmitt hlutverk listamannsins, að nálgast gömul sannindi frá nýjum hliðum. Bæta við sinni skapandi kennd og óvæntri og djúpri lifun. Ýmsir hafa ráðist í að mynd- lýsa fomsögurnar, goðafræðina og kveðskapinn og farnast það misvel, en fáir hafa hins vegar lagt út í að gera það hreint hug- lægt, eða öllu réttara táknrænt, eins og myndlistarkonan Val- gerður Bergsdóttir. s Undanfarið hefur hún verið að glíma við texta Sólarljóða og má sjá afraksturin í Listmuna- húsinu í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu fram til 22. maí. Valgerður er gefin fyrir stór fomi í listrænum athöfnum, eins og við sáum á sýningu hennar í listhúsinu „Svart á hvítu“ fyrir nokkram áram. Þar'lét hún skap- gerðina leika lausum hala um myndflötinn og rissin voru í senn kröftug og kynngimögnuð. Má telja að í þeim myndum hafi hún verið að kanna möguleika riss- blýsins og þá framlenginu sálar- innar, sem margur álítur að hin teiknandi hendi sé. Stóra formin eru líka allsráð- andi á sýningu Valgerðar í List- munahúsinu, og þó teikningam- ar séu einungis ellefu fylla þær út rýmið og fleiri myndir hefðu einungis raskað heildarmynd- inni. Listakonan telst þannig ekki rög við að ráðast á garðinn þar sem hann er hæstur, og maður skynjar um leið sterk djúplæg átök við viðfangsefnin. En fyrir utan stærðirnar hafa rissin í dag lítið sameiginlegt með því sem við höfum vanist frá hendi Valgerðar á undan- förnum árum. Annars vegar eru viðkvæmar teikningar í svart/hvítu, sem um sumt virka eins og felumyndir eða dulur og óræður boðskapur úr fortíðinni. Hins vegar táknrænar og ná- kvæmt uppbyggðar vísanir í kerfisbundinni hrynjandi, þar sem heildarmyndin styðst við almenn frumform og getur jafn- vel verið sótt í goðafræðina og kenningar vísindamanna um táknmál launsagna fornaldar. Um er að ræða nákvæmt út- færð heildarform, sem era þó byggð upp af ótal samsvarandi einingum og útfærslum þannig, að hún getur í senn virst óræð launsögn sem markviss blæ- brigðarík myndbygging. Af svart-hvítu teikningunum þótti mér mynd nr. 9 skilvirkust og heillegust í útfærslu. Hún er gerð við erindið: „Sólar hjört/ leit ég sunnan fara/ hann teymdu tveir saman;/ fætur hans/ stóðu foldu á,/ en tóku horn til himins. Erfitt er að gera upp við sig hvaða mynd í lit orki sterkast og sennilega á maður alls ekki að gera það, heldur njóta hverrar fyrir sig eins og hún kemur fyr- ir sjónir og boðskapar mynd- málsins. En mig langar að benda sérstaklega á mynd nr. 6 við erindið; „Sól ég sá,/ sanna dag- stjörnu,/ drúpa dynheimum í;/ en Heljar grind/ heyrðag á ann- an veg/ þjóta þunglega. Hér er listakonan að nálgast þá kynngi, sem er aðal risslistar- innár og um leið er einhver for- tíðarblær yfir útfærslunni sem hrífur. Jafn hnitmiðaðar sýningar á rissum eru fátíðar í íslenzkri sýningarflóru og ber að virða það og meta og þakka listakonunni og listhúsinu með virktum. 011 Kfl 01 07fl L^RUS Þ' VALDIMARSSON framkvæmoastjori L I IOU'tlw/U KRISTINN SIGURJONSSON, HRL. loggiltur fasteignasali Til sýnis og sölu meðal annarra eigna; Fyrir smið eða laghentan efri hæð 4ra herb. um 100 fm í þríbhúsi v. Miklubraut. Sérhiti. Tvenn- ar svalir. Nýl. gler. Mikið rými fylgir í risi. Gott verð. Á frábæru verði 3ja og 4ra herb. íb. m.a. við Stóragerði, Njálsgötu, Kleppsveg, Hverf- isgötu. Nánari uppl. aðeins á skrifst. Neðst við Hraunbæ Á söluskrá óskast 3ja herb. íb. á 1. eða 2. hæð. Skipti mögul. á 2ja herb. góðri íb. ofarl. v.' Hraunbæ. Helst við Smiðju- eða Skemmuveg Á söluskrá óskast gott atvhúsnæði f. vélaverkstæði. Æskil. stærð 200 fm. Lofthæð 3,5 m. Traustur kaupandi, góðar greiðslur. ____________ • • • Húseign óskast með tveimur íbúðum. Traustur kaupandi. Opið á laúgardaginn. ALMENNA FASTEIGNASAIAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370 Viltu kaupa þér atvinnu? Útgáfa á vasabókum o.þ.h. 50% eignarhluti í ræstingarfyrirtæki. Framköllunarfyrirtæki með Kodakvél. Sjálfsalar fyrir sælgæti og leikföng. Pöntunarlisti með fallegum vörum. Pizzugerð - borðbúnaðarleiga. Auglýsingastofa vel þekkt. Gömul og þekkt bókaþúð - gott verð. Hverfisverslun með ritföng, leikföng og garn. Sportvöruverslun við Laugaveginn. Hárgreiðslustofa í Keflavík. Dansstúdíó með allri aðstöðu. 