Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1993 Endurgreiða vsk. til að losna við rauðu bílnúmerin FRÁ því fyrirtækjum var gert að sérmerkja svokallaða virðisauka- skattsbíla með rauðum númeraplötum hefur nokkuð borið á því að menn hafi greitt til baka virðisaukaskattinn sem þeir fengu endur- greiddan þegar þeir keyptu bílana. Bera menn ýmist við breyttri notkun bílanna eða að þeir kæri sig ekki um sérmerkingu þeirra. Ekki er óalgengt að greiðslur þessar nemi 150-250 þúsund kr. á bíl. 48.000 götuljós ALLS eru 48.527 götuljósa- staurar á landinu, samkvæmt tölum frá Sambandi íslenzkra rafveitna, sem lagðar voru fram á aðalfundi sambandsins í gær. Þar kemur einnig fram að jarð- og sæstrengir rafveitnanna eru samtals 4.414 kílómetrar að lengd og loftlínumar eru sam- tals 10.027 kílómetrar. Rafveiturnar seldu lands- mönnum rafmagn fyrir rétt rúma fimmtán milljarða króna í fyrra, eða 15.005 milljónir. Selt rafmagn var samtals 5.973.860 megavattstundir. Á síðasta ári voru settar reglur um sérmerkingu bíla sem keyptir eru til notkunar í atvinnurekstri og viðkomandi fyrirtæki fengu að kaupa án virðisaukaskatts. Fyrir- tækin skuldbinda sig til að afhenda bílana ekki til einkanotkunar eig- enda eða starfsmanna. Við athug- anir skattyfirvalda hefur nokkuð borið á mistnotkun þessa, það kom meðal annars fram við skyndikönn- un um verslunarmannahelgina í fyrra. Úttekt eftir l.júlí Hinn 1. júlí næstkomandi eiga allir vsk. bílar að vera komnir með rauð númeraspjöld. Indriði H. Þor- láksson, skrifstofustjóri í fjármála- ráðuneytinu, sagði að þá yrði gerð sérstök úttekt á þessum málum. Hann sagði einnig að í framtíðinni yrði auðveldara að fylgjast með því hvort skilyrði vsk. bílanna væru virt. Morgunblaðið/Sverrir Kjaraviðræður hefjast FORYSTUMENN Alþýðusambandsins og Vinnuveitendasambandsins samþykktu að hefja viðræður um gerð kjarasamninga á fundi hjá ríkissáttasemjara í gær. Viðræður um heildarkjarasamninga að hefjast á ný Reynt að ná sem víð- tækustu sainkoniulagi GUÐLAUGUR Þorvaldsson ríkis- sáttasemjari hefur boðað til form- legs samningafundar klukkan 13 á miðvikudag með stóru samn- inganefnd Alþýðusambandsins og samninganefnd Vinnuveitenda- sambandsins. Markmiðið með Landbúnaðarráðherra segir nóg fuglakjöt í landinu Hagkaup fær ekkí að flytja inn kalkún fundinum er að reyna að ná sem víðtækustu samkomulagi um heildarkjarasamning, með hlið- sjón af yfirlýsingu ríkisstjórnar- innar sem gefin var í síðasta mánuði, að sögn Guðlaugs. Þetta varð niðurstaða um sex klukkustunda langs fundar sjö manna samninganefndar ASÍ og samningaráðs VSÍ hjá ríkissátta- semjara í gær. Stefnt er að gerð samninga til langs tíma og felur samkomulagið sem náðist í gær í sér að VSÍ hefur fallið frá skilyrðum um að öll aðildarfélög ASÍ standi að viðræðunum. Óvíst hvort öll félög verða með Benedikt Davíðsson forseti ASI sagði í gærkvöldi að ekki lægi fyrir hvort öll aðildarfélögin kæmu að þessum viðræðum og eins væri eftir að ganga úr skugga um hvort yfir- lýsing ríkisstjórnarinnar stæði óbreytt. Þótt ákveðið hefði verið að hefja vinnuna á ný hefði enn ekki orðið mikil breyting á stöðu kjara- málanna. Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, sagði að hvatn- ing ríkisstjórnarinnar um að samn- ingar yrðu þrautreyndir á þessum grundvelli hefði verið mjög skýr og því teldu vinnuveitendur ekki fært að láta bijóta á afstöðu þeirra einna. „Ef ríkisstjórnin er reiðubúin til að grípa til víðtækra millifærslna og ráðstafana hlýtur það að verða henn- ar að meta hvenær það hefur leitt til nægjanlega víðtækrar samstöðu um lyktir kjaramálanna til að það sé réttlætanlegt," sagði hann. HALLDÓR Blöndal landbúnaðarráðherra segist ekki ætla að verða við ósk Hagkaups um að fá að flytja inn soðinn kalkún til að selja í verzlunum fyrirtækisins. Hagkaup sótti um að fá að flytja inn kalkún fyrir páskana, og fékk synjun. Umsóknin var endurnýjuð í gær en landbúnaðarráðherra segir nóg til af fuglakjöti í landinu. Halldór Blöndal sagði að Hag- kaupsmenn vísuðu til þess í umsókn sinni að í búvörulögum væri kveðið á um að óheimilt væri að flytja inn kjöt ef framleiðsla væri næg innan- lands. „Það er auðvitað ljóst að þessi lagagrein og framkvæmd hennar er skýr. Alþingi hefur ekki gert ráð fyrir því að til innflutnings kæmi ef nægt framboð væri á kjöti hér innan- lands, hvort sem er fuglakjöt, svína- kjöt, nautakjöt eða lambakjöt," sagði Halldór. Ekki allar kjöttegundir veraldar Hann sagði að nóg framboð væri af fuglakjöti hér innanlands. Honum væri ekki fullkomlega kunnugt hvort nóg væri til af kalkún, en ekki væri heldur til dádýrakjöt, svo dæmi væri nefnt. „Það eru auðvitað ekki til all- ar kjöttegundir veraldar hér á landi og tilgangur lagagreinarinnar var ekki að reyna að tryggja það,“ sagði Halldór. „Hins vegar er landbúnað- urinn nú að búa sig undir sam- keppni erlendis frá og það er fullt samkomulag um það innan ríkis- stjómarinnar að hann skuli fá svig- rúm til þess, eins og fram kom í frumvarpinu til breytinga á búvöru- lögiim, sem ég lagði fram á vorþing- inu.“ Framleiðsluráð landbúnaðarins er umsagnaraðili um innflutningsleyfi fyrir Iandbúnaðarafurðir. Jón As- bergsson, framkvæmdastjóri Hag- kaups, segir að sér sé kunnugt um að framleiðsluráðið hafi í bréfi til ráðherra sagt að ekki skyldi leyfa innflutninginn nema leggja verðjöfn- unargjald á kalkúninn. „Þeir útilok- uðu því ekki innflutning. Lögin eru alveg opin fyrir því að flytja inn vöruna, ef innlend framleiðsla annar ekki eftirspurn. Kalkúnakjöt er sannanlega ekki til, það er sann- anlega eftirspurn eftir því og þar með er ekki hægt að meina okkur með neinum rökum að flytja það inn. Hins vegar er landbúnaðarráð- herrann eflaust í því hlutverki að gæta hagsmuna bændastéttarinnar og telur sig verða að gera það með oddi og egg. Við höfum ekki fengið rökstuðning fyrir þessari synjun,“ sagði Jón. Þurftu 1.300 fugla - fengu 15 Hann sagði að kalkúnn væri að- eins ræktaður fyrir jólin hér á landi. Fyrir síðustu jól hefði Hagkaup selt um 1.300 kalkúna. Fyrirtækið hefði talið grundvöll fyrir að selja álíka mikið fyrir páskana, en þá hefðu aðeins 15 kalkúnar verið fáanlegir á innanlandsmarkaði. „Það er útúr- snúningur að segja að nóg fuglakjöt sé í landinu. Fólk leggur