Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1993 3
Átfta núll
fyrir þig
Með þjónustunúmerum Pósts og síma býðst símnotendum enn meiri þjónusta
auk sjálfvirkrar síma- og farsímaþjónustu.
Þú getur fengið aðstoð við langlínusímtöl
(02 getur þú pantað símtöl innanlands og komið á símafundi á landsvísu þar sem allt að 12
manns geta verið með, hvar sem er á landinu. ( 02 er líka vakningarþjónusta fyrir þá sem eru
ekki tengdir stafrænum símstöðvum. í 02 er opið allan sólarhringinn.
Hvaða símanúmer viltu vita?
Þú færð upplýsingar um síma-, farsíma- og faxnúmer í 03 og einnig nöfn og heimilisföng
þeirra sem eru með skráðan síma. f 03 er opið frá kl. 08-22 alla daga.
Hvað er rétt klukka?
Þú getur fengið að vita hvað klukkan er, nákvæmalega, í 04. Það er opið allan
sólarhringinn. .
Er síminn bilaður?
( 05 ertekið á móti bilanatilkynningum allan sólarhringinn fyrir 91-svæðið. Upplýsingar
um bilanaþjónustu annarra svæða finnur þú á upphafssíðu viðkomandi svæða í
símaskránni.
Viltu senda skeyti?
f 06 er móttaka simskeyta og þar er hægt að senda almenn skeyti, hraðskeyti til þéttbýlissvæða
innanlands, skeyti til skipa, heillaskeyti eða samúðarskeyti.. Opið allan sólarhringinn.
Síminn sér um telexþjónustu fyrir þig
f 07 er þjónusta fyrir þá símnotendur, einstaklinga eða fyrirtæki, sem þurfa að senda og taka á
móti telexi. Til að þú getir nýtt þér þessa þjónustu þarftu að gerast áskrifandi að
simatelexþjónustu Pósts og síma og þá færðu sérstakt telexnúmer og símnefni. Þú getur hringt
allan sólarhringinn í 07 og lesið inn texta sem á að koma til viðtakanda. Upplýsingar um
símskeyti, telex og telexnúmer færðu í síma 689011.
Vantar þig upplýsingar um símanúmer í útlöndum?
í 08 færðu upplýsingar um erlend síma- og faxnúmer allan sólarhringinn.
Starfsfólk 08 veit meira en þig grunar um simanúmer erlendis.
09
Viltu panta símtal til útlanda?
Þú getur hringt í 09 og pantað símtöl til útlanda allan sólarhringinn og einnig
komið á símafundum við útlönd.
PÓSTUR OG SÍMI
GOTT FÓLK / SlA