50% eignarhluti í sólbaðsstofu. Blóm- og gjafavöruverslun. Bjórkrá með nýju karaoke-söngkerfi. Kaffi- og matsölustaður. Ódýr húsaleiga. Úrval af skyndibitastöðum. Myndbandaleigur með sælgætissölu. Ýmsar sjoppur. Velta 2,0 millj. - 3,5 millj. 4-5 millj. F.YRIRTÆKIASALAN SUÐURVE R I SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. Jóhanna Bogadóttir ________Myndlist Eiríkur Þorláksson í Listasafni ASÍ við Grensás- veg stendur nú yfír sýning á málverkum listakonunnar Jó- hönnu Bogadóttur, og er þar um að ræða rúmlega tuttugu mál- verk, flest unnin með akryl á striga, sem listakonan hefur unnið á síðustu þremur árum; einnig eru á sýningunni nokkrar minni olíukrítarmyndir. Jóhanna er ein af okkar þekktari myndlistarkonum, og á þegar að baki litríkan feril. Hún stundaði listnám m.a. í París og Stokkhólmi, og hefur haldið Qölda einkasýninga á íslandi og víða um lönd, t.d. í Svíþjóð, Finn- landi, Danmörku og Hollandi; hún hefur átt myndir á samsýn- ingum enn víðar, og verk hennar er að fínna í ýmsum listasöfnum á Norðurlöndunum og í Nútíma- listasafninu í New York, svo dæmi séu tekin. A sýningunni hér eru mál- verkin mest áberandi, en Jó- hanna hefur ekki síður notfært sér aðra miðla, t.d. grafík, og náð ágætum árangri á þeim svið- um. Þó má merkja hér, að hin næma tilfinning hennar fyrir gildi litanna og birtu nýtur sín einna best í málverkinu. Sem fyrr vísa heiti verkanna til nátt- úrunnar, ljósbrigða hennar og framkrafta, en þær tilvísanir eru aðeins til leiðbeiningar; mynd- irnar byggjast sem fyrr á kröft- ugri pensilskrift og litaspili, sem verður sífellt markvissara í hreyfingu og uppbyggingu. Birtan gegnir mikilvægu hlut- verki í verkum Jóhönnu. Lista- konan málar fremur þunnt með akryllitunum, þannig að jafnvel grillir í hvítan strigann á stöku stað; þunnir litirnir hleypa því Jóhanna Bogadóttir: í upphafi. mikilli birtu í gegnum sig, sem fyrir vikið kemur ekki síður að innan en utan í mörgum verk- anna; í þessu sambandi má benda á „Tilvera undir sólu“ (nr. 3) og „Ljósið 11“ (nr. 15), en í þeirri síðarnefndu vinna sterkir gulir og bláir litir vel saman í þessum tilgangi. í málverkunum má greina að myndbygging og hreyfing í flet- inum er að verða markvissari hluti verksins en oft áður hjá listakonunni. Þetta má glögg- lega sjá í verkum eins og „Gró- andi“ (nr. 5), þar sem grænir litir hríslast upp eftir fletinum á lifandi hátt, en dæmi um ákveðnari myndbyggingu má sjá í „Saga“ (nr. 19) og einkum „í upphafí“ (nr. 11), sem er sterkt verk og sýnir vel hversu litasam- setning Jóhönnu getur verið vel unnin. Expressionisminn hefur verið ráðandi afl í málverki tuttugustu aldar, og flestir núlifandi lista- menn byggja á einhvern hátt á 1990. því frelsi, sem sá tjáningarmáti hefur skapað á öldinni. Það hef- ur verið bent á að Jóhanna vísar í verkum sínum vissulega til þessarar hefðar, en hefur um leið náð að móta sína eigin leið i listinni og komið henni til stöð- ugt meiri þroska. í verkum henn- ar nú má jafnvel finna til ákveð- ins skyldleika við þau vanmetnu verk sem Claude Monet vann út frá garðinum góða og tjörn- inni í Giverny, þegar hann var orðinn háaldraður, en var þrátt fyrir það sívökull og skapandi listamaður. Það er hin kröftuga pensilskrift og uppbygging litar- ins, sem ýtir undir þessa samlík- ingu. Hér er á ferðinni góð sýning frá hendi listakonu, sem virðist stöðugut vera að eflast. Sýning Jóhönnu Bogadóttur í Listasafni ASÍ við Grensásveg stendur til sunnudagsins 23. maí, og eru listunnendur hvattir til að líta inn. STUDENTAFAGNAÐUR VÍ Stúdentafagnaður Stúdentasambands VÍ verður haldinn föstudaginn 21. maí í Átthagasal Ilótels Sögu og hefst með borðhaldi kl. 19.30. Aðgöngumiðar fást á skrifstofu Verzlunarskóla íslands og við innganginn. Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku í borðhald- inu til fulltrúa viðkomandi afmælisárgangs fyr- ir föstudaginn 21. maí.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.