ekki að jöfnu kalkún og kjúklinga eða ijúþ- ur,“ sagði Jón. Stóra leikhúsið í Gautaborg* í Svíþjóð Garðar Cortes hættir sem listrænn stjórnandi Gautaborg. Frá Svcrri Guðmundssyni, GARÐAR Cortes hættir sem listrænn stjórnandi Stóra leik- hússins í Gautaborg og verður ráðgjafi í listrænni deild leik- hússins. Þessi ákvörðun, sem tekin var í samkomulagi við alla aðila leik- hússins, samkvæmt fréttatil- kynningu frá Stóra leikhúsinu, tekur gildi nú þegar og gildir til lokasamningstíma Garðars, þ.e.a.s. til 1995. Mikil óánægja hefúr verið með störf Garðars Cortes meðal starfsmanna leik- hússins og hafa þeir krafist af- sagnar hans. Óánægjan hefur fyrst og fréttaritara Morgunblaðsins. fremst snúist um listræna stjómun og framtíðaráform um efnisval þegar Stóra leikhúsið flytur starfsemi sína í nýtt húsnæði 1994. í tilkynn- ingu leikhússins er lofað endur- skipulagningu á vinnutilhögun leikhússins en ekki er nánar til- tekið í hvaða formi hún verður. Garðar Cortes er staddur á íslandi, en ekki náðist í hann í gærkvöldi. Landpóstar Rætt við Sigurgeir Jónatansson sem fékk fimm krónur fyrir hverja ferð 22 Vinnuslys sjómanna Helmingur áhafnar togara slasað- ist á einu ári 24 Eigandi Body Shop______________ Náttúruefni á Isiandi og óþrjótandi möguleikar, segir ein n'kasta kona heims, Anita Roddick 28 Leiðari________________________ Fækka verður vinnuslysum á sjó 28 Aéhaldsadgen&ir bítni ekkí á íþróttum ? bæt&EVil ■ ..... sSssSbSSWi x v : p:j£ f íþróttir ► Rannsókn um gíldi íþrótta - KR spáð íslands- meistaratitlinum í knatt- spymu - Unglingalandslið í körfuknattleik í sviðsljósinu. Tæki sem mæla veður og flóð sett upp í Hornafjarðarósi Fá sömu upplýsingar og flugmenn áður en róið er VITA- og hafnamálaskrifstofan er að láta setja upp tæki til að mæla vind og flóðhæð í Hornafjarðarósi til að auka öryggi þeirra sem fara um innsiglinguna til Hafnar. Munu sjómenn sem eru að halda í róður eða eru á Ieið til hafnar geta fengið hliðstæðar upp- lýsingar um skilyrði í ósnum og flugmenn fá um háloftin fyrir flug- tak og lendingu. Áformað er að setja svipuð tæki upp í haust við innsiglinguna til Grindavíkur. „Innsigling til þessara staða er hættuleg. Því skyldu sjómennimir ekki fá sömu upplýsingar um veður og aðrar aðstæður og flugmenn fá þegar þeir ákveða flugtak og lend- ingu?“ sagði Gísli Viggósson, for- stöðumaður rannsóknardeildar Vita- og hafnamálaskrifstofunnar. Þar er verið að rannsaka áhrif fyrirhugaðra framkvæmda sem ætlað er að bæta innsiglinguna til Hafnar. Lausn þessa vandamáls er talin það erfíð og jafnframt áhugaverð að boðað hefur verið til alþjóðlegrar ráðstefnu á Höfn á næsta ári, þar sem aðalá- hersla verður lögð á þetta mál. Eykur öryggid Ólafur Einir Einarsson, hafnsögu- maður á Höfn, sagði að þessar upp- lysingar myndu auka öryggi sjófar- enda. Töluverðu gæti munað á veðri í sveitinni, þar sem veðurathuganir væru gerðar fyrir héraðið, og á veðr- inu í ósnum. Nú myndu hafnsögu- mennirnir fá nákvæmar upplýsingar um stöðuna og það hjálpaði þeim að ákveða hvort óhætt væri að stefna skipum í ósinